Skessuhorn


Skessuhorn - 14.12.2000, Qupperneq 18

Skessuhorn - 14.12.2000, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2000 Betra að vinna með kvenfólkinu Rætt við Sigurð Olafsson fráfarandi framkvæmdastjóra SHA Sigurður Ólafsson sagði á dögunum starfi sínu lausu sem framkvæmda- stjóri Sjúkrahúss Akraness eftir að hafa starfað þar samfleytt síðan árið 1965. Það þarf ekki að taka það fram hversu gífurlegar breytingar hafa orðið í heil- brigðiskerfinu á þessum langa tíma og því er Sigurður óumdeilanlega maður sem hefur hfað tímana tvenna. Blaða- maður Skessuhoms settist niður með Sigurði og ræddi við hann um það sem á daga hans hefiir drifið í starftnu, á- hugamálin, fjölskylduna og lífið sjálft. Upp úr krafsinu kom að Sigurður er fjarri því að vera einungis fram- kvæmdastjóri, heldur er hann leikari, söngvari, hestamaður, fyrrum knatt- spyrnumaður og svo ótalmargt fleira. Þar sem Sigurður er fæddur og uppalinn Skagamaður liggur beinast við að spyrja hann í upphafi hverra manna hann sé. “Móðir mín heitir O- lína Asta Þórðardóttir og faðir minn Ólafur Frímann Sigurðsson. Þau vom bæði Akumesingar aftur í ættir. Við systkinin vomm sjö. Eg missti reyndar elsta bróður minn fimm ára þegar ég var þriggja ára þannig að ég var svona elsta systkinið og reyndar elstur af bamabömum Þórðar Asmundssonar, útgerðarmanns, og Emilíu Þorsteins- dóttur frá Gmnd á Akranesi sem vom foreldrar móður minnar. Þannig að ég er af Gmndarættinni sem er mjög stór og mikil ætt hér á Skaga. Það má segja að þetta sé svona ættin í hnotskum. Eg er giftur og konan mín heitir Margrét Ármannsdóttir. Við eigum saman fjögur böm, þrjár stúlkur og einn son og eigum fjögur bamabörn.” Ekki í genunum Af þeim fimm bræðmm sem Sig- urður á em þrír í stjómunarstöðum á Akranesi. Ásmundur er sem kunnugt er forstöðumaður Dvalarheimilisins Flöfða og Ólafur stjómar Sjóvá-Al- mennum. Sigurður vill þó ekki meina að um einhvers konar stjómrmargen sé að ræða. “Eg hef nú gjarnan sagt að einn af okkur bræðmm þyrfti að sjá um yngstu bömin og leikskólana. Þá gætum við sagt að við fylgdum fólkinu frá vöggu til grafar. Nei, ég held þetta sé ekki í genunum út af fyrir sig. Þessi fjölskylda mætti svo sem vera skarpari og þetta er engin átakafyjlskykla, en hún vinnur vel.” Borðaði alltaf hjá ömmu Þegar Sigurður var sjö ára gamall bjó amma hans í húsinu hinum megin við götuna ásamt Petreu, hálfsystur sinni. “Það var nú svo einkennilegt að einhvem tímann þegar ég átti leið yfir til hennar með mömmu þá segir gamla konan: ”FIvað er að sjá bamið hjá þér hvað það er horað! Láttu hann vera hjá mér í nokkra daga. Eg æda að sjá hvort ég geti ekki fitað hann.” Þetta varð til þess að ég borðaði alltaf hjá ömmu í hádeginu frá sjö ára aldri og þangað til ég giftti mig. Það var nokkuð skemmtilegt því þær vom bara tvær þama gömlu konumar og höfðu ekkert annað fyrir stafni en að snúast í kringum mig. Maturinn var alltaf tilbúinn á slaginu tólf og á Þor- láksmessu höfðu þær rjúpumar og möndlugrautinn í hádeginu. Að sjálf- sögðu var passað upp á að ég fengi möndluna og á kvöldin borðaði mað- ur svo rjúpur hjá mömmu líka. Hugsar um eldra fólkið Sigurður segist alla tíð, frá því þeg- ar hann hóf búskap, hafa verið með gamalt fólk í sinni umsjá. “Fyrstu sjö ár mín í búskap bjó ég nú hjá þessum tveimur ágætis konum, ömmu og Petreu sysmr hennar. Þegar við flutt- um í nýtt hús kom Petrea með okkur og var hjá okkur í sjö ár. Síðan byggði móðir Grém með okkur húsið sem við búum í núna og bjó þar niðri í 25 