Skessuhorn


Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 4
4 MIÐVTKUDAGUR 17. APRÍL 2002 ■.f.iMiin... WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: Fax: 431 5040 431 5041 Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222 Skrifstofur blaðsins eru opnar kl. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Tíðindamenn ehf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórí og óbm: Gísli Einarsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is Blaðamenn: Hjörtur Hjartarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is Sigurður Mór Horðarson 865 9589 smh@skessuhorn.is Augiýsingar: Prófarkalestur: Hjörtur J. Hjurturson Ásthildur Magnúsdóttir 864 3228 hjortur@skessuhorn.is Umbrot: Prentun: Guðrún Björk Friðriksdóttir Prentsmiðja Morgunblaðsins augl@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Olaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til óskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr. 431 5040 Eldri peysur og -borgarar Alltaf gerist það annað slagið að þyrmir yfir mig og tregabland- inn söknuður heltekur mig þannig að ég kann trauðla tungu að hræra. Þrátt fyrir að mig skortd síst kjark eða karlmennsku þá get ég engan vegin bægt frá mér þessum tilfinningum. Svo mjög sakna ég peysunnar minnar svörtu með fjólubláa bekknum og köflótta stroffinu. Þetta var svosem bara venjuleg peysa ef út í það er farið en hvernig sem á því stendur þá tengdumst við snemma mjög sterk- um tdlfinningalegum böndum. Við gengum saman í gegnum þykkt og þunnt, súrt og sætt, meðalsteikt og marinerað. A henn- ar yngri árum þegar hún var upp á sitt allra besta fórum við sam- an á böll í Hreðavatnsskála en þegar hún eltist og þroskaðist varð hún minna fyrir slarkið og fór í mesta lagi með mér í kaupstaðar- ferðir, minna fínar heimsóknir og þess háttar. Þegar ffam í sótti var hún síðan farin að láta sér nægja að fara með mér í fjárhúsin. Undir það síðasta var hún orðin það hrum að ég varð að íklæðast henni af mikilli nærgætni enda voru ermamar komnar í tvo hluta og fjarri því með öllu fastar við bolinn. Eg var því nánast hættur að flagga henni í fjölmenni en vegna gamalla kynna og alls þess sem við höfðum gengið í gegnum í sameiningu í áranna rás þá gat ég ekki fengið af mér að snúa við henni baki og fann henni sér- stakan virðingarstað á sérsmíðuðu stoðtæki inni í fataskáp. Síðan vildi það til eitt sinn, þegar ég brá mér af bæ um stundar- sakir að konan mín notaði tækifærið og hentd peysunni en stað- reyndin var sú að þær áttu einfaldlega ekki skap saman. Ég tók því að sjálfsögðu ekki vel þegar ég varð þess áskynja sem átt hafði sér stað og þaulleitaði í öllum sorpílátum en komst síðan að því að konan hafði haft vaðið fyrir neðan sig, vissi náttúrulega að ég tor- tryggði hana síðan hún fargaði svarta ullarjakkanum mínum um árið. Hún hafði því samið við Gámaþjónustu Vesturlands um sér- staka aukaferð og ekki látið þar við sitja heldur fylgt málinu eftir í eigin persónu alla leið vestur í Fíflholt þar sem peysan var urðuð án nokkurrar viðhafnar. Ég tel mér að sjálfsögðu skylt að taka frarn að þrátt fyrir þetta ber ekki að skilja það svo að konan mín sé alvond því sú er alls ekki raunin. Okkur greinir hinsvegar á í öllum aðalatriðum tun menn- ingarsögulegt gildi fornklæða. Reyndar má segja að