Skessuhorn


Skessuhorn - 29.01.2003, Qupperneq 10

Skessuhorn - 29.01.2003, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 29.JANÚAR2003 oiktssunu^ Eydís Lóndal Finnbogadóttir Tengsl byggðastefmi og iðnnáms „Eg var að hugsa um að fara í iðnnám, en mig langar ekki að flytja til Reykjavíkur." Svona hljómar umræðan á göngum efstu bekkjar grunnskólanna víða um land nú þegar tíundu bekkingarnir fara að huga að á- framhaldandi námi. Á undanförnum áratugum hefur iðnnemum fækkað á sama tíma og nemum í framhalds- námi og háskólanámi er að fjölga. Iðnnám hefur lengi vel ekki þótt jafn „merkilegt“ og stúdentsnám, en slíkum við- horfum verður ekki breytt í einni svipan, heldur þarf al- menningur að gera sér Ijóst mikilvægi iðnaðarmanna í þjóð- félaginu. Fækkun nema í iðn- námi er ekki einungis vegna neikvæðra viðhorfa heldur hefur niðurskurður í skólakerfinu mikil áhrif, ekki síst í minni skólunum. Sett hefur verið fram reiknilíkan fyrir framhaldsskól- ana varðandi nemendafjölda og kosmað. Þar kemur frarn að til þess að fá fullt framlag frá rík- inu, til að reka framhaldsdeild í iðngreinum þarf, tólf nemendur í hóp í verklegum greinum. Ef nemendur eru færri tapa skól- arnir á því að halda úti náminu, því kostnaður við kennslu og aðstöðu er jafn mikill fyrir stóra sem litla hópa. Staða iðnnáms á landsbyggðinni I Fjölbrautarskóla Vestur- lands á Akranesi, sem einnig er verknámsskóli, hefur fram til þessa m.a. verið boðið upp á nám í grunn og framhaldsdeild vélvirkjunar. Vegna fækkunar nemenda í framhaldsdeildinni, nú í haust, var ekki talinn fjár- hagslegur grundvöllur fyrir því að bjóða upp á slíkt nám. Þetta hefur orðið til þess að þeir nem- endur sem hugðust sækja námið hafa orðið að leita til höfuð- borgarsvæðisins, taka sér frí eða fara í annað nám. Vegna þessar- ar óvissu veigra nemendur sér við að fara í iðnnám í framhalds- skólum landsbyggðarinnar þar sem óljóst er hvort þeir hafi tækifæri á að ljúka því við skól- ann. Nemendur hafa því þurft að flytjast til höfuðborgarsvæð- isins, þar sem framboð á iðn- námi er meira en úti á lands- byggðinni. Flótti ungs fólks af landsbyggðinni I nýútkominni skýrslu Hag- fræðistofnunar segir m.a. „ Landsbyggðin virðist hafa lítið aðdráttarafl fyrir menntað fólk. Vesturland, Vestfirðir, Norður- land eystra hafa misst ffá sér 60%-70% af þeim sem fæddust á árunum 1968-1972, bjuggu þar árið 1988 og tóku lán hjá LIN til framhaldsmenntunar". Þessar tölur eru sláandi en á- stæðan er ekki sú að ungt fólk vilji ekki búa á landsbyggðinni. Grundvöllur þess að ungt fólk kjósi að búa á landsbyggðinni er fjölbreytt atvinnulíf og tryggt aðgengi að ijölbreyttu námi á öllum skólastigum. Hver er þá byggðastefna stjórnvalda ef litið er til framboðs á iðnnámi? Sam- kvæmt könnunum kemur rneiri- hluti iðnnema af landsbyggð- inni. Því er einkennilegt að hugsa til þess að stærstur hluti iðnaðarmanna útskrifist frá skólum á höfuðborgarsvæðinu, þar sem reiknilíkanið góða get- ur hugsanlega gengið upp. Nauðsynlegt er að endurskoða reiknilíkan framhaldsskólanna, enn frekar, það er stórt byggða- mál og mikilvægt til að viðhalda iðnmenntun í landinu. Megináhersla byggðastefnu á menntun I áðurnefhdri skýrslu Hag- ffæðistofnunnar er sett ff am eft- irfarandi tillaga: „ Megináhersla byggðastefnunnar ætti að vera á menntun, bæði með tilliti til uppbyggingar menntasetra á landsbyggðinni og til þess að styrkja menntunarsækni ein- staklinga á landsbyggðinni“. Almenningur ekki síður en stjórnvöld þurfa að huga vel að mikilvægi og stöðu iðnmennt- unar í landinu, viðhorf til ið- náms þurfa að breytast og fjár- magn til þess að aukast, sérstak- lega á landsbyggðinni. Ef ekkert verður að gert verða íslenskir iðnaðarmenn tegund í útrým- ingarhættu. Akranesi 23.janúar 2003 Eydís Líndal Finnbogadóttir, MSjarófrœði 4. sæti á lista Framsóknar- jlokksins í NorðvesturkjörcLemi l/tuuíhe'iwd Hér er égfullur aðflœkjast Mörgum hag- yrðingi hefur orðið það á að spyrja sjálf- an sig til hvers hann sé eiginlega að troða þessum orð- um inn í fyrirffam ákveðið form og sjálfsagt hafa fengist álíka mörg mis- munandi svör við þeirri spurningu. Yngvi M. Gunnarsson orti um sjálfan sig og skipti sín við skálda- gyðjuna: Við að smíða vísumar var ég