Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 15
D&tsautiui..
MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 2004
15
Stúlkurnar í IA náðu mjög
góðum árangri á unglinga-
meistaramóti TBR um síðustu
helgi, einnig stóðu strákarnir
sig ágætlega en þar var við
ramman reip að draga þar
sem mjög sterkir badminton-
spilarar frá Danmörku voru
gestaspilarar á mótinu og
sópuðu að sér verðlaunum.
Helstu úrslit Skagamanna
og nágranna voru sem hér
segir:
U-13 hnokkar:
Einliðaleikur annað sæti,
Trausti Eiríksson UMSB
Aukaflokkur:
Einliðaleikur annað sæti,
Eiríkur Henn IA
Tvíliðaleikur: Fyrsta sæti,
Egill Guðlaugsson IA/
Trausti Eiríksson UMSB
U-13 tátur:
Einliðaleikur, fyrsta sæti Karitas
Eva Jónsdóttir IA, annað sæti Líf
Lárusd. IA (áður UMSB).
Aukaflokkur:
Einliðal. annað sæti,
Marianne Caprita
Tvíliðaleikur:
Fyrsta sæti, Karitas Eva Jónsdótt-
ir/Líf Lárusdóttir
Hnokkar/tátur:
Fyrsta sæti, Líf Lárusd./
Trausti Eiríksson UMSB
U-15 meyjar:
Einliðal. Þarátti IA alla 4 spilarana
í undanúrslitum og þar léku til úr-
slita Hulda Einarsd. og Una Harð-
ardóttir þar sem Una sigraði í
oddalotu.
Tvíliðaleikur:
Fyrsta sæti hlutu
Hulda Einarsd./
Una Harðard. sæti eft-
ir spennandi úrslitaleik
með oddalotu við Mari-
anne Sigurðard./Aníta
Elídóttir allar úr IA.
U-15 sveinar:
Einliða aukafl. Annað
sæti
Kristján Aðalsteinsson.
Sveinar/meyjar
tvenndarleikur:
Fyrsta sæti Ftobert Þór
Henn/
Hulda Einarsdóttir og
annað sæti systkinin
Ftagnar og Una Harðarbörn.
í U-17 og U-19 flokkum hafði
landsliðsþjálfari látið breyta upp-
stillingum þannig að margir spiluðu
með nýjum meðspilurum í tvíliða-
og tvendarleikjum. Þetta var gert
með fyrirhugaðar landsliðsferðir í
huga og gafst þetta vel.
U-17 einliða, telpur:
Fyrsta sæti Birgitta Rán Ásgeirs-
dóttir, annað sæti Hanna María
Guðbjartsdóttir.
Aukaflokkur telpur einliða:
Fyrsta sæti Lilja Jónsdóttir.
Drengir/telpur tvendarl.:
Fyrsta sæti, Daniel Thomsen/-
Hanna María Guðbjartsd.
U-19 piltar einliða aukafl.:
Annað sæti, Stefán Jónsson IA
Piltar, tvíliðal.: Annað sæti,
Hólmsteinn Þór Valdimarsson/
Stefán Jónsson.
U-19 stúlkur tvíliða:
Fyrsta sæti, Karitas Ósk Óiafsd./
Snjólaug Jóhannsd. TBR.
Sigursælar stúlkur Hulda, Una, Marianne og
Anita allar úr ug IA.
Annað sæti Birgitta Rán/
Hanna María.
Piltar/stúlkur, tvenndarleikur:
Annað sæti, Karitas Ósk/
Hólmsteinn Þór.
Þá skal minnt á Grislingamót
IA um næstu helgi og eru for-
eldrar og aðrir hvattir til að
mæta og fylgjast með spenn-
andi keppni yngstu badmint-
onspilaranna sem koma víða
að til þess að taka þátt í
skemmtilegu móti.
Heilsuhelgi á
Jaðarsbökkum
Snæfellingar
í undanúrslit
Snæfellingar eru aðeins
skrefi frá því að jafna góðan
árangur sinn í bikarkeppninni í
körfuknattleik en þeir eru
komnir í undanúrslit keppn-
innar eftir góðan útisigur gegn
Tindastóli á fimmtudag.
Leikurinn var jafn og spenn-
andi og skiptust liðin á að
hafa forystu. Tindastólsmenn
byrjuðu betur og höfðu
þriggja stiga forystu eftir
fyrsta leikhluta en dæmið
snerist við í hálfleik og þá var
staðan 38 - 41 Snæfelli í vil.
Eftir þriðja leik-
hluta höfðu gest-
irnir tíu stiga for-
ystu en heima-
menn náðu fljótt
að minnka muninn
og var endasprett-
urinn æsispenn-
andi. Stólarnir
fengu gott tæki-
færi til að tryggja sér sigurinn
en klúðruðu því og Snæfell-
ingar því komnir áfram.
