Skessuhorn - 16.08.2001, Page 1
Töivur
Tölvuvidgeröir
Skrif stof u vör u r
Símtæki
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 33. tbl. 4. árg. 16. ágúst 2001 Kr. 250 í lausasölu [Hyrnutorgi-430 2200-verslun@islensk.is
Vilja slökkvistöð við enda Hvalfjarðarganganna
Skiptar skoðanir um hver á að horga hrúsann
Slökkvilið höfuðborgarsvæðis-
ins, hefur sett fram þá hugmynd
sína að sveitarfélögin norðan- og
sunnanmegin Hvalfjarðargang-
anna, Spölur ehf., Norðurál og Is-
lenska járnblendifélagið á Grund-
artanga byggi og reki slökkvistöð
sem staðsett yrði norðanmegin
ganganna.
„Við erum þeirrar skoðunar að
kallstíminn í göngin sé ekki nógu
góður,“ segir Hrólfur Jónsson,
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins. „Slökkvistöð
okkar er staðsett í vesturhluta
Reykjavíkur. Þaðan er um hálftíma
keyrsla að munna ganganna og
þótt það taki slökkviliðið á Akra-
nesi skemmri tíma að þá er þar
ekki mannað allan sólarhringinn.“
Hrólfur segir að stöðin myndi nýt-
ast á marga vegu. „Stöðin gæti
þjónað svæðinu norðanmegin
ganganna. Bæði með slökkvistöð-
inni og hvað varðar sjúkraflutn-
inga. Bygging stöðvarinnár yrði
einnig til þess að draga úr þeim
kostnaði sem hlytist af því ef gerð-
ar yrðu endurbætur á útkallstíma.“
100 milljóna króna
rekstrarkostnaður á ári
Hrólfur segir að þeim finnist ó-
rökrétt að sveitarfélögin borgi þann
kostnað sem hlytist af því að reka
slökkvistöð. „Gerð ganganna var
einkaframkvæmd. Þegar þau voru
gerð á sínum tíma voru þau flokkuð
sem vegur og ekki var fjallað um
þessi mál. Þess vegna teljum við að
sveitarfélögin eigi ekki að standa
ein undir þeim kostnaði sem hlýst
af þessu.“ Kostnaðurinn er óneitan-
lega mikill en Hrólfur segir að sam-
kvænit útreikningum myndi kosta
um 100 milljónir króna að reka
stöðina á ári. Þá er ótalin bygging
stöðvarinnar sem myndi kosta um
120 milljónir króna. „Rekstrartöl-
urnar eru miðaðar við að á stöðinni
yrðu 4-5 slökkviliðsmenn á vakt all-
an sólarhringinn. Ef allir þeir aðilar
sem ég nefndi hér áðan kæmu að
þessu verkefni yrði þetta ekki svo
stór upphæð fýrir hvern og einn.“
Nánast ekkert hefur gerst í þess-
um málum frá því þessar hugmynd-
ir voru settar fram. Hrólfur segir
það aðallega vera vegna þess hversu
Sjúkrahús Akraness
margir aðilar komi að málunum.
„Þá er alltaf spurning um hver á að
draga vagninn. Við höfum sett
þessar hugmyndir fram bæði í fjöl-
miðlum og á fundum og það er
spurning hver á að standa fyrir
þessu. Auk þess eru menn ekki sam-
mála um þetta. Forsvarsmenn Spal-
ar telja til dæmis að öryggismálum
ganganna sé ekki ábótavant. Það er
nauðsynlegt að leysa hvaða kröfur á
að gera. Að okkar mati voru kröf-
urnar sem gerðar voru á sínum tíma
einfaldlega of litlar."
Sveitarfélögin
eiga að borga
Stefán Reynir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Spalar ehf., segir
hugmyndina um byggingu slökkvi-
stöðvar ekki slæma. „Spurningin er
hins vegar hver á að greiða fyrir
það, því þetta yrði mjög dýrt. Spöl-
ur hafði öll leyfi og fékk allar heim-
ildir á sínum tíma þegar ráðist var í
gerð ganganna. Opinberir aðilar
geta ekki komið og gert meiri kröf-
ur þremur árum eftir að gerð þeirra
lauk.“ Stefán segir að sín skoðun sé
að sveitarfélögin eigi að borga fyrir
slökkvistöðina og nefnir máli sínu
til stuðnings að Akraneskaupstaður
hafi þurft að kaupa nýjan slökkvibíl
þar sem sá gamli nægði ekki fyrir
Akursblokkina sem er sex hæðir.
