Skessuhorn


Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 21. JULI 2000 Laxveiði í Dölunum: Víðast hvar lakari en í fyrra Veiðimaður við veiðistaðinn Homsteina í Ldxá í síðustu viku. Grennslast var fyrir um laxveiði það sem af er sumri í nokkrum helstu laxveiðiám í Dalasýslu. Nokkuð dræmt hljóð var í forsvars- mönnum veiðifélaga og veiðivörð- um enda veiði víðast hvar mun lak- ari en í fyrra. „Hér eru komnir nær helmingi færri laxar á land en á sama tíma í fyrra”, sagði Torfi Asgeirsson um- sjónarmaður við Haukadalsá. Veiði hófst í ánni 12. júní og þann 20. júlí voru komnir 120 laxar á land. I fyrra sumar veiddust 646 laxar í heildina í Haukadalsá en þar eru leigðar út 5 stangir. Að sögn Torfa er nóg vatn í ánni svo ekki hamlar það veiðinni. Veiði hófst í Laxá í Dölum þann 25. júní. „Veiðin hér byrjar alltaf seint. Þetta byrjar ekki af viti fyrr en í ágúst og er svo oftast nær gott út september”, sagði Gylfi Ingason matreiðslumaður í veiðihúsinu Þrándargili við Laxá. Þar voru, 20. júlí, komnir ríflega 90 laxar á land sem er talsvert slakari veiði en á sama tíma í fyrra. I allt veiddust í fyrra tæplega 1000 laxar í Láxá en leigðar eru út 6 stangir í ánni. Að sögn Gylfa er að verða heldur vatnslítið þó svo rigningar undan- farið hafi eitthvað bætt úr stöðunni í þeim efnum. Seld eru sameiginleg veiðileyfi fyrir 4 stangir í Staðarhólsá og Hvolsá í Saurbæjarhreppi. Þar eru að sögn Sæmundar Kristjánssonar veiðivarðar komnir innan við 10 laxar á land. “Veiðin fór seint af stað en núna er komið talsvert af laxi í ána svo við vonum að þetta fari að glæðast. Það hefur reyndar verið nokkuð góð bleikjuveiði í ánni það sem af er sumri”, sagði Sæmtmdur í samtali við blaðamann á dögunum. „Ur Fáskrúð voru komnir 44 lax- ar á land þann 19. júlí sem er svip- að og á sama tíma í fyrra”, sagði Kristín Kristinsdóttir hjá Stang- veiðifélagi Reykjavíkur en Stang- veiðifélagið leigir ána í sumar. I Fá- skrúð hófst veiði 20. júní en þar eru leigðar út tvær stangir. Ekki ber á vatnsleysi í Fáskrúð að sögn Krist- ínar. EA Mikil umferð um Dali Svo virðist sem ferðamanna- straumur sé með mesta móti í Dölunum í sumar. Þetta er sam- dóma álit flestra þeirra ferða- þjónustuaðila sem Skessuhom hafði samband við á dögunum. „Við verðum vör við talsvert fleiri ferðamenn í sumar en í fyrra. Sérstaklega hefur júlí verið góður”, sagði Inga Heiða Halldórsdóttir starfsmaður Upplýsingamiðstöðv- arinnar í Búðardal í samtali við blaðamann. „Hér var líka mjög margt fólk 24. júní, daginn sem vík- ingaskipið Islendingur lagði úr höfn, líklega um 800 manns”, bætir Inga Heiða við. Klæðast að hættí vfldnga Alfheiður Erla Sigurðardóttir kaupkona í Dalakjörum tekur í sama streng. „Hér koma mun fleiri ferðamenn en í fyrra, við tökum t.d. efrir því að rútuumferð hefur auk- ist.” Helstu skýringar þessa telur Álfheiður vera þær að veðrið hefur verið gott og eins hefur aðdráttarafl Dalanna fyrir ferðamenn aukist með tilkomu þeirrar uppbyggingar sem orðið hefur á Eiríksstöðum. Álfheiður og maður hennar Gunn- ar Björnsson eru með um 12 manns í vinnu í versluninni og veitingasöl- unni í sumar. Hún á von á mikilli Hjördís Bjömsdóttir, nemi á ferðamálabraut Hólaskóla og starfs- maður hjá Upplýsingamiðstöðinni í Búðardal, heldur hér á bamahúfu með víkingayftrbragði sem verið hafa vinsælar hjá ferðamönnum í Búðardal í sumar. Ef 2000 VOMGE .2000 umferð 11.