Skessuhorn - 16.08.2001, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2001
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fox: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040
Ritstjóri og óbm: Gisli Einarsson 892 4098
Blaðamenn: Sigrún Kristjónsd., Akranesi 862 1310
Sigurður Mór, Snæfellsn. 865 9589
Auglýsingar: Hjörtur J. Hjartarson 864 3228
Prófarkalestur: Sigrún Kristjónsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf
Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsínga er kl.
14:00 á þríðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss
tímanlega.
Blaöiö er gefiö út í 4.000.eintökum og selt til áskrifenda og í iausasölu.
Áskriftarverö er 850 krónur meö vsk. á mánuöi en krónur 750 sé greitt meö
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
4 3 1 5 0 4 0
Blankir
bolta-
menn
Fátt hefur í gegnum tíðina veitt mér meiri gleði og hamín-
gju en að fylgjast með slöku gengi KR-inga í knattspyrnu.
Það er, fyrir þá sem ekki þekkja, ólýsanleg tilfinning, alveg
einstök upplifun og í raun ekki hægt að líkja því við neitt
annað. Þess vegna hefur hamíngja mín varla átt sér nein tak-
mörk það sem af er þessu sumri.
Þó er ekki laust við að það örli á vorkunnsemi í seinni tíð
þar sem ég er með eindæmum viðkvæm sál og má ekkert
aumt sjá. Það er nefnilega ekki það sama að sjá andstæðing-
inn sigraðann og að horfa á hann niðurlægðan.Með öðrum
orðum þá Iiggur við að mér finnist þetta hafa gengið of
langt.
Það er líka alltaf sorglegt að horfa upp á þegar verið er að
eyða stórfé án árangurs. Þarna og víða annars staðar hefur
löngunin í verðlaunagripi borið þá ofurliði, sem er athyglis-
vert í ljósi þess að slíkt glingur er hægt að fá fyrir fáeinar þús-
undir og þess vegna ástæðulaust að stofna til tugmilljóna
skulda. Stærstur hluti útgjaldanna hjá einu knattspyrnufélagi
er í flestum tilfellum laun leikmanna. Sem einnig er athygl-
isvert því þegar fyrirtæki eru með menn á launaskrá þá er
þeim yfirleitt borgað fyrir að vinna. I þessu tilfelli, og fleir-
um reyndar, er þeim hinsvegar borgað þótt þeir vinni yfir-
Ieitt ekki. Það er fremur undarleg hagffæði, að mínu mati, að
borga mönnum stórfé fyrir að tapa leikjum og láta fara illa
með sig á knattspyrnuvellinum. Þetta gerði ég í mörg ár án
þess að taka krónu fyrir. Þess ber að vísu að geta að það kom
til greina í mínu félagsliði að ég yrði settur á Iaunaskrá eða
öllu heldur gerður að verkataka og fengi greitt eftir eininga-
verði fyrir mína knattspyrnuiðkun. Hugmyndin var að vísu
ekki sú að ég fengi greitt fyrir hvern Ieik sem ég spilaði eða
hvert mark sem ég skoraði heldur að ég fengi ákveðna upp-
hæð fyrir hvern leik sem ég spilaði ekki og sérstakan bónus
fyrir hverja tæklingu sem ég sleppti á æfingum. Forráða-
menn félagsins töldu að þessum kostnaði væri hægt að ná til
baka með minna viðhaldi á vallarsvæðinu og lægri sjúkra-
kosmaði annara leikmanna. Samningar náðust að vísu ekki
þar sem ég gerði kröfur um einkabúningsklefa með minibar
og öskubakka sem samrímdist að því, er mér var sagt, ekki
stefhu félagsins sem upphaflega var stofhað sem bindindisfé-
la& . .
Eg gaf því drauminn um glæstan atvinnumannsferil upp á
bátinn. Kannski var ég of fljótfær, því í seinni tíð eru það ekki
aðeins bestu knattspyrnumennirnir sem fá greitt fyrir sín
spörk. Miðlungsknattspyrnumenn og þaðan af lakari ganga
kaupum og sölum fyrir jarðarverð.
