Skessuhorn - 27.07.2000, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 27. JULI 2000
sbessuhöbei
Hafist var handa ífyrrasumar við endurbyggingu brúarinnar út í Stykki. Mynd: K.K.
Stykkishólmshöfn:
Framkvæmdum lokið
fyrir Dönsku dagana
Verulegar tafir hafa orðið á
framkvæmdum við brúna út í
Stykki í Stykkishólmshöfh.
Unnið er að viðgerðum og upp-
steypu brúarinnar en framkvæmdir
hófust í fyrrasumar.
Sævar Harðarson, ffamkvæmda-
stjóri Skipavíkur hf sem sér um
verkið, sagði í samtali við Skessu-
hom að ástæður fyrir þessum töf-
um hefðu aðallega stafað af mann-
eklu hjá fyrirtækinu í vor en einnig
vegna tafa við sjálfa steypuvinnuna
sem Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins sér um. “Uppsláttur-
inn hefur verið í okkar höndum en
þeir hafa séð um að steypa. Það er
ein steypa effir sem er áætluð 6. á-
gúst en að sjálfsögðu verður öllum
framkvæmdum við brúna lokið fyr-
ir Dönsku daganna”, sagði Sævar
Harðarson. K.K.
Utvarpssljórar í Olafyvik: Elmar Pálmi Lárusson og Kristmundur Sumarliðason
Mynd: K.K.
Ungir útvarpsstjórar
Þeir Elmar Pálmi Lámsson og
Kristmundur Sumarliðason í O-
lafsvík sáu alfarið um Utvarp Sjó-
Snæ, FM 94,2 þetta árið þegar fé-
lagið hélt upp á 10 ára afmælið. Ut-
sendingar hófust fyrir allar aldir
alla mótsdagana og stóðu þær til
miðnættís, ffá fimmtudegi til laug-
ardags. Elmar Pálmi og Krist-
mundur sögðust hafa fylgst grannt
með öllu sem gerðist og að sjálf-
sögðu var tónlistín á sínum stað,
allt nema Hallbjörn! Diskur með
honum fannst ekki en í staðinn slóu
strákarnir á þráðinn til kántrý-
kóngsins á Skagaströnd og spjöll-
uðu við hann í beinni útsendingu.
Þrátt fyrir stífa dagskrá virtust
þessir ungu útvarpsstjórar ekki vera
farnir að lýjast neitt að ráði þegar
útsendingu lauk á laugardag og létu
þeir vel af útvarpsmennskunni.
KK
HREÐMTNSSKÁU
-stcufur etskgtuía
Laugardagurinn 29. júlf
| Skriðjöklar
Laugardagurlnn 5. ágúst
Geirmundur Valtýsson
Bætt lög- og heilsugæsla
Skráðir íbúar rangur mælikvarði á þörfina
Eins og ffam hefur komið í frétt-
um hefur fjölgun ferðafólks og
gesta í Borgarfjarðarhéraði leitt til
stóraukins álags á lögreglu og
heilsugæslufólk á svæðinu. Sýslu-
maður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
kveður m.a. svo fast að orði að um
hættuástand geti verið að ræða um
háannatíma ferðaþjónustunnar.
Nýverið funduðu aðilar í héraðinu
um löggæslu- og heilsugæslumál í
Borgarfirði, einkum með tíllití til
aukinna verkefna og þar með þörf
fyrir auknar fjárveitingar tíl þessara
málaflokka. A fundinn mættu sveit-
arstjórarnir í Borgarbyggð og
Borgarfjarðarsveit, sýslumaður, yf-
irlögregluþjónn og stjórnendur
Heilsugæslustöðvarinnar í Borgar-
nesi.
Almennt virðast ffamlög til lög-
gæslu og heilsugæslu í Borgarfirði
taka mið af fjölda fastra íbúa í hér-
aðinu miðað við lögheimili. Eink-
um yfir sumartímann er sá fjöldi
aðeins hluti af þeim einstaklingum
sem dveljast í héraðinu en einnig
yfir vetrartímann eru mun fleiri á
svæðinu en skráðir íbúar gefa til
kynna. Þetta á t.d. við háskólana á
Bifföst og á Hvanneyri þar sem fólk
hefur jafnvel ársbúsetu án þess að
færa lögheimili til samræmis við
dvalarstað.
Menn eru sammála um að knýja
þurfi á vun auknar fjárveitingar tíl
þessara málaflokka í samræmi við
aukin verkefhi. Því var ákveðið að
láta óháðan aðila safna upplýsing-
um um áætlaðan fjölda gesta, ferða-
manna og annarra í héraðinu yfir
sumarið auk þess em heilsugæslan
og lögreglan í héraðinu skrái þarfir
sínar fyrir auknar fjárveitingar og
forgangsröðun verkefha. I fram-
haldi af þessari vinnu verður leitað
til ráðxmeyta heilbrigðis- og dóms-
mála tíl að fylgja málum efrir og
leita aukinna fjárveitinga í þessa
málaflokka.
