Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2003, Qupperneq 8

Skessuhorn - 05.02.2003, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 2003 j&uwnukti Söngleikurinn Frelsi í Grundaskóla Kraftur og leikgleði Frelsi. Söngieikur eftir Gunnar Sturlu Hervarsson og Flosa Einarsson. Leikstjóri: Gunnar Sturla Hervarsson. Tónlistarstjóri: Flosi Einars- Son. Umsjón með lýsingu: Jón Eiríkur Jóhannsson. Fram- kvæmdarstjóri: Einar Viðars- son. Yfirumsjón með verkefh- inu: Sigurður Amar Sigurðs- son. Sýningarstaður: Grunda- skóli á Akranesi. Það má kannski segja að hóp- urinn sem stendur að þessari sýn- ingu hafi að sumu leyti farið fram úr sjálfum sér því svo mikið geng- ur á í sal Grundaskóla á Akranesi. Sýningin er óvenju umfangsmikil og greinilegt að margir hafa þurft að leggja mikið á sig til að gera hana að því sem hún er. Kraftur og leikgleði einkenna þessa metn- aðarfullu sýningu sem óhætt er að mæla með. Raunveruleiki unglingsins Söguþráður söngleiksins Frels- is er ffaman af ekki flókinn en engu að síður þokkalega jarð- tengdur við frekar einfaldaða mynd af raunveruleika unglinga dagsins í dag. Unglingsstúlkan Fríða frá Fomahvammi gengur inn í nýjan bekk í ónefndum bæ - ólánleg í klæðaburði miðað við tísku samtímans, öryggislaus jafnt sem GSM-laus og verður um- svifalaust fyrir aðkasti nýrra bekkjarfélaga. Bekkurinn er þrí- klofinn, eins og stundum vill verða - í gellugengi, töffaragengi og nördana tvo, Onnu og Leó sem taka Fríðu upp á arma sína. Fyrir vikið virðist Fríða horfa upp á áframhaldandi útskúfún úr „vin- sælunni" sem hún þó greinilega þráir. Svo gerist það að súpersjar- mörinn Ísak gengur óvænt inn í líf Fríðu með tilboð um að leysa allan hennar vanda. Hann lofar henni að hún muni falla í kramið hjá hópnum, en það er gegn því að „hún verði hans“ á lokaballinu. Sá sem er útskúfaður og lagður í einelti tekur því fegins hendi þeg- ar harm fær „break“ og gengur í lið með kvölumm sínum - selur sálu sína eins og það er sett fram í verkinu. Með Isaki rofnar jarð- sambandið og sagan tekur óvænta stefhu eða öllu heldur þá klofhar sagan í tvennt því ísak er ekki af þessum heimi - hann er sá vondi sjálfur, Kölski kominn á sálna- veiðar auk þess sem hann á harma að hefna því í ljós kemur að Fríða er hugsanlega síðasti afkomandi Sæmundar fróða. Nútíminn á hér stefnumót við þjóðsagnaarfinn og tekst það „date“ í raun þokkalega en þó helst í krafti söngleikja- formsins. I „lokasöngs-uppgjör- inu“ tekst Fríða á við höfuðóvin- inn, henni kippir í kynið í þessu rímeinvígi upp á gamla mátann og hefur betur. Tölvu- og gemsa- tilvera unglinga dagsins í dag er auðvitað orðin fjarlæg þjóðsagna- arfinum sem sótt er í og þótt und- irritaður treysti sér ekki til að af- skrifa þann vonda sem tilbúning og firm fólks í sálarkröm þá em það alkunn sannindi að mjög hef- ur dregið úr draugagangi síðan landið var raflýst. Hreinræktaður unglingaheimur Utskúfun og einelti er alltaf grimmilegt og vissulega em verið að takast á við þau mál í þessu verki þótt átökin risti ekki djúpt. Eins og þeir vita sem hafa komist tiltölulega klakklaust í gegnum unglingsárin þá em þessi undar- legu ár á köflum hreint ekk- ert grín. Leitin að ásættan- legri sjálfsmynd gemr reynst töluverð þrautar- ganga og áreiti umhverfis- ins stöðugt og oft særandi, jafnt frá jafnöldrum sem kynslóð foreldranna, svo ekki sé minnst á hin myrku