viðhorf henn- ar endurspegli stefnu stjómvalda í málefnum eldri borgara sem em nánast þeir einu í þjóðfélaginu sem mega búa við reglulega kjaraskerðingu á þeim forsendum að þeir eiga kannski ekki svo gott með að fara í verkfall. Líkt og peysan mín era þeir látnir gjalda þess að þeirra blómaskeið er að baki en er meinað að upp- skera eins og tdl var sáð, em metnir eftdr notagildinu í dag en af- rek gærdagsins lítdls metin. Fyrir fáum dögum þegar ég kvartaði upphátt yfir gigt í mjöðminni ákvað konan mín að nú væri tímabært að ég færi að stunda líkamsrækt, éta heilsufæði og umbylta mínu líferni í einu lagi í þeim tilgangi að ég myndi hugsanlega tóra eitthvað lengur, jafhvel það lengi að ég kæmist á efidrlaun. Ég tók því að sjálfsögðu fálega og taldi ekki eftir miklu að slægjast miðað við viðhorf stjórnvalda gagnvart öldmðum, já og hennar eigin viðhorf. Síðan mirmti ég hana í sjötugasta og áttunda sinn á örlög peysunnar góðu. Síðan hefur heilsurækt ekki borið á góma á mínu heimili! Gtsli Einarsson, bara á skyrtunni. Snæfellsbær Óbreytt hjá Sjálfstæðis- mönnum Framboðslisti Sjálfstæð- isflokksins við bæjarstjórn- arkosningarnar í Snæfells- bæ þann 25. maí 2002, verður skipaður eftirtöld- um einstaklingum. Þetta var ákveðið á fundi full- trúaráðs Sjálfstæðisfélag- anna í Snæfellsbæ þann 14. apríl s.l. Allir núverandi bæjar- fulltrúar flokksins gefa kost á sér til áframhald- andi sem í bæjarstjórn en sjálfstæðismenn hafa fjóra bæjarfulltrúa og hreinan meirihluta í bæjarstjórn Snæfellsbæjar. Asbjöm Óttarsson leiðir lista sjálfctœðismanna á nj fyrir komandi btfjarstjómarkosningar. 7. 2. Asbjöm Ottarsson sjámaður og bæjarfulltrúi. Jón Þór Lúðvíksson bakarameistari og bæjaffulltrúi. Olína B. Kristinsdóttir verslunarmaður og bæjarfulltrúi. Olafur Rögnvaldsson fram- kvæmdastjóri og bæjarfúlltrúi. Pétur Pétursson útgerðarmaður. Sigurjón Bjamason rafverktaki. G. Sirrý Gunnarsdóttir bankastarfsmaður. Orvar Marteinsson sjómaður. Sigrún Guðmundsdóttir skólaliði. Þórey Kjartansdóttir gjaldkeri. Aðalsteinn Snæbjömsson netagerðarmeistari. Sara Yr Ragnarsdóttir nemi. 13. Jensína Guðmundsdóttir afgreiðslustjóri. 14. Kristjana E. Sigurðardóttir húsfreyja. 8. 9. 10. 11. 12. Vinstri - grænir og óflokksbundnir í Grunarfirði Em.il Sigurðsson leiðir lista Vinstri - grœnna og óflokks- bundinna í Grundarfirði. Nýr framboðslisti Vinstri - grænna og óflokksbundinna (U- iistd) í Grundarfirði, fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar í vor, var samþykktur sl. sunnudag. I bæjar- stjómarkosningunum fyrir fjórum árum fékk listi Alþýðu- bandalags tvo fulltrúa kjöma, Framsóknar- flokkur tvo og Sjálf- stæðisflokkurinn þrjá. Meirihluta bæjar- stjórnar Grundar- fjarðarbæjar mynda nú ffamsóknar- og sjálfstæðismenn. Að sögn Emils Sigurðssonar efsta manns U-listans er stefhan sett á að ná tveimur mönnum inn. U- listann, lista óflokksbundinna og Vinstri - grænna, skipa annars efidrtaldir: 1. Emil Sigurðsson, vélstjóri. 2. Þorbjórg Guðmundsdóttir, kennari. 3. Ragnar Elbergsson, verkamaður. 4. Skúli Skúlason, húsasmíðameistari. 5. Helena María Jónsdóttir, verslunarmaður. 6. Ólafur Guðmundsson, verkamaður. 7. Aðalsteinn Jósepsson, verslunarmaður. 8. Valgeir Þór Magnússon, verkstjóri. 9. Björgvin Lárusson, framkvæmdastjóri. 10. ÓlafurBjöm Olafcson, bifreiðarstjóri. 