ár og þar býr móðir mín núna. Þannig að við höfum alla tíð þurft að hugsa um eldra fólkið í fjölskyldunni. Það hefur auðvitað haft sína kosti og galla eins og gengur en kostimir em mun fleiri og börnin okkar hafa notið góðs af.” Breyttir tímar Eins og áður kom fram hóf Sigurð- ur störf hjá Sjúkrahúsi Akraness árið 1965, nánar tiltekið þann 1. maí það ár og era því liðin 3 5 ár og hálfu betur frá ráðningu hans. “Á þessum tíma var auglýst eftir ffamkvæmdastjóra. Tveir aðilar sóttu um og ég fékk starfið. Eg var nú kallaður ráðsmaður fyrst þótt ég viti ekki af hverju það var. Eg sá hér um alla hluti og það var ýmislegt sem ég þurfti að gera þá sem ég ekki geri í dag. Þetta vora gríðarlega breyttir tímar. Ég var héma einn með allt á mínum herðum sem til féll starfinu og ýmislegt annað í 3*4 ár þangað til ráð- inn var maður til að sjá um viðhald og annað. Þetta breyttist við stækkun hússins og eftir því sem starfsmönnum fjölgaði urðu störfin sérhæfðari. Ég gæti ímyndað mér að á þessum árum hafi starfað hér um 40 manns en núna era starfsmenn sjúkrahússins í kring- um 270 svo þetta er ansi mikil breyt- ing. I upphafi voru hér 25 sjúkrarúm. Síðan urðu þau 95 en við erum skráð- ir í dagmeð 75. Lífeyrissjóðimir mikil bót Sigurður segir erfitt að koma auga á það hvað hafi breyst mest í heilbrigð- iskerfinu í tímanna rás. “Þetta er nátt- úrulega allt annað en þegar ég kem hér fyrst. Allt er orðið í mun fastari skorðum gagnvart ýmsum reglugerð- um og öðru. En hvað læknisffæðina varðar hefur starfsemin gjörbreyst. Fólk lá kannski í hálfan mánuð hér inni áður fyrr en í dag er það farið út samdægurs vegna sama sjúkdóms. Þetta eru geysilega örar breytingar sem hafa orðið í þessum málum á ekki mörgum ártun. Það skýrir nú líka það að við þurfum ekki á eins mörgum sjúkrarúmum að halda. Vinnutíminn hefur líka breyst, hann var nú meiri áður og maður var lengi ffam eftir á daginn. Fyrir starfsmennina hefur líka geysilega margt breyst og það liggur beinast við að taka lífeyrissjóðina sem dæmi. Þegar ég byrja hér er varla nokkur lífeyrissjóður til en ég man það nú reyndar að Lífeyrissjóður Akranes- kaupstaðar var kominn á þessum árum. Síðan hefur þetta breyst og fólk er farið að borga í ýmsa lífeyrissjóði. Þar að auld getur fólk sparað í sér- eignasjóðum sem byggja reyndar á öðram grunni en lífeyrissjóðimir. En þetta er mikil bót að gefa fólki kost á þessu. I ffamtíðinni held ég að fólk hugsi nú til þess að hætta fyrr en það gerði. Það var alltaf að spekúlera í því hvað það hefði í þessum lífeyrissjóð- um. Spumingin var alltaf: Hvað get ég unnið lengi til þess að þetta verði heldur skárra?” Eins og reykur úr kolatogara Á sjúkrahúsum er yfirleitt margt um að vera og Sigurði er margt minnis- stætt ffá löngum ferli. “Ég man til dæmis að hér kviknaði einu sinni í í kringum 1970. Þá kviknaði í svartolíu- kyndingunni sem var héma úti í starfs- mannabústað sem þá var þar. Ég kom hlaupandi héma upp efttir og þegar maður kom á staðinn stóðu svartir reykjarstrókar út um hlera sem var á hlið hússins. Þetta var eins og reykur úr kolatogara. Eldurinn reyndist ekki vera mikill en sótið fór út um allt inni í bústaðnum. Þessi blessaða kynding var nú lögð niður eftir þetta en ég hafði heyrt að hún hefði meðal annars verið orsökin að því að forveri minn hér, Bjami Th. Guðmundsson, hætti. Það var aldrei ffiður” segir Sigurður og hlær. Þess má til gamans geta að hann og Bjami eru þeir einu sem hafa gegnt starfinu því Bjarni var ráðinn árið 1952, þegar sjúkrahúsið hóf