Skessuhorn - 16.08.2001, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2001
Þór Breiðfjörð skapar sér nafn á West End
Eg á orðið aðdáendahóp
-segir sönguarinn úr Hólminum
mSs,:.
v'.,:
Þór Breiófj'órð lagði úr Stykkishólmshöfn og hélt í víkmg á West End
Þór Breiðfjörð Kristmsson er
ungur maður úr Stykkishólmi
sem hefur náð ótrúlega skjótum
frama sem söngvari á sviði söng-
Ieikja í London. Hann hefiir verið
í ffíi á Islandi að undanfömu og
blaðamaður Skessuhoms notaði
tækifærið og ræddi við hann um-
leiðina ffá Hólminum inn á sen-
una í „leikhúslandinu", eins og
West End hefur verið kallað.
„Kona mín er Hólmari
en kynntíst henni í
Reykjavík“
„Eg er fæddur á Bolungarvík,
móðir mín er þaðan en síðan fluttist
ég strax í Hólminn og var viðloðandi
bæinn þangað til ég fór til Reykja-
víkur í fjölbrautaskóla. Faðir minn,
Kristinn Breiðíjörð Guðmundsson,
er sonur Guðmundar Bæringssonar
sem varm lengi í Kaupfélaginu í
Stykkishólmi þannig að hér á ég fjöl-
skyldu og hef verið flest sumur, jól
og páska,“ segir Þór. „Rætumar em
mjög sterkar hingað enda er fjöl-
skylda pabba stór og meira að segja
kona mín, Hugrún Sigurðardóttir,
er héðan, en það fyndna við sam-
band okkar er að við þekktumst ekk-
ert þegar við bjuggum bæði í Hólm-
inum. Mér er að vísu sagt að við höf-
um leikið okkur saman í sandkassa
þegar við vorum böm en við kynnt-
umst ekkert ffekar fyrr en löngu
seinna í Reykjavík,“ segir Þór og
kímir.
Byrjar á fjölbrautaskóla-
árum að syngja í rokk-
hljómsveitum
Á námsámm sínum við Fjöl-
brautaskólann í Armúla byrjaði Þór
að syngja með hinum ýmsu rokk-
hljómsveimm. Helstu affek þeirra
hljómsveita var að ná að ijita upp
fyrir hljómsveitirnar Sálina hans
Jóns míns og Síðan skein sól, en Þór
vissi ekki þá að hann átti effir að
standa á sviði ásamt Stefáni Hilm-
arssyni söngvara Sálarinnar sem
Júdas í Súperstar söngleiknum. Þór
segist ekki hafa á þessum áram verið
búinn að ákveða að fara út í tónlist-
ina. „Eg var á þessum árum búinn að
vera mjög upptekinn við að syngja
og semja og skrifa en það var nokk-
uð erfitt að taka ákvörðun um ffam-
tíðina. Eg sá ekki fyrir mér að það
yrði nein örugg ffamtíð í því sem ég
var að sýsla við í tónlistinni og fór í
lífffæði í Háskólanum."
Hárið slær í gegn
Það var greinilega erfitt
fyrir Þór að halda sig ffá svið-
inu. „Eg entist ekki í lífffæð-
inni nema einn vemr og var
sískrifandi texta í tímum
þannig að ég ákvað að kýla á
að reyna eitthvað fyrir mér í
tónlistinni. Um það leyti var
einmitt verið að auglýsa inn-
tökupróf fyrir söngleikinn
Hárið og það var svo sniðugt
að vinur minn einn hafði ver-
ið að kynna mér fyrir þessu
verki, en þá vissi ég sama og
ekkert um söngleiki. Eftir að
hafa kynnst Hárinu fór ég að
spyrja sjálfan mig að því af
hverju það væri ekki búið að
setja upp söngleik eins og
Hárið héma. Það er svo bara stuttu
síðar sem ég auglýsinguna um inn-
tökuprófið. Eg fór í stíf inntökupróf
en fékk síðan einsöngshlutverk þar
að lokum. Vinur minn, sem hafði
tekið þátt í Verslunarskólauppfærsl-
unni, lánaði mér búninginn sinn og
ég notaði hann svo í sýningunni.
