Skessuhorn - 03.02.2000, Side 15
jntSSUIHi.^
FIMMTUDAGUR 3. FEBRUAR 2000
15
Stórtap í Gúrkubænum
Hamar - ÍA: 91-54 Nr Nafn Mín HF STO STIG STJÖRNUR
4 Brynjar Sigurðsson 30 1 0 7
5 Reid Beckett 21 5 1 18 ***
Skagamenn fengu heldur hraklega útreið er 6 Chris Horrock 34 5 0 12 **
þeir sóttu Hamar heim í Hveragerði síðastlið- 7 Sveinbjörn Asgeirss. 13 2 0 0 *
inn fimmtudag. Heimaménn byrjuðu af krafti 9 Erlendur Þ. Ottesen 19 1 0 3 *
og tóku leikinn strax í sínar hendur og Skaga- 10 Elías J. Guðjónsson 19 2 1 2 *
menn náðu sér aldrei á strik. Bestir í Hði IA 12 Halldór B. Jóhanness. 8 2 2 0 *
voru þeir Beckett og Ægir Jónsson. 14 Brynjar K. Sigurðss. 23 5 0 3 *
15 Ægir H. Jónsson 33 9 1 9 ***
Barátta í Hólminum
Það var mikil spenna í Hólminum þegar heimamenn
fengu Stólana í heiriisókn síðastliðinn fimmtudag.
Snæfellingar byrjuðu betur og höfðu yfirhöndina í fyrri
hálfleik en í þeim síðari var jafnræði með liðunum. Það
var síðan Kristinn Friðriksson sem gerði út um leikinn
með góðum spretti á síðustu mínútunum og Snæfell-
ingar máttu sitja eftir með sárt ennið.
Stig Snæfells:
Aadonis Pmonis 23
Kim Lewis 20
Rúnar Sævarsson 10
Jón Þór Eyþórsson 9
Pálmi Sigurgeirsson 8
Skallagrítnur - UMFG: 87-93
Skallagrímsmenn byrjuðu vel gegn Grindvíking-
um í Borgamesi síðasdiðinn sunnudag. Skallarnir
gengu þó ekki heilir til skógar þar sem Spánverjinn
í liðinu þurftí að yfirgefa völlinn í byrjun leiks vegna
meiðsla. Þá nefbrotnaði Tómas Holton þeirra
sterkasti maður í leikslok. Grindvíkingar náðu yfir-
höndinni um miðjan leikinn en þá tóku heimamenn
sig á og leikurinn var í járnum allt til loka er Grind-
víkingar náðu að landa sigrinum.
Nr Nafit Mín HF STOSTIG STJORNUR
5 Hafþór I. Gunnars 17 4 1 7 **
6 Ari Gunnarsson 22 1 0 9 ***
9 Hlynur Bæringsson 36 8 2 18 **
12 Birgir Mikaelsson 25 2 2 9 **
13 Tómas Holton 28 5 9 ***
14 Torreyjohn 38 12 4 23 ***
15 Sigmar P. Egilsson 30 2 3 y **
Góður túr á Isafjörð
KFÍ - Skallagrímur: 71-75
Skallagrímsmenn gerðu góða ferð vestur á ísafjörð á
föstudag og endurtóku spennuna frá því í fyrri leiknum
gegn KFI sem var fjórframlengdur. Reyndar var aðeins
ein framlenging fyrir vestan en leikurinn var jafn allan
tímann og spennandi.
Stig Skallagríms
Torrey John 23
Hlynur Bæringsson 19
Hafþór Gunnarsson 12
Birgir Mikaelsson 10
Tómas Holton 8
Ari Gunnarsson 3
Vesturlandsslagur á Akranesi
-Snæfell hafði betur í jöfnum leik
Lið Akranes
Nr. Nafn Stig HFSTO MÍN Stjörnur
4 Brynjar Sigurðsson 5 2 1 31 *
5 Reid W. Beckett 10 2 2 30 **
6 Chris Horrocks 8 6 4 34 ***
7 Sveinbjörn Ásgeirsson 4 3 1 24 *
Erlendur Ottesen - - - 7 -
Elías Guðjónsson 2 2 1 20 *
11 Þórður B. Ágústsson - - - 2 -
12 Halldór B Jóhannesson 2 - - 10 -
14 Brynjar K. Sigurðsson 6 1 - 7 *
15 Ægir H. Jónsson 29 10 1 35 *****
Lið Snæfell
Nr. Nafri Stíg HFSTO MÍN Stjörnur
4 Baldur Þorsteinsson 2 4 1 31 -
5 Kim Lewis 31 7 1 35 *****
6 Adonis Pomonis 10 2 1 37 **
7 Pálmi Sigurgeirsson 7 3 1 33 *
8 Jón Þór Eyþórsson 14 6 - 38 *
9 Gunnar Gestsson - - - - -
10 Ágústjensson 5 1 - 14 -
13 Hilmar Arnórsson - - - - -
14 Jakob Leifsson - - - - -
15 Rúnar Sævarsson 2 4 - 19 -
Einkunn dómara (0 - 10): 1
Skagamenn og Snæfell háðu harða rimmu á
Skipaskaga á sunnudagskvöldið og fóru Snæfell-
ingar stoltir heim með tvö stig en enn og aftur
sátu heimamenn eftir með sárt ennið eftir glens
og grín tveggja manna sem kenna sig við dómara.
