Skessuhorn - 16.08.2001, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2001
^kCsaunuiLÍ
Ut í vorið á
Dönskum dögum
Kvartettinn Út í vorið og Signý
Sæmundsdóttir óperusöngkona
halda tónleika í Stykkishólmskirkju
19. ágúst 2001 kl. 16:00.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt.
Þar má finna vinsæl kvartett- og
kvintettlög, syrpu ajMogum eftir
Jón Múla og Jórias Árnason og
sönglög útsett fyrir sópran og
karlaraddir. /
Söngkvartettinn Út í vorið var
stofnaður haustið 1992 afþeimÁs-
geiri Böðvarssyni, Einari Clausen,
Halldóri Torfasyni og Þorvaldi
Friðrikssyni. Snemma árs 1993
kom píanóleikarinn Bjarni Þór
Jónatansson til liðs við kvartettinn.
Hann starfar sem píanókennari og
organisti í Reykjavík og hefúr auk
þess starfað með fjölda einsöngvara
og kóra. Yngsti meðlimur hópsins
er Magnús Ragnarsson.
Signý Sæmundsdóttir hefur tekið
þátt í óperuuppfærslum á Islandi og
á erlendri grund, ásamt því að
syngja fjölda einsöngstónleika og
koma fram með Sinfoníuhljómsveit
Islands og fjölda kóra. Signý hefur
verið raddþjálfari karlakvartettsins
Út í vorið um árabil. Oll hafa þau
verið félagar í Kór Langholtskirkju
undir stjórn Jóns Stefánssonar um
lengri eða skemmri tíma.
(Tréttatilkynning)
Margt á döfinni
að Görðum
Framkvæmdanefnd Byggðasafns
Akraness og nærsveita kom saman
til fúndar að Görðum fyrir skömmu.
Þar var rætt um nafn á nýbyggingu
safnsins og kom fram hugmynd um
að nefna hana „Safnaskálinn að
Görðum“. Jón Allansson, forstöðu-
maður safnsins, upplýsti einnig á
fundinum að búið væri að sá í flatir
við nýbygginguna og gróðursetja
um 40 tré. Akveðið var að gróður-
setja fleiri tré og að setja niður sex
fánastangir við bygginguna.
Til stendur að gera tjörn á safna-
svæðinu og var það til umræðu auk
byggingar á nokkurs konar
„bryggju“ fyrir smábáta og stað-
setningu á bátaskýli og hjalli. Til
þess þarf að gera breytingar á
skipulagsuppdrætti og var for-
stöðumanni falið að gera tillögur
að þeim.
Einnig var ákveðið að láta gera
skilti á næsta ári og leiðbeiningar
sem komið yrði fýrir á safnasvæð-
inu. Það stendur því greinilega til
að gera margt á safnasvæðinu og
ætti það því að verða jafnvel enn
glæsileera en nú þegar fram líða
stundir. SÓK
Elísa og Ingibjörg með
tónleika
Elísa Vilbergsdóttir hin efnilega
unga sóprasöngkona úr Stykkis-
hólmi og Ingibjörg Þorsteinsdóttir
píanóleikari og skólastjóri Tónlist-
arskólans í Stykkishólmi ætla að
leggja land undir fót og leyfa Borg-
nesingum, Hólmurum og Hafn-
firðingum að njóta frábærra hæfi-
leika sinna.
Fyrstu tónleikarnir verða í Borg-
arneskirkju þriðjudaginn 21. ágúst
kl. 20:30 aðrir tónleikarnir verða í
Stykkishólmskirkju fimmtudaginn
23. ágúst kl. 20:30 og þeir þriðju
verða í Hásölum Hafnarfirði helg-
ina eftir dönsku dagana.
Það verður auglýst nánar þegar
nær dregur.
Efnisskrá þeirra: Á ferð urn
heiminn er sérlega fjölbreytt með
ljóðum, aríum og söngleikjalögum
frá öllum heimshornum.
Missið ekki af þessu einstæða
tækifæri.
(Fréttatilkynning)
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
lögg. fasteigna- og skipasali
Nýtt á söluskrá
Hrafnaklettur 2, Borgarnesi.
4 herb. íbúð á 1. hæð, 95,3 ferm. Stofa og hol
parketlagt. 3 herb. dúklögð, skápar í 2. Eldhús
dúklagt, viðarinnr. Baðherb. flísalagt, ljós viðarinnr.
Sameiginl. þvottahús og geymslur í kjallara.
Verð: kr. 7.200.000.
Nýríkir bændur
Bændur 18. aldar verða næsta
viðfangsefni Snorrastofu. Miðviku-
daginn 22. ágúst mun Axel Krist-
insson, sagnfræðingur og forstöðu-
maður Safnahúss Borgarfjarðar,
flytja fyrirlesturinn „Auður og ætt-
leysi. Um Borgfirðinginn Þorbjöm
Bjarnason og aðra nýríka bændur á
18. öld“ í Snorrastofu í Reykholti.
