Skessuhorn - 25.01.2001, Page 1
&
SÍM6NNTUNAR
^^MIÐSTÖÐIN
Námsvísírínn
er komínn út
Slkráning í síima
w 417 2390
*** 'G'ðsi 3.
v, ® simermtymJs
Arnar Gunnlaugsson hefur leikið vel með Leicester í toppbaráttu ensku úrvals-
deildarinnar að undanfórnu. Sjá ítarlegt viðtal við kappann á bls. 8 og 9.
J
Mótframboð gegn Hervari
Tilkynnt hefur verið um mót-
framboð gegn Hervari Gunnars-
syni formanni Verkalýðsfélags
Akraness en samkvæmt lögum fé-
lagsins fer stjórnarkjör fram í
febrúar. Formannsefni andstæðinga
Hervars er Georg Þorvaldsson
fyrrverandi stjómarmaður í félag-
inu.
Georg segir framboðið vera til
komið vegna óánægju með störf
Hervars. „Við erum óánægð með
hvernig farið hefur verið með fjár-
muni félagsins en ávöxtun þeirra
hefur verið léleg. Þá finnst okkur
að illa hafi verið staðið að gerð
kjarasamninga. Þá er maðurinn bú-
inn að vera þarna í tólf ár og ein-
faldlega orðinn þreyttur og tíma-
bært að breyta tdl.“
Hervar Gunnarsson sagði í sam-
tali við Skessuhorn að framboðið
hefði komið sér á óvart, ekki síst í
ljósi þess að á aðalfundi félagsins í
haust hefðu menn verið ásáttir um
að standa saman að vexti og við-
gangi félagsins. Hann sagði hins-
vegar að öllum væri frjálst að bjóða
fram og ekkert við því að segja.
Akveðið hefur verið að kjörseðlar
verði sendir út til félagsmanna
þann 1. febrúar en frestur til að
skila inn atkvæðum rennur út 8.
febrúar og eiga úrslit að liggja fyrir
þá um kvöldið.
Sjá viðtal við Georg Þorvaldsson
fi-ambjóðanda á bls 4. GE
Bæjarskrifstofur Borgarbyggðar fluttar?
Nýjar bæjarskrifstofur
Bæjarráð Borgarbyggðar hefur
veitt bæjarstjóra heimild til að
láta fara fram athugun á framtíð-
arfyrirkomulagi húsnæðismála
hjá bæjarskrifstofu Borgarbyggð-
ar og leggja tillögur um breyting-
ar fyrir bæjarstjórn. “Það er ljóst
að það þarf að fara í breytingar
vegna fjölgunar starfsmanna og
þörfin verður enn brýnni með yf-
irtöku málefha fatlaðra. Astæðan
fýrir því að farið er í að skoða
þettta nú er að það er laust hús-
næði sem ástæða er til að skoða
hvort eru ákjósanlegir kostir,”
segir Stefán Kalmansson bæjar-
stjóri.
Stefán segir að ef ákveðið verði
að nýta áfram húsnæði sveitarfé-
lagsins við Borgarbraut þurfi að
setja lyftu í húsið og innrétta
skrifstofur á neðri hæð hússins en
það húsnæði er ónýtt sem stend-
ur. Þá er verulegur skortur á bíla-
stæðum við húsið. Húsnæðið
sem Stefán nefhir að sé laust er
annarsvegar neðri hæð stjórn-
sýsluhússins að Bjarnarbraut 8
sem er í eigu ríkisins og hinsvegar
gamla Kaupfélagshúsið að Egils-
götu 11 sem er í eigu Sparisjóðs
Mýrarsýslu.
“Við höfum sent fjármálaráðu-
neytinu erindi og óskað eftir við-
ræðum um stjórnsýsluhúsið en
ekki fengið svar. Egilsgata 11 er
einnig til skoðunar en sú hug-
mynd tengist óbeint mögulegum
atvinnugörðum í Borgarbyggð,”
segir Stefán. GE
Fyrsti dúfoabóndinn
Bergur Rögnvaldsson bóndi í
Hrútsholti í Eyja og Miklaholts-
hreppi er fyrsti dúfnabóndinn hér á
landi. Hann vinnur að því að koma
upp dúfnastofhi og hyggst rækta
fuglinn til manneldis. Dúfnakjöt er
nánast óþekkt matvara hér á landi
en margir Islendingar hafa kynnst
því á veitingastöðum erlendis.
Sjá viðtal við Berg dúfhabónda
á bls 3.
Bergur Rögnvaldsson
Fyrstu fjamámsnemamir á viðskiptasviði útskrifaðir:
Fyrsta útskriftin
Síðastliðinn laugardag útskrifuðust jyrstu jjamámsvemannr með BS. gráðu í rekstr-
aijræðumfrá Viðskiptaháskólanum á Bifröst en þetta er ífyrsta sinv sem nemendur
útskrifast með háskólagráðu á viðskiptasviði hér á landi að undangengnu fjarnámi.
Sjá nánar á bls. 3.
Ný tilboð alla fimmtudaga!
Pizzaland Pizza
Vínber græn
Kínakál
Snittubrauð
Döðlubrauð
Verð áður
445,-
799 kr/kg.
298 kr/kg.
135,-
198,-
Tilboð
299,-
499 kr/kg.
229 kr/kg.
I 5 % afsláttur
I 5 % afsláttur