Skessuhorn - 28.04.2000, Qupperneq 2
2
FOSTUDAGUR 28. APRIL 2000
Sffll£SSUiiGl£Wi
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgornesi:
Akranesi:
Borgarbraut 49
Suðurgötu 65, 2. hæð
Sími: (Borgarnes og Akrones) 430 2200
Fax: (Borgornes) 430 2201
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. 430 2200
Framkv.stjóri: Magnús Magnússon 852 8598
Ritstjóri og óbm: Gisli Einorsson 852 4098
Internetþjónusto: Bjorki Mór Korlsson 899 2298
Bloðnmenn: Petrino Ottesen, Akronesi 899 7358
Egill Egilsson, Snæfellsnesi 894 5038
íþróttofréttoritori: Jónos Freysson (Jomes Fryer)
Auglýsingor: Guðrún Björk Friðriksdóttir 430 2200
Siljo Allonsdóttir 431 4222
Fjórmól: Sigurbjörg B. Ólafsdótlir 431 4222
Próforkorlestur: Ásthildur Mognúsdóttir og Mognús Mognússon
Umbrot: Skessuhorn / TölVert
Prentun: isofoldorprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 12:00 á
þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrlfenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 800 krónur með vsk. á mánuði verð í lausasölu er 200 kr.
skessuhorn@skessuhorn.is
ritstjori@skessuhorn.is
vefsmidjo@skessuhorn.is
egill@skessuhorn.is
ouglysingor@skessuhorn.is
auglysingar@skessuhorn.is
bokhald@skessuhorn.is
430 2200
Partí
Fátt veitir mér meira yndi í lífinu en að
sækja veislur og úða í mig kræsingum þar til
ég ligg afvelta og ósjálfbjarga úti í horni. I
þessa iðju fara enda allar mínar tómstundir. Q,s|j Einarsson,
Ekki síst nú á vordögum þegar fermingar- ritstjóri.
veisluvertíðin stendur sem hæst.
Þrátt fyrir einlægan áhuga minn á átveislum og gleðskap þá finn
ég varla til minnsm tilhlökkunar vegna stærsta teitis sumarsins sem
haldið verður í túnfætinum á Þingvöllum. Þar á víst að bjóða í partí
í tilefni þess að þúsund ár eru liðin ffá því Þorgeir Ljósvetninga-
goði fékk sér kríublund undir feldi og dreymdi Guð almáttugan.
Ekki má misskilja þessa afstöðu mína vitlaust og brigsla mér um
trúleysi. Því fer fjarri enda er ég alinn upp nánast á kirkjutröppun-
um. Ekki er það heldur svo að ég búist við að veitingarnar verði
numdar við nögl, síður en svo. Mér skilst að það eigi að taka allan
skarann til altaris og bjóða upp á alkhóhólsneitt messuvín og
með'ðí. Eg efa því ekki að mettaðar verði þúsundir á Þingvöllum í
sumar.
Astæðan fyrir mínu áhugaleysi gagnvart Þingvallapartíinu er ein-
faldlega sú að þótt ég sé ákaflega hlynntur óhófi á flestum sviðum
sætti ég mig við þá óumflýjanlegu staðreynd að allt hafi sín tak-
mörk.
Eg hef alls ekkert á móti því að minnast þessara merku tímamóta
með gleðskap Guði til dýrðar. Gjarnan skildi ég að minnsta kosti
mæta í messu af þessu tilefni, jafnvel þótt ég fengi ekkert að éta.
Hinsvegar þykir mér það mjög orka tvímælis að verja milljörðum í
mannvirki sem nýtast á einu mannamóti og síðan aldrei meir. Með-
al annars á að verja einhverjum slatta af milljónum til að rífa burtu
hringtorg í Mosfellsbæ sem þar voru niður sett fyrir nokkrum miss-
erum. Eg græt svo sem ekki þessar þústir því þær hafa þvælst fyrir
mér síðan þær komu þangað. Það er aftur verra að strax að Þing-
vallagleðinni lokinni skal umræddum hringtorgum skilað aftur á
sinn stað og væntanlega gegn gjaldi. Þá á að leggja malbik í kring-
um Þingvallavatn, að minnsta kosti einn hring, og einhverjum of-
aníburði skal slett í Uxahryggjaveg svo hann verði akfær framyfir
helgi en helst ekki meir. Síðast en ekki síst verður náðhúsum dreift
um þjóðgarðinn til að veislugestir þurfi ekki að ganga um í hægð-
um sínum líkt og á lýðveldishátíðinni níutíu og fjegur. Að vísu
verða þau trúlega ekki í sama verðflokki og einkakamar kirkjumála-
ráðherrans en eitthvað hljóta þau að kosta samt.
