Skessuhorn - 29.01.2003, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 2003
^Atsaunu...
WWW.SKESSUHORN.IS
Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040
Fax: 431 5041
Akranesi: Kirkjubraut 3 Simi: 431 4222
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi:
Ritstjóri og óbm:
Blaðamaður:
Auglýsingar:
Prófarkolestur:
Umbrot:
Prentun:
Tíðindamenn ehf 431
Gísli Einarsson 892
Hjörtur J. Hjartarson 864
Hjörtur J. Hjartarson 864
Inga Dóra Halldórsdóttir
Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentmet ehf.
5040 skessuhorn@skessuhorn.is
4098 ritstjori@skessuhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.is
3228 hjortur@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út allo miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ó
briðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass timanlega.
Skilafrestur smóauglýsinga er til 12:00 ú priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til úskrifenda oa í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. ó mónuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
431 5040
Verð-
könnun
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Fyrir 200 milljónir getur maður keypt sér 668.979 nef-
háraklippur á tilboði, 117.647 flöskur af Gammeldansk,
134 Lada Sport bifreiðar, 51.282 olíufyllta raffnagnsofna,
29 einbýlishús í Búðardal, 111.112 pör af gúmmískóm,
33.899 lambgimbrar á fæti, 100 þúsund flöskur af fjósalykt
frá Þorkatli í Ferjukoti, 50.126 nuddtæki með infrarauðu
ljósi eða 20.202 geisladiska með indversku prinsessunni Le-
oncie.
Fyrir sléttar 200 milljónir íslenskra króna gæti maður
fjárfest í um það bil 66.667 lítrum af háreyðingarkremi, 105
tonnum af sviðasultu, 678 tonnum af saltketi, 95.238
hosuklemmum eða 2.666.667 túlipönum.
Fyrir 200 milljónir króna gæti maður verið áskrifandi að
Skessuhorni samfleytt í 20.202 ár en eftir þann tíma væri
síðan hugsanlegt að semja um ellilífeyrisþegaafslátt.
Fyrir 200 milljónir gæti maður keypt allt knattspyrnulið
IA fimmtíu sinnum. Maður gæti legið í ljósabekk í þrjú ár
samfleytt eða verið enskunámskeiði í 2.982 ár í beit.
Fyrir 200 milljónir gæti maður boðið 57.143 vinum sín-
um á þorrablót í Brautartungu.
Fyrir 200 milljónir gæti maður keypt 3.000.000 smokka
eða 125 þúsund lítra af íslenskri kjötsúpu á Brúartorgi.
Fyrir 200 milljónir gæti maður keypt sér 168.068 nylon-
sokkabuxur, 11.174 orbitrek þrekhjól eða 8.000 teinótt
jakkaföt.
Fyrir 200 milljónir gæti maður ffamleitt 4 -5 íslenskar
kvikmyndir eða sett upp þrjá gervigrasvelli. Fyrir 200 millj-
ónir gæti maður keypt 40.000 jólatré og farið fjórum sinn-
um með Eiði Smára í spilavíti.
Síðast en ekki síst þá gæti maður, ef maður væri með 200
milljónir í vasanum, fengið 1. stkíslenskan tryggingafélags-
forstjóra til að láta af störfum.
Fyrir 200 milljónir væri ég hinsvegar tilbúinn að semja
um dagleg starfslok í fjörtíu ár. Eg tæki afturámóti mjög
nærri mér ef ég væri metinn það ömurlegur starfsmaður að
það væri talið 200 milljóna króna virði að reka mig aðeins
einu sinni.
Gísli Einarsson, fulltrúi verðlagseftirlitsins.
Mæðrastyrksnefiid
Akraness á götunni
Málið hefar ekki verið afgreitt segir bæjarstjóri
A fundi stjórnar Mæðrastyrks-
neíndar Akraness fyrir skömmu
var rætt um húsnæðisvanda
nefndarinnar sem stofnuð var fyr-
ir síðustu jól. Að sögn stjórnar-
kvenna var nefndinni synjað um
Jjárstyrk frá Akranesbæ til að
greiða húsaleigu og segja þær að
ekki hafi heldur fengist afnot af
húsnæði í eigu bæjarins sem
stendur samt ónotað. „Það er al-
veg ljóst að bæjaryfirvöld telja sig
ekld þurfa að aðstoða slíka starf-
semi og að þeim þykir eldd vera
þörf á henni þrátt fyrir íjöldann
sem sótti um aðstoð til mæðra-
styrksnefnar fyrir jól. Viðtökur
hjá fólki og fyrirtækjum voru ó-
trúlega góðar og viljum við þakka
þeim allshugar fyrir. 1 dag er fólk
að koma til okkar með fatakassa
ofl. en við erum í vandræðum að
taka á móti þessum gjöfum þar
sem við erum húsnæðislausar,"
segir í tilkynningu frá Mæðra-
styrksnefnd.
F.kki haftiað
„Sviðsstjóra fjölskyldusviðs og
bæjarstjóra var falið að ræða við
stjórn Mæðrastyrksnefndarinnar
en bæjaryfirvöld töldu sér ekki
fært að leggja fram fjárstyrk
vegna leigu,“ segir Gísli Gíslason
bæjarstjóri Akraness.
„Það lá heldur ekki ljóst fyrir
hvernig þær hugsuðu sér að
standa að málum í framtíðinni.
Við höfum hinsvegar lofað á-
kveðnu samstarfi sem meðal ann-
ars fælist í að aðstoða þær við að
útvega húsnæði. Við lítum ekki
svo á að þeirra málaleitan hafi ver-
ið hafnað og við vonumst til að
geta fundið lausn á þeirra vanda.