markaðsöfl sem em óþreyt- andi að tæla ungdóminn með alls konar óþarfa og drasli. „Frelsi" lýsir að mesm “hreinræktaðum“ unglinga- heimi, því foreldrarnir em hvergi sjáanlegir. Kennar- inn, staðgengill þeirra, er tölvustýrt vélmenni sem hefur fátt fram að færa ann- að en að minna nemendur á samræmdu prófin á milli þess sem það frýs að hætti mrkrósoft. Góðlátlegt grín er gert að tísku- og gemsa- fárinu en undir skopstæl- ingunni og alþekkmm erkitýpun- um í unglingahópnum glittir í raunvemlegt fólk. Hin besta skemmtun Sýningin er í heild hin besta skemmmn. Strax í fyrsta söngat- riðinu kemur í ljós að hér er á ferðinni kraftmikill hópur sem tekst óhræddur á við verkefni sitt undir ömggri handleiðslu stjórn- endanna í leik og sönglist. Gunn- ar Sturla og Flosi em báðir sjóað- ir, hvor á sínu sviði, ekki síst Flosi í músíkinni, en hér við bætist að Gunnar sýnir ágæt tök í þessu fyrsta stóra leikstjórnarverkefni sínu. Lagasmíðarnar henta efninu ágætlega og söngvararnir standa sig alveg prýðilega. Leikurinn er heilt yfir góður, þegar tekið er til- lit til aldurs og reynsluleysis flestra leikenda. Sigurbjörg Halldórsdóttir leik- ur Fríðu og Þór Birgisson tekst á við hlutverk Ísaks/Kölska. Á herðum þeirra hvílir meginþungi atburðarásarinnar og árangurinn lofar góðu, því þau fara bæði vel með hlutverk sín, dyggilega smdd af hópnum. Jón Ingi Þrastarson uppskar mikinn hlámr sem hinn óborganlegi Leó og skapaði að öðmm ólöstuðum fínt kómískt jafnvægi í sýningunni. Trúðshlut- verkið (sem slaufan alþekkta und- irstrikar) er vandmeðfarið og byggir ekki síst á góðri líkams- tjáningu sem Jón býr yfir nægri. Heiðrún Arna Friðriksdóttir var röggsöm og jarðbundin sem Anna, til mótvægis við sprelligos- ann. Gellugengið er leikið af Evu Eiríksdótmr, Heiði Sif Heiðars- dótmr, Ylfu Flosadóttur og Frið- mey Jónsdótmr. Gengið átti oft góða spretti í leik og þær náðu mjög vel saman í söngnum. Töffarahlutverkin em í hönd- um Jóns Vals Olafssonar, Birkis Arnar Gylfasonar, Axels Más Karlssonar, Birkis Snæs Guð- laugssonar og Elis Veigars Ingi- bergssonar. Þar kveður mest að Sigga svarta, semjón Valur Olafs- son leikur en þeim tekst saman að draga upp lúnkna mynd af frekar álappalegum en góð- hjörmðum drengjum sem óttast stelpur meira en flest annað í lífinu. Sumir þeirra gæm þess vegna átt framtíð fyrir sér í rappinu, ef ekki í dansinum. Ragnheiður Smáradóttir, Tinna Ósk Grímarsdóttir og Unnur Ósk Magnúsdóttir em skvísumar í bakradda- sveitinni „Chicks“. Þær syngja vel og hefði að ósekju mátt virkja þær meira í leikköflum sýningarinnar. Kennarinn er leikinn af Kristbjörgu Smáradóttur og stóð hún ágætlega fyrir sínu. Einar Viðarsson átti skemmtilega innkomu í tveimur stuttum atriðum - í hinu fýrra sem sóðakokkur- inn Einsi á Einsaborgumm (og sýndi aðdáunarverða fótamennt meðan hann söng aug- lýsinguna fyrir versm búllu bæjar- ins) og aftur í dómarahlutverkinu. Hópatriðin vom vel kompóneruð og hefðu dans og fjölmenn söng- atriði þess vegna mátt vera fleiri því útfærslan sýndi að leikstjórinn hefur haft góð tök á hópnum. Krafturinn í sýningunni skap- ast kannski fyrst og fremst af leik- gleði hópsins - það skín í gegn hversu gaman þeim finnst að vera á sviðinu og það smitar auðveld- lega út í salinn til áhorfenda sem fögnuðu vel í leikslok. KK Alyktun um stækkim Norðuráls Eftirfarandi ályktun var samþykkt á aðalfundi Verka- lýðsfélags