Snæfellingar fengu heima-
leik gegn Njarðvíkingum í
undanúrslitunum og fer hann
fram næstkomandi laugar-
dag. Spurningin er síðan sú
hvort úrslitaleikurinn í bikar-
keppninni hafi áhrif á þorra-
blótshald í Stykkishólmi líkt
og gerðist síðastliðinn vetur
en þá var blótinu frestað
vegna bikarkeppni.
Tölurnar - Nr Nafn Snæfell Mín HF STOSTIG
4 Hlynur E Bæringsson 29 6 8 4
5 Andrés M Heiðarsson 14 1 1 2
6 Corey Dickerson 39 1 12 22
8 Lýður Vignisson 22 1 0 17
9 Hafþór 1 Gunnarsson 17 2 1 3
11 Sigurður Á Þorvaidss 30 10 1 10
15 Dondrell Whitmore 34 5 6 28
Þreksalurinn
Jaðarsbökkum
Síðasta hönd lögð á breytingarnar í þreksalnum
Opnum 15. janúar
Þau hjónin Jónatan Pálsson og Margrét Jóns-
dóttir sjá um að mála þreksalinn.
Þreksalurinn á
Jaðarsbökkum
verður opnaður á
ný næsta fimmtu-
dag eftir gagnger-
arendurbætur. Að
því tilefni verður
haldinn sérstakur
heilsudagur nk.
laugardag með
fjölbreyttri dag-
skrá. Þjálfarar
munu kynna það sem þreksal-
urinn hefur uppá að bjóða,
hægt verður að fá staðfestingu
á góðri eða slæmri heilsu með
mælingum hjá Heilsustöðinni.
Einnig gefst kostur á að hlýða á
heilsufyrirlestra og fá kynningu
á fæðubótarefnum. Gjaldskráin
í þreksalinn hækkar um 20%
við þessar breytingar en hægt
verður að kaupa miða á gamla
verðinu út laugardaginn nk..
Aðalsteinn Hjartarson sviðs-
stjóri æskulýðs og forvarnar-
sviðs sagðist í samtali við
Skessuhorn að um gjörbyltingu
á allri aðstöðu væri að ræða. Al-
menningur mun fá meira næði
með þjálfara sem verður til taks
milli kl. 17 - 20 og íþróttahópar
verða ekki í þreksalnum á milli
kl. 17 - 19. „Það hafa verið á-
rekstrar á milli þessara tveggja
hópa en við viljum með þessu
tryggja að sem flestir sjái sér
hag í að koma og nota þessa
frábæru aðstöðu sem hér er“
sagði Aðalsteinn að lokum.
Skallar
enn efstir
Skallagrímur heldur efsta sæt-
inu í 1. deild karla í körfuknatt-
leik eftir leiki síðustu viku en
þá heimsóttu Skallarnir Þór á
Akureyri og sigruðu með sex
stiga mun 86 - 80. Skallarnir
hafa 20 stig eftir 11 umferðiraf
18 en næst koma Fjölnismenn
með 18 stig.
Stig Skallagrfms á Akureyri
skoruðu Steven Howard 41,
Egill Ö Egilsson 14, Davíð As-
grímsson 11, Sigmar P Egils-
son 6, Ari Gunnarsson 9,
Ragnar M Steinsen 3 og Valur
Ingimundarson 2.
Þreksalurinn Jaðarsbökkum opnar aftur
fimmtudaginn 15. janúar kl. 18:00 eftir gagngerar breytingar
í tilefni að því verður síðan haldinn Heilsudagur laugardaginn
17. janúar frá kl. 14:00-18:00 í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum.
Dagskrá
Leiðsögn: Leiðbeinendur verða á svæðinu kynna þreksalinn
og veita ráðgjöf varðandi þjálfun
Mælingar: Heilsugæslan sér um ýmiskonar mælingar frá kl. 14:00-15:00
Breyttur lífsstíll: Fyrirlestur frá kl: 15:00 - 16:30 þar sem Sölvi Fannar Viðarsson
einkaþjálfari og framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar fer yfir helstu
þætti lífsstílsbreytingar þar sem hámarksárangur er hafður að
leiðarljósi, kynnir Heilsudagbókina og svarar spurningum.
Fæðubótarefni: Söluaðilar fæðubótaefna kynna vörur sínar
Krakkaþrautir: Þrautir í íþróttasal fyrir krakka
Tilboð á árs- og 30 miða kortum:
Ný verðskrá tekur gildi frá og með sunnudeginum 18. janúar,
eldri verð gilda fram að þeim tíma.
Eldra verð Nýtt verð
Stakur miði fullorðnir Þrek 250 300
Stakur miði fullorðnir Þrek & Sund 300 350
1 30 miða kort fullorðnir Þrek og Sund 6.000 7.000
| Arskort Þrek og Sund 20.000 25.000
2
Heilbrigð sál í hraustum líkama!
V.