störf. Sá þriðji í röðinni verður ráðinn á allra næstu dögum en sérstök þriggja manna nefnd á vegum ráðuneytisins er nú önnum kafin við að fjalla um þær umsóknir sem bámst. Niðurstaða hennar verður að því loknu lögð fyrir stjóm sjúkrahússins og í framhaldi af því mun ráðherra skipa starfsmanninn.”Nú er sú breyting orðin á hvað þetta varðar að fram- kvæmdastjórar ríkisfyrirtækja eru að- eins ráðnir til fimm ára í senn. Affur á móti þegar ég réð mig '65 var ég ævi- ráðinn. Það breyttist '74 gagnvart því fólki sem réðst til ríkisins eftir þann tíma. Þá fengu ríkisstarfsmenn verk- fallsrétt en létu æviráðninguna í stað- inn.” Hékk í skottinu á guUaldarliðinu Sigurður fór í bamaskólann á Akra- nesi eins og lög gera ráð fyrir og svo í gagnfræðaskólann. Þaðan lá leiðin í Verzlunarskóla Islands þaðan sem hann útskrifaðist úr verslunardeild. “Þegar því lauk fór ég í knattspymu- ferð til Þýskalands sem varamaður með IA liðinu árið 1954, sem var af- skaplega skemmtileg. I ffamhaldi af þeirri ferð varð ég eftir í Hamborg og fór þar á þýskunámskeið og að því loknu fór ég í sex mánuði í verslunar- skóla þama í Hamborg.” Blaðamaður telur nú fullsannað í eitt skipti fyrir öll að ekki sé hægt að ræða við fæddan og uppalin Skagamann án þess að knatt- spyma komi þar við sögu. Sigurður er þó ófeiminn við að viðurkenna að mestu hæfileikarnir hafi legið annars staðar. “Ég var svona að gutla í þessu og var ekkert sérstaklega góður. Gull- aldarliðið var upp á sitt besta á þessum áram og ég var svona í skottinu á þeim. Ég komst nú ekki í liðið en maður var svona til hliðar við þá sem varamaður.” Sigurður sagði þó ekki skihð við fótboltann eftir að skórnir höfðu verið lagðir á hilluna. Eftir að ég hætti knattspymuiðkun var ég við- loðandi knattspyrnumálin hérna á Akranesi og ég var í knattspymuráði í um 25 ár. Það var mjög skemmtilegt og ég fór meðal annars í fyrstu Evr- ópuferðina sem farin var í Evrópu- keppni til Rotterdam. Við spiluðum við Sparta Rotterdam, báða leikina í Hollandi. Töpuðum fyrri leiknum með 9-0 og þeim seinni með 6-0. Þannig að knattspyrnan hefur nú skánað í seinni tíð, við erum ekki að tapa svona rosalega. Við vomm byrj- endur en þetta var alveg geysileg lífs- reynsla og sá tími sem ég var í þessu er ógleymanlegur. Tveir klæðskerar og sjö saumakonur Að loknum námsárunum í Ham- borg kom Sigurður aftur til Akraness og vann í eitt sumar sem sölumaður hjá Eggerti Kristjánssyni. “Mér líkaði það nú ekki mjög vel. Eftir það var ég verslunarstjóri hjá Þórði Ásmundssyni og vann þar í fjölda ára við verslun. En hún hætti nú 1960. Þetta var glæsileg verslun í kringum 1948. Þama voru seldar nýlenduvömr, matvörar, kol og olía, mjólk og í raun allt sem hægt er að nefna í svona búðum. Síðan vora tveir klæðskerar sem saumuðu föt og sjö konur sem saumuðu kjóla. Það var mikil gróska í þessu á þessum árum en eftir að innflutningur hófst lagðist þetta saumaverkstæði niður. Þegar verslunin hætti fór ég og vann fyrir Þorgeir og Ellert í fjögur ár og síðan lá leiðin hingað. Lifir fyrir daginn í dag Sigurður er fæddur árið 1933 og varð því 67 ára á afmælisdaginn í sept- ember. “Það sem hefur í gegnum tíð- ina hjálpað mér er að ég hef verið mjög heilsugóður. Ég held líka að ég sé frekar skapgóður og léttur á bár- unni eins og sagt er. Það er nauðsyn- legt fyrir fólk að ganga í gegnum lífið með jákvæðu hugarfari. Ég hef lifað eftir þeirri formúlu.” Sigurður segist hafa farið á Dale Camegie námskeið í gamla daga og lifir eftir því mottói sínu að lifa bara