Skessuhorn - 08.06.2001, Page 2
2
FOSTUDAGUR 8. JUNI 2001
jouaunu..
Greinilega má sjá ummerki um að skítur hafi verið losaður úr gripaflutningabílum við Norðurá. Mynd: GE
Oþrifiiaður á
árbakkanum
Smithætta segir clýralæknir á Keldum
Svo virðist sem skítur hafi reglu-
lega verið losaður úr gripaflutn-
ingabifreiðum á bökkum Norðurár
í Borgarfirði. Sigurður Sigurðarson
dýralæknir á Keldum kveðst líta
slík vinnubrögð mjög alvarlegum
augurn.
Skammt frá bænum Hreimstöð-
um, við þjóðveg eitt, í Norðurár-
dal er útskot frá veginum sem ligg-
ur alveg að Norðurá. Þar má
greinilega sjá merki þess að nýlega
hafi verið losað hrossatað, að öllum
líkindum úr gripaflutningabifreið.
Svo virðist einnig sem það sé ekki í
fyrsta sinn því sjá má taðhrúgur á
löngum kafla í vegkantinum og
hefur skíturinn greinilega runnið
sumstaðar alla leið út í á.
„Háttalag sem þetta getur haft
umtalsverða hættu í för með sér
fyrir utan sóðaskapinn sem af þessu
hlýst,“ segir Sigurður. „Það er ver-
ið að flytja skepnur þvers og kruss
um landið í þessurn bílum og þetta
býður upp á smithættu ekki aðeins
fyrir lífríki árinnar heldur einnig
skepnur á þurru landi.“
Sigurður segir að umræddur
staður við Norðurá sé ekkert eins-
dæmi því vitað sé að gripaflutn-
ingabílar hafi víðar verið losaðir
við, eða jafnvel í ám. „Það skortir
sárlega aðstöðu til að þrífa gripa-
flutningabíla. Þessi þrif eiga ekki
heima á hefðbundnum bílaþvotta-
plönum þannig að mönnum er í
sjálfu sér vorkunn þar sem ekki er í
mörg hús að venda. Hinsvegar má
það ekki eiga sér stað að skítur sé
losaður hvar sem mönnum sýnist,"
segir Sigurður. GE
Nýtt skólahús á Bifröst
næsta vetur
Forval um hönnun hússinsfarið í gang
Aðalfimdur á Akratorgi
Skagaleikflokkurinn enn á götunni
Þrjár af þekktustu arkitektastof-
um landsins hafa verið valdar til að
taka þátt í lokuðu forvali um hönn-
un á nýju skólahúsi fyrir Viðskipta-
háskólann á Bifröst. Stofunar eru
Ark.is, Batterið og Studio Granda.
Arkitektastofurnar eiga að skila til-
lögum sínum stjórnar háskólans
fyrir 20. júní og í framhaldi af því
verður væntanlega samið við eina
þeirra um endanlega hönnun húss-
ins.
Stefnt er að því að hið nýja skóla-
hús verði byggt næsta vetur að sögn
Runólfs Ágústssonar rektors en
endanleg ákvörðun um það verður
tekin á stjórnarfundi í lok mánaðar-
ins.
Hráefiiis-
verð
styrkist
I síðustu viku landaði skip
Haraldar Böðvarssonar, Víking-
ur AK 100, tæpum 1400 tonnum
af norks-íslenskri síld á Seyðis-
firði. Aflaverðmæti ferðarinnar
var um 13,5 milljónir króna.
Hækkunin á hráefnisverði er
talsverð miðað við sama tíma í
fyrra en þá fengust tæpar 6 krón-
ur fyrir hvert kg miðað við tæpar
10 krónur nú. Verðhækkunina
má skýra með væntingum um
hærra mjöl- og lýsisverð.