Við bentum m.a. á að það væri á-
stæða að leita til fleiri aðila eins og
Rauða krossins t.d.“ GE
Fjárhagsáædun Borgarbyggðar
samþykkt samhljóða
Fjárhagsáætlun Borgarbyggð-
ar fyrir árið 2003 var samþykkt
samhljóða á fundi bæjarstjórnar
þann 23. janúar s.l. Samkvæmt
fjárhagsáætluninni er gert ráð
fyrir að skatttekjur ársins 2003
nemi 662 milljónum króna sem
er um 8% hækkun á milli ára.
Þær skiptast þannig að útsvars-
tekjur eru áætlaðar 427 milljónir
króna, fasteignaskattur 81 millj-
ónirkróna, framlög úr Jöfnunar-
sjóði sveitarfélaga 145 milljónir
króna og lóðaleiga 9 miljónir.
Aðrar tekjur er áætlaðar um 240
milljónir króna.
Heildarkostnaður við rekstur
málaflokka nemur tæpum 780
milljónum króna og þar af er
kostnaður við rekstur leikskóla
og grunnskóla tæpar 450 miljón-
ir. Veltufé frá rekstri er rúmar 76
miljónir. „Rekstraráætlunin ein-
kennist annars vegar af hækkun
launakostnaðar, en hins vegar af
því að áætlunin gerir ráð fyrir að
fylgt verði ýtrustu aðhaldssemi í
rekstri sveitarfélagsins," segir
Páll Brynjarsson bæjarstjóri
Borgarbyggðar..
Til framkvæmda og fjárfest-
inga eru áætlaðar um 110 millj-
ónir króna á árinu 2003. Þar vega
þyngst áform um að leysa hús-
næðisvanda grunnskólans á
Varmalandi, en mikil fjölgun
nemenda við skólann kallar á
stærra húsnæði. Fjölgun nem-
enda á Varmalandi er tilkomin
vegna þeirra miklu uppbyggingar
sem verið hefur í tengslum við
Viðskiptaháskólann á Bifröst.
Þá hefur sveitarfélagið keypt
eignir og lóðir af Kaupfélagi
Borgfirðinga í gamla bæjarhlut-
anum í Borgarnesi, en þar er fyr-
irhugað að skipuleggja íbúðar-
hverfi.
Samkvæmt fjárhagsáætlun
Borgarbyggðar eru lántökur á ár-
inu 2003 áætlaðar um 170 millj-
ónir króna en að afborganir eldri
lána nemi um 97 milljónum
króna og skuldbreyting skamm-
tímaskulda rúmum 40 miljónum.
Fjárhagsáætlun Borgarbyggð-
ar fyrir árið 2003 var unnin sem
rammaáætlun, en það er í fyrsta
skipti sem slík aðferðafræði er
notuð við gerð áætlunarinnar.
jáVIarkmiðið með nýjum vinnu-
brögðum er að þau skili betri ár-
angri í rekstri sveitarfélagsins,
stjómendur stofnana verði með-
vitaðri um útgjöld og að þeir beri
meiri ábyrgð og hafi jafnframt
meiri áhrif,“ segir Páll.
GE
Landsmót
Idrkjunnar
Landsmót æskulýðsfélaga
kirkjunnar 2003 verður að
ölluni líkindum haldið í O-
lafsvík. Bæjarstjórn Snæfells-
bæjar tók jákvætt í erindi þess
efnis á síðasta fundi sínum og
var bæjarstjóra falið að ræða
við þá sem koma að lands-
mótinu. GE
Bátaabær í
Hvalfirði
Uppi em hugmyndir um
uppbyggingu tómstunda-
byggðar á Hvítanesi í Kjósar-
hreppi með því að finna úrelt-
um skipum nýtt hlutverk.
Landeigendur Hvítaness hafa
uppi hugmyndir um að nýta
legu landsins að sjó og er um
þessar mundir unnið að
deiliskipulagi að nýstárlegri
útfærslu á tómstundabyggð.
Hugmyndin byggir á því að
skip og bátar sem em í þokka-
legu ástandi verði tekin upp á
land og þau skorðuð þar sem
þau fái tengingu við landkerfi
svo sem rafmagn, vam, hita
og frárennsli. Skipin yrðu síð-
an nýtt til gistingar og fyrir
ýmsa þjónustu fyrir ferða-
menn.
(Morgunblaðið sagðifi'á)
Brotist inn í
Brekkubæiarskóla
Þrír ungir piltar voru staðnir
að verki er þeir bmtust inn í
Brekkubæjarskóla aðfaranótt
miðvikudags í .síðustu viku.
Gmnsemdir höfðu vaknað um
að innbrot yrði reynt þessa nótt
og var starfsmönnum Oryggis-
miðstöðvar Vesturlands gert við-
vart. Þeir komu sér því fyrir í
skólanum og biðu eftir innbrots-
mönnunum. Skömmu fyrir mið-
nætti urðu öryggisverðirnir varir
við þmsk og mannamál á einum
gangi skólans og því ljóst að
gransemdirnar höfðu reynst á
rökum reistar. Þegar innbrots-
þjófarnir áttuðu sig á því að fyrir
þeim væri setið tóku þeir til fót-
anna og hugðust flýja af vett-
vangi. Oryggisverðirnir náðu
tveimur gestanna strax en sá
þriðji komst undan á hlaupum.
Lögreglan var þegar í stað boðuð
á staðinn sem nú hefur málið til
rannsóknar en það mun að mestu
leyti vera upplýst þegar þetta er
ritað.
HJH