Ekki veit ég hvaðan sú skipun kom um að láta IA-
liðið falla niður um deild en sú skipun hefur að
minnsta kosti komist í föðurhús þeirra sem dærna
í Epson-deildinni og hlýða þeir þeirri skipun eft-
ir bestu samvisku og gott betur.
Leikurinn var jafri, spennandi og hin mesta
skemmtun og ekta „nágranna“ slagur. I fyrri hálf-
leik var aldrei neinn marktækur munur á liðunum
og um leið og annað liðið náði smá forskoti sax-
aði hitt liðið strax á. Leikmenn IA héldu Em
Lewis allveg niðri hjá Snæfelli í fyrri hálfleik og
svo fór að staðan í hálfleik var 31-32, gestunum í
vil.
I seinni hálfleik tók áðurnefndur Kim nokkur
Lewis hjá Snæfell leikinn í sínar hendur og hélt
þriggja stiga sýningu fyrir þá áhorfendur sem
voru í húsinu og gerði hann alls fimm slíkar.
Skagamenn voru búnir að missa öll tök á þessum
leikmanni sem lék berserksgang í síðari hálfleik
og gerði nánast allt upp á eigin spýtur. Bæði lið
börðust af krafti og augljóst var að bæði lið ætl-
uðu sér sigur í þessum leik en eitthvað fór barátta
heimamanna í taugarnar á dómurunum og var
villustaðan 19-9 fyrir ÍA undir lok leiksins en þeir
gráu reyndu eitthvað að bæta úr vonlausri dómgæslu
sinni undir lokin en það gekk ekki sem skyldi því það
er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið
ofaní.
Brynjar Karl, leikandi þjálfari Skagamanna, gékk
ekki heill til skógar í þessum leik og munaði um það hjá
heimamönnum. Ægir Jónsson fór mikinn í liði heima-
manna og var þeirra langbesti maður en hjá gestunum
var það Kim Lewis sem fór fyrir sínum mönnum og
Samningar við
hjálparsveitir
Drög að samningum við Björg-
unarfélag Akraness og samningi
um skipun hjálparliðs Almanna-
varna Akraness ásamt viðauka var
lagt fram á bæjarráðsfundi í síðast-
liðinni viku. Að sögn Gísla Gísla-
sonar eru samningarnir tveir, ann-
arsvegar Akraneskaupstaður og
Björgunarfélag Akraness sem er
sameinað björgunarfélag og hins
vegar samningur við Björgunarfé-
lagið og Akranesdeild RKI um
skipan björgunarliðs vegna al-
mannavarna.
“I samstarfssamningi við björg-
unarfélagið er m.a. kveðið á um
styrkveitingar bæjarins til félagsins
til 2004, en þær styrkveitingar eru
m.a. vegna nauðsynlegs búnaðar
félagsins vegna almannavarna. Þá
er kveðið á um tilnefningu félagsins
á tveimur fulltrúum í almannavarn-
arnefrid og um ýmist samstarf bæj-
arins og félagsins. Gera má ráð fyr-
ir að endanlega verði gengið frá
samningunum í lok apríl þegar nýtt
björgunarfélag tekur formlega til
starfa” segir Gísli. “I samningum
um skipan björgunarliðs er fjallað
um að Björgunarfélag Akraness og
Akranesdeild RKI skipi ákveðinn
fjölda manna í björgunarsveit
vegna almannavarna. Samningur-
inn á að taka við af eldri samningi
sem er í gildi.” Segir Gísli Gíslason
bæjarstjóri.