Hráefnisverð fyrir síld til
manneldis hefur einnig hækkað
og nú fást um 40 íslenskar krón-
ur fyrir sfldina í Noregi. Sam-
kvæmt upplýsingum á heimasíðu
Haraldar Böðvarssonar hf. er um
þessar mundir víða skortur á síld-
arflökum á mörkuðum, þar sem
Norðmenn framleiddu mun
minna af síld á síðusm vertíð en
væntingar stóðu til um. Reiknað
er með að ástandið sé tímabund-
ið og að verð muni lækka þegar
líða fer á haustið. SOK
Miðað er við að húsið verði 900
fermetrar að hámarksstærð ásamt
tengigangi við svokallaða vistar-
álmu aðalhúss skólans. „Húsið á
einnig að verða ímyndarlegt andlit
Viðskiptaháskólans til nýrrar ald-
ar,“ segir Runólfur. Hann segir
byggingu nýs skólahúss vera orðna
aðkallandi til að taka við vaxandi
nemendafjölda. „I haust verðum
við með tæplega 200 nemendur í
skólahúsi sem ætlað er fyrir 100
nemendur. Þessi bygging er þáttur
í þeirri uppbyggingaráætlun sem
við vinnum eftir en hún gerir með-
al annars ráð fyrir að um 300 nem-
endur verði við skólann eftir 2 ár,“
segir Runólfur. GE
Egilsstofa
Atvinnuráðgjöf Vesturlands
hefur verið falið að vinna að hug-
myndum um starfsemi og fyrir-
komulag Egilsstofu í Borgarnesi í
samráði við forstöðumann Safna-
húss Borgarfjarðar. Fyrr á þessu
ári samþykkti bæjarstjórn Borgar-
byggðar að láta þróa framkomnar
hugmyndir um stofnun sem
tengdist minningu Egils Skalla-
grímssonar. GE
Önnur hraða-
hindrun á
Garðagrund
Bæjarráð Akraness hefur nú sam-
þykkt að láta gera hraðahindrun á
Garðagrund í nágrenni Lerki-
grundar, en íbúar við þá götu
höfðu sent bréf með undirskrifta-
lista þar sem farið var fram á að
það yrði gert. Gísli Gíslason, bæj-
arstjóri, segir að á ári hverju fái
bærinn talsvert af beiðnum þar
sem óskað er eftir hraðahindrun-
um. A síðasta ári var sett ein hraða-
hindrun á Garðagrundina og segir
Gísli að þetta sé í raun aðeins síð-
ari hlutinn á því verki. SOK
í síðustu viku var aðalfundur
Skagaleikflokksins haldinn á Akra-
torgi á Akranesi en fundarmenn
höfðu verið vinsamlega beðnir um
að koma með stóla. Astæðan fyrir
þessari undarlegu staðsetningu er
fyrst og fremst sú að leikflokkurinn
hefur ekki í nein hús að venda þar
sem Keilufélag Akraness hefur nú
fengið afnot af kjallaranum í í-
þróttahúsinu við Vesturgötu þar
sem Skagaleikflokkurinn hefur haft
aðsetur undanfarin ár.
Að sögn Guðbjargar Arnadóttur,
fyrrum formanns Skagaleikflokks-
íbúar við Háteig á Akranesi ósk-
uðu nýverið eftir því að gata þeirra
yrði gerð að botnlanga. Skipulags-
nefnd bæjarins hefur nú alfarið
hafnað þeirri hugmynd, aðallega
vegna þess að gatan er of þröng til
þess að þar sé hægt að útbúa snún-
ingspláss. Auk þess þótti umferð
um götuna ekki nægileg til að rétt-
læta slíkar aðgerðir.
Eins og áður hefur komið fram í
ins, var fremur kuldalegt og fá-
mennt á Akratorgi. „Þarna fóru
fram venjuleg aðalfundarstörf auk
þess sem kosin var ný stjórn og á-
lyktað um húsnæðismál sem voru í
raun tilefni þess að við vorum með
fundinn úti.“ Meginbreytingin sem
varð á stjórninni var sú að Her-
mann Guðmundsson tók við for-
mennsku en Guðbjörg verður vara-
formaður.
Á tímabili var rætt um að Skaga-
leikflokkurinn gæti hugsanlega
fengið húsnæðið þar sem trésmíða-
verkstæði FVA er til húsa en Guð-
Skessuhorni kom einnig upp sú
hugmynd að rífa hið svokallaða
stúkuhús sem stendur við Háteig.
Bærinn keypti húsið upphaflega til
niðurrifs og skipulag gerir ráð fyrir
að húsið fari. Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri, segir það mál hafa tekið ýms-
um vendingum. „Bæjarstjórn hefur
vísað þessum hugmyndum manna
aftur til bæjarráðs og málið bíður á-
kvörðunar. Það er ekkert sem rekur
björg segir að það húsnæði verði
ekki á lausu í nánustu framtíð. „Við
fluttum úr kjallaranum fyrir ára-
mótin og eigur leikflokksins eru í
geymslu hingað og þangað um bæ-
inn. Eitthvað hefur verið rætt um
að við getum fengið Röst og við
skoðuðum það. Röst er gamalt hús
og okkur finnst ekki spennandi að
þurfa að bera ábyrgð á því. Það
myndi þó leysa hluta vandans þar
sem við gætum þá komið þar sam-
an til funda í stað þess að hópast
saman í eldhúsum víðs vegar um
bæinn.“ SÓK
á eftir mönnum að rífa húsið og eitt
er víst að það verður ekki byggt aft-
ur svo menn verða að vera vissir í
sinni sök. Einnig er hægt að skoða
hvort möguleiki sé að flytja húsið
en það virðist mjög erfitt. Ástand
þess nú er þannig að menn geta
ekki nýtt húsið nema endurbyggja
það að töluverðu leyti.“
Háteigur ekki
botnlangi
Framtíð stúkuhússins óljós