Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 16.08.2001, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 16.08.2001, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2001 jn£39Unui^ Slámrn hafin Sumarslátrun er-hafin hjá slát- urhúsi Kaupfélags Króksljarðar á Króksíjarðarnesi. Að sögn Berg- sveins Bergsveinssonar slátur- hússtjóra var 75 lömbum slátrað síðastliðinn mánudag og reiknað er með að slátrun hefjist af full- um krafti í næstu viku og standi óslitið þar til haustslátrun lýkur. A síðasta ári var slátrað urn 10 þúsund dilkum á Króksíjarðar- nesi en búist er við að fleiri lömbum verði slátrað í ár. GE Úthafskarfa- veiði gengur vel Frystiskip Haraldar Böðvars- sonar hf., Höfrungur III, er nú á úthafskarfaveiðum suður af Grænlandi, um 670 sjómílur SV af Akranesi. Þeim frystiskipum sem þar stunda veiðar hefur gengið vel í vikunni og hefur Höfrungur verið í stöðugri vinnslu. Karfinn sem veiðist á þessum slóðum er smærri en sá sem veiddist í vor en að öðru leyti mjög góður. Helga María hélt úr höfn á mánudag og sigldi rakleitt á sömu mið. Nokkrum dögum áður landaði Helga Mar- ía blönduðum afla að verðmæti um 90 milljónir króna eftir 25 daga veiðiferð. Ingunn AK landaði rúmum 2000 tonnum af kolmunna á Vopnafirði á mánudag, en kolmunnaveiðin hefur verið þokkaleg að undanförnu. SOK Aukning hluta- íjár í Hótel Stykkishólnii Aðalfundur Hótelfélagsins Þórs hf. verður haldinn á Foss- hóteli Stykkishólmi þann 21. á- gúst næstkomandi. Að sögn Ola Jóns Gunnarssonar mun liggja fyrir fundinum tillaga um aukn- ingu hlutaijár um 35 milljónir og reiknað með að 15 millj. korni frá bænum og 25 millj. frá öðrurn að- ilum. Segir Óli Jón að verið sé með þessu að bregðast við nokkrum framkvæmdakostnaði ffá síðasta ári en þá var margt inn- anstokks endurbætt. Fosshótel leigir hótelreksturinn af Hótelfé- laginu Þór sem bærinn á yfir 90% hluta í. smh Sorphirða boðin út Á síðasta fundi bæjarstjórnar Borgarbyggðar var samþykkt að segja upp samningi við Gáma- þjónustu Vesturlands og bjóða út sorphirðu í sveitarfélaginu. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur for- seta bæjarstjórnar er ástæðan sú að ætlunin er að leita efrir sem hagkvæmusmm kosti með útboði. Fulltrúar minnihlutans í bæjar- stjórn greiddu atkvæði gegn upp- sögninni. Kolfinnajóhannesdótt- ir oddviti Framsóknarmanna sagði að minnihlutinn væri ekki andvígur útboðum almennt en teldi hinsvegar að forsendur þyrftu að liggja fyrir um lækkun á verði og að minnsta kosti jafn góða þjónustu áður en farið væri í útboð með tilheyrandi kostnaði. Hún sagði að þær forsendur hefðu ekki legið fyrir í þessu til- felli. ' GE Rúmlega 300 milljóna króna tap á rekstri Spalar Afkoma Spalar ehf., fyrirtækisins sem á og rekur Hvalfjarðargöng, versnaði um 320 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins vegna gengistaps. Um 304,5 milljóna króna tap varð á rekstrinum á þessum fyrsm níu mánuðum sem eru frá 1. októ- ber 2000 til júníloka 2001. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður af rekstri 16,2 milljónir króna og versnaði því afkoman eins og áður segir um 320 milljónir króna. Tekjur fyrirtækisins jukust þó verulega á milli þessara tímabila, úr 491 milljón króna í 541 milljón króna. Ástæða þessarar slæmu af- komu nú er stóraukinn fjármagns- kostnaður. Hann var tæpar 704 milljónir króna nú á móti rúmlega 205 milljónum króna í fyrra. Geng- istap Spalar ehf. í lok júní síðastlið- ins var 615 milljónir króna og verð- bætur 186 milljónir króna. Alls um það bil 804 milljónir króna. I tilkynningu á heimasíðu Spalar er tekið fram að ástandið hafi lagast frá því þessir fyrstu níu mánuðir rekstrarársins voru gerðir upp. I júlí og ágúst hafi krónan styrkst og gengistap félagsins því minnkað um rúmlega 130 milljónir króna. A heimasíðunni er einnig tekið fram að þrátt fyrir allt ætli stjórn Spalar sér ekki að breyta gjaldskrá Hvalfjarðarganga á þessu ári. SOK Kennararáðningar ganga vel í Grundaskóla Skortur á réttindafólki í Brekkubæjarskóla Brekkubœjarskóli Ágætlega hefur gengið að ráða kennara í grunnskólana á Akranesi fyrir komandi skólaár. Þó hefur gengið heldur betur í Grundaskóla en í Brekkubæjarskóla. Hrönn Rík- harðsdóttir, skólastjóri Grunda- skóla, segir að þar hafi nú verið ráð- ið í allar stöður og að réttindafólk sé í þeim nánast öllum. Einnig bárust fjölmargar umsóknir um stöðu stuðningsfulltrúa í skólanum, en ekki hefur verið gengið frá ráðningu hans. Stuðningsfulltrúi