11. Pálmi Jónsson, verkstjóri. 12. Guðmundur Guðmundsson, skipaskoðunarmaður. 13. Þorvaldur Elbergsson, verkamaður. 14. Elísabet Amadóttir, kaupmaður smh Nýtt framboð í SnæfeUsbæ Ný og óháð framboðssamtök, Bæjarmálasamtök Snæfellsbæjar, vora stofnuð í Snæfellsbæ sl. mánu- dagskvöld vegna bæjarstjórnar- kosninganna nú í vor. Samkvæmt heimildum Skessuhorns mun fram- boðið vera að nokkra leytd sam- þætting Framóknarflokksins og Snæfellsbæjarlistans og herma sömu heimildir að ekki sé útlit fyrir önnur framboð í Snæfellsbæ - utan sjálfstæðismanna. I ályktun stofhfundarins segir að tilgangur Bæjarmálasamtaka Snæ- fellsbæjar sé að bjóða fram lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Snæfellsbæ í vor og vinna að fram- gangi allra þeirra mál sem geta orð- ið bæjarfélaginu til framdráttar. Ennfremur kemur þar fram að samtökin séu vettvangur fyrir opin skoðanaskipti um málefni bæjarins og geta efht til málíunda effir á- kvörðun stjómar. Stefán Jóhann Sigurðsson er for- maður Bæjarmálasamtaka Snæfells- bæjar en aðrir í stjórn era Kristinn Jón Friðþjófsson, Jenný Guð- mundsdóttir, Sigurður Arnfjörð Guðmundsson og Guðbjörg Jóns- dóttir. Þá var á stofnfundinum kosin uppstdllingamefnd og mun hún kynna tillögur um framboðs- lista í næstu viku. smh Þorsk- veiðistopp á Vesturlandi Um þessar mundir er þorsk- og skarkolaveiðistopp á miðum við Vesturland. Samkvæmt reglugerð um friðun hrygningar- þorsks og skarkola númer 62 ffá 2002 era allar veiðar óheimilar á stærsm veiðisvæðunum í og við Faxaflóa og Breiðafjörð ffá 1. apríl til 21. apríl. Má því búast við að rólegra verði í vesdensk- um höfnum en fólk á að venjast þangað til í næstu viku. smh Finnur gefur út ljóðabók Út er komin ljóðabókin Dal- vísur eftír Finn Torfa Hjörleifs- son Þetta er fjórða ljóðabók höf- undar. Hinar þrjár era Einferli 1989, Bemskumyndir 1993 og í meðallandinu 1995. Auk þeirra hefur Finnur Torfi gefið út barnabók og kennslubækur í ljóðalestri. Bókin er gefin út á kosmað höfundar. Ljóðabókin Dalvísur verður kynnt í Safhahúsi Borgaríjarðar, að Bjarnarbraut 4-6 í Borgamesi, laugardaginn 20. apríl nk kl. 15. Félagar úr ljóðahópnum ísabrotd lesa ljóð úr bókinni. Allir era vel- komnir. (Fréttatilkynning) Verkalýðsfélag Akraness Nýjar deildir Þessa dagana er urmið að því að breyta deildaskiptdngu Verka- lýðsfélags Akraness. Tvær nú- verandi deildir, þ.e. Sjómanna og vélstjóradeild og Iðnsveina- deild verða óbreyttar en stofn- aðar verða fjórar nýjar deildir. Nýju deildirnar eru almenn deild, stóriðjudeild, deild opin- berra starfsmanna og matvæla- deild. Hinar nýju deildir leysa af hólmi Verkamannadeild, deild iðn og verkafólks, fiskvinnslu- deild og sjúkrahúsdeild en þær verða allar lagðar niður. GE Slökkviliðskerra sunnanjökuls Verið var að vinna við smíði nýrrar slökkviliðskerra í áhalda- húsinu í Olafsvík þegar blaða- mann bar þar að garði sl. fimmtudag. Að sögn Antons Gísla Ingólfssonar, smiðs og hönnuðar kerrannar, mun slökkviliðskerran þjóna íbúum Snæfellsbæjar sunnan jökuls og vera hugsuð sem fyrsta hjálp. Verður þá hægt að skella henni á krók og bruna á staðinn ef elds verður vart þangað til slökkvilið- ið úr Olafsvík kemur á staðinn. Segir Anton að kerran verði tdl- búin á allra næsm dögum. smh

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.