Enn er það athyglisvert að þrátt fyrir að samkvæmt þekkt-
um hagfræðilögmálum ætti verðlag á knattspyrnmönnum að
vera í samræmi við gæði vörunnar þá virðist reyndin vera
önnur. I sumar hafa blönku liðin verið að standa sig betur og
leikmenn sem eru einskis virði hafa verið standa sig vel. Þetta
gefur veika von um að enn sé ekki búið að grafa ungmenna-
félagsandann endanlega og ,þótt það kunni að þykja hallæris-
legt og lítið inn að hrópa Islandi allt eða sitja við varðeld í
smáskátabúningi og syngja gingganggúlligúlli þá hefur það,
eftir því sem ég best veit, ekki sett neinn á hausinn.
Gísli Einarsson, varamaður
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
ritstjori@skessuhorn.is
sigrun@skessuhorn.is
smh@skessuhorn.is
hjortur@skessuhorn.is
ougl@skessuhorn.is
Slátrað í Borgamesi og
Búðardal?
Skýrist væntanlega í kvöld
Sláturhúsið í Borgamesi
„Menn eru á fullu að ljúka samn-
ingum Kaupfélaganna við Goða og
niðurstaða liggur fyrir í vikunni,“
segir Þorvaldur Tómas Jónsson
stjórnarformaður Kaupfélags
Borgfirðinga og stjórnarmaður í
Goða eða Kjötumboðinu eins og
fyrirtækið heitir í dag.
Þorvaldur segir að ekki sé hægt
að segja ákveðið til um hvort slátr-
að verður í sláturhúsum Kjötum-
boðsins á Höfn, Hvammstanga,
Borgarnesi og Fossvöllum eins og
rætt er um fyrr en stjórnir félag-
anna hafa tekið afstöðu. Þá er
einnig beðið eftir niðurstöðum
starfshóps sem landbúnaðarráð-
herra kom á laggirnar til að fjalla
um aðgerðir til að greiða fyrir
sauðfjárslátrun í haust. „Málið
snýst að miklu leyti um hvort menn
nái að lækka vextina á afúrðalánun-
um. Það hefur bæði áhrif á hvort
verður slátrað í þessum húsum og
Tilboð í lengingu grjótgarðs á
Arnarstapa um 35 metra voru opn-
uð þann 9. ágúst sl. Alls bárust 6 til-
boð í verkið frá fimm aðilum en
kostnaðaráætlun hljómaði upp á
55.618.400 kr. Tilboð voru eftirfar-
andi: Berglín ehf. 27.776.780 kr.,
Stafnafell ehf. (frávikstilboð)
32.448.270 kr., Suðurverk hf.
33.449.00 kr., Klæðning hf.
37.830.00 kr., Stafnafell ehf.
41.848.270 kr. og Norðurtak hf.
hvaða verð er hægt að bjóða.“
Þorvaldur segir að það komi til
með að liggja fyrir í dag hvort slátr-
að verður í sláturhúsinu í Brákarey.
„Við erum að brenna inni á tíma og
niðurstaðan verður að liggja fyrir á
fimmtudag og hún verður kynnt
bændum á fundi þá um kvöldið.“
Nokkrar líkur eru á að einnig
verði slátrað í Búðardal í haust en
sveitarstjóm Dalabyggðar og for-
svarsmenn Kaupfélags Borgfirðinga
hafa átt í viðræðum að undanförnu.
„Það liggur fyrir að Dalamönnum
er heimilt að koma inn í þennan hóp
og á sömu kjömm og við erum að
semja. Þeir em að meta það hvort
það sé leið fyrir þá. Þeir em búnir að
sjá það eins og við hinir að þetta er
vonlaus rekstur. Þetta er bara
spurning um að bjarga málunum á
meðan verið er að skoða málin til
framtíðar með tilliti til hagræðing-
ar,“ segir Þorvaldur. GE
47.189.00 kr.