Hann skólaði mig því í söngleikja-
ffæðunum og lánaði mér búninginn
í fyrsta verkinu þannig að ég segi
bara takk Biggi.“
Þór leggur áherslu á að Hárið hafi
verið stökkpallur fyrir hann á þess-
um tíma en ekki einungis fyrir
rekstraraðila sýningarinnar á sínum
tíma. „Hárið gekk auðvitað fádæma
vel eins og sögur fara af og var sýnt
allt sumarið og ffam undir áramót,
en þá þurftum við að fara úr húsnæði
Islensku Operannar. Mér fannst al-
veg stórkosdegt að taka þátt í þessu
verkefni enda mjög góð sýning. Það
má segja að þetta hafi verið boltinn
sem fór að rúlla, bæði fyrir mig og
þá sem stóðu að sýningunni í Flug-
félaginu Lofti. Síðan fór ég að starfa
með hljómsveitum aftur til vors en
Jón Olafsson hafði beðið mig um að
taka vorið ffá því hann væri með
ýmislegt í bígerð. Það var þá hlut-
verk Júdasar í Súperstar sem svona
lagði svolítið línurnar fyrir það sem
koma skyldi hjá mér.“
Súperstar og West End
Súperstar naut sömuleið gríðar-
legra vinsælda en þar var Þór í nokk-
uð áberandi hlutverki Júdasar eins
og fyrr segir. „Við vinnuna á
Súperstar vann ég mikið með Ama
Pétri Guðjónssyni, aðstoðarleik-
stjóra. Hann hafði alltaf mikla trú á
mér og gaf mér mörg góð ráð sem
era mér enn ofarlega í huga. Það var
miki af góðum poppsöngvurum í
sýningunni og ég hafði alltaf gaman
af því þegar þeim var uppálagt að
vera ekkert að hreyfa mikið hend-
urnar, því það sæist strax á handa-
hreyfingunum fólks ef það væri ekki
með „leikarahendur“. Eg hins végar
fékk mikla hvamingu frá Árna Pétri
varðandi minn leik.“
Þegar Súperstar lauk bauðst Þór
vist í Vínarborgarskóla í söngleikj-
um sem hann hafhaði reyndar vegna
þess að ég var þá í öðr-
um sviðsverkefnum í
Borgarleikhúsinu. „Um
haustið 1996 var mig
farið að langa að sjá
hvernig hinn stóri
heimur liti út. Konun-
inni minni bauðst síðan
starf í Lundúnum og
þegar ég ffétti hjá vini
mínum að það væri
komin framhaldsdeild í
Arts Educational í
London, fyrir þá sem
vilja slípa upp hjá sér
leik eða söng, þá sló ég
til effir hvamingu ffá
konunni minni. Eg út-
skrifaðist svo ári seinna
úr skólanum og hef ver-
ið með nokkra ráðn-
ingasamninga á West
End síðan. Það er dálítið fyndið en
eftir að það kom í ljós hversu fljótt
ég komst að á West End hafa skóla-
ráðendur í Arts Educational flaggað
nafninu mínu í auglýsingum sínum.
Fyrsta árið var ég í kórnum í
Súperstar en síðan tók ég þátt í far-
andsýningu á Vesalingunum sem
ferðaðist um allt Bretland.“
,A mér svohtinn
aðdáendahóp“
Þór gengst ekki svo glatt við því
að geta kallast ffægur á West End en
hefur þó skapað sér þar nafh. „Margt
fólk í bransanum er farið að kannast
við mig og ég er kominn með lítinn
áhangendahóp sem eltir mig út um
allt land þar sem ég er á ferð. Á West
End verður maður yfirleitt eftir sýn-
ingar að fara í gegnum töluverðan
hóp af fólki sem vill fá eiginhandar-
áritanir og þetta fannst mér mjög
skrýtið í byrjun.“
Þór hélt sína fyrstu söngleikjatón-
leika á Islandi í Stykkishólmskirkju
fyrir skemmstu og er afar ánægður
með hvernig til tókst. „Þetta var eini
staðurinn sem kom til greina varð-
andi mína fyrstu tónleika. Hér er
mikið af skyldmennum sem hafa
stutt mig mildð og sumir þeirra hafa
aldrei heyrt mig syngja. Kirkjan er
mjög fín og mátulegur hljómburður
í henni þannig að hægt er að flytja
fjölbreytta tónlist þar sem hentaði
mér mjög vel,“ segir Þór. Þess ber
svo auðvitað að geta að Bergþóra
Jónsdóttir, tónlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins, fór lofsamlegum
orðum um söng Þórs á þessum tón-
leikum.
Þegar Skessuhom á tal við Þór
hefur ráðningarsamningur hans í
verkinu The Phantom of the opera
nýlega runnið út. Það verður því eitt
hans fyrsta verk þegar kemur til
Lundúna að huga að næstu verkefn-
um og segir að það sé ýmislegt í spil-
unum. „Eg varð reyndar að hafna
starfi til þess að komast hingað en ég
var búinn að lofa sjálfum mér því að
koma núna og halda þessa tónleika í
Stykkishólmi. Við höfum ákveðið að
framlengja dvölina aðeins og ætium
að upplifa Danska daga í Stykkis-
hólmi sem verður mjög skemmti-
legt-“
Að lokum má geta þess að Þór
hefur dundað sér við vefsmíði og
hefur sett upp vef fyrir þá sem vilja
fylgjast með gangi mála hjá honum.
Slóðin er www.here.is/thorkristins-
son.
smh