Skessuhorn - 29.01.2003, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 2003
^&iissunu^
Nýjir eigendur veislu-
þjónustarinnar Fortuna, þeir
Hilmar og Jónas eru
umsjónarmenn Eldhús-
króksins þessa vikuna.
Lesendum Skessuhorns er
boðið upp á sinneps-
marineraðann kjúkling með
sætkartöflumús.
Fyrír fjóra.
4 kjúklingabringur
3 lauf hvítlaukur (fínt saxaður)
11/2 matskeið dijon sinnep
1 dl matarolía (grœnmetis)
Sinnepi og hvítlauki
blandað saman og olíunni
þeytt samanvið í mjórri bunu.
Kjúklingurinn er marineraður
í þessu í amk. eina nótt.
1 msk. olía
Hitið laukinn, hvítlaukinn
og kartöflur upp úr olíunni.
Bætið 1/2 dl af vatni útí
pottinn setjið þétt lok á svo
kartöflurnar gufusjóði við
vægan hita í 20 mínútur.
Maukið með kartöflustappara
og bragðbætið með smjörinu,
saltinu og piparnum.
Sætkartöflumús
800 gr. sætar kartöflur
(skrældar) skomar í grófa
teninga
4 lauf hvítlaukur (gróft
saxaður)
1/2 laukur (saxaður)
svartur pipar og salt
1 msk. smjör
Marineringin er skafin af
kjúklingnum, hann brúnaður á
pönnu og kryddaður með salti
og pipar. Hann er svo kláraður
í ofni við 180° í ca. 15
mínútur.
Berið fram með salati.
Verði ykkur að góðu!
Gunnar Leifur Stefánsson er
Skagamönnum vel kunnugur enda
komið víða við í fyrirtækjarekstri á
Akranesi. A dögunum opnaði
Gunnar nýjan veitingastað við
Stillholt og hafa viðtökurnar verið
ffamar vonum að sögn Gunnars.
Gunnar er gestur Skráargatsins
þessa vikuna.
Nafn: Gunnar Leifur Stefánsson
Fæðingardagur og ár: 28.jiíní 1956
Starf: Það erflókið að segjajrá því, athafnamaður er ágætt orð
Fjölskylduhagir: Maki er Þórunn Asgeirsdóttir og eigum við 3
börn
Hvemig bíl áttu: Bens
Uppáhalds matur: Londonlamb
Uppáhalds drykkur: Whiský
Uppáhalds sjánvarpsefni: Fréttir
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Jón Arsæll
Uppáhalds leikari innlendur: Öm Amason
Uppáhalds leikari erlendur: Steve McQueen
Uppáhalds íþróttamaður: Úlafur Stefánsson, handboltakempa
Uppáhalds íþróttafélag: Liverpool
Uppáhalds stjórnmálamaður: Jón Baldvin efhægt er að telja
hann með
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Bubbi
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Bruce Springsteen
Ertu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni: Andvígur
Hvað meturðu mest ífari annarra: Hreinskilni
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Tvöfeldni
Hver þinn helsti kostur: Bjartsýni
Hver erþinn helsti ókostur: Það er þrjóskan
Hvað hyggstu gera við gamla húsnæði Pizza 67: Breyta því í
tbúðir sem verða til sólu og leigu
Hvað verður í boði á nýja staðnum: Pizzur númer eitt, síðar
hamborgarar og kjúklingar og seinna meir einhverjir nýstárlegir
réttir. Svo verður þetta líka kaffthús.
Hvemig hafa viðtökurnar verið: Mjög góðar
Eitthvað að lokum: Eg held bara ekki
Fundað
um skel-
fiskveiðar
Rætt um lagningu
gervigrasvaUar
á Akranesi
Knattspyrnufélag IA og
Akraneskaupstaður munu á
næstu dögum hefja viðræður
um lagningu gervigrasvallar á
malarvöllinn við Jaðarsbakka.
