Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2003, Page 3

Skessuhorn - 29.01.2003, Page 3
»&£S9UIH>k.j MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 2003 3 Ríkisstyrkir til menningarmála langlægstir fyrir Vesturland Fullkomlega óviðunandi ástand segir Gísli Gíslason bæjarstjóri Akraness Forsvarsmenn menningarstofnana á Vesturlandi, svo og sveitarstjórnarmenn, eru ekki alltof kátir með úthlutun styrkja til menningarmála á Vesturlandi sam- kvæmt fjárlögum. Samkvæmt saman- tekt sem unnin var af markaðsskrifstofu Akraneskaupstaðar úr fjárlögum, fyrir árið 2003, eru styrk- ir til safna á Vesturlandi 10,2 millj- ónir á árinu. Ef borið er saman við aðra landshluta er Vesturland langlægst. Næst kemur Austurland með 30 milljónir og Vestfirðir með 44,2 milljónir. Styrkir til safna á Norðurlandi eru 54,2 milljónir og söfii á Suðurlandi fá 63,5 milljónir. Af landshlutum utan höfuðborgarsvæðisins eru söfn á Reykjanesi í toppsætinu en þau fá styrki sem nema 73,9 millj- ónum króna. Söfn í Reykjavík fá síðan langstærsta styrkinn eða samtals 301,3 milljónir. Þar af fær Þjóðminjasafnið 210 milljónir. Mörgum þykir að þarna sé verið að mismuna lands- hlutum gróflega og þykir það kannski ekki síst undarlegt í ljósi þess að gríðarleg uppbygging hefur verið í safna og menningarmálum á Vesturlandi undanfarin ár. „Það er alveg ljóst af þessum tölum og ffamlögum síðustu ára að Vesturland fer verulega halloka“, segir Gísli Gíslason bæj- arstjóri Akraness. „Þetta er fúll- komlega óviðunandi og við mun- um taka þetta upp við þingmenn á fundi þingmanna Vesturlands og bæjarstjóra á Vesturlandi sem fyr- irhugaður er í byrjun næsta mán- aðar. Það má meðal annars nefna að undanfarið hefur verið í undir- búningi að ríkið geri menningar- samning við Vesturland líkt og gert hefur verið við Austlendinga. Sveitarfélögin eru fús til að ganga ffá slíkum samningi og hafa unnið sína heimavinnu mjög vel, en þar strandar á ríkinu að koma með fjármagnið líkt og gert hafði verið ráð fyrir. Þessir peningar finnast ekki í fjárlögum þessa árs og það eru mikil vonbrigði.Við verðum hinsvegar að treysta á að núver- andi og verðandi þingmenn og aðrir sem ráða fjárveitingum bretti upp ermarnar." Nóg verkefini fyrir þingmenn Gísli segir að hugsanlega hafi heimamenn ekki verið nógu dug- legir að ýta á fjárveitingavaldið en hinsvegar hafi menn treyst á að þar á bæ ynnu menn sína vinnu. „Það má hinsvegar geta þess að miklum fjármunum hefur verið varið í þennan málaflokk af heima- aðilum og þeir peningar eru vel nýttir. Eg er nýkominn af fundi í Reykholti og þar skoðaði ég í leið- inni starfsemi Snorrastofu. Það er hreinlega með ólíkindum hversu myndarleg starfsemi er rekin þar með jafn lidu fjármagni og raun ber vimi. Það eru því mikil von- brigði að ekki skuli vera hægt að koma til móts við þá sem þarna eru að vinna virkilega gott starf. Það eru heimaaðilar sem bera þessa starfsemi uppi vítt og breitt um Vesturland og gera það mjög myndarlega en ríkið leggur lítið af mörkum. Þetta er í hrópandi and- stöðu við það sem er annarsstaðar og deginum ljósara að þingmenn Vesmrlands hafa nóg verkefni í ffamtíðinni“, segir Gísli. Horfttil menningarsamni ngs „Við hefðum vissulega viljað sjá hærri upphæðir fara í hið góða starf sem unnið er á sviði menn- ingarmála á Vesturlandi,“ segir Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra og fyrsti þingmaður Vesmr- lands. „Þessar tölur segja hinsveg- ar kannski ekki alla söguna og það má geta þess að á síðustu árum hafa umtalsverðar upphæðir runn- ið til menningartengdar ferða- þjónustu á Vesturlandi í gegnum Samgönguráðuneytið svo dæmi sé tekið. Við horfum síðan til þess að menningarsamningurinn geti orð- ið að veruleika innan tíðar og ég mun leggja mitt af mörkum til að hægt verði að styðja ennfrekar við uppbyggingu menningarmála í kjördæminu,“ segir Smrla. Fingraför stjómarliða Gísli S. Einarsson alþingismað- ur, sem sæti á í fjárveitinganefhd Alþingis, segist hafa fylgt eftir þeim erindum sem sér hafi borist ffá menningarstofnunum á Vest- urlandi þar til stjórnarliðar í nefhdinni hafi slegið þau af. „Okk- ur barst reyndar erindi ffá Steina- ríkinu á Akranesi daginn sem fjár- lögum var lokað þannig að það var of seint. Oðrum erindum hef ég fylgt eftir hvaðan af Vesmrlandi sem þau hafa komið. Ef menn bera saman framlög til einstakra landshluta ættu menn að sjá að fingraför stjórnarliða í fjárlaga- nefhd eru mjög greinileg. Það var sótt mjög stíft eftir menningar- samningi en við vorum ekki í náð- inni hjá þessu ágæta fólki. Það er sama hversu litlar upphæðirnar hafa verið sem sótt hefur verið um, það hefur alltaf kostað þras,“ segir Gísli Gíslason Þjóðarátak um nýsköpun - námskeið á Vesturlandi Námskeið um gerð viðskiptaáætlana verða haldin í Maríukaffi, Akranesi, fimmtudaginn 13 . febrúar og í Hótel Ólafsvík, Snæfellsbæ, mánudaginn 17. febrúar frá kl. 17:15 - 20:30. Fyrirlesari verður G. Ágúst Pétursson, verkefnisstjóri í Nýsköpun 2003. Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir kaffi og léttan málsverð. Skráning fer fram á www.nyskopun.is en skráðir þátttakendur fá sent leiðbeiningahefti og geisladisk með reiknilíkani og fyrirlestrum að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar veita starfsmenn Atvinnuráðgjafar Vesturlands í síma 437 1318 og Markaðs- og atvinnuskrifstofa Akraneskaupstaðar í síma 433 1000 Frestur til að skila inn viðskiptaáætlun eða viðskiptahugmynd er 31. maí 2003. Fyllsta trúnaðar er gætt. - ■Sr * / H » jA 1^*, W 4» framkvæmdáaðilár V HASKÓLINN | HEYKJAVÍK ' fJT ~ íílA?*DS»AiMKI þjóáarátak um nýsköpun skráðu þig á www.nyskopun.is tSYCGMSlOfmJN Píflrflnnlilntiiti stuðningsaðilar <33> SÍMINN NÝHSHJI SAMHERJI HF EIMSKIP

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.