Skessuhorn


Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 17.04.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 2002 aáuaunuLl Biskup vísiterar í Borgarí) arðarprófastsdæmi Heimsækir alla skóla, dvalarheimili og nokkur fyrirtæki Biskup í predikunarstóli við messu í Borgameskirkju. Biskup íslands, herra Karl Sigur- bjömsson vísiterar Borgarfjarðar- prófastsdæmi nú í aprílmánuði. Með honum í för em eiginkona hans, frú Kristín Guðjónsdóttir, séra Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari og séra Sigurður Ami Þórðarson, verkefnisstjóri á bisk- upsstofu ásamt séra Þorbimi Hlyni Arnasyni prófasti Borgarfjarðarpró- fastsdæmis. Vísitasían hófst með messu í Hallgrímskirkju í Saurbæ á annan í páskum. Síðastliðinn fimmmdag tók biskup síðan þátt í Guðsþjón- usmm í Innra-Hólmskirkju og Leirárkirkju ásamt því sem hann heimsótti börn í Heiðarskóla. A fösmdag heimsótti biskup síðan Grunnskólann í Borgamesi, Dval- arheimili aldraðra í Borgarnesi, Viðskiptaháskólann á Bifröst og Vírnet Garðastál í Borgarnesi. Deginum lauk síð- an með Guðsþjón- ustu í Alftanes- kirkju um kvöldið. A laugardag tók biskup þátt í Guðs- þjónusm í Akra- kirkju og Alftár- mngukirkju. A sunnudag tók bisk- up síðan þátt í tveimur Guðsþjón- usmm í Borgarnes- kirkju, barnamessu um morguninn og almennri guðs- þjónusm síðar. I gær tók biskup þátt í guðsþjónusm í Lundarkirkju og messu í Hvanneyr- arkirkju en í dag lá leiðin í Bæjar- kirkju. A morgun (fimmtudag) tek- ur biskup síðan þátt í Messu í Staf- holtskirkju. Vísitasíu biskups líkur á sumar- daginn fyrsta en dagskráin þangað til er eftirfarandi: Mikilvægur hluti starfsins I samtali við Skessuhom sagði Hr. Karl Sigurbjörnsson að í sínum huga væm vísitasíuferðir mjög mik- ilvægur og ánægjulegur hlutd starfs- ins. „Tilgangur visitasíunnar er eft- irlit með starfi kirkjunnar í einstök- um prófastdæmum og einstökum sóknum en ekki síður að komast nær mannlífinu og kynnast fólkinu, ekki bara í kirkjunni heldur einnig utan hennar.“ Það hefur vakið athygli að biskup heimsækir ekki aðeins kirkjur og þá sem tengjast kirkjustarfinu beint heldur einnig alla skóla í prófast- dæminu, stofnanir og einstök fyrir- tæki. Aðspurður um hvort það væri eðlilegur hluti visitasíunnar kvaðst biskup ekki vita það. „Eg lít hins- vegar á það sem ekki síður nauðsyn- legan þátt í þessu starfi að kynnast fólkinu ekki aðeins innan veggja kirkjunnar heldur einnig í leik og starfi. Sérstaklega hefur það verið ánægjulegt að heimsækja skólana og 19. apríl - fösmdagur kl. 16 Guðsþjónusta í Norðmngukirkju kl. 21 Guðsþjónusta í Hvammskirkju 20. apríl - laugardagur kl. 16 Guðsþjónusta í Stóra-Askirkju kl. 21 Guðsþjónusta í Gilsbakkakirkju 21. apríl sunnudagur kl. 14 Messa í Reykholtskirkju kl. 17 Helgismnd í Húsafellskapellu kl. 21 Guðsþjónusta í Síðumúlakirkju 24. apríl - miðvikudagur kl 14 Heimsókn á Sjúkrahús Akraness - Helgistund í kapellu 25. apríl - fimmmdagur. Sumardagurinn fyrsti kl 11 Messa í Akraneskirkju kl 14.30 Dvalarheimilið Höfði. Heimsókn og guðsþjónusta. Hluti Kirkjukórs Borgameskirkju syngur við Guðsþjónustu á Dvalarheimili aldraðra í Borgamesi. Sr. Þorbjöm Hlynur Amason þjónar jjrir altari. hitta börnin í sínu daglega um- hverfi." Aðspurður um hvort eitt- hvað hafi komið á óvart í þessari heimsókn það sem af er segir bisk- up það einna helst vera heimsókn- ina á Bifröst. „Það var mjög á- nægjulegt og líka undranarefhi að sjá hvað þar er unnið mikið og merkilegt upplýsingastarf og að þar era menn að brjóta niður alla fjar- lægðarmúra og takast á við upplýs- ingaöldina með miklum myndug- leik,“ segir Hr. Karl Sigurbjöms- son, biskup að lokum. GE Biskup skoðar framleiðslu Vímet - Garðastál. Hr. Karl Sigurbjömsson, Stef- án Logi Haraldsson, framkviemdastjóri og Amar Sigurðsson sölustjóri. Föstudaginn 19. apríl - Jón Ingólfsson trúbador sér um að skemmta fólki fram eftir nóttu... (emkasamkvœmi milli 19 - 21:30) Laugardaginn 20. apríl KK og Magnús Eiríksson með STÓRTÓNLEIKA Á nœstunni: 22. apríl Opinn kosningafundur þar sem allir listar í Borgarbyggð senda fulltrúa til að svara íyrirspurnum bæjarbúa sem og sveitunga. 2. maí Fóstbræðumir Sigurjón og Þorsteinn verða með uppistand. Skemmtunin hefst klukkan 22:00 ___________________________ J Fjölskyldutilbob á sunnudögum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.