Skessuhorn - 06.09.2001, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 2001
5
^nútaunu^
Afkoma fslenska jámblendifélagsins hf.
165 milljóna króna tap á fyrstu
sex mánuðum ársins
íslenska járnblendifélagið hf. á
Grundartanga hefur nú sent frá sér
tölur um afkomu fyrirtækisins á
fyrri helmingi ársins 2001. Þrátt
fyrir að rekstrarhagnaður nærni 22
milljónum króna á tímabilinu varð
tapið 165 milljónir króna. A sama
tímabili á síðasta ári var 95 milljóna
króna rekstrartap en 275 milljóna
króna tap í heildina.
I lok júnímánaðar námu heildar-
eignir félagsins rúmum 10 millj-
örðum króna en skuldir rúmum 5,5
milljörðum. Eiginfjárhlutfall fé-
lagsins var 44,2% í lok júní en var
44,6% í lok síðastliðins árs.
I tilkynningu frá félaginu sem
birtist á heimasíðu Verðbréfaþings
Islands (VI) segir að afkoman sé á-
hyggjuefni. „Eftirspurn eftir kísil-
járni í Evrópu hefur verið viðun-
andi á tímabilinu vegna niður-
skurðar á kísiljárnframleiðslu í
Skandinavíu. Bræðsluofhar Islenska
járnblendifélagsins hf. voru reknir
með fullum afköstum á tímabilinu.
Heimsmarkaðsverð er enn afar lágt
en hefur þó styrkst nokkuð í Evr-
ópu. Kísiljárnmarkaðurinn í
Bandaríkjunum er enn í mikilli
lægð og verð svipað og í upphafi
ársins,“ segir í áðurnefndri tilkynn-
ingu. Þar er einnig tekið fram að
félaginu hafi tekist að lækka rekstr-
arkostnað en að lækkun á gengi ís-
lensku krónunnar hafi leitt til mik-
ils gengistaps.
Framleiðsla jókst um 4,5% mið-
að við sama tímabil í fyrra þar sem
reksmr bræðsluofna fór batnandi.
Þá var unnið að lausn ýmissa tækni-
vandamála á þriðja ofni félagsins.
Því reyndist ekki unnt að reka hann
stöðugt á fullum afkösmm.
I lok tilkynningarinnar á VI segir
að afkoman á síðari helmingi ársins
2001 sé að verulegu leyti háð þróun
kísiljárnsmarkaðarins í Evrópu og
að þess sé værist að áfram takist að
bæta reksmr bræðsluofna félagsins
og að lækka rekstrarkostnað.
Ný flotbiyggja er kominn í Olaftvikurhöfn en eftir er að setja á hana handrið og smá frágangur er að auki eftir. Þá hefur svokölluð
fingurflotbryggja verið lengd, enfingumir á lenginguna eru vœntanlegir í september. Mynd smh
Hér ræðir Eygló Egilsdóttir (leugst til vinstri), hótelstýra Hótel Höfða í Olafsvík, við ferðamálafrœðineniana.
Nemar gera víðreist um Snæfellsnes
Nemar í ferðamála- og landfræði
við Háskóla Islands gerðu víðreist
um Snæfellsnesið á dögunum. Var
um að ræða 35 manna hópferð 2.
og 3. árs nema sem höfðu aðstöðu á
Plótel Framnesi í Grundarfirði, en
fóru vettvangsferðir út í nágranna-
sveitarfélögin. Blaðamaður var á
ferð í Olafsvík á föstudagsmorgun-
inn sl. og hitti þá þær Kristínu
Guðnadóttur, Magneu Sigurðar-
dóttur, Martína Pöpzsch. Fólst
verkefnið þeirra í að kanna viðhorf
ferðaþjónusmaðila í Snæfellsbæ til
Staðardagskár 21, en það er heims-
samvinna sveitarfélaga sern byggir á
hugmyndafræði um sjálfbæra þró-
un samfélaga.
Að sögn Kristínar var Snæfells-
bær valinn vegna þess að það var
fyrsta sveitarfélag landsins til að
ljúka undirbúningi vegna fram-
kvæmdaráætlunar um Staðardag-
skrá 21. Segir Kristín að ferðin hafi
verið mjög vel heppnuð. „Hún var
bæði gagnleg og fróðleg og verða
niðurstöður þessarar rannsóknar-
ferðar ljósar í kringum 15. október
Auglýsing
um deiliskipulag íHelgafellssveit
Snœfellsnessýslu.
Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir
ferðaþjónustusvæði með tjald-, hjólhýsa- og
smáhýsavæði.
Tillagan nær til 12,4 hektara lands í Hólalandi.
Tillagan gerir ráð fyrir ferðaþjónustuhúsum, 25
hjólhýsastæðum og tjaldstæði.
Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum
liggur frammi hjá oddvita Brynjari Hildibrandssyni
Bjamarhöfn og skipulagsfulltrúa Hrossholti frá 6.
september til 04. október 2001 á venjulegum
skrifstofutíma.
Athugasemdum skal skila fyrir 18. október 2001 og
1 skulu þær vera skriflegar.
| Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests
1 teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
\
ATVINNX
ATVINNX
Starfsfólk vantar í
Vatnaskóg í eldhús og þrif.
! Upplýsingar í síma
j 433 8952 og 862 2952
Heidrún
\________________________/
Hótel Reykholt óskar
eftfr fólkí til starfa.
LJpplýsíngar gefur
hótelstjórí í
síma 435 1260.
Skagamenn ATH.
Tryggjum 2. flokki ÍA íslandsmeistaratitilinn með því að mæta á
völlinn og styðja þá til sigurs á fimmtudaginn 6. sept kl: 18.00
^ /
Grindavík - IA
Skagamenn hittast á Veitingarhúsinu Sjávarperlan, Króki 1
Grindavík kl: 12.00 á laugardaginn 8. sept. og hita upp fyrir
leikinn gegn Grindavík.
Stuðboltarnir mæta, málun fyrir börnin, súpa, ÍA vörur og fl.
Mætum og styðjum strákana.
www.gulir.is Áfram ÍA