Beðið er eftir skýrslu frá nefnd
sem knattspyrnufélagið skipaði
fýrir skömmu til að draga sam-
an ýmis atriði er varða fram-
kvæmd slíks verks. Samkvæmt
heimildum Skessuhorns hljóðar
gróf kostnaðaráætlun nefndar-
innar upp á um 70 milljónir
króna fyrir völl í fullri stærð.
Það gervigras sem áætlunin
gerir ráð fyrir er af svokallaðri
þriðju kynslóðar grasi og er það
samskonar gras og er í nýjustu
knattspyrnuhöllunum í Reykja-
vík, Kópavogi og á Akureyri. I
kostnaðaráætluninni er ekki
gert ráð fyrir að völlurinn verði
upphitaður en sé vilji til að hafa
þann útbúnað með kostar það
um 20 milljónir aukalega.
Að sögn Harðar Helgasonar,
formanns Knattspyrnufélags
IA, hefur Akraneskaupstaður
tekið vel í að koma að fram-
kvæmdinni ef af henni verður
og munu fulltrúar þessara aðila
setjast að samningaborðinu á
næstu dögum.
HJH
I gær fóru fulltrúar skel-
fiskverkenda í Stykkishólmi
og Grundarfirði, auk bæjar-
fulltrúa frá þessum stöðum,
á fund Sjávarútvegsnefndar
Alþingis. A fundinum var
rætt um skerðingu skelfisk-
kvótans og horfur fyrir fisk-
veiðiárið 2003 - 2004 sem
munu ekki vera mjög bjartar.
Stærstur hluti hörpuskel-
vinnslunnar í landinu er á
Snæfellsnesi og hinn mikli
samdráttur sem orðið hefur í
skelfiskveiðum nú þegar
hefur umtalsverð áhrif á at-
vinnulífið á svæðinu.
GE
Tréiðndeild Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi tók í síðustu viku í notkun tvær nýjar véla í tækjasal deildarinnar við
Vesturgötu. Tækin eru Steton þykktarhefill og fræsari og nemur kostnaður kaupanna um tveimur milljónum. 1 tilefrii 25
ára afrmælis skólans afhenti formaður iðnsveinadeildar Verkalýðfélags Akraness, Bjöm Guðmundsson, fyrir hönd VLFA og
fimm fyrirtækja í byggingaiðnaðinum á Akranesi, skólanum peningagjöf til tækjakaupa að upphæð 120 þúsund krónur. A
myndinni má sjá Hörð Helgason, skólameistara FVA, taka við ávísuninni úr hendi Björns.
S
Lionsklúbbur Olafsvíkur þrjátíu ára
Afmælisbamið gefur stórgjafir
Lionsklúbbur Olafsvíkur hélt
upp á þrjátíu ára afrnæli sitt fyrir
skömmu í félagsheimilinu Klifi.
A afmælishátíðinni gáfu klúbb-
félagar gjafir fyrir rúmlega þrjár
og hálfa milljón. Klúbburinn af-
henti Snæfellsbæ nýtt sýningar-
tjald í Félagsheimilið í KJifi en
tjaldið er fellt inn í stokk yfir
sviðinu og dregið upp og niður
með rafmotor. Þá gaf klúbbur-
inn félagsheimilinu einnig skjáv-
arpa, myndbandstæki, DVD
spilara og viðbót við hljóðkerfi
hússins. Þá afhentu Lionsmenn
Ólafsvíkurkirkju 500.000 kr.
sem eiga að renna til kaupa á
húsbúnaði fyrir safhaðarheimili
kirkjunnar. Þá fékk félagsstarf
eldri borgara 50.000 kr. að gjöf
fyrir sína starfsemi. PSJ
Í-V
Fv,.Jón Guðmundsson formaður afmælisnefndar, Kristján Helgason formaður
Lionsklúbbsins og Magnús Steingrímsson umdæmisstjóri Lionsumdæmis 109b.
Mynd:Þröstur Albertsson