aldrei slyngur, og það erfarið það það var að þykjast hagyrðingur. Enn ég sigli á sama skerið söltum lífs á bárunum, ég heflöngum vitlaus verið versna þó með árunum. Jónas í Grjótheimi taldi sig hafa aðra sögu að segja: Um margt má neita manninum, margt er honum lánað. Eg hefnú með aldrinum ofurlítið skánað. Kvæðasyrpa Einars Beinteinssonar virð- ist hinsvegar hafa haft tilhneigingu til svip- aðra viðhorfa gagnvart framleiðanda sín- um og Yngvi til sjálfs sín enda orti Einar: Vtð mig sagði kvœðakverið kaldri meður ró: „Þú hefur alltaf vitlaus verið, versnar heldur þó“. Aftur kjaftinn upp ég þandi öskraði með kraft: „Skaltu þora skruddufjandi að skœla við mig kjaft". Skruddan þagði, það var lóðið, þóttist viljafrið. Annars hefði ég hana og Ijóðið haft í eldivið. Sólarlandaferðir hafa átt vaxandi vin- sældum að fagna á undanförnum árum og dreifast nú á lengri hluta ársins en áður var enda var haft eftir einum ágætum Snæfell- ingi að þetta væri nú svo lítið mál eftir að göngin komu. Steinn Steinarr sat eitt sinn suður á Spáni og orti ljóðabréf þar sem má finna þetta erindi: Ýtar detta oft á tur ei þófréttist heima. Hér eru nettar hefðarfrúr. hér eru kettir breima. Undir áhrifum (ffá Steini) orti hinsveg- ar Guðmundur Þorsteinsson á Skálpa- stöðum staddur á sólarströnd: Hér er égfullur að flækjast „með framandi jörð við il“ en það gerir auðvitað ekki andskoti mikið til. Sumir telja mér sœmra að sitja við mjólkurglas „en mér er að sjálfsögðu sama“ um svoleiðis kvennajjas. Fljótlega fer ég til norðurs aðfást við skepnur og hey, „þú mikli eilífi andi Ókei“. Stundum var haft orð á því að sólar- strandafarar hefðu gaman af að beita mannfjölgunargræjunum þar syðra, en það er að sjálfsögðu eintómur rakalaus þvættingur enda mörg ullabjökk heimsins sem betra er að vera laus við en Steinn Steinarr vissi samt að það sakar nú ekki að gægjast aðeins og orti: Einni kvon að unna mjeg ekki er von ég kunni, mörg er konan liggileg lífs á skonortunni. Annars hefur fólk nú getað elskast hér heima á skerinu og hefur sú aðferðin orð- ið íslendingum drýgst til fjölgunar í gegn- um árin og sparar að auki kyndingarkostn- að. Þórariim Sveinsson í Kílakoti orti um samdrátt tveggja persóna: Hverfur bölvun, titrar taug, tístir ífölvum runnum, þegar Sölvi og Sigurlaug saman hvölva munnum. Þó Káinn gamli væri lítt við konur kenndur stóð ekki á honum að gefa góð ráð þegar honum fannst það eiga við og gaukaði þessu að vini sínum: Hœttu að dansa og gœtni gleym, gríptu sénsið maður! Taktu kvensu og töltu heim. „Tell yourfriends to do the same“. Samt er nú eins og Káinn gamli sé dálít- ið á varðbergi þegar hann yrkir: Heyri ég pilsa geystan gust, grípur hjartað ótti: Sú mér reyndist svikulust sem mér vœnst um þótti. Mér er ekki svo fullkunnugt um höfund eftirfarandi vísna að ég þori að fullyrða þar um en vissulega hef ég Böðvar Guðlaugs- son sterklega grunaðan um að hafa sett þetta saman við mannlífsáhorf á einhverju öldurhúsi. Gaman væri þó ef einhver gæti annaðhvort staðfest það eða leiðrétt: Eigi er sœld í sekkjum mœld, sífrar, bœld og kúskuð, dyggðasnœldan tvígang tœld timbruð spœld og sjúskuð. Allra handa örvar þrá asnablandan veika, úr þvífjandinn eiga má allan grandvarleika Sprœk er býfa, sperrt er skott, sporlétt vífin þrá hann, raunakífið rýkur brott, rommið svífur á hann. Ég þóttfátt og alltofsmátt œtti þrátt að bjóða, taka máttu mig í sátt, mál er að hátta góða. Það hefur lengi verið mönnum um- hugsunarefni hvar gæfuna sé að finna og margir hafa leitað hennar á skemmtistöð- um eða í áfengisflöskum og jafnvel í töflu- formi eða sem sprautulyf en ekki hafa allir haft erindi sem erfiði úr þeirri leit. Eftir Olaf Sigfusson frá Forsæludal er þessi á- gæta vísa: Stundum vonir bjartar bera blik um víðan sjónarhring. En gœfan ekki virðist vera til viðtals - fyrir almenning! Látum svo þessu lokið að sinni með annari ágætri vísu eftir Olaf: Þráin er böl þegar vonin erfallin í valinn. Vel getur eldurinn lifað, í öskunni falinn. Heitasta dagsins að kveldi er sárbitur svalinn. Sestu eifunanum nœrri efveistu þig kalinn. Með þökkjýrir lesturinn. Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S435 1367 dd@binet.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.