Hefst dagskráin kl. 21.00 og eru
allir hjartanlega velkomnir.
Fyrirlesturinn tjallar um Þor-
björn Bjarnason, ættlausan mann
að því er best verður séð, og ótrú-
lega auðsöfnun hans á 18. öld. Þor-
björn var þó ekkert einsdæmi held-
ur auðguðust ýmsir á þeim tíma
þótt af lágum stigum væm. Þetta
var mikil breyting frá því sem áður
var þegar allir helstu jarðeigendur
og ríkisbændur landins voru af
gömlum og virðulegum höfðingja-
ættum. I fýrirlestrinum verður
fjallað um orsakir þessara breytinga
og hvernig þær voru þáttur í frá-
hvarfi frá fyrri tíma stéttskiptingu
og samfélagsháttum og vísuðu veg-
inn til nútímavæðingar á Islandi.
Axel er með B.A.-próf og
Cand.mag próf í sagnfræði frá Há-
skóla Islands.
Titill B.A.-ritgerðar var „Hern-
aður á Sturlungaöld" og
Cand.mag-ritgerðar „Goðavald og
ríkisvald". Hann vinnur að dokt-
orsritgerð í sagnfræði við sama
skóla um efnið „Islenskir höfðingj-
ar 1100-1800. Erfðir, eignir og
embætti“. Axel hefur á s.l. ámm
unnið ýmis störf tengdum sagn-
Axel Kristinsson
fræði, þ.á.m. verið sérfræðingur við
fornleifagröft á Bessastöðum,
stundakennari við Háskóla Islands
og sinnt ýmsum rannsóknum sem
sjálfstætt starfandi fræðimaður. Þá
hefur hann unnið að uppsetningu
sýningar fyrir Snorrastofú í sam-
vinnu við fleiri sérfræðinga, haldið
fyrirlestra, stundað kennslu og
fleira. Hann er, sem fyrr segir, nú-
verandi forstöðumaður Safnahúss
Borgarfjarðar.
Fyrirlestur sinn mun Axel sem
fyrr segir flytja miðvikudaginn 22.
ágúst kl. 21.00 í Snorrastofu. Að-
gangseyrir er 400 kr. og era allir
sem tök hafa á eindregið hvattir til
að koma.
(Fréttatilkynnig)
^Penninn________Lélep þjónusta
Mig langar að tala um lélega
þjónusm í fyrirtækjum, ég og
maðurinn minn höfum lengi vel
verið að reyna að panta varahluti
í bíl sem við eigum en aldrei
koma réttir hlutir.
Eg pantaði varahlut í bílinn
fyrir nokkram dögum síðan og
við fengum já varahlut bara ekki
þann sem við pöntuðum, við
auðvitað sendum hlutinn til baka
og pöntuðum nýjan og báðum
um að sá hlutur yrði ekki sendur
með Islandspósti heldur öðru
fyrirtæki, en þegar varahlumrinn
kom var hann sendur sem póst-
krafa hjá Islandspósti!
Gemr fólk úti á landi ekki orð-
ið pantað hluti í gegnum þjón-
ustur eins og Toyota umboðinu
R Samúelssyni eins og við gerð-
um, við sem búum úti á landi
gemm ekki alltaf verið að hlaupa
í Reykjavík til þess eins að kaupa
einhverja smáhluti, það myndi ég
telja virkilega óeðlilegt.
Eru þessi fýrirtæki ekki með
símaþjónusm fyrir fólkið úti á
landi til þess að það þurfi ekki
sínkt og heilagt að vera að fara í
bæinn?
Eg bara hélt að maður gæti
fengið almennilega þjónustu eins
og samfélagið krefst af hverju nú-
tíma fyrirtæki!
Þetta veit hver bóndi að maður
þarf að geta treyst á fýrirtækin í
bænum því að hlutirnir eru ekki
alltaf til heima hjá manni, eða er
það ætluninn að hver bóndi sé
með lager heima hjá sér og geti
bara treyst á nágrannana ef hlut-
irnir era ekki til heima?
Eg veit um fleiri sem hafa lent
í svipuðu og mjög oft hjá sama
fýrirtæki og við, ásamt fleiri fýr-
irtækjum sem hafa einnig verið
með eins lélega þjónusm og P.
Samúelsson.
Kolbnín Bylg/a Sveinbjömsdóttir
Sælingsdal
'Penninn Vöntun á þ/éniistu
Hinn 2. júlí 2001 vorum við
hjónin samferða hóp útlendinga í
Borgarfjarðarsýslu. Þetta var
hinn myndarlegasti hópur, 30
manns af fólki víðsvegar að úr
heiminum. Eg var hreykin og á-
nægð yfir öllu sem að ég hafði séð
hingað til, við fórum frá Húsafelli
niður að Hraunfossum/Barna-
fossum og þar er búið að gera
margt mikið og fallegt, fólk gemr
skoðað landslagið í öryggi, þ.e.
handrið meðffam útsýningarpall-
inum og hægt að fá sér sæti og
njóta náttúrannar við nestið sitt.
