Skessuhorn - 28.04.2000, Síða 5
SSESS0HÖÍ2KI
FOSTUDAGUR 28. APRIL 2000
5
Sko ekkert Barbídúkkubarnamál!
Ég er svo heppinn að eiga tíu ára gamla
dóttur. Þið kannist við fyrirbærið: Yndisleg hnáta,
alltaf nýþvegin og strokin í bieikum kjól með tík-
arspena og ævinlega með Barbídúkkuna sína í
annarri hendinni en sippubandið í hinni, flissandi
með vinkonum sínum, einhvers staðar útundir
vegg, pískrandi um hvað strákarnir séu frámuna-
legir asnalegir og skítugir ruddar; aldrei nokkurn
tíma skulu þær eyða svo mikið sem einu orði á
þann fáránlega lýð.
Nema hvað hún tíu ára gamla dóttir mín er
reyndar alls ekki svona í hátt. Hún hefur frá frum-
bernsku þvertekið fyrir að láta sjá sig í pilsi eða
kjól, dúkkur hefur hún alltaf fyrirlitið og nú upp á
síðkastið er lítinn mun að sjá á henni og nánustu
vinkonum hennar annars vegar og strákunum á
sama reki hins vegar. Öll ganga þau í víðum
gallabuxum með prjónahúfur ofan í augu og alltof
stórum bolum. Það er satt að segja helst til lítinn
mun á kynjunum að sjá.
Ekki svo að skilja að ég kippi mér neitt upp við
það. Þegar ég var á þessum aldri var líka lítill
munur á útliti kynjanna - stelpurnar voru þá bún-
ar að leggja um tíma á hilluna hinn „kvenlega"
klæðaburð sem fólst í pilsum og kjólum en í stað-
inn vorum við strákarnir allir með sítt stelpuhár.
Og allir undu glaðir við sitt, þá eins og nú.
En ég skal viðurkenna að mér kom nokkuð á
óvart þegar ég var um daginn að spyrja hana
dóttur mína um strákana í bekknum, hvernig þeir
væru og hvort þeir væru eitthvað skemmtilegir. í
mörg ár hafa svörin verið á sömu lund - strákarn-
ir eru ömurlegir og allir hundleiðinlegir. Stutt og
laggott og ekki meir um það að segja. En núna
bar nýrra við. Að vísu var enginn strákur orðinn
„skemmtilegur" og nokkrir voru vissulega ennþá
„ömurlegir" en furðu mörgum var þó lýst með orð-
inu „ágætir". x
Mig rak í rogastans. Var eitthvað að gerast
sem ég hafði misst af? Strákarnir orðnir „ágætir"?
Og ég fór að fylgjast betur með henni dóttur
minni en ég hafði greinilega látið það ógert um
skeið.
Og ég hafði greinilega misst af einhverju.
Þegar ég fór að leggja eyrun við spjalli hennar við
vinkonu sína fór ég að heyra setningar sem ég
skildi hvorki upp né niður í. Það var sko ekkert
Barbídúkkubarnamál þar!
„Tókei er geðveikt rer. Með voterstón breytist
Ívíi í Varpóreon. Maður fær pókeflút hjá mister
Fúdjí í lavender. Mér finnst örþbadjse léttastur,
en Gíóvannf er boss-tím-rokkett.“
Mister Fúdjí? Gíóvanni? Boss-tím-rokkett? í
hverju var hún dóttir mín eiginlega lent? Tíu ára
gömul! Mér leist satt að segja ekki á blikuna og
ennþá síður þegar ég fór að veita því athygli að
hún lét sig gjarnan hverfa klukkan sex á föstu-
dagskvöldum og kom ekki heim fyrr en klukkan
langt gengin tíu. Og hún bara tíu ára! Þegar ég
fór að aðgæta hvert hún fór sá ég að hún lét sig
hverfa inn í yfirgefið frystihús lengst úti á Granda
og þangað streymdu strákar á öllum mögulegum
aldri, allt frá hennar aldri og upp í stútúngstán-
inga - nokkrir voru greinilega komnir yfir tvítugt og
fúlskeggjaðir. í hvaða félagsskap var hún sak-
lausa litla dóttir mín lent?