MM
Minnisvarði um íslenska
Byggðasafh Dalamanna er
staðsett á Laugum í Sæl-
ingsdal. Þar eru varðveittir
margir merkilegir gripir
sem fróðlegt er að skoða.
Safh þetta er um margt at-
hyglisvert og fyllilega þess
virði fyrir ferðamenn og
aðra vegfarendur að Iíta þar
við.
Magnús Gestsson fyrrver-
andi safhvörður kom safhinu
á laggirnar upp úr 1970.
„Magnús vann geysimikið og
merkilegt starf. Til dæmis
setti hann hér upp gamla bað-
stofu. Hann reif gömlu bað- ;4>
stofuna á Leikskálum í
Haukadal og setti hana upp
fjöl fyrir fjöl í sína uppruna-
legu mynd hér á safninu”,
sagði Bima Lámsdóttír safn-
vörður í samtali við blaða-
mann nú á dögunum.
iVIarg^t merkra Bima Lárusdóttir safhvörður stödd ígömlu baðstofumii i
muna Byggðasafai Dalamanna.
A Byggðasafninu eru tíl
sýnis margir merkilegir munir. „Fyrst og ffemst er
þetta safn minnisvarði um íslenska bændamenningu.
Hér er til að mynda safn muna frá Bændaskólanum í
Olafsdal sem var fyrstí bændaskóli landsins. Við eigum
mikið af ísienskum nytjahlutum sem notaðir vom til
ýmissa verka bæði úti og inni. Einnig eigum við hér
talsvert safn kirkjumuna, merkilegt steinasafh og svo
mætti lengi telja”, sagði Bima.
Heimsóknir mættu
vera fleiri
Að sögn Birnu mætti aðsókn
á safnið gjarnan vera meiri.
„Við höfum haft opið hér í
sumar frá 15:00 -19:00 alla
daga vikunnar nema mánudaga
og ég veiti leiðsögn um safhið
ef óskað er eftir því. Eg gæti
vel annað fleiri heimsóknum”.
Þó að margt bendi tíl þess að
umferð ferðamanna um Dafi
sé að aukast virðist það þó ekki
sýna sig í aukinni aðsókn á
Byggðasafhið.
Framtíð safinsins
Safnið hefur frá upphafi ver-
ið tíl húsa í kjallara skólabygg-
ingarinnar á Laugum. Þetta er
þó ekki ffamtíðarhúsnæði fyrir
safhið. Fram kom í samtali við
Birnu safhvörð að núverandi
húsnæði sé að verða of lítið auk
þess sem það sé elcki að öllu
leyti vel fallið til þess að hýsa
safh sem þetta. Ekki hefur ver-
ið tekin endanleg ákvörðun um ffamtíðarhúsnæði fyrir
safnið en að sögn Bimu væri ekki óeðlilegt að það yrði
í nýju menningarhúsi Dalamanna sem í bígerð er að
koma upp í Búðardal. „Það er brýnt að við Dalamenn
hugsum vel um þetta safn. Það hefur kannski svolítið
fállið í skuggann fyrir nýrri áhersluefhum upp á
síðkastið en við heimamenn megum ekki heldur
gleyma að hlúa að því sem fyrir er”, bætti Bima við að
lokum. EA
Lokafrágangur á Eiríksstöðum
Nú er ffágangi að Ijúka í kring-
um bæ Eiríks rauða á Eiríksstöð-
um í Haukadal en þar verður
eins og kunnugt er haldin hátíð
Leifs Eiríkssonar helgina 11.-13.
ágúst næstkomandi. Það er fyrir-
tækið Stórtak ehf. sem vinnur að
frágangi göngustíga og grasflata
og fleiri umhverfisþátta við bæ-
inn.
Að sögn Sesselju Bæringsdóttur
starfsmanns á Eiríksstöðum hafa
hátt á annað þústrnd manns lagt leið
sína þangað það sem af er sumri og
umferðin verið meiri en búist var
við. Meirihluti gestanna era Islend-
ingar en einnig er nokkuð um út-
lendinga og era Þjóðverjar og vestur
Islendingar mest áberandi í hópi
þeirra. „Það sem við höfum upp á að
bjóða hér hefur vakið lukku hjá gest-
um okkar. Að fá að handleika hluti
eins og víkingahjálma og sverð og
skoða bæinn að innan er ákveðið
uppfifelsi. Það má eiginlega segja að
menn komist í snertingu við fom'ð-
ina í bókstaflegri merkingu. Einnig
gáfu Dalabyggð og Eiríksstaðanefhd
út vandað kynningarefni í vor sem
liggur hér ffammi og ferðafólk hef-
ur verið mjög hrifið af’, sagði Sess-
elja í samtali við blaðamann. Bær Ei-
ríks hefur ekki enn verið formlega
opnaður en það mtm verða gert á
fyrmefhdri hátíð í ágúst.
EA
Unnið að hellulögn við Ein'ksstaði. F.v. Gústafjöktdl Olafsson, Svandís Agústsdóttir og
Þórarinn Steingrímsstm.