Skessuhorn - 28.04.2000, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
anlðaijiiuk.
Skemmdarverk í Skorradal
Fjórir hektarar lands í Bakkakoti urðu eldinum að bráð
SviSinjörð í Bakkakoti.
Myndir: MM
Umtalsverðar skemmdir urðu á
trjágróðri á jörð Skógræktar rík-
isins í Bakkakoti í Skorradal síð-
astliðinn mánudag þegar kveikt
var þar í sinu í leyfisleysi. Talið
er að um vísvitandi skemmdar-
verk hafi verið að ræða.
Slökkvilið Borgarfjarðardala var
kallað út um hálffimmleytið og
stóð slökkvistarf fram eftir kvöldi.
Vel gekk að hefta útbreiðslu eldsins
en lengi logaði í mosa á svæðinu.
Að sögn Agústs Arnasonar hjá
Skógrækt ríkisins fór eldurinn yfir
um um fjögurra hektara svæði en
ekki er hægt að segja með vissu hve
mikið af trjágróðri á svæðinu hefur
eyðilagst. Mesta mildi þótti að
vindur var ekki vestanstæður en þá
hefði megnið af skógræktinni í
Bakkakoti verið í hætm.
Skömmu áður en tilkynning
barst um eldinn í Bakkakoti sást til
tveggja manna kveikja í sinu í landi
Indriðastaða í Skorradal. Talið er
að sömu aðilar hafi verið að verki í
Bakkakoti. Lögreglan í Borgamesi
Agúst Amason við slökkvistörf
biður þá sem geta gefið upplýsing-
ar um tvo menn á tvítugsaldri, á
rauðri Toyota eða Lancer biffeið,
sem voru á ferð í Skorradal um kl.
16.00 - 17.00 á mánudag, að hafa
samband við Lögreglustöðina í
Borgamesi.
GE
Kviknaði í matvöruversluninni Tanga í Grundarfirði
Dreymdi fyrir eldsvoðanum
ww
Slökkviliðsmenn að störfum í versluninni Tanga.
Myndir: EE
Guðmundur Gunnarssan var að dytta að grindverkinu heima hjá sér í Stykkishólmi á laugardegi um páska þegar Ijósmyndara Skessu-
homs bar að garði. Eitthvað hafði losnað um grindverkið í vetur. Mynd: EE
Laust eftir miðnætti aðfaramótt
páskadags fékk Lögreglan í Gmnd-
arfirði boð ffá Neyðarlínunni um eld
í matvöruversluninni Tanga í
Gmndarfirði. Þegar Slökkvilið
Grundarfjarðar kom á staðinn var
mikill reykur innandyra og eldtung-
ur stóðu út um austurglugga versl-
unarinnar.
Slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins á skömmum
tíma. Líklegt er talið að kviknað
hafi í út ffá rafmagni. Umtals-
verðar skemmdir urðu á húsnæð-
inu að innanverðu og vörulager
eyðilagðist að öllu leyti. Við það
bætist síðan tjón vegna tíma-
bundinnar rekstrarstöðvunar.
Það var fyrir tveimur ámm síð-
an sem Ami Elvar Eyjólfsson og
fjölskyldu opnuðu matvöruversl-
unina Tanga í húsnæði Kaupfé-
lagsins. Að sögn Ama er þetta
mildð tilfinningalegt tjón og seg-
ist hann ekki enn vera búinn að ná
sér fyllilega.
Það vora vegfarendur sem tdl-
kynntu um brunann til Lögregl-
unnar í Grundarfirði og sjálfur
segist Ami hafa heyrt í brunalúðr-
inum og farið út að athuga hvar
væri kviknað í. Hann hefði strax
séð hvers kyns væri og hraðað sér Skemmdimar skoðaðar
niður efrir. Einkennilegast af öllu
væri það að hann hefði oft minnst á
það við konu sína að sig hefði
dreymt fyrir eldsvoða í versluninni
Tanga síðasdiðin tvö ár.
Ami hefur leigt húsnæði verslun-
arinnar Asakjörs á meðan viðgerðir
standa yfir í Tanga og þar var opnað
síðasdiðinn þriðjudag. EE
Lögreglumenn leita að eldsupptökum