Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 9
iaaaaagiwftBiM
FIMMTUDAGUR 27. JULI 2000
9
Engir hestar yfir
Borgaríjarðarbrú?
Sementsverksmiðj an:
Sala yfir áætlun
Sala á sementi frá Sementsverk- tonn eða 11,6% yfir áætlun. Ef
smiðjunni hf. reyndist 15,5% yfir salan er borin saman við fyrri
áætlun í júnímánuði eða 15.600 hluta síðasta árs kemur í ljós að
tonn. Þetta er heldur minni sala hún er um 4,6% meiri fyrstu sex
en í júní á síðasta ári. Sala á sem- mánuðina.
enti á fyrri hluta ársins er 59.736 -SSv.
Trésmiðja Þráins:
Fær afiiot af lóð
íbúi á Akranesi hafði samband
við Skessuhorn fyrir skömmu og
sagði farir sínar ekki sléttar. Mað-
urinn, sem er ættaður vestan af
Mýrum en búsettur á Akranesi,
hefur haft þann sið að fara öðru
hvoru ríðandi á milli þessara staða.
Vegna umferðarþunga á Borgar-
fjarðarbrúnni hefur hann beðið um
fylgd yfir hana, annað hvort lög-
reglunnar í Borgarnesi, eða ein-
hvers kunningja. Nú fyrir
skömmu, þegar hann hafði sam-
band við lögregluna í þeim erind-
um, var honum tilkynnt að bannað
væri að fara með hesta yfir brúna.
Fékk hann engar nánari skýringar
á því frá lögreglustjóranum og er
hann verulega ósáttur við sinn
hlut, þar sem vægast sagt er ekki að
því hlaupið að fara á milli þessara
staða á hestbaki án þess að fara yfir
brúna.
Þegar Skessuhorn hafði sam-
band við Þórð Sigurðsson, yfirlög-
regluþjón í Borgarnesi, vildi hann
sem minnst um málið segja og vís-
aði á bæjarstjórann í þessu sam-
bandi. Sá reyndist hins vegar vera í
fríi en starfsmenn bæjarskrifstof-
unnar gáfu þær upplýsingar að alls
ekki væri bannað að fara með hesta
yfir brúna, heldur hefði bæjar-
stjórn farið fram á það að ekki færu
laus hross þar yfir. Ef það reyndist
hins vegar nauðsynlegt, ætti lög-
reglan að sjá um að loka brúnni á
meðan.
SÓK
Bæjarráð Akraness hefur heimil-
að Trésmiðju Þráins Gíslasonar af-
not af lóð við Vesturgötu til fimm
ára. Skúli Lýðsson, bygginga- og
skipulagsfulltrúi, hefur fengið það
hlutverk að ganga frá samkomulagi
þar um við fyrirtækið.
SÓK
Garðaskoðun á Akranesi
Árleg garðaskoðun
Garðyrkjufélags Islands fór
fram á Akranesi síðasdið-
inn sunnudag. Auk þess að
skoða útivistarsvæði bæjar-
búa gafst fólki kostur á að
skoða þrjá einkagarða sem
þykja vera í góðri rækt og
bera vitni um hvað hægt er
að rækta við þau erfiðu
skilyrði sem á Akranesi
eru. I Skógræktinni var
hægt að fá kort af Akranesi
og upplýsingar um hvað
um væri að vera í bænum.
Fjölmargir sáu sér fært að
skoða garðana enda eru
þeir algjört augnayndi eins
og meðfylgjandi mynd ber
með sér.
SÓK
Til vistri: Hér má sjáfallegan gosbrunn í garðinum
við Sunnubraut 17 á Akranesi. AS ofan eru stoltir
eigendur garðsins
Ejjl BOKC.ARNISS APÓTtX
Leiðandi i lágu l>f)averði á Vesturlandi
‘RgykJioCtsfiátíð28.júCí - 30. júCí árið2000
Dagskrá
Föstudagur 28. júlí:
Kl. 21.00
• Opnunartónleikar
• Vertavo kvartettinn
• Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
• Vertavo strenqjakvartettinn flytur
verk eftir Wolr, Bartók
• Kvintett eftir Schubert ásamt
Bryndísi Höllu Gylfadóttur.
Laugardagur 29. júlí:
Kl. 14.00
• Formleg afhending á húsnæði
Snorrastofu í Reyknoltskirkiu
að viðstöddum forseta íslands, hr.
Olafi Ragnari Grímssyni, Hans Hátign
Haraldi V Noregskonungi og Hennar
Hátignar Sonju drottningu Noregs.
Kl. 16.00-17.35
• Kristskonungarnir eftir Johannes
Heggland
• Söguleikar í Snorragarði í boði
Kristnihátíðarnefndar og
Norðmanna. »
• Ríflega eitt hundrað manna
leikflokkur frá Mostri flytur leikqerð
um kristnitökuna í Noreqi. Leikið
er undir berum himni. AÍÍir
velkomnir. Enginn aðgangseyrir.
Kl. 21.00
• Kvöldtónleikar
• Hanna Dóra Sturludóttir, sópran
• $teinunn Bjrna Ragnarsdóttir, píanó
• Islensk lög o»g óperuaríur. Fluttar
verða nýjar útsetnjngar á íslenskum
sönglögum eftir Arna Harðarson.
Sunnudagur 30. júlí
Kl. 11.00
• Hátíöarmessa á Kirkjudegi
• Kórar Reykholtskirkju og
Hvanneyrarkirkju.
Kl. 14.00
• Fyrirlestur í Snorrastofu
Kári Bjarnason flytur fyrirlestur um
tónlistarhandrit frá miðöldum.
Kl. 16.00
• Lokatónleikar
• Hanna Dóra Sturludóttir, sópran
• Strengjakvartett:
• Gréta Guðnadóttir, fiðla,
• Guðmundur Kristmundsson, lágfiðla
• Bryndís Björgvinsdóttir, sello
• Sigurlaug Edvaldsdóttir, fiðla.
• Hanna Dóra Sturludóttir flytur m.a.
Ijóðaflokk eftir Mendelssonn
asamt strengjakvartett.
Upplýsingar: www.reykholt.is. Sími: 435 1490