Skessuhorn - 05.02.2003, Side 1
Ný samgöngnáætlun
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra mælti í gær fyrir þings-
ályktunartillögu um nýja sam-
gönguáætlun fyrir tímabilið
2003 - 2006. Einnig mælti hann
fyrir þingsályktunartillögu fyrir
langtímasamgönguáætlun sem
nær til ársins 2014.
Stærstu framkvæmdir í vega-
gerð á Vesturlandi á tímabilinu
2003 - 2006 eru, samkvæmt
þinsályktunartillögunni, brúar-
gerð og vegfylling yfir Kolgraf-
aríjörð á Snæfellsnesi. Fram-
kvæmdir eiga að hefjast á þessu
ári og gert er ráð fyrir að þeim sé
að mestu lokið árið 2005. Þá er
gert ráð fyrir að endurbyggður
verði kafli á hringveginum frá
Borgarfjarðarbraut að Hrauná á
árunum 2004 - 2006. Fram-
kvæmdir við bundið slitlag frá
Stóra-Asi í Hálsasveit eiga
einnig að hefjast á næsta ári og
ljúka árið 2005. Ennfremur er
gert ráð fyrir að framkvæmdir
við Vestfjarðaleið um Svínadal
heíjist árið 2006.
Samkvæmt samgönguáætlun-
inni verður 106 milljónum varið
í ferðamannaleiðir á Vesturlandi
á tímabilinu 2003 - 2006 og að
auki verður 145 milljónum varið
í endurbætur á Uxahryggjaleið
en fyrir er í sjóði 80 milljóna
fjárveiting í það verkefni sem
ekki hefur verið nýtt.
Sjá nánar á bls. 5
Hækkun leikskóla-
gjalda mótmælt
A fundi foreldrafélags leik-
skólans Klettaborgar í Borgar-
nesi í síðustu viku var hækkun-
um á leikskólagjöldum og leng-
ingu sumarlokunar harðlega
mótmælt. Samkvæmt ákvörðun
bæjarstjórnar hækka leikskóla-
gjöld í Borgarbyggð um 5% og
sumarlokun lengist úr tveimur
vikum í fjórar. „Við höfum
einnig fengið bréf frá einu af
stærstu vinnuveitendunum í
Borgarbyggð, Vírneti-Garða-
stáli, þar sem gerð er athuga-
semd við þessar breytingar.
Akvörðunin stendur hinsvegar
út þetta ár en menn hafa lýst yfir
vilja til að bæta þjónustu gæslu-
vallarins með það í huga að
þannig sé hægt að mæta sumar-
lokuninni. Einnig eru menn
sammála um að fara yfir málið í
lok árs ef tilefni þykir til,“ segir
Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri
Borgarbyggðar.
Páll segir hækkun leikskóla-
gjaldanna vera í lægri kantinum
miðað við hækkanir hjá mörgum
öðrum sveitarfélögum. „Með
hækkuninni er verið að mæta
auknum kostnaði við reksturinn
en laun leikskólakennara hækk-
uðu um 3% um áramót. Hins-
vegar má geta þess að það eru
aðeins leikskólagjöldin sem
hækka en ekki fæðisgjaldið.
Varðandi lengingu sumarlokun-
arinnar þá liggja faglegar for-
sendur þar á bakvið. Félag leik-
skólakennara hefur lagt áherslu á
að leiksólastarfið hafi upphaf og
endi og við teljum okkur því vera
að koma á móts við faglegar á-
bendingar. Einnig erum við með
þessu að hagræða í rekstri en
með fjögurra vikna lokun í stað
tveggja sparar sveitarfélagið eina
og hálfa milljón króna,“ segir
Ólsarar blótuðu þorra um síðustu belgi og var að vanda vel tnætt til blótsins í Klifi. Gríðarlegur jógaábugi Olsara var meðal
þess sem fjallað var um í skemmtidagskrá og á myndinni sjást nokkrir Ólsarar í innbverjri eða úthverfri íbugun. Mynd: PSJ
Aðalfundurinn stóð í sex
tíma en var síðan frestað
-aðeins tveir dagskrárliðir afgreiddir
Ohætt er að segja að aðalfund-
ur Verkalýðsfélags Akraness, sem
haldinn var sl. laugardag í sal
Verkalýðsfélagsins, hafi verið
tíðindalítill sé miðað við lengd
hans. Fundurinn stóð í tæpa sex
klukkutíma, en þrátt fyrir það
tókst aðeins að afgreiða tvo aug-
lýsta dagskrárliði, þ.e. skýrslu
formanns og framlögn ársreikn-
inga félagsins. Þessa tvo dag-
skrárliði tók innan við tvo tíma
að afgreiða.
Fyrstu þrír klukkutímarnir
fóru í þrjár leynilegar atkvæða-
greiðslur. Sú fyrsta var um hver
skyldi vera fundarstjóri, Jón
Karlsson, sem var tilnefndur af
stjórninni og Pétur Ottesen, en
tillaga um hann kom frá einum
fundargestanna. Svo fór að Pétur
var kjörinn fundarstjóri með 76
atkvæðum gegn 63. Næstu tveir
tímarnir fóru í atkvæðagreiðslu
um breytta dagskrá fundarins og
voru þær báðar samþykktar.
Þegar hér var komið höfðu
margir fundargestir horfið á
braut enda útséð að fundurinn
stæði nokkra klukkutíma í við-
bót.
Það var því ekki fyrr en rúm-
lega þremur tímum eftir að
fundurinn byrjaði sem fyrsti
dagskrárliðurinn hófst. Skýrsla
formanns var með hefbundnum
hætti, þar sem Hervar Gunnars-
son fór yfir helstu atriði í starfi
VLFA á liðnu starfsári. Eftir að
endurskoðandi félagsins hafði
farið yfir ársreikninga tóku Vil-
hjálmur Birgisson stjórnarmað-
ur, og Hervar til máls og töluðu
samtals í ríflega klukkustund auk
fárra annarra sem í pontu stigu.
Að þessum dagskrárlið af-
greiddum var borin upp sú til-
laga að fresta fundinum og boða
til framhaldsaðalfundar innan tíu
daga. Þessi tillaga var samþykkt
með miklum meirihluta við-
staddra, 60-20. Af þeim tölum
má sjá að fundargestum hafði
fækkað úr 139 í 80 frá því fund-
urinn hófst sex tímum áður.
Framhaldsaðalfundur Verka-
lýðsfélags Akraness hefur verið
boðaður mánudaginn lO.febrúar
næstkomandi.
HJH