Þegar ég elti hana á þessar föstudags-
skemmtanir gaf á að líta. Inni í frystihúsinu sat
fjöldinn allur af strákum við borð og spiluðu! Spil-
uðu á spil sem ég kannaðist ekkert við - spil sem
eru með myndum af ýmislegum skrímslum og
hún og vinkona hennar höfðu greinilega verið að
tala um þessi skrímsli þegar þær ræddu um mist-
er Fúdjí og Gíóvanní Boss-tím-rokkett. Ég varp-
aði nú að vísu öndinni léttar yfir því að ekkert
hættulegra hefði verið á ferðinni, en ég skil samt
sem áður næstum ekki neitt í þessu fyrirbrigði.
Fyrirbrigðið heitir Pókemon og ku vera orðið vel
kunnugt meðal krakka á aldrinum 10 og upp úr
en hvað það gengur út á tekst mér enn ekki að
skilja.
Nema hvað hún dóttir mín lifir orðið og hrær-
ist í einhverri einkennilegri veröld sem ég veit
varla hvernig snýr. Og þær vinkonurnar tala
tungumál sem er mér óskiljanlegri en latínan sem
ég trassaði að læra í menntaskóla. En er þetta til
marks um að hún sé að komast til manns - það
þætti mér vænt um að vita. Móðir hennar fór einu
sinni að ná í hana í verslunina sem selur
Pókemon-spilin og aðra bráðnauðsynlega fylgi-
hluti og kom að henni standandi útá miðju gólfi í
stórum hópi slöttungsstráka og býttaði spilum í
erg og gríð - því partur af sjarma Pókemons felst
greinilega í því að maður er sífellt að býtta til að
reyna að fá betri og betri spil. Og hún sem hafði
árum saman ekki litið framan í strák án þess að
ulla á hann og var ekki mikið gefin fyrir að tala við
sér eldra fólk - hún gaf allt í einu rosknum táning-
um með grön ekkert eftir í Pókemon-harkinu.
Á ég sem sagt að fagna þessu? Er þetta
þroskamerki og engu ískyggilegra en þegar kyn-
slóðin á undan mér var að býtta á myndum af Roj
Roggers og Trigger og minnist enn þeirra sælu-
stunda í bókum sínum og bíómyndum? Ég bara
kann þetta ekki því ég og mínir jafnaldrar söfnuð-
um aldrei neinu, býttuðum aldrei og spiluðum
aldrei neitt. Og stelpurnar töluðu aldrei við okkur
strákana. Núna gefa hún dóttir mín og vinkona
hennar strákunum ekkert eftir á þessu sérkenni-
lega sviði, og hvernig á ég sem faðir að bregðast
við? Hrópa húrra? Eða á ég umfram allt að láta
afskiptalaust eða fara kannski sjálfur að læra
Pókemon? Svo ég verði við mælandi? Reyndar
held ég að hún dóttir mín myndi ekki líta á mig
sem neinn aufúsugest í gamla frystihúsinu útá
Granda. Því eins og hún segir sjálf: „Mjú vinnur í
pókemonmúví, en mjútú er samt bestur og kúlað-
astur.“ En hvað á ég þá að gera? Er Pókemon
komið uppí Borgarfjörð? Getur einhver gefið mér
ráð?
Illugi Jökulsson
Ltfeyrissjóður Akraneskaupstaðar
Meginniðurstöður ársreiknings lífeyrissjóðsins
Akraneskaupstaður
Efnahagsreikningur 31.12.1999
Fjárfestingar:
Verðbréf með föstum tekjum...........................................................................
Veðlán ..............................................................................................
Aðrar fjárfestingar..................................................................................
Fjárfestingar
Annað:
Aðrar eignir
I Hrein eign til greiðslu lífeyris
Yfirlit um breytingar á hreinni eign
til greiðslu lifeyris fyrir árið 1999
Iðgjöld......................................................................................
Lífeyrir.....................................................................................
Fjárfestingartekjur..........................................................................
Fjárfestingargjöld...........................................................................
Rekstarkostnaður.............................................................................
Matsbreytingar...............................................................................
Hækkun á hreinni eign á árinu:
Hrein eign frá fyrra ári:
Hrein eign t árslok til greiðslu lífeyris:
*
Ymsar kenntiölur
Raunávöxtun miðaða við vísitölu neysluverðs..................................................
Meðaltal raunávöxtunar síðustu fimm ára......................................................
Akranesi, 27. apríl 2000
Stjóm Ltfeyrissjóðs Akraneskaupstaðar
Bæjarskrifstofur • Stillholt 16-18 • 300 Akranes
Sími 4311211
• Myndsendir 431 2590 • Kt. 410169-4449