-13. á- gúst á víkingahá- tíðina á Eiríks- stöðum. „ Allt starfsfólk okkar mun klæðast vík- ingabúningum þessa helgi svona til að taka þátt í stemmningunni”, bætti Álfheiður við að lokum. Líflegra en verið hefur Svo virðist sem aukinn ferða- mannastraumur skili sér líka í Saurbæinn. Að sögn Jóns Kjart- anssonar í Jóns- búð, eða Nonna- magasíni eins og sumir sveitungar hans kalla verslunina, er mun líf- legra en verið hefur. „Eg verð var við verulega aukningu umferðar hér um. Ferðamenn koma mikið við hjá mér og við erum oft ekki síður í hlutverki einskonar upplýs- ingamiðstöðvar. Það kemur oft á ó- vart hvað íslenskir ferðamenn eru illa að sér í landafræðinni. Það kemur oft fyrir að menn vita hrein- lega ekki hvar þeir eru staddir þeg- ar þeir renna hér við hjá okkur”. Almennt var nokkuð gott hljóð í þeim aðilum sem Skessuhorn hafði samband við enda virðist þróunin vera í mjög jákvæða átt fyrir ferða- þjónustuaðila í Dölum. EA ! ! KYIUMING ! ! Hreinn Aloe Vera Safi frá Naten' NATEN* - fæðubötarefnin sem fólk talar um/ Hreinn Aloe Vera safi, úr Aloe Vera Barbadensis, frá Naten. Hvorki vatns- blandaður né bragðbættur. Fæst í stærðunum 250 og 500 ml. Kynning föstudaginn 28. júlí frá kl. 14 -18 www.borgarlyf.is wwto.naten.is BORGAR.NESS APöTÉK Leiðandi í iágu Ij'fjaverði á Vesturlandi órofín heildl Styttíst í afliendingn Nýja sljómsýsluhúsið í Stykkishólmi Verið er að leggja síðustu hönd á nýtt stjórnsýsluhús í Stykkishólmi. Stefnt er að því að húsið verði af- hent fullbúið að innan sem utan nú fyrir mánaðamót. Að sögn O- lafs Kr. Olafssonar sýslumanns í Stykkishólmi verður síðan formleg opnun í september. Ætlunin er að á efri hæð nýju byggingarinnar verði sýsluskrifstofan til húsa en lögreglan mun hafa aðsetur á neðri hæðinni. Einnig verður í húsinu dómssalur fyrir Héraðs- dóm Vesturlands. Húsið er hann- að af Teiknistofu Gylfa Guðjóns- sonar og félaga. EA Nýfeddir Vesdendingar eru boðnir velkomnir í heiminn um Ieið og nýbökuðum foreldrum eru ferðar hamingjuóskir. 21. júlí kl. 11:33 - Meybam - Þyngd: 4030 - Lengd: 34 cm. Foreldrar: Hlíf Hrólfsdóttir og Páll Askelsson, Hólma- vtk. Ljósmóðir: lngibjörg Th. Hreiðars- dóttir. 2l.júlí kl. 03:09 -Meybam - Þyngd: 3433 - Lengd: 32 an. Foreldrar: Haf- dís Böðvarsdóttir ogAmvaldur Lofts- son, Akranesi. Ljósmóðir: Amia E. Jónsdóttir. 23.jiílí kl. 08:03 - Meybam - Þyngd: 3000 - Lengd: 30 cm. Foreldrar: Mar- ía Runólfsdóttir og Gunnlaugur Krist- jánsson, Grundarfirði. Ljósmóðir: Hild- ur Sæmundsdóttir. 24. júlí kl. 03:48 - Sveinbam - Þyngd: 2963 - Lengd: 30 cm. Foreldrar: Hild- ur Hallkelsdóttir og Guðmundur S. Valsson, Borgamesi. Ljósmóðir: Ingi- björg Th. Hreiðarsdóttir.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.