Skessuhorn


Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 2002 Öryggismál sjómanna og verkefiú Rannsóknamefiidar sjóslysa Þegar ég tók við embætti sam- gönguráðherra einsetti ég mér að efla alla þætti sem lúta að örygg- ismálum sjómanna. Að því hefur verið unnið af hálfu ráðuneytisins í samstarfi margra aðila. Dagblaðið hefur að undanförnu gert tilraunir til þess að gera starf- semi Rannsóknarnefndar sjóslysa tortryggilega. Ekki er ljóst hver tilgangurinn er með þeim skrifum. Það er hins vegar ágætt að blaðið hafi sérstakan áhuga á að vekja at- hygli á mörgum og mikilvægum verkefnum samgönguráðuneytis- ins. Þar er af mörgu að taka sem nauðsynlegt er að kynna. Viðkom- andi blaðamenn virðast ekki hafa áttað sig á þeim mikilvægu breyt- ingum, sem hafa orðið á sjóslysa- rannsóknum og öryggismálum sjófarenda það sem af er þessu kjörtímabili, undir minni forystu. Vegna þess hversu öryggismál sjó- farenda hafa verið mikið til um- fjöllunar í ráðuneytinu er rétt að vekja athygli lesenda á nokkrum staðreyndum þar um. Gildistaka reglugerðar- innar um sleppibúnað björgunarbáta Sjálfvirkur sleppibúnaður er án efa eitt mikilvægasta björgunar- tækið um borð í fiskiskipum. Bún- aðurinn var upphaflega lögfestur með reglugerð frá árinu 1982, þar sem kveðið var á um handvirkan fjarstýrðan búnað og sjálfvirkan búnað. Þessi búnaður átti að vera kominn í öll þilfarsskip árið 1984. Miklar deilur urðu um kröfur til búnaðarins og túlkun á þeim, sem varð til þess að nýjar reglur voru settar árið 1988, þar sem Iðn- tæknistofnun var falið að þróa prófunaraðferð. Enginn búnaður fékk viðurkenningu á grundvelli reglnanna og voru nýjar reglur um sjálfvirkan sleppibúnað settar árið 1994 þar sem heimild Siglinga- stofnunar til að viðurkenna búnað var aukin. Þeim reglum var frestað með eftirfarandi reglu- gerðum: 14/1995, 18/1996, 359/1996 og 705/1996. Nýjum reglum frá 1997 var ætlað að auð- velda gildistöku ákvæða um sjálf- virkan sleppibúnað, en var engu að síður frestað tvisvar árið 1998, í síðara skiptið til 1. janúar 2000. Eg ákvað hins vegar tveimur mán- uðum eftir að ég varð samgöngu- ráðherra að flýta gildistökunni til 1. september 1999 og taldi ráðu- neytið þá aðlögun sem gefin var vera nægilega. Svo reyndist vera og náðist góð sátt um fram- kvæmdina. Þar með var stórum áfanga náð í öryggismálum sjó- manna á Islandi. Það, að koma sjálfvirkum sleppibúnaði £ öll þau skip sem reglurnar náðu til, var mikið verk og kostnaðarsamt fyrir útgerðirnar. Samningur við Slysavamafélagið Landsbjörgu Á síðasta ári var undirritaður samningur milli samgönguráð- herra og Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Samningurinn fel- ur í sér skilgreiningu á þeim verk- efnum sem Slysavarnafélagið tek- ur að sér og jafnframt eru skil- greind þau framlög sem ríkið leggur til þeirra verkefna sem fé- lagið annast til viðbótar við hefð- bundin verkefiii á sviði öryggis- og björgunarmála. Þessi samningur var tímamótasamningur og ber að fagna því hversu gott samstarf hef- ur tekist milli ráðuneytisins og Slysavamafélagsins Landsbjargar. Helstu þættir samkomulagsins em: **Umsjón og rekstur Slysa- varnaskóla sjómanna, **Rekstur Tilkynningaskyldu £s- lenskra skipa, **Rekstur þjálfunar og fræðslu- miðstöðvar að Gufuskálum, **Rekstur björgunarbáta, Með samningnum em þau verk- efhi skilgreind sem framlög rikis- ins renna til. Megin markmið samningsins er að stuðla að bættu öryggi islenskra skipa og þeirra sem sjómennsku stunda með þvf að tengja saman með formlegum hætti afl og kunnáttu