Það er vissulega gott og blessað að safha öllum Guðslömbum
landsins saman á einn blett í einn dag ef það er Guði þóknanlegt.
Miðað við framfarir í fjarskiptum og upplýsingatækni held ég hins-
vegar að mögulegt sé að koma afmæliskveðjum til Guðs víðar að en
frá Þingvöllum.
An þess að ég hafi beinlínist spurt hann að því þá held ég að
himnafaðirinn og sú fjölskylda hefði verið jafn sátt þótt þessum
milljörðum hefði verið varið til einhverra góðra verka og þá í þeirra
naftii. Enda er það víst hugurinn sem skiptir máli. Ef menn vildu
halda sig við að leggja þessa aura í samgöngumannvirki þá hefði
mátt kasta krónum í að byggja upp heilsársvegi í einni eða tveimur
sveitum. Þá hefðum við sveitamennirnir getað ekið á Guðs vegum
í tilefni affnælisins.
Að öllu öðru ógleymdu er þó mesta hneisan sennilega sú að eft-
ir að hátíðarhaldarar á Þingvöllum höfðu sótt um vínveitingaleyfi
var það dregið til baka sakir nöldurs í kerlingum í Vesturbænum.
Þetta hlýtur að teljast heldur snautlegt fyrir hátíð sem haldin er til
heiðurs þekktasta bruggara mannkynssögunnar, manninum sem
breytti vatni í vín!
Gt'sli Einarsson, á Guðs vegum
Skemmdarverk
á Skaganum
Eitthvað var um skemmdarverk á
Akranesi þessa páskahelgi. Aðfar-
amótt föstudagsins langa vom skilti
veitingastaðarins Hróa Hattar
eyðilögð þar sem gler var brotið í
stöfúm. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem þetta tiltekna skilti er skemmt
og þar sem allar líkur benda til þess
að þetta hafi verið viljaverk spyrja
A fundi fúlltrúaráðs Skólaskrif-
stofu Vesturlands sem haldinn var
föstudaginn 14. apríl s.l. var sam-
þykkt að senda öllum aðildarsveitar-
félögunum bréf þar sem þau em
beðin að taka afstöðu til slita á
byggðarsamlaginu um skrifstofuna.
Þessi ákvörðun kemur í kjölfar úr-
sagnar sveitarfélaga á Snæfellsnesi
úr skrifstofunni og ákvörðunar
Borgarbyggðar um að gera slíkt hið
sama.
Bæjarstjóm Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum síðasdiðinn
fimmmdag að setja á stofh Félags-
og skólaþjónusm Borgarbyggðar.
Þegar fyrir liggur að hvorki Borgar-
Grásleppukarlar og forsvars-
menn Sigurðar Agústssonar ehf
héldu fund á Hótel Stykkishólmi
þann 17. apríl s.l. Tilgangur fund-
arins var að heyra viðbrögð grá-
sleppukarlanna við því verði sem
Sigurður Ágústsson býður. Ljóst er
að verðið hefur farið lækkandi
vegna offramboðs í fyrra því
heimsframboðið hefur þrýst niður
verðinu. Tunnan hefur lækkað úr
Þann 27. apríl síðasdiðinn hófúst
hin árlegu samræmdu próf hjá
nemendum 10. bekkja um allt land.
A fimmrndeginum þreytm krakk-
arnir próf í íslensku en dönskupróf
er tekið á fösmdeginum. Samræmd
Klakkur SH 510 frá Gmndar-
firði lagði af stað á Rekjaneshrygg-
inn síðastliðinn þriðjudag. Veiði-
svæðið er fyrir innan 200 mílurnar.
menn sig hver tílgangurinn sé með
þessum skemmdarverkum. Þeim
sem hlut eiga að máH þykir skemmd
sem þessi afar sár þegar allur metn-
aður er lagður í að hafa eins flnt og
hægt er. Það vom fleiri staðir sem
lentu í klóm skemmdarvarga því úti-
hurð á Landsbankahúsinu við Suð-
urgöm var einnig brotin. BG
byggð, Snæfellsbær, Stykkishólms-
bær, né Eyrarsveit verða aðilar að
skólaskrifstofunni í framtíðinni þyk-
ir mörgum að grundvöllurinn fyrir
rekstri hennar sé brostinn. Akvörð-
un um það er hinsvegar í höndum
þeirra sveitarfélaga sem eftir standa.
