Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2003, Page 5

Skessuhorn - 29.01.2003, Page 5
^nliSSUHUiw MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 2003 5 Hart deilt við afgreiðslu íj árhagsáætlunar í Snæfellsbæ Fulltrúar minnihlutans lögðu til að starf verkefnisstjóra Staðardagskrár 21 yrði lagt niður Hart var tekist á á fundi bæj- arstjórnar Snæfellsbæjar í síð- ustu viku þegar fjárhagsáædun bæjarins, fyrir árið 2003, var tek- in til síðari umræðu. Fulltrúar D - lista sem er í meirihluta bæj- arstjórnar Snæ- fellsbæjar, lögðu ifam tillögu um breytingar frá fyrri umræðu þess efhis að 1,5 milljónum yrði varið í arkitekta- hönnun á stækk- un leikskólans Kríubóls á Hell- issandi. Tillagan var samþykkt með atkvæðum meirihlutans en fulltrúar minni- hlutans sátu hjá. Þá lögðu fulltrúar J-lista ffam tillögur sem þeir kölluðu sparn- aðartillögur og fálu meðal ann- ars í sér að greiðslur til verkefn- isstjóra Staðardagskrár 21 yrðu felldar niður. I greinargerð með þeirri tillögu sagði meðal annars að nágrannasveitarfélögin eyddu ekki peningum í slík verkefni. Mikil umræða spannst um þessa tillögu og létu fulltrúar D-lista bóka samantekt sem unnin var af Stefáni Gíslasyni verkefhisstjóra Staðardagskrár 21 á Islandi. I samantektinni segir m.a. að bæj- arstjórn Snæfellsbæjar hafi sam- þykkt 1. útgáfu Staðardagskrár 21 fyrst sveitarstjórna á Islandi og jafnvel á heimsvísu. Þá segir m.a.: „Það sem einkennt hefur Staðardagskrárstarfið í Snæfells- bæ hefur verið traust og stöðugt samband milli þeirra sem vinna verkið og þeirra sem að endingu taka hinar pólitísku ákvarðanir.“ Þá létu fulltrúar D-lista einnig bóka að sú mikla vinna sem Guðlaugur Bergmann verkefn- isstjóri Staðardagskrár 21 í Snæ- fellsbæ hefði innt af hendi í þágu verkefnisins væri ómetanleg fyr- ir sveitarfélagið og kostnaður sveitarfé- lagsins væri aðeins hluti af raunkostnaði. Tillaga J-listans var síðan felld með 4 at- kvæðum gegn 3. Misheppnuð sameining Þá var fjárhagsáætl- un Snæfellsbæjar og stofnana hans lögð fram og samþykkt með atkvæðum meirihlutans, en fulltrúar minnihlutans sátu hjá. Fulltrúar J-lista lögðu þá ffam bókun í mörgum liðum, þar sem seg- ir m.a.: „Við teljum það mjög alvarlegt hvernig bæjarfélag- ið virðist rekið að stórum hluta til ár eftir ár á lánum. Það virðist sem meirihlutann skorti kjark til að taka á þeim málum sem dregið gætu úr þeim gífurlegu út- gjöldum sem eru ár eftir ár langt umfram tekjur. Núverandi meirihluti er að helja sitt þriðja kjörtímabil og það virðist enn eiga að fara af stað, án þess að leita leiða til að ná niður skuld- um. Þvert á móti virðist eiga að gilda sú regla að ef eittlivað er gert í Olafsvík þá verður að gera eins úti á Hellissandi og öfugt.“ I bókuninni segir einnig: „Há- skólinn á Akureyri rannsakaði hvaða áhrif og afleiðingu sam- eining sveitarfélaganna á utan- verðu Snæfellsnesi hafi haft. Þar kemur í ljós að flest það sem átti að vinnast með sameiningunni virðist hafa farið á verri veg eða í besta falli staðið í stað.