Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 1
Tíð innbrot á Akranesi Nokkuð hefur verið um innbrot á Akranesi að undan- förnu. Brotist var inn í Brekkubæjarskóla aðfararnótt 5. janúar, Teigasel 8. janúar og á tannlæknastofu þann 10. Að sögnjóns S. Olasonar yfirlög- regluþjóns á Akranesi er nú unnið að rannsókn á öllum málum og m.a. verið að kanna hvort tengsl geti verið á milli atburðanna. Að sögn Guð- rúnar Bragadóttur leikskóla- stjóra þá tók mikill kuldi á móti starfmönnum þegar mætt var til vinnu. Búið var að spenna upp neyðarútgang- inn og greinilegt að farið hafi verið um leikskólann m.a. í lyíjaskápinn. Ekkert var þó tekið og var umgengni til fyr- irmyndar ef svo má segja um innbrotsþjófa. Aðfarirnar við Brekku- bæjarskóla voru hins vegar öllu verri. Þar mölvaði spellvirkinn rúðu og braut upp hurðir. Sigurður Guðni Sigurðsson framkuamdastjóri Skagans ogformaður Markaðs- ráðs Akraness hefur verið útnefndur Maður ársins á Vesturlandi fyrir árið 2003. Það er Skessuhorn sem stendur að valinu á manni ársins líkt og undan- farin sex ár Arið 1998 var Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi fyrir valinu, 1999 Guðjón Þórðarson knattspymuþjálfari, 2000 Guðmundur Ólafsson nátt- úrufræðingur í Stykkishólmi, 2001 Ólafur Þórðarsm knattspyrnuþjálfari og 2002 Runólfur Agústsson rektor Viðskiptaháskólans á Bifi'öst. Sjá nánar á bls. 5 og viðtal við mann ársin bls 8 og 9. Nú er úti veður vont Nemendur Lýsuhólsskóla við sjálfvirku veðurathugunar- stóðina Veðrið hefur verið með versta móti á sunnanverðu Snæfellsnesi nú síðustu daga en þar á bæ eru menn ýmsu vanir þegar hvass- viðri er annars vegar. Skessu- horn hafði samband vestur nú á þriðjudaginn þegar veðurham- urinn var hvað mestur. Lúther Gíslason veðurathugunarmaður á Bláfeldi sagði veðrið slæmt en þó ekki eins og það verður al- verst, hann hafði frétt um að hestakerra hafi fokið sem vart er í ffásögur færandi. Krakkarnir í Lýsuhólsskóla urðu veðurteppt í skólanum þann daginn og þurftu að bíða ffam eftir degi eftir að vind lægði. Rósa Erlendsdóttir staðgengill skóla- stjóra, sem dvelst nú í veðurblíð- unni í Tælandi, sagði að þráast hefði verið við að sækja börnin í morgun þar sem nú væri sérstakur leiklistarkennari í skólanum. Rósa sagðist að það færi vel um alla í skólanum og engin léti sér leiðast þrátt fyrir að úti væri veður vont. Ekki er langt síðan nemendur settu upp sjálf- virka veðurathugunarstöð við skólann og er hægt að fylgjast með veðrinu á heimasíðu skól- ans. Öveðrið hefur þó sett eitt- hvert strik í veðurmælingar. Grandi kaupir HB Nú hyllir undir lok hildar- leiksins um eignarhaldið á HB. Þegar Skessuhorn var tilbúið til prentunar voru fféttir um að viðræður Granda og HB fjöl- skyldunnar við Eimskipafélagið væru á lokastigi. Stjórnarfor- maður Eimskips, Magnús Gunnarsson, vildi ekki láta neitt uppi um endanlegt verð en gat þess þó að Eimskip gerði sér vonir um talsverðan sölu- hagnað. Heyrst hefur að Eim- skip hafi þrúkkað upp verðinu með hótunum um að selja HB í hendur annarra aðila sem væru tilbúnir að borga 8 milljarða fyrir HB og skeytt lítið um hvort stjórn og rekstur HB væri í höndum heimamanna eins og látið var í veðri vaka í upphafi ferilsins. Þá má því búast við að verðmiðinn á HB hafi hljóðað uppá um eða yfir 8 milljarða. Ekki náðist í þá HB bræður og ekki ljóst hve hlutur fjöl- skyldunnar er stór né hvernig útgerðinni verði stýrt ef kaup- in ganga eftir. Gísli Gíslason bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að bæjarstjórnin væri nokkuð sátt miðað við að- stæður. „Samkvæmt þeim fréttum sem við höfum er verið, að okkar mati, að tryggja að áfram verði rekið öflugt sjávarútvegsfyrirtæki á Akra- nesi.“ Gísli taldi að of snemmt væri að velta vöngum um hvort HB yrði stýrt af heimamönn- um. Það er hins vegar rétt að benda á að HB hefur verið stýrt af heimamönnum með mjög góðum árangri eins og fram kemur annars staðar í blaðinu þrátt fýrir að eignar- hlutur heimamanna hafi verið lítill. Amór til Hollands Arnór Smárason hin ungi og efnilegi leikmaður yngri flokka IA í knattspyrnu er farinn utan til Hollands og mun dvelja þar við æfingar og keppni hjá hol- lenska liðinu Heerenveen. Arnór æfði eina viku með holl- enska liðinu nú í vetur. Holl- endingarnir voru rnjög ánægð- ir með ffammistöðu Arnórs og varð því að samkomulagi að hann færi út nú í janúar og yrði til loka keppnistímabilsins. Arnór er aðeins 15 ára gamall en ekki er heimilt að ganga frá neinum samningum við leik- menn yngri en 16 ára. Smári Guðjónsson, faðir Arnórs, sagði í samtali við Skessuhorn að það kæmi í ljós fyrir 15. apr- íl hvort Heerenveen bjóði honum langtíma samning. „Aðstæður í Hollandi eru mjög góðar og toppþjálfarar. Arnór býr hjá hollenskri fjölskyldu, æfir tvisvar á dag og spilar með unglingaliðinu. Hann er í góðu sambandi við kennara sína hér heima og kemur svo heim nú í vor til að taka sam- ræmdu prófin."

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.