Var útboðið með fyrirvara um að
framkvæmdarleyfi fengist frá Nátt-
úmvernd ríkisins en formlegt leyfi
framkvæmdanna hefur ekki borist.
Sem kunnugt er hefur Skipulags-
stofnun samþykkt deiliskipulag fyr-
ir höfnina svo ekki þarf að fara í
umhverfismat með framkvæmdirn-
ar. Vonir manna standa til að fram-
kvæmdir getá hafist í byrjun nóv-
ember. smh
Stykkishólmur
Nýr forstöðu-
maður Dvalar-
heimilisins
Á dögunum tók Jóhanna Guð-
brandsdóttir við sem nýr for-
stöðumaður Dvalarheimilisins í
Stykkishólmi. Starfaði hún áður
á Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi.
Að sögn Jóhönnu leggst starfið
vel í hana enda hefur hún milda
ánægju af því að vinna með
garnla fólkinu. Hún segir að vísu
þurfi margt að laga aðstöðulega á
heimilinu en það standi nú allt til
bóta og þegar hafi ýmislegt
breyst til batnaðar. Nefnir hún í
því sambandi nýtt eldhús og
matsal sem var nýlega tekið í
notkun. smh
Umsetnir
Olsen-
bræður
Enn er óljóst hvort Olsen-
bræður láti sjá sig á Dönskum
dögum í Stykkishólmi um helg-
ina. Samkvæmt Daða Sigþórs-
syni, verkefnisstjóra Danskra
daga, virðist vera komin sam-
keppni um þá „bræður“ þessa
helgi. Segir hann að Stykkis-
hólmsbæ yrði sómi sýndur ef
þeir myndu láta sjá sig á Dönsk-
um dögum en þeir hafi ekki sama
fjármagn og aðrir sem væru að
falast eftir því að fá ljúfmennin
tál sín. „Stykkishólmur er það að-
dráttarafl sem við teflum fram og
svo erum við auðvitað með þessa
Dönsku daga og það væri bara
mjög gaman ef þeir kæmu,“ seg-
ir Daði. Hann bætti því við að
málið væri ennþá á viðkvæmu
stági. smh
Landsmót
Hagyrðinga á
Hvanneyri
Tólfta landsmót hagyrðinga
og hollvina stökunnar verður
haldið á Hvanneyri laugardags-
kvöldið 25. ágúst n.k. Þangað er
steðjað hagyrðingum og vísna-
vinum af landinu öllu og í til-
kynningu frá mótsnefndinni seg-
ir að þar verði glaðst með góm-
sætum matföngum og glænýjum
bögum. Þessi landsmót hafa not-
ið mikilla vinsælda og hefur að-
sókn iðulega verið góð. Búast má
við að svo verði einnig nú því hið
hefðbundna bragarform nýtur
vaxandi vinsælda á ný. GE
Tölvumynd af grjótgarðinu d Amarstapa eftir lenginguna.
Tilboð í grjótgarðslengingu
Kanadísldr háskólanemar á námskeiði á Hvanneyri
SíSastliðinn mánudag komti 25
kanadískir háskólanemar frá Háskólan-
um í Guelph i Kanada á þrigg/a daga
námskeið að Hvanneyri. Námskeiðið er
þvetfaglegt ogfallar m.a. um jarðfi'æði
íslands, náttúru og landnýtingu. Hlust-
að er áfyrirlestra um þessi efiii og einnig
farið í vettvangsferðir þar að lútandi.
íslandsferð háskólanemanna er liður í
■samstarfi fjögurra skóla hér á landi við
Háskólann í Guelph og þetta er í þriðja
skipti sem nemendahópur kemur til Is-
lands vegna svona samstaifs.
Nleðalþess sem gert var tengt náminu á
Hvanneyri var aðfarið var í vettvangs-
ferð til að skoða fravigang uppgræðslu-
verkefins á svæðinu undir Hafiiarfialli,
en þar má sjá þverskurð af því sein er
veríð að gera í uppgræðslu á Islandi.