Skessuhorn - 29.01.2003, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR2003
jatasun^...
Nýjir eigendur að veislu-
þjónustunni Fortuna
Þeir félagar, Jónas (t.v.) og Hilmar voru á fullu aö imdirbúa hádegismatinn þegar blaðamaður Skessuhom leit við.
Egill Ragnarsson seldi á dög-
unum fyrirtækið sitt, Fortuna
veisluþjónusta og hafa nýjir eig-
endur þegar tekið til starfa.
Nýju eigendurnir heita Hilmar
Olafsson og Jónas Björgvin O-
lafsson og eru þeir báðir lærðir
kokkar. Þeir námu saman á
Hótel Borg fyrir nokkrum
árum og hafa komið víða við
síðan, ineðal annars var Hilmar
í Noregi í tvö ár og Jónas var
yfirkokkur á Hótel Borg. Þeir
félagar hyggjast halda allri
þeirri þjónustu áfram sem Egill
sinnti auk þess útiloka þeir ekki
að fært verði út kvíarnar. En
fyrst og fremst mun fag-
mennskan verða hér eftir sem
áður í fyrirrúmi.
Egill Ragnarsson vildi koma
á framfæri þakklæti til allra
sinna viðskiptavina í gegnum
tíðina um leið og hann óskaði
nýjum eigendum velfarnaðar í
starfi. HJH
Akraneskaupstabur
Eigendur fasteigna á Akranesi athugib!
Álagningu fasteignagjalda fyrir árib 2003 er nú lokib. Álagninga-
og grei&sluseolar hafa verið sendir út til grei&enda.
Gjalddagar eru 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl,
15. maí, 15. júní og 15. júlí.
Dráttarvextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.
Eins og sí&astliðin ár sér Landsbanki íslands, Akranesi,
um innneimu fasteignagjalda á Akranesi fyrir árið 2003.
Þeir sem nutu tekjutryggingar 1. janúar 2003 hafa þegar fengið
lækkun skv. reglum fyrir elli- og örorkulífeyrisþecja á fasteigna- og
holræsagjaldi. Bent er á að þeir sem komast inn á tekjutryggingu á
árinu 2003 eiga rétt á hlutfallslegri lækkun gjaldanna.
Kærur vegna álagningar skulu vera skriflegar og studdar fullnægjandi
rökum og sendar bæjarskrifstofunni Stillholti 16-18.
Frekari upplýsingar um álagningu gjaldanna veitir starfsfólk
fjárreiðudeildar Akraneskaupstaðar.
Skólaheimsókn á
Náttúrustofima
Krakkar í 1,-
5. bekk Grunn-
skólans í Stykk-
ishólmi heim-
sóttu Náttúru-
stofu Vestur-
lands miðviku-
daginn 22. janú-
ar. Þar sýndi
starfsfólk Nátt-
úrustofunnar
brot af því lífríki
sem finna má á
botni Breiðafjarðar og ffæddu
börnin um lifnaðarhætti dýr-
anna. Þarna mátti sjá krabba,
krossfiska, samlokur, sæbjúgu,
sæsnigla, burstaorma, fiska o.fl.
Stærstum hluta dýranna höfðu
skipverjar á Kristni Friðrikssyni
safnað deginum áður en hluta
dýranna söfnuðu starfsmenn
Náttúrustofunnar við Stykkis-
hólm. Lifandi dýrin vöktu kátínu
og hrifhingu unga fólksins.
Brúðarvöfflur
Uppábiíin og með ný-
lagað hár kynnir glæsta
gæsin Kristrím sínar
bragðgóðu brúðarvöffl-
ur í versluninn Nettó á
Akranesi fóstudaginn
31.janúar kl. 1 S:4S.
Vöfflur þessar þykja
einkar auðveldar og
fljótlegar í vinnslu og
eru því tilvalin nýjung
inn á hvert heimili í
hröðu nútímasamfélagi
þar sem allt á helst að
gerast ekki seinna en í
gær. Vöfflumar eiga
upp á pallborðið hvort
sem um er að ræða
bamaafmæli eða einalt
teboð á miðjumfóstu-
degi því krakkarmr
eru æstir í þær, herr-
amir elska þær og
dömumar dá þær.
Styttíst í hitaveitu
í Grundarfirði
Bæjaryfirvöld í Grundarfirði
ætla að bjóða út á næstunni
frekari jarðhitarannsóknir í
Laugaskerum á Berserkseyrar-
odda. „Við erum að bjóða út
rannsóknarboranir til að finna
út legu sprungustefnunnar á
jarðhitasvæðinu. Ut ffá þeim
rannsóknum verða vinnsluhol-
ur síðan væntanlega staðsettar,“
segir Björg Agústsdóttir bæjar-
stjóri Grundarfjarðar.
Björg segir allt benda til þess
að hitaveita í Grundarfirði
verði að veruleika á næstu árum
þótt ekki sé búið að tímasetja
það neitt nánar. „Vísindalegar
niðurstöður benda til að það sé
raunhæfur kostur og við höfum
miklar væntingar til þessa verk-
efhis,“ segir Björg.
GE
Athugið að veittur er 5% staðgreiðsluafsláttur verði gjöldin að fullu
greidd í síðasta lagi 15. febrúar n.k.
Vatnsgjald er lagt á og innheimtfyrir Orkuveitu Reykjavíkur og skulu
kærur vegna þess senaar til Orkuveitu Reykjavíkur, c/o Olafur Jonsson.
n
Fjárreibudeild Akraneskaupstaðar.
2. flokkur til Færeyja
2. flokkur karla í knatt-
spyrnu hjá IA hyggur á æfinga-
ferð til Færeyja í kringum
páskana f apríl næstkomandi.
Um 25 manna hópur mun fara
í ferðina sem mun taka fjóra
daga, frá föstudegi til mánu-
dags. Drengirnir vinna þessa
dagana hörðum höndum við
fjáröflun fyrir ferðinni og liður
í því er að bjóða upp á þrif og
bón sunnudaginn 2. febrúar
nk. Allar frekari upplýsingar
veitir Magnús í Bílás í síma
431 2622.
HJH