Akraness: „Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness, haldinn laugardaginn 1. febrúar 2003, skorar á stjórn- völd að standa við gerða samn- inga við Norðurál og tryggja að Norðurál fái þá orku sem fyrir- tækið þarf, til þess að geta hafið stækkun sem fyrst. Rétt er að minna á að þegar samið var um byggingu Norð- uráls var gert mat á umhverfisá- hrifum og gefið út starfsleyfi til 10 ára fyrir 180.000 tonna álfJamleiðslu. Fyrirtækið hefur nú 90.000 tonna framleiðslu- gem og hefur ítrekað lýst áhuga á stækkun að gefnum ákveðnum forsendum. Þessi áhugi hefúr legið fyrir síðan 1997 og er það furðulegt að nú, meira en 5 ámm síðar liggur ekki enn fyrir áætlun um hvernig mæta á orkuþörf fyrirtækisins. Vinnu- brögð stjórnvalda era, að mati aðaliúndarins, ámælisverð enda mætti ætla að ef undirbúnings- vinna hefði verið með eðlilegum hætti væra framkvæmdir þegar hafnar og atvinnuleysi minna. Fundurinn lýsir yfir veraleg- um áhyggjur af vaxandi at- vinnuleysi og aukinni fátækt. At- vinnuleysi á Vesmrlandi hefúr aukist stórlega og era nú yfir 300 manns atvinnulausir á Vest- urlandi. Stjórnvöld geta með góðum vilja og markvissum að- gerðum snúið þessari óheilla- þróun við. Því er mjög nauðsyn- legt fyrir allt atvinnulíf á Vestur- landi að hafist verði handa við stækkun Norðuráls.“ Yfirlýsing frá Verslunarmannafélagi Akraness og Sveinafé- lagi málmiðnaðarmanna á Akranesi í tilefini af orðum formanns Verkalýðsfélags Akraness, í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær, viljum við koma eftirfar- andi athugasemdum á fram- færi. Meintar skuldir era óröksmdd- ar og ósannaðar þar sem Verka- lýðsfélag Akraness, sem sá um samreksmr félaganna á árunum 1991 til 1998, hélt ekki bókhald og ársreikninga um starfsemi fé- laganna. Þrátt fyrir marg ítrekað- ar beiðnir um röksmðning fyrir meintum skuldum, nú síðast með bréfi lögfræðings félaganna dags. 11. apríl sl. hefur Verkalýðsfélag- ið ekki gert grein fyrir meinmm skuldum. I bréfi lögmannsins segir: Hér með er farið fram á að VFLA sendi undirrimðum eftir- farandi upplýsingar: 1. Sundurliðun á hinum meinm skuldum VA og/eða SAIA við VLFA vegna samrekstrar fé- laganna. 2. Gögn um hvenær til hverrar skuldar var stofnað. 3. Gögn og upplýsingar sem sýni heimild VFLA til að greiða viðkomandi reikning eða kosmað sem VA og /eða SMA hafi átt að greiða hlutdeild í. 4. Upplýsingar og gögn sem sýni hvenær VA og eða SMA hafi verið krafin um endurgreiðslu og með hvaða hætti. Ekkert svar hefur borist. Við þetta bætist að Verkalýðs- félagið tók út úr samrekstrinum allar greiðslur fyrir umsýslu með atvinnuleysisbómm á árunum 1991 til 1998, en sú upphæð nam rúmum 12 milljónum á tímabil- inu. Verkalýðsfélagið hefur held- ur ekki svarað kröfú lögmanns um að gerð verði grein fyrir hvaða starfsmenn störfuðu fyrir Stéttarfélögin- Vinnumiðlun á hverjum tíma, hvaða vinnu þeir innm af henti og hvaða laun þeir fengu. Varðandi skuld þeirra stéttarfélaga sem stóðu að kjara- samningi við Norðurál þar sem starfandi var sameiginlegur trún- aðarmaður þegar verksmiðjan var byggð, skal upplýst að aldrei hef- ur verið rætt um skiptingu kostn- aðar og engir reikningar borist frá Verkalýðsfélaginu sem var framkvæmdaaðili málsins. Akranesi 4. febníar 2003. Júnía Þorkelsdóttir, formaður VA. Heivnann Guðmundsson, fonnaður SMA.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.