“ Asbjörn Ottarsson, forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, lýsti furðu sinni á bókun J-listamanna í ljósi þess að fulltrúar minnihlutans hefðu setið hjá við afgreiðslu fjárhags- áætlunarinnar. „ Það er ekki hægt að sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar og koma síðan með bókun um það að verið sé að sigla skútunni í strand. Það hefði verið æskilegra og smekk- legra að koma með greinargerð um hvað mætti betur fara og hvernig ætti að ffamkvæma það frekar en að sitja hjá. Bæjarfulltrúar J-listans eru aldeil- is ekki stíkkfríir í rekstri bæjarfélags- ins,“ sagði Asbjörn á Skútunni. Gunn- ar Örn Gunnars- son, oddviti J - lista, sagði hins- vegar að allir vissu að skipstjórinn réði á skútunni en tillögur J-lista hefðu alltaf verið slegnar undir borðið. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, sagði það rang- færslur hjá J-listamönnum að sameiningin í Snæfellsbæ hefði tekist illa samkvæmt umræddri skýrslu. Þvert á mótí segir í skýrslunni að sameining hafi tekist betur í Snæfellsbæ en nokkursstaðar annarsstaðar á landinu. GE Asbj'óm Óttarsson forseti bæjarstjómar Snæfellsbæjar Gunnar Om Gunnarsson oddviti J-lista. Gráhegramir tóra enn Starfsfólk Náttúrustofú Vest- urlands sá 5 gráhegra í vari fyr- ir norðanáttinni sunnan Búða- ness í Stykkishólmi, miðviku- daginn 21. janúar. Að líkindum er um sömu 5 fugla að ræða og sáust við Landeyjarsund í fyrri hluta nóvember. Talið er að 20-50 gráhegrar dvelji að jafnaði á Islandi yfir vetrartímann (Ævar Petersen, 1998. íslenskir fuglar. Vaka- Helgafell) og eru þeir árlegir gestir við Breiðafjörð. ,JVIiðað við fjölda tilkynninga um grá- hegra á landinu í haust og vetur er líklegt að þeir séu nokkru fleiri en 50 þetta árið. Gaman væri ef hegrarnir reyndu varp á landinu en venjulega hverfa þeir af landi brott þegar líður að vori. Ekki er vitað til að varp hafi nokkru sinni verið reynt en erlendis verpa gráhegrar í trjám,“ segir Róbert Stefánsson forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands. TIL FASTEIGNAEIGENDA í B0RGARBYGGÐ Alagningu fasteignagjalda 2003 í Borgarbyggb er lokið og er nú verib ab senda álagningarsebla til gjaldenda. Gjalddagar eru fimm þ.e. 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl og 15. maí. Vanskilavextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga. Sérstök athygli er vakin á að Sparisjóbur Mýrasýslu sér um innheimtu gjaldanna eins og undanfarin ár. Frekari upplýsingar um álagningu eru gefnar á bæjarskrifstofunni. Bœjarritari INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 NÝTTÁ SÖLUSKRÁ LAUGATEIGUR 1, Borgarfjarðarsveit Einbýlishús, 100 ferm. Forstofa flísalögð. Stofaog I gangur parketlagt. Eldhús með korkflísum, viðarinnr. f Þijú herb., tvö dúklögð, eitt teppalagt. Baðherb. flísalagt, jj kerlaug/sturta. Geymsla og þvottahús. Heitur pottur. I Húsið er til afhendingar strax. Verð: kr. 7.200.000 Sjálfsafgreiðsla f **! t -4kr. + Safnkortsafsláttur ESSO TILBOÐ • Maxi tjöruhreinsir með dælu. 1 lítri 30% AFSLÁTTUR • Þurrkublöð 30% AFSLÁTTUR • Frostvari í rúðusprautu. 1, 2,5 og 5 lítrar 30% AFSLÁTTUR Tiiboðin gilda í febrúar SÉRSTAKT TILBOÐ! • 1. febrúar verður -10 kr. afsláttur af hverjum eldsneytislítra Hyrnan • 310 Borgarnesi Sími 430 5565

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.