einn dag í einu í þéttri veröld. “Að vera ekki að hafa áhyggjur af því sem búið er þótt maður geri það stundum svo sem. Ég tala nú ekki um framtíðina, menn eiga bara að lifa fyr- ir daginn í dag því maður er búinn að sjá það í gegnum tíðina að lífið er af- skaplega smtt. Það er bara ein snúra sem allt í einu er klippt á. Mér finnst oft þjóðfélagið hafa of miklar áhyggjur af ýmsu.” Áhugamálin eru mörg Samkvæmt lögum hefði Sigurður mátt gegna starfi sínu áfram ffarn til sjötugs. “Já, ég hefði getað unnið í þrjú ár í viðbót. En ég ákvað að hætta meðan ég væri sæmilega hress og það er bara allt í lagi með mig held ég. Ég hef sem betur fer ekki verið frá nema í viku held ég í öll þessi ár sem ég hef unnið hér. Maður segir bara 7, 9, 13.” Sigurður segist eiga mörg áhugamál sem hann ætlar að nýta aukinn ffítíma í að sinna betur. “Ég er nú bæði í Odd- fellow félagsskapnum og Lions klúbbnum og hef starfað þar mikið. Nú svo er ég í hestamannafélaginu og er búinn að vera með hesta í meira en tuttugu ár. Ég bara hugsa mér gott til glóðarinnar að fara kannski meira að ríða. Svo em margir sem fara í útlönd- in svona að vetri til og slappa af og ég get vel hugsað mér það. Þegar Skaga- leikflokkurinn var endurreistur á sín- um tíma starfaði ég í honum og við sýndum Jámhausinn eftir Jónas Ama- son héma í kringum 1970. Söngurinn hefur svo aftur verið eins og rauður þráður í gegnum líf mitt og ég söng meðal annars í karlakómum Svanir þegar hann var og hét. Ég hef nú ver- ið að tala um að fara að læra á gítar þannig að maður geti farið að spila og syngja.“ Þá stofnaði Sigurður Skagakvartettinn ásamt þremur Oddfellowbræðram og gáfu þeir út eina plötu á vegum Svavars Gestssonar. Ekki ný bóla að vanti peninga Af þessari upptalningu ætti að vera ljóst að Sigurði kemur ekki til með að leiðast í náinni framtíð. “Ég kvíði því ekkert að hætta en það er auðvitað eft- irsjá í því að hverfa héðan. Maður á margar góðar minningar og hér hef ég kynnst afskaplega mörgu góðu fólki. Ég er nú búinn að vera héma í þessi ár og það er ekkert ný bóla í dag að vanti peninga. Ég ákvað nú í upphafi að fára ekki með vinnuna með mér heim á kvöldin þegar dagsverki lyki og ég held að það hafi tekist ágædega hjá mér. Ég held að heilbrigðismálin hjá okkur séu bara í ágætu lagi. Það má alltaf deila um það hvað hægt sé að gera. Unnið er fyrir takmarkaða pen- inga en ég held að fólk fai góða úr- lausn á flestum sviðum. Sums staðar eru auðvitað biðlistar eins og kemur fram í fréttum og öðru og það kemur því miður niður á því fólki sem bíður. Það væri enginn vandi að ráða bemr við þessa biðlista ef peningar fengjust. I dag er hægt að gera svo mikið fyrir fólk. En ég held að við getum bara verið stolt af okkar heilbrigðiskerfi í dag.” Kvenfólkið betra En mér hefur liðið mjög vel héma á sjúkrahúsinu. Hér er langmestur hluti starfsmannanna kvenfólk og mér líkar jafnvel betur að vinna með kvenfólki heldur en körlum. I gamla daga var ég sendur í sveit á Gunnlaugsstöðum f Stafholtstungum og hef búið að því alla tíð. Ég var þar frá 7-12 ára aldurs hjá Jóni og Fríðu sem þar bjuggu ásamt Guðmundi syni sínum. Þau áttu sextán böm og komu þeim öllum upp með sóma þrátt fyrir fátækt. Sem unglingur var ég dálítið stríðinn og ég man að þegar ég fór í sveitina eitt sumarið, þá kom ein vinkona mín til mömmu og sagði að ég mætti alveg koma heim um jólin, en meirihlutinn af leikfélögum mínum á þessum tíma voru stelpur.” 'f 11» $ J Í4J t i i

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.