En svo brá mér heldur betur í
brún, þar var líka hugsað urn sal-
ernisaðstöðu. Það eina sem að
vantaði var vatn í klósettkassann,
beggja megin var mér sagt! Það
var líka vönmn á stærri tunnum
fýrir pappírsþurrkurnar eða tæma
oftar. Hver sér um að athuga
þess háttar? Það er nú óþarfi að
láta alheim sjá svona stjórnleysi
með eigin kamar.
Mitt þjóðarstolt sökk við þessa
upplifun og ég vona þegar að við
komum næst með hóp með okkur
til landsins, að þetta hafi verið
mikil mistök í okkar fallega landi
og komi ekki fýrir aftur.
Svava Hannesdóttir
#Beygarðshornið
Elsku mamma
Skátaforinginn okkar bað okkur
um að skrifa heim ef ske kynni að
foreldrarnir hefðu séð fréttina um
flóðið í sjónvarpinu og væru með
áhyggjur. Það er allt í lagi hjá okk-
ur. Það flutu bara tvö tjöld og fjór-
ir svefnpokar í burtu. Sem betur
fer drukknaði enginn því við vor-
um allir uppi á fjalli að leita að
Jóni þegar þetta gerðist. Segðu
mömmu hans Jóns að hann sé í
lagi. Hann getur ekki skrifað
henni út af gifsinu. Eg fékk að
keyra einn hjálparsveitarjeppann.
Það var frábært.
Við hefðum aldrei fundið Jón í
myrkrinu ef ekki hefðu komið eld-
ingar. Viddi skátaforingi varð reið-
ur út í Halldór fýrir að fara í
göngu án þess að segja neinum frá.
Halldór segir að hann hafi sagt
honum ffá á meðan eldsvoðinn var
í gangi, þess vegna hefur hann lík-
lega ekki heyvt sérlega vel í hon-
um. Vissuð þið að ef maður kveik-
ir í gasi, þá springur kúmrinn?
Blautu spýmrnar brunnu ekki, en
það kviknaði í einu tjaldi og eitt-
hvað af fötunum okkar brann.
Lárus verður fúrðulegur í útliti
þangað til hárið vex aftur.
Við komum heim á laugardag-
inn ef Viddi skátaforingi kemur
bílnum í lag. Utafkeyrslan var ekki
honum að kenna. Bremsurnar
voru í fínu lagi þegar við lögðum
af stað. Viddi skátaforingi sagði að
það væri eðlilegt að eitthvað bilaði
í svona gömlum bíl. Það er
kannski þess vegna sem hann er
ekki á skrá. Okkur finnst þetta
vera frábær bíll. Vidda er sama þó
bíllinn verði skímgur og ef heitt er
í veðri fáum við smndum að
standa utan á stigbrettunum. Það
verður smndum ferlega heitt með
10 manns í sama bflnum.
Við fengum að vera til skiptis í
hjólhýsinu þar til löggan stoppaði
okkur og talaði við okkur. Viddi
skátaforingi er frábær. Hann er
líka ferlega góður ökumaður.
Hann er að kenna Dúa bróður sín-
um að keyra, en hann leyfir hon-
um bara að stýra þegar við erum á
fjallavegum þar sem engin umferð
er. Einu bílamir sem við mærnm
þar eru flutningabflar.
Strákamir vora allir að synda í
vatninu í morgun. Viddi skátafor-
ingi vildi ekld leyfa mér að synda
af því ég kann það ekki ogjón var
hræddur um að hann myndi
sökkva út af gifsinu, svo við feng-
um að róa kanóinum yfir vatnið.
Það var frábært. Maður getur enn-
þá séð sum trén í kafi eftir flóðið.
Viddi skátaforingi er ekki geðillur
eins og sumir aðrir skátaforingjar.
Hann varð ekki einu sinni reiður
út af björgunarvestunum. Hann
hefur rosalega mikið að gera við
að laga bílinn, svo við reynum að
vera ekki til vandræða á meðan.
Getm hvað? Við fengum allir
fýrsm-hjálpar merkið okkar. Þegar
Robbi stökk út í vatnið og skarst á
handlegg, þá fengum við að sjá
hvemig á að setja snarvöndul til að
stöðva blæðingu. Bæði ég og
Brjánn ældum heil ósköp, en 'V'iddi
skátaforingi segir að það sé líklega
bara matareitrun af kjúklingnum
sem við fengum. Hann sagði að
hann hefði oft ælt svona út af
matnum sem hann fékk á Hraun-
inu. Það er frábært að hann komst
út og fékk að vera skátaforinginn
okkar. Hann sagði að hann hefði
fengið góðan tíma til að hugsa sitt
ráð á meðan hann sat inni.
Ég verð að hætta núna. Við
emm að fara niður í þorp að setja
bréfin í póst og kaupa byssukúlur.
Ekld hafa áhyggjur af neinu.
Okkur líður vel.
Þinn Siggi