Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 1
Ertu að tapa stórfé út um gluggana? Fáðu góð ráð hjá okkur og lækkaðu hitareikninginn! Sími 54 54 300 Smiðjuvegi 7, Kópavogi fax 54 54 301 www.gler.is 102 ára og á föðursystur á lífi Ættarmót elsta núlifandi Islendingsins Um síðustu helgi héldu afkom- endur Krínar P. Sveinsdóttur, elsta núlifandi íslendingsins, ættarmót í Gufudal í Reykhólasveit. Kristín verður 106 ára síðari hluta næsta mánaðar. Hún er fædd í Skáleyjum á Breiðafirði en foreldrar hennar voru Sveinn Pétursson og Pálína Tómasdóttir. Kristín giftist Berg- sveini Finnssyni árið 1920. Þau hófu búskap í Gufudal það ár og bjuggu þar til ársins 1952. Nokkrum árum síðar flutti Kristín til Reykjavíkur og vann þar við fisk- verkun til áttræðs. Kristín og Berg- sveinn eignuðust átta börn og eru sjö þeirra á lífi en alls eru afkom- endur þeirra um 150. Kristín býr nú á Hrafhistu í Reykjavík og er þokkalega ern og hefur fótavist flesta daga. Kristín setti sér eitt sinn það takmark að verða 100 ára en þegar þeim aldri var náð setti hún nýtt markmið; að verða elst Is- lendinga. Nú þegar sá áfangi er einnig í höfn er markmið hennar að ná sama aldri og ffænka hennar úr Stykkishólmi sem varð 108 ára sem er hæsti aldur sem Islendingur hefur náð. Ohætt er að segja að hár aldur sé í ætt Kristínar. Því til marks má geta þess að hún á bróðurdóttur á Patreksfirði, Magdalenu Kristjáns- dóttur, sem nú er 102 ára. Þrátt fyr- ir aldur sinn getur Magdalena því státað af því að eiga föðursystur á lífi. Sennilega er slíkt einsdæmi hér á landi og þótt víðar væri leitað. MM Rekstri Lauga- skóla hætt Á undanfömum misserum hefur farið fram allnokkur umræða um breytt fyrirkomulag á rekstri gmnnskóla í Dalabyggð. Af ýmsum ástæðum hefur það vafist fyrir mönnum að taka á- kvörðun í málinu. Á fundi hreppsnefndar Dalabyggðar þann 18. júlí síðastliðinn var samþykkt með fjómm atkvæð- um gegn tveimur (einn sat hjá) að rekstri Laugaskóla verði hætt og öll almenn kennsla í Dala- byggð fari fram í Búðardal fyrir utan íþróttakennslu sem fari ffam á Laugum. Með því að hafa kennsluna á einum stað telja sveitarstjórnar- menn í Dalabyggð að takist að gera góðan skóla betri í stað tveggja fámennra skóla. “Þá má ætla að peningalegur spamaður við sameininguna sé töluverður. Gæði þjónustunnar munu aukast og auð- veldara verður að takast á við ný verkeíni”, segir í greinargerð Sig- urðar Rúnars Friðjónssonar odd- vita. Samþykkt var á fundi hrepps- nefndar Dalabyggðar að skóla- stjóri í samráði við sveitarstjóra og skólanefnd hefji þegar undirbún- ing að breyttu skólahaldi. Rekstr- arnefnd Laugaskóla mun jafnframt gera viðhlítandi ráðstafanir vegna ofangreindra breytinga. Lagt er til að teknar verði upp viðræður við Saurbæjarhrepp um að rekstri byggðasamlags um Laugaskóla verði hætt en samráðsnefnd um eignarhald og rekstur eignanna á Laugum tekið upp. Samkvæmt til- lögunni verður Saurbæjarhreppi boðið að senda öll börn á grunn- skólaaldri í gmnnskólann í Búðar- dal. Dalabyggð og Saurbæjar- hreppi er ætlað að taka upp við- ræður um þátttöku í rekstrarkostn- aði skólans. Jafnframt þessum breytingum er ráðgert að nýta Dalabúð undir mötuneyti. MM Veðrid leikur við Vestlmdinga þessa dagana. Þessi stúlka gerði allt sem í hmnar valdi stóð til að slá á hitann í blíðunni við sund- laugina í Borgamesi sl. þriðjudag. Mynd: EA Aukin samkeppni í lyfcölu Akraness apótek sameinast Lyf og heilsu Aukin samkeppni er nú að íærast í lyfsölumarkaðinn á Akranesi. Nýverið var sagt firá því í Skessu- homi að Lyfja opnar í haust sölustað í Skagaversversluninni og nú hefúr “hinn stóri Iyfja- hringurinn” gengið til samstarfs við Akraness apótek. Við það verður Akraness apótek 18. út- sölustaður lyfja- og heilsuvöm- keðjunnar Lyf og heilsu. Með því að sameinast keðjunni em eigendur Akraness apóteks, þau Gylfi Garðarsson og Hjördís Gísla- dóttir, að styrkja samkeppnisstöðu lyfsölu á Akranesi hvað verð, þjón- ustu og vöruframboð snertir. Því mun lyfjaverð í Akraness apóteki lækka við þessa breytingu. Ekki verða gerðar verulegar breytingar á útliti gamla apóteksins, þótt hafist verði strax handa við að samræma það útliti annarra Lyf og heilsu verslana. Gylfi Garðarsson verður áfram lyfsöluleyfishafi og Hjördís Gísladóttir verslunarstjóri. Auk verslunarinnar á Akranesi starfrækir Lyf og heilsa 10 verslan- ir á höfúðborgarsvæðinu, tvær á Akureyri og fimm á Suðurlandi. Sama vömverð er í verslunum Lyf og heilsu, óháð staðsemingu. MM i

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.