Slysavarna- félagsins Landsbjargar og hina stjórnskipulegu ábyrgð og mark- miðssetningu ráðuneytisins. Langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda I upphafi starfs mins sem sam- gönguráðherra setti ég af stað vinnu við gerð langtímaáætlunar í öryggismálum sjófarenda. Lagði ég fyrir þingið sérstaka tillögu sem var samþykkt sem ályktun Alþing- is. Á árinu 2001 voru veittar 10 milljónir til þess að framkvæma á- lyktunina og á þessu ári voru á fjárlögum veittar 15 milljónir króna til þessa málefnis sem Sigl- ingastofnun fer með og hefur skipulagt í samstarfi við fjölmarga aðila. Unnin hefur verið skýrsla um framvindu þessa mikilvæga verkefhis og lögð fyrir Alþingi. Geta menn kynnt sér verkefnin, sem unnið er að í þeirri skýrslu, en hún er auk þess aðgengileg á net- inu á heimasíðu samgönguráðu- neytisins. Tilgangur með þingsályktun um langtímaáætlun í öryggismál- um sjófarenda er að hrinda af stað Öls við bikar andi skýr ------------------— Við þá umræðu sem ver- ið hefur að und- anförnu um kíló- gjald á afurðir g a r ð - yrkju- b æ n d a rifjaðist upp fyrir mér nokkurra ára gömul vísa eftir Sigfús Jónsson: I garðyrkjunni gengur dræmt. Gróðavonir þverra. Þó ástandið sé afar slæmt er útlitið miklu verra. Reyndar er það ekkert nýtt að á- stand og údit séu ekki á marga fiska, hvorki í garðyrkjunni né á öðrum sviðum. Olafur Jónsson hafði þetta að segja um hæftii sína sem hagyrðings: Að geti ég ort er aðeins gort, andans sport þó stunda. Oll mín kort eru af einni sort, - ekki skortir hunda. Ekki veit ég með vissu hver setti fram þennan fyrripart eða að hverjum honum var vikið: Reyndu þetta rím að laga Ragnar, góði vinur minn. Sá er ávarpaður var brást vel við og drengilega og svaraði: Mér finnst þetta boðleg baga - betri seinniparturinn -. í svipuðum dúr er eftírfarandi erindi nema ég veit ekkert hvort það er eftír einn mann eða tvo: Þetta erFoldin að ferrna ýsu. Húnfer víst héðan í dag. Er þetta upphafað vísu eða erþetta niðurlag? Ojæja: Viðyrkjum svona allavega uppá grín. Taktu það ekki alvarlega -elskan mín. Aldraður maður leit til baka yfir liðnu árin og kveið þó framtíðinni að nokkru: Var mér stundum veröldin viðsjál eins og gengur. Nú kvíði ég mest að kvensemin kitli mig ekki lengur. Hjálmar Þorsteinsson frá Hofi kvað á efri árum: Skylt er að hlýða skapadóm, skini hallar dagsins. Eins og kalið brekkublóm bíð ég sólarlagsins. Kjartani Olafssyni varð að orði er hann leit til baka yfir æviveginn: Mér hefur ástin yndi veitt, yljað bandið tryggða og á stundum líka leitt langt af vegi dyggða. Annar orðaði hugsun sína svo við svipaðar aðstæður: Klakklaust hefég komist hjá kröppum skerjasundum en skratti getur skriplað á skötubörðum stundum. Jón úr Vör orti í veikindum: Flest sem gleðurfyrir bí. Fagnaður að öngu. Kysi ég helst að komast í kistuna mína þröngu Davíð Stefánsson var óumdeilt einn af okkar mikilhæfustu skáld- um enda er oft til hans vitnað á ýmsum sviðum er tengjast skáld- skap. Ungar og ljóðhneigðar stúlk- ur hafa gjaman mikið dálæti á rómantískum skáldskap og við eina slíka virðist eftírfarandi vísa kveð- Þó dýrlegt sé í „Dalakofaíl að dotta á „Svörtum fjöðrum“ ættir þú mí samt að sofa svolítið hjá öðrum. Margir kannast við eftirfarandi vísu Benedikts Valdemarssonar: Ols við bikar andi skýr á sér hiklaust gaman. Augnabliksins æfintýr endast vikum saman. Hjörtur Gíslason er hinsvegar höfundur þesarar útgáfu: Ols við dýra Amors krá ýmsra skýrast lestir. Æfintýra og ástarþrá eru víruspestir. Séra Einar Friðgeirson á Borg orti margar léttar og