Stærðfræðikeppm
Stærðfræðikeppni Fjölbrauta-
skóla Vesturlands verður haldin
Laugardaginn 19. febrúar næst-
komandi. Samskonar keppni var
haldin í fyrra og þá tóku rúmlega
100 grunnskólanemendur af Vest-
urlandi þátt í henni. Vonast er til að
þátttakan í ár verði enn betri.
Þennan sama dag verður slík kepp-
ni haldin við framhaldsskóla í öðr-
um landshlutum.
Stærðfræðikeppni Fjölbrauta-
skóla Vesturlands er fyrir alla nem-
endur í 8., 9. og 10. bekk grunn-
skóla á Vesturlandi. Hver árgangur
fær sérstök verkefni og sjá stærð-
fræðikennarar við FVA um undir-
búning og framkvæmd keppninnar.
Veitt verða peningaverðlaun fyrir
þrjár bestu lausnir í hverjum ár-
gangi. 1. verðlaun eru 15.000 kr., 2.
verðlaun eru 10.000 kr. og 3. verð-
laun eru 5.000 kr. Búnaðarbanki Is-
lands hf. Akranesi, Sigurður
Agústsson ehf. Stykkishólmi, Skag-
inn hf. Akranesi, Verslunin Einar
Olafsson, Akranesi og Þorgeir &
Ellert hf. Akranesi styrkja keppnina
og gefa verðlaunin.
SB
Borgaríjarðamiótið
Fyrir viku var fyrsta kvöldið í 5
kvölda keppni Opna Borgarfjarðar-
mótsins í bridge. Spilaðar verða alls
11 umferðir og 14 spil í leik. A
mótinu leiða saman hesta sína fé-
lagar í bridgefélögunum í Borgar-
firði, Borgarnesi og Akranesi. Gert
er ráð fyrir að til skiptis verði spil-
að í Félagsbæ í Borgarnesi og í
Logalandi í Borgaríírði. Jafnræði
var með félögunum eftír fyrstu um-
ferð því í þremur efstu sætunum
urðu fulltrúar ffá öllum félögun-
um; Borgfirðingar í fyrsta, Skaga-
menn í öðru sæti og Borgnesingar í
því þriðja. Onnur umferð mótsins
var spiluð í gærkvöldi, eftir að blað-
ið fór í prentun. MM
Hrakfarafaxar
Illa fór fyrir hetjum vorum, Hal-
fextum, í leik gegn smáliðinu
Laugum í Sælingsdal (Leyton Ori-
ent) síðastliðinn laugardag. Leikar
fóru þannig að Laugamenn náðu
tvisvar að böðla leðurhylkinu Ioft-
fyllta á milli stanganna en Halifax-
ar náðu engum árangri á því sviði.
Voru rnenn þó borubrattir fyrir
leik og hreppsneírid Halifax hrepps
sendi meðal annars frá sér þessa til-
kynningu:
Við larfana tökum á taugum.
við tæklum með þaðjyrir aUgum
að hrella þá hauga
°g hálfgerðu drauga
sem lafmóðir komafrá Laugum
Oddviti Halifaxhrepps var
manna bjartsýnastur fyrir leik enda
hafði hann dreymt fyrir hagstæðum
úrslitum. Hann er maður draum-
spakur og hefur gjarnan dreymt
fyrir daglátum og ýmsum stórvið-
burðum í Halifax hreppi. Fannst
honum í draumnum að hann væri
staddur í fjósi sínu að segja kúm
áínum tíðindi af leiknum og orti:
Já, þetta varð fagnaðarfundur
þóttfyndist mér væri' íþeim hundur,
því Sælingapakkið
það sá aldrei markið:
- við lékum þá saman og sundur!
Það var því ekki að undra að úr-
slit leiksins yrðu téðum oddvita sár
vonbrigði og brást hann harkalega
við. Hefur hann étið hatt sinn og
staf, sagt af sér embætti og heitið
því að dreyma aldrei meir. Að
skilnaði hreytti hann út úr sér:
Fagnaðar enginn varð fimdur
fjandinn, nú er í mér bundur
Sælingapakk
sett’oss í hakk
þeir léku okkur saman og sundur
Að öðru leyti var lítið sögulegt
við leikinn annað en að Grámann
Miðskel var spjaldaður fyrir smá-
vægilega hnjaskveitingu. Það er í
öllu falli ljóst að Markús Liljuson
þarf að lumbra duglega á sínum
mönnum fyrir næsta leik.
GE/BMK/BG