Þar kom aldrei til tals að Akur
þyrfti að kaupa nýjan bíl. „Við
erum hins vegar ekki vissir um að
umræddur staður sé sá besti til að
byggja slökkvistöð á. Það gæti ver-
ið viturlegra og í raun eðlilegra að
byggja nýja stöð á Akranesi þar sem
útkallstími í göngin yrði 7-8 mín-
útur ef þar yrði vakt allan sólar-
hringinn. Eg fullyrði þó ekkert um
það en þetta er hugmynd sem hef-
ur komið upp líka.“
SÓK
Ur Hólminum
á West End
Handlækningadeildin
opnuð á ný í haust
Skessuhorn greindi frá því fyrr í
sumar að handlækningadeildin á
Sjúkrahúsi Akraness yrði sameinuð
lýflækningadeildinni um óákveðinn
tíma vegna skorts á hjúkrunarfræð-
ingum. A tímabili leit út fyrir að
deildirnar yrðu sameinaðar í langan
tíma þar sem ekki bárust svo mikið
sem fyrirspurnir um þær hjúkrun-
arfræðingastöður sem þurfti að
manna.
Nú er útlitið þó heldur bjartara
og að sögn Steinunnar Sigurðar-
dóttur, hjúkrunarforstjóra, er allt
útlit fyrir að handlækningadeildin
verði flutt á sinn gamla stað í
haust, þótt ekki sé komin dagsetn-
ing á það enn. „Hér hefur einn
hjúkrunarfræðingur bæst í hópinn
en tveir hafa verið ráðnir í hluta-
störf í haust. Deildirnar hafa verið
sameinaðar síðan 1. júní og í raun
er ekki óeðlilegt að dregið sé úr
starfsemi á sumrin, það þarf að
gera á öllum sjúkrahúsum. En ég
reikna með því að handlækninga-
deildin verði opnuð í haust, á sín-
um stað.“
SÓK
Hólmarinn Þór Breiðfjörð hafði
getið sér gott orð sem söngvari og
leikari hér á landi áður en hann
hélt til London til náms í skóla
sem sérhæfir sig í söngleikjum.
Eftir að hann útskrifaðist komst
hann strax á samning á West End
þar sem hann hefur meðal annars
sungið í Vesalingunum og fleiri
stórsýningum.
Þór leysirfrá skjóðunni á bls. 8
Kartöfhiþjófur á kreild
Kartöflugarðseigandi nokkur á Akranesi hafði samband við Skessu-
horn á dögunum. Þegar hann leit við í kartöflugarði sínum í Bæjarlandi
í landi Innsta-Vogs brá honum heldur en ekki í brún þegar hann upp-
götvaði að einhver óprúttinn náungi hafði lagt þangað leið sína um helg-
ina og tekið upp úr hálfu kartöflubeði. Ekki var þó góðri umgengni fyr-
ir að fara því grösin höfðu verið rifin upp og þeim hent út um allar triss-
ur. Eigandi garðsins sagðist ekki hafa aðgætt hvort kartöflur hefðu ver-
ið teknar upp úr görðunum í kring í leyfisleysi en vildi benda eigendum
garða á að fylgjast vel með sínum kartöflum. SÓK
Skagamenn á toppinn
Skagamemi skutust í
efsta sæti úrvalsdeildar-
innar í knattspymu síð-
astliðinn mánudag með
sigri d Valsmönnum.
„ Við munum verja
efsta sætið með kjafti og
klóm, “ segir Gunnlaug-
urjónssm, fyrirliði.
Sjd bls 15
MANUDAGA - FIMMTUDAGA
FÖSTUDAGA
-J ___I J
LAUGARDAGA 10-19
SUNNUDAGA 12-19