skemmtilegar vísur og þar á meðal þessa: Þann ég undrast sólar sið að sótroðna á kvöldin. Ætliþað sé af andstyggð við eitthvað bak við tjöldin? Er nema von að spurt sé? Einar átti hinsvegar fleiri tóna til og efrir hann er líka þessi vísa: Þó ég hafi elst um ár ei vill skapið kyrra. Ennþá ber ég sömu sár sem mér blæddu ífyrra Það sem einu sinni glatast kem- ur aldrei aftur og augljóslega hefur Einar gert sér fulla grein fyrir því við tílurð þessarar þekktu vísu: Augun tapayl ogglans, ástin fegurðinni, ef að besta brosið manns botnfrýs einu sinni. Skömmu eftir lát Einars dreymdi Jónas í Sólheimatungu að hann kæmi að Borg og hittí Einar þar úti við og segir Einar þá við hann: Eg er staddur enn á Borg eins ogferðamaður, ber í hjarta sára sorg þó sýnist vera glaður. Svo við endum nú á aðeins bjart- sýnni nótum er rétt að rifja upp vísu Þórarins frá Steintúni og láta hana verða lokaorðin að sinni: Lengist dagur, lifnar strá, léttir vetrarkvíðum. Svífa gestir suðrifrá. - sumarið er í smíðum. Með þökkfyrir lesturinn Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykkolt S 435 1367 Sturla Böðvarsson átaki í öryggismálum sjófarenda og að unnið verði í fyrsta áfanga eftir sérstakri áætlun í þeim mál- um á ámnum 2001 til og með 2003. Markmið áætlunarinnar er að treysta öryggi íslenskra skipa og áhaftía þeirra, sem og farþega á ís- lenskum skipum, og skipum sem sigla í íslenskri efnahagslögsögu. Stefnt er að því að skilgreina hlut- verk þeirra sem vinna að öryggis- málum sjófarenda og að slysum til sjós fækki fram til ársins 2004. Rannsóknamefiid sjóslysa efld með nýrri löggjöf, bættri aðstöðu og auknu starfi. Allt starf Rannsóknarnefndar sjóslysa hefur verið endursldpulagt í kjölfar nýrra laga sem ég beitti mér fyrir að væm sett um rann- sóknir sjóslysa á árinu 2000. Jaftí- framt hafa fjárveitingar tíl starfs neftídarinnar verið auknar. Allt tal um vandræði nefndarinnar vegna íjárskorts á ekki við rök að styðjast eins og nefndarmenn hafa greint frá opinberlega. Með flutningi neftídarinnar í húsnæði Flugmála- stjómar við flugvöllinn í Stykkis- hólmi er verið að spara neftídinni og þar með ríkissjóði leigu á hús- næði á dýrasta stað í höfuðborg- inni, en neftídin var í Hafnarhús- inu í Reykjavík. Jafnframt því að ráða framkvæmdastjóra tíl neftíd- arinnar hefur verið ráðinn annar starfsmaður, sem vinnur að rann- sóknum, auk þess sem fyrrverandi starfsmaður RNS var ráðinn til þess að skrá og yfirfara gögn vegna sjóslysa síðustu áratuga. Um það verkefni var gerður sérstakur samningur sem viðkomandi starfs- manni er auðvitað gert að standa við. Það verkeftíi er hður í því að rannsaka og greina orsakir slysa. Allt miðar þetta aukna og endur- bætta starf við sjóslysarannsóknir að því takmarki að draga úr þeim hættum sem valda sjóslysum og að auðvelda rannsóknir vegna sjó- slysa. Fjárveitingar til RNS era mið- aðar við venjubundna starfsemi. Verði slys, sem kallar á kostnaðar- sama rannsókn, era fengnar sér- stakar fjárveitíngar til þeirra verk- efna. Sama gildir um rannsóknir flugslysa. Tilraunir einstakra fjöl- miðla, tíl þess að gera starf Rann- sóknarnefndar sjóslysa tortryggi- legt, era óskiljanlegar og sýna á hvers konar villigötum sumir fjöl- miðlar era. Eg hvet áhugamenn um öryggismál sjómanna til þess að kynna sér stöðu þessara mála með því að leita upplýsinga hjá Siglingastoftíun og Rannsóknar- neftíd sjóslysa. Steftía ráðuneytis- ins er skýr og hún kemur fram í stórauknum aðgerðum á sviði ör- yggismála. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.