Að sögn Stefáns Kalmanssonar
bæjarstjóra Borgarbyggðar er fyrir-
hugað að bjóða nágrannasveitarfé-
lögunum að kaupa þjónusm af Fé-
laga- og skólaþjónustunni og sagði
hann að þegar væri búið að kynna
málið fyrir oddvimm á stóra svæði.
Þess má geta að nú þegar kaupir
Borgarfjarðarsveit félagsþjónustu af
Borgarbyggð. GE
38.000 kr í 34.000 kr. Veiðar dróg-
ust saman á milli árannna '98 og
'99 vegna verðs. Grásleppuvertíðin
hefst þann 10. maí en menn hafa
komið sér saman um að byrja í
byrjun júní. Þetta er gert til að bíða
af sér verstu veður og um leið að
bæta upp lága verðið með betri
veiði. Gráslepputímabilinu lýkur í
lok júní.
próf í stærðfræði og ensku verða
svo eftir helgi. Eflaust hafa krakk-
amir setið við lesmr alla páskana og
vonum við að þau uppskeri eins og
þau hafa sáð.
BG
Aflabrögðin em að glæðast og em
togararnir að fá 2 - 3 tonn á tog-
tíma. Það tekur um tvo sólarhringa
að sigla á miðin. GA
Nýr starfsmaður
Hjörtur Hjartarson hefur
tekið til starfa á auglýsingadeild
Skessuhoms. Hjörmr er búsett-
ur á Akranesi en verður með
starfsaðstöðu bæði á Akranesi
og í Borgarnesi.
Grásleppukarlar
í Kalmansvík
Bæjarráð Akranesbæjar hefur
heimikð niðursetningu verksins
“Gfásleppukarlar í Kalmansvík”
eftir Jón Pémrsson í Kalmansvík.
Bæjarráð hefiir nú falið garð-
yrkjustjóra að finna nákvæma
staðsetningu fyrir verkið með til-
Hti til umfjöUunar umhverfis-
nefúdar um málið og í samráði
við listamanninn, BG
Flugvél nauð-
lenti í Dölunum
Flugvél af gerðinni Cessna C-
152 þurfti á sunnudag að nauð-
lenda á þjóðveginum við Búðar-
dal þegar hún var á leið ffá Isa-
firði til Reykjavíkur. Lendingin
tókst vel ög sluppu tveir menn
sem vom í véHnni án meiðsla.
Vélin varð eldsneytislaus á
leiðinni til Reykjavíkur en bens-
ínafgreiðslu á IsafjarðarflugvelH
var lokað þennan dag. Ekki er þó
vitað hvort sú staðreynd hafi átt
þátt í því að vélin þurfti að nauð-
lenda.
(Bæjarins besta sagði frá)
íslandsbanlá
- FBA í Hólminn?
Á bæjarráðsfundi í Stykkis-
hólmi sem haldinn var 6. apríl
síðastliðinn var lagt til að bæjar-
stjóri, Oli Jón Gunnarsson sendi
Islandsbanka-FBA skriflegt er-
indi með boð um lóð á góðum
stað tii að reka fjármálaþjónustu
fyrir fyrirtæki og einstaklinga,
I sama erindi var bankanum
bent á að í Stykkishólmí sé að-
staða fyrir slíka stafsemi. Bréfið
hefúr þegar verið sent þó enn
hafi engin viðbrögð borist við
því ffá Íslandsbanka-FBA að
SÖgn Óla Jóns Gunnarssonar.
Það vora þrír bæjarráðsmenn
sem lögðu ffam samþykktina og
í viðtaH við Skessuhom, sagði
Aðalsteitm Þorsteinsson, einn af
flutningsmönnum samþykktar-
innar, að menn væra að horfa til
þess að hægt væri að setja upp
einhverskonar útibú, þar sem
ekki væri um að ræða viðskipta-
banka, heldur sem fjármálaþjón-
usta víð fyTÍrtæki og einstak-
Iinga. Islandsbanki-FBA hefði
einmitt þau markmið að hyggja
á landvinninga bæði innanlands
sem og erlendis. Með þessu út-
spili vildu menn auka flórana í
viðskiptum og um leið mannh'fi.
Qli Jón taldi það ekki ólíklegt
að reist yrði nýbvgging, en ýms-
ír möguleikar væru samt inni í
myndinni. Þessi mál væru enn í
mótun og því ekki hægt að segja
meira að svo stöddu. EE
Skólaskrifstofa Vest-
urlands lögð niður?
Grásleppukarlar
í startholunum
Samræmd
próf hefjast
Uthafsveiðin hafin