Skessuhorn - 19.04.2000, Blaðsíða 5
SSESSííHÖBM
MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2000
5
Afar fróölegt er aö hafa aögang aö
erlendum sjónvarpsstöövum og geta
borið saman viö það sem er á
boðstólum hér af innlendu efni. Ef
dæmi er tekið af dönsku ríkisstöðv-
unum viröist dagskrárgeröarmönn-
um þar ekki vera eins þröngur stakk-
ur sniðinn og starfssystkinum þeirra
hér, hvorki varöandi efnistök né efn-
isval. Þegar danskir þátttagerðar-
menn hafa auk þess úr meira fjár-
magni aö moöa og geta einbeitt sér
lengur að viöfangsefni sínu er Ijóst
aö samanburðurinn veröur óhag-
stæöur.
Efnistökin eru stundum svolítiö
sérstök. Fyrir nokkru var sýnt fram á
í dönskum sjónvarpsþætti aö verö-
samráö var meðal ökukennara á
svæöi þar sem átti aö réttu lagi aö
ríkja samkeppni. Tveir- þrír ökukenn-
arar ákváöu aö bjóöa meirihlutanum
birginn og auglýsa lægra verö. Meiri-
hlutinn ákvaö þá að boöa fulltrúa
minnihlutans á fund til aö snúa hon-
um af villu síns vegar en áöur en full-
trúinn fór á fundinn var í samráöi viö
þáttarstjóra sett á hann falin mynda-
vél sem tók upp allt sem fór fram á
fundinum. Greinilega heyröist á
myndbandinu hvernig nokkrir fulltrú-
ar meirihlutans hótuöu fulltrúa minni-
hlutans öllu illu ef þeir hækkuöu ekki
verðið. Einstaklega áhugavert var aö
sjá viöbrögö sömu fulltrúa meirihlut-
ans þegar umsjónarmaöur þáttarins
sýndi þeim upptökuna af fundinum
og þeir áttu aö skýra ummæli sín á
myndbandinu. Þeir reyndu aö sjálf-
sögöu aö snúa sig út úr málinu en
höföu ekki árangur sem erfiði vegna
þess aö spyrillinn hafði óræk sönn-
unargögn í málinu.
Ekki er ég beinlínis aö mælast til
þess aö slík vinnubrögö séu tekin
upp í íslensku sjónvarpi en Ijóst er aö
hér er farið allt ööruvísu aö. Því miö-
ur er ég þess ekki umkominn aö láta
Stöö 2 njóta fulls sannmælis. Mér
skilst aö þar hafi veriö sýndir vand-
aðir íslenskir efnisflokkar um marg-
víslegt efni en enginn er afruglarinn
aö Stöö 2 á heimili undirritaös þannig
aö þaö mál verður aö liggja milli
hluta.
Æöi oft kemur þaö fyrir hér í sjón-
varpsumræðum, og reýndar umræö-
um í útvarpi líka, um hitamál aö þátt-
takendur eru svo æstir aö áhorfend-
ur eru ruglaðri í ríminu eftir umræö-
urnar en þeir voru áöur. Tilgangur
slíkra umræöna hlýtur aö eiga aö
vera aö varpa Ijósi á viðfangsefnið,
en annaö hvort kunna íslenskir fjöl-
miölamenn ekki nægilega vel til
verka eöa aðferðin sjálf er hreinlega
röng nema hvoru tveggja sé.
Allt of oft snúast slíkar umræður
upp í karp sem hefur ekkert upplýs-
ingagildi og minnir meira á einvígi
fornkappa en rökræöur viti borinna
manna. Því miður gerist þaö líka þótt
viðmælandi sé aöeins einn, aö
hann/hún kemst upp meö aö snúa út
úr spurningum og koma sér hjá því
aö svara.
Fjölmiðlamenn skírskota oft til
hlutverks síns sem boöbera og taka
sér ýmislegt frelsi út á þaö. A móti
eiga neytendur fjölmiöla aö krefjast
þess að fjölmiðlamenn vandi verk sín
og missi aldrei sjónar af þeirri skyldu
sinni aö tryggja réttar og vandaðar
upplýsingar. Slíkar upplýsingar fást
aöeins ef fjölmiðlamenn fylgja eftir
fyrri spurningum sínum meö enn
hnitmiöaöri spurningum og standa
fast á því aö fá skýr svör viö þeim.
íslenskir fjölmiölamenn hafa oft
orðið aö athlægi þegar þeir hafa ætl-
aö sér aö sýna viðmælendum í tvo
heimana og hafa beitt því sem nefna
mætti haröa viðtalstækni. Flún felst í
því aö grípa fram í fyrir viðmæland-
anum og trufla hann á allan hátt og fá
hann til aö mismæla sig eöa tala af
sér.
í slíkum viötölum er hvorki viö-
fangsefninu né viðmælandanum
sýnd tilhlýöileg viröing.
Lars H. Andersen
"Lunddœlingar geta veriö stoltir af uppfœrslu þessari
og víst er að enginn fer svikinn heim af sýningunni"
(Pefrína Ottesen, Skessuhorni)
Aöalhlutverk: Siguröur Halldórsson og Hildur Jósteinsdóttir
Leikstjóri: Halla Margrét Jóhannesdóttir
"Hér hefur tekist svo vel til sem hugsast getur
og vœri vel að þessi sýning sœist af sem flestum"
(Hávar Sigurjónsson, Morgunblaðinu)
"Persóna og leikari runnu saman i eitt;
Sigurður var Jón, að minnsta kosti þessa stund"
(Silja Aðalsteinsdótfir, DV)