sér um að aðstoða fatlaða nemendur skólans, veita þeim leiðsögn og fylgja þeim eftir í náminu. Ingi Steinar Gunnlaugsson, skóla- stjóri Brekkubæjarskóla, segir það fara eftir því hvaða mælikvarða menn noti þegar staðan varðandi kennararáðningar í skólanum er metin. Þar hafa verið ráðnir sex kennarar, þar af aðeins einn með kennararéttindi. „Við höfum auðvit- að óskað efrir því að allir kennarar hér væru með full réttindi en slíkir menn eru ekki á lausu í dag. Við höf- um ráðið marga leiðbeinendur, sem eru auðvitað besta fólk og sumir hverjir með mikla reynslu. En við höfum ráðið í það margar stöður að hægt sé að loka dæminu. Að vísu vantar okkur sérfræðing í ensku sem myndi styrkja liðið, en þetta er svona skriðið saman.“ Ingi Steinar segir að þetta sé í fyrsta skipti sem svo margir leið- beinendur séu ráðnir til starfa við Brekkubæjarskóla. „Staðan nú er ó- venjuleg að því leyti að við þurfum að fjölga kennurum vegna einsetn- ingar auk þess sem tveir kennarar eru í barnsburðarleyfi. En það hefur verið regla lengi að kennara vantar á þeim tímabilum sem sæmilega árar í þjóðarbúskapnum því þá standa þeim til boða betur launuð störf.“ Skólastarf í Brekkubæjarskóla mun hefjast að nýju þann 27. ágúst. Þá verða afhentar smndaskrár og bækur en Ingi Steinar segir ekki víst að nýtt húsnæði verði tilbúið til notkunar þá. „Eins og staðan er í dag sýnist mér ekki vera útlit fýrir að við getum hafið kennslu þar daginn eftir setningu skólans,“ SÓK Aflakló fær Bárður SH-81 við komuna á Amarstapa sl. fimmtudag. Nýr bátur kom til heimahafnar á Arnarstapa sl. fimmtudag. Eigandi bátsins er Pétur Pétursson sem var aflahæstur skipstjóra aflamarksbáta, undir 10 tonnum, á síðasta ári. Ljóst er að urn mjög glæsilegan bát er að ræða. Að sögn Péturs er hinn nýi bátur, Bárður SH-81, tæplega helmingi stærri en sá gamli og há- markshraði hins nýja báts um 22 mílur. Segir hann að báturinn, sem verður á netaveiðum, hafi komið mjög vel út úr reynslusiglingunum. „Við fórum í tvær reynslusiglingar auk heimsiglingarinnar á fimmtu- daginn og er hinn nýi bátur sérstak- lega góður hvað varðar vinnuað- stöðu. Núna verður auðvitað allt miklu rýmra um borð og aðstaða þægilegri.“ Danskur saxafónleikari í Hólminum og Ólafsvík Einn af þeim bestu Von er á heimsfrægum dönsk- um saxafónleikara á Snæfellsnes- ið næstu daga. Um er að ræða danskan djass-snilling, Jakob Andersen, í för með tríói sínu Koppel-Andersen-Koppel. Að sögn Olafs Þórðarsonar Ríó- tríómanns og sérstaks áhuga- manns um djass er þar á ferðinni einn allra besti saxófónleikari í djassinum í dag, en Ólafiir hefur verið svo heppinn að fá að spila með honum. „Hann er svo yfir- lætislaus og geðþekkur þessi Dani að hann leyfði mér meira að segja að spila með sér,“ segir Ólafur. Þá er gaman að geta þess að faðir hins unga snillings er hammondleikari í tríóinu. Er ætlunin að hið danska tríó spili á Fosshóteli í Stykkishólmi í kvöld og svo á Hótel Höfða í Ólafsvík nk. föstudagskvöld. smb Vinnu- markaðstorg Atvinnuráðgjöf Vesturlands í Borgarnesi hefur ákveðið að vera með í að liðka fýrir á vinnumark- aði Vesturlands að því er fram kemur í fréttatilkynningunni frá stofnuninni. „Það hefur verið nokkuð al- gengt að einstaklingar leiti til okkar hjá Atvinnuráðgjöf Vestur- lands og biðji okkur um aðstoð í atvinnuleit á svæðinu," segir Víf- ill Karlsson hjá Atvinnuráðgjöf Vesturlands. „Bæði hefur verið um að ræða einstaklinga búsetta á svæðinu eða einstaklinga sem vilja setjast að á svæðinu. Fram til þessa hefur þessu ekki verið sinnt ineð skipulögðum hætti en þar sem skilvirkur vinnumarkað- ur þrífst betur í krafti greiðs upplýsingaflæðis þá var talið eðlilegt að veita þessum þætti hans lið,“ segir Vífill. Atvinnuráðgjöf Vesturlands býður nú einstaklingum í at- vinnuleit, upp á skráningu sem birt verður á heimasíðu hennar, http://atvinnuradgjof.vesturland is, og kalla hana Vinnumarkaðs- torg. Auk þess verður fýrirtækj- um á svæðinu, sem eru í starfs- mannaleit líka boðið upp á skráningu á torginu. Nú þegar hefur Atvinnuráðgjöfin tekið við 20 skráningum. Ekki er um eig- inlega ráðningaþjónusm að ræða heldur upplýsingaveim sem felst í að tengja tvo aðila saman að sögn Vífils. GE Skemmd- arverk Skemmdarverk voru unnin á í- búðarhúsi í Borgarfirði aðfara- nótt sunnudags. Tvær stórar rúður voru brotnar í húsinu en ekki virðist hafa verið um inn- brot að ræða. Málið er í rann- sókn. GE smh

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.