Skessuhorn

Tölublað

Skessuhorn - 25.10.2001, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 25.10.2001, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 25. OKTOBER 2001 11 úuiCsaunui^ Leður, króm og kaldir kallar Raítar í Borgarfirði Menn og konur með mótorhjóladellu stofna samtók hifltjólafólks í Borgarfirói Mörgum stendur hálfgerður stuggur af leðurklæddum mönnum sem þeysast um á kraftmiklum mótorhjólum enda hafa erlend mótorhjólasamtök á borð við Hell Angels verið flokkuð með hverjum öðrum glæpasamtökum. Mótorhjólatöffararnir Torfi, Unnar og Guðjón vöktu samt enga teljandi skelfingu hjá blaðamanni Skessuhorns þegar þeir renndu í hlaðið á skrifstofu blaðsins síða- sliðinn miðvikudag á mótorfákum sínum. Þeir félagar eru í forsvari fyrir fjölmennum hópi manna og kvenna í Borgarfjarðarhéraði sem hafa það að áhugamáli að ferðast racerhjólin, eða plastið. Þeir klæða sig eins og tannkremstúpur og hugsa um að fara sem hraðast. Síð- asti hópurinn er síðan hipparnir sem hafa krómið og leðrið og stíl- inn í lagi. „Við erum í þeim hópi þótt við séum ótattúveraðir og frekar friðsælir." Aðspurðir viður- kenna þeir félagar að útlitið 'skipti máli. Leðrið og krómið og allur pakkinn verður að vera í lagi. „Það er partur af þessu að fægja krómið og bera leðurfeiti á gallann,“ segir Guðjón. „Það sem er hinsvegar aðal málið er að vera úti að hjóla og helst í hóp og síðan náttúrulega að stoppa í sjoppunum og spjalla við aðra mótorhjólamenn. Við rúntum um göturnar og förum Dýrar tryggingar Aðspurðir um kostnaðirnn við sportið segja þeir félagar að hann sé þónokkur. „Það eru eiginlega tryggingarnar sem eru dýrastar,“ segir Guðjón. „Þær eru einfaldlega skelfilega háar og það hamlar þeim yngri að fá sér hjól. Það er ódýrara fyrir okkur gömlu karlana þar sem við erum búnir að vera að tryggja ýmislegt annað um árabil og fáum þessvegna betri kjör en fyrir ung- ling er þetta svona þúsund kall á dag bara í tryggingar. Hjólin kosta náttúrulega líka sitt. Nýtt hjól er kannski um milljón en það er hægt að fá ágætis grip fyrir fjögur til fimm hundruð þúsund. Síðan er gallinn 70 til 100 þúsund kall.“ Ungir sem aldnir Stofnfundur Raftanna var hald- inn síðastliðinn mánudag en var frestað um viku til að gefa fleirum kost á að gerast stofnfélagar. „Við erum um tuttugu en viljum gjarn- an fá fleiri og klúbburinn er opinn öllum sem hafa áhuga á mótorhjól- um hvort sem þeir eiga hjól eða ekki. Við viljum gjarnan fá sem flesta og helst af sem breiðustum aldurshópi. Sá elsti af okkur í dag er innan við fimmtugt en við vitum að annars staðar, eins og t.d. í Kelfavík eru ellilífeyrisþegar að þeysa um á mótorhjólum. Þeir voru einhverntímann með sýningu í tilfefni af Ljósanótt í bænum og þegar þeir tóku niður hjálmanna og í Ijós kom að þetta voru upp til hópa gamlir karlar varð algjör sprenging og snarfjölgaði í hópn- um,“ segir Guðjón. „Tilgangurinn með stofnun klúbbsins er fyrst og fremst að þjappa hópnum saman og til að menn hafi enn rneira gaman af- þessu og um leið að stuðla að bættri umferðarmenningu og auka öryggi bifhjólafólks. Við ætlum meðal annars að standa fyrir reglu- legum hjölaferðum vítt og breytt um landið," segja Raftarnir þrír að lokum. GE Bifhjólafólk íBorgarfirði vakti verðsluædaða athygli á ll.júnísl. sumar. um klofvega á krómuðum trylli- tækjum og sína sig og sjá aðra. Þessi hópur er þessa dagana að stofna formlegan klúbb utan um sitt áhugamál sem ber nafnið Raftar - Bifhjólafjelag Borgarfjarðar. Segja má að á síðustu misserum hafi mótorhjóladellan heldur betur hreiðrað um sig í Borgarnesi og nágrenni en að sögn þeirra þre- menninganna var Unnar eini mót- orhjólatöffarinn í héraðinu fyrir fáum árum en í dag eru virkir mót- orhjólamenn á svæðinu um tutt- ugu, bæði karlar og konur og dæmi um að heilu fjölskyldurnar séu saman í þessu. Hippar Ekki vantar að hjól þeirra þre- menninga séu glæsileg og leðrið á sínum stað en eitthvað finnst blaðamanni þó vanta miððað við áðurnefnda ímynd úr amerískum bíómyndum. ,Jú við eigum eftir að safna hári og skeggi, fá okkur tattú á allan skrokkinn og hætta að fara í bað, þá er verkið fullkomnað,“ seg- ir Unnar. „Þetta er náttúrulega lífsstíll að eiga og keyra mótorhjól, „segir Torfi .Til nánari útskýringar segir hann að mótorhjólageirinn skiptist í þrennt. „Einn hópurinn eru þeir á Endouro hjólunum, þ.e. torfærugengið sem hefur gaman af að drullumalla, síðan eru það annað veifið í lengri ferðir, til Reykajvíkur eða fáum okkur kaffi- bolla í Staðarskála eða Vegamót- um. Síðan er núna komin ný hringleið upp um héraðið upp í Reykholt og niður Stafholtstung- urnar en það er afar kærkomið fyr- ir okkur þar sem okkar hjól eru fyrst og fremst malbikshjól og við erum ekki sérlega hrifnir af lausa- mölinni." Tillitssemin hverfandi Eins og fyrr segir er ímynd mót- orhjólatöffarans svolítið gróf og Raftarnir segjast lítlisháttar hafa orðið varir við að sumu fólki standi svolítið stuggur af leðrinu. „Það er allavega ekki mikið mál að fá af- greiðslu í sjoppum því það mynd- ast alltaf gott pláss í kringum mann. Leðrið er ennþá svolítil grýla hér á landi,“ segir Torfi. „Flestir eru þó áhugasamir og hafa áhuga á að skoða hjólin og iðulega leyfum við krökkunum að setjast í hnakkinn,11 segir Guðjón. Þeir segja að andinn sé hinsvegar svolít- ið annar þegar komið er út í um- ferðina. „Það má segja að tillits- semi gagnvart mótorhjólum í um- ferðinni sé hverfandi og iðulega er okkur nánast ýtt útaf veginum. Okumenn virðast iðulega bara gá hvort að það sé að koma bíll en sjá ekki mótorhjólin," segir Unnar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.