Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 2004 Til minnis Grunnnámskeið í stafgöngu á vegum UMSB á laugardag á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Ennfremur minnum við á aðra viðburði undir liðnum á döfinni á Skessuhornsvefn- um. (2)©© Ertu haffær Skarphéðinn? Ég tel að svo sé en áræð- anlega gætu ein hve r j i r lögfræðing- ar fundið það út að ég sé orðinn elliær. Skarphéðinn Arnason grá- sleppukarl á Akranesi var á mánudag dæmdur til að greiða sekt fyrir að hafa ekki haft haffærniskirteini um borð í bát sínum Kveldúlfi. Skarphéðinn verður áttræður eftir tvo mán- uði og þvi liggur beint við að spyrja hvort hann sé þokka- lega haffær sjálfur. Veðivrherftir Framundir helgi verður að mestu úrkomulaust en um helgina á að snjóa laugardag og sunnudag. Það verður kalt en frekar lygnt. Spiýrniruj viHivnnar Spurning síðustu viku var: „Ertu hlynnt(ur) því að fækka sveitarfélögum á Vesturlandi úr 17 í 3 til 5?“ Já svöruðu 56,1%, Nei sögðu 34,8% og 9,1% kváðust ekki hafa skoð- un á málinu. Ferðu á Þorrablót? Takið afstöðu á skessuhorn.is Vestlenclinjivr vik^nnar Er Arnór Smárason fimmtán ára k n a t t - spyrnumað- ur á Akra- nesi sem er á leiðinni til Heevereen í Hollandi og mun að líkindum gerast atvinnu- maður þar þegar hann nær sextán ára aldri. Fimmti hver „gangamaður“ Ýmislegt annað fróðlegt kemurfram í skýrslunni sem er á netslóðinni: iwww.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/Hvalfjordur_2002/$file/Skýrsla_Hval.pdf Samkvæmt niðurstöðum um- ferðarkönnunar Vegagerðarinn- ar írá því í október 2002 er 41% þeirra sem fara um Hvalþarðar- göngin Vestlendingar og er hlutur Skagamanna 18% af heildarumferð. Vegagerðin kannaði umferð norðan Hval- fjarðarganga fimmtudaginn 24. október og laugardaginn 26. október 2002 frá morgni til miðnættis. Allir bílstjórar eða 5.800 talsins voru stöðvaðir og var svarhlutfall 99,7%. Tilgang- urinn var að afla upplýsinga um hvert leiðin lægi, hvar notendur ættu heima og í hvaða erindum þeir færu um göngin. Könnun- in er hluti stærra verkefhis sem varðar áhrif Hvalfjarðarganga á búsetuþróun á Vesturlandi. Ef skoðaðar eru nokkrar meðaltalstölur má sjá að: Rúmlega 40% búa á höfuð- borgarsvæðinu, rúmlega 40% á Vesturlandi, 10% áNorðurlandi og hinir í öðrum landshlutum. Tilgangur ferðanna er í 50% tilvika einkaerindi og 40% vegna atvinnu. Að 29% fara daglega uin göngin, 26% vikulega, 25% mánaðarlega. Ungmenna- og tómstundabúðir á Laugum I undirbúningi er að hefja rekstur ungmenna- og tóm stundabúða á Laugum í Sœlingsdal. Unnið er að því á vegum Dalabyggðar, í samvinnu við UMFI og fleiri aðila, að hefja reksmr Ungmenna - og tóm- smndabúða á Laugum í Sælings- dal. Ef af verður verða búðirnar reknar yfir vetr- armánuðina fyrir ungmenni á aldrinum 14 - 15 ára, þ.e. nemendur úr 9. b e k k j u m grunnskóla landsins. A- hersla veður lögð á öflugt fræðslustarf í bland við í- þrótta - og tómsmndastarf í anda UMFI. Þá verður nemend- um kennd ábyrg fjármálastjórn- un í sínum einkafjármálum. Einnig hefur verið inni í myndinni að hefja rekstur ffæða og dvalarsemrs fyrir eldri borg- ara að Laugum en sú hugmynd hefúr verið unnin í samvinnu við Landssamtök eldri borgara og félag eldri borgara í Reykjavík. Að sögn Haraldar Líndal, sveit- arstjóra Dalabyggðar, er sú hug- mynd ekki útaf borðinu þrátt fyrir að Ungmennabúðirnar verði að vemleika enda geti þetta tvennt farið saman. Nái báðar þessar hugmyndir fram að ganga er komin góð nýting fýrir mannvirkin á Laug- um allt árið en yfir sumartímann er rekið þar hótel. Gert er ráð fýrir að ungmennabúðirnar ein- ar skapi 10-12 störf yfir vetrar- tímann. Akraneskaupstaður á eklá í sttíði segir Jón Pálmi Pálsson bæjarritari Akraneskaupstaðar I síðasta tölublaði Skessu- horns var grein frá ágreiningi milli Verkalýðsfélags Akraness og Akrarneskaupstaðar um túlkun á greiðslu orlofs- og des- emberuppbóta til lausráðins starfsfólks. Vilhjálmur Birgis- son formaður VFLA sagði m.a. í fréttinni að félagið hyggðist fýlgja rétti sinna skjólstæðinga eftir með tiltækum ráðum. Jón Pálmi Pálsson bæjarritari Akraness segir að Akraneskaup- staður fari eftir þeim lögum og reglum sem í gildi em. „Sam- starfsnefnd Launanefndar sveit- arfélaga og Starfsgreinasam- bandsins era sammála um túlk- un kjarasamnings á milli aðila þess efnis að lausráðnu starfs- fólki, þ.m.t. tímaráðnu starfs- fólki og fólki sem ráðið er til sérhæfðra afmarkaðra verkefna, skuli ekki greiddar eingreiðslur (orlofs og desemberuppbætur). Undir þennan skilning flokkast að mati Akraneskaupstaðar þeir starfsmenn sem em í atvinnu- átaksverkefnum, en þeir em al- mennt ekki ráðnir til starfa í lengri tíma en til 3 - 6 mánuði og í algjömm undantekningar- tilfellum til eins árs.“ Þá segir Jón Pálmi nauðsyn- legt að fram komi að tíma- vinnuráðið starfsfólk sé al- mennt á hærra tímakaupi en fastráðið starfsfólk á mánaðar- launum, þannig að segja megi að umræddar uppbætur reiknist inn í tímavinnulaun og að við- komandi hafi fengið ígildi upp- bótanna nú þegar greiddar, sem fastráðnir fái greiddar með sér- stökum uppbótum. „Akraneskaupstaður hefur ekki annað á sinni stefnuskrá en að kjarasamningar séu virtir, og þá af báðum samningsaðilum, en benda má á að hafi samn- ingsaðilar ekki sömu sýn á samninginn, em til staðar á- kveðnar leikreglur urn úrskurði í slíkum deilum. Ekki hefur verið fjallað með formlegum hætti hjá samstarfsnefndum að- ila, um mismundandi skoðanir um rétt til greiðslu uppbóta til launþega sem starfa í atvinnu- átaksverkefnum. Betra væri að fullreyna þær leiðir sem samn- ingar gera ráð fýrir áður en hlaupið er með yfirlýsingar á síður fréttamiðla, slíkt er eng- um til framdráttar,“ segir Jón Pálmi. Veitan seld Skömmu fýrir áramót var gengið frá sölu á eignum og rekstri Hitaveitu Dala- byggðar ehf til Rafmagns- veitna ríkisins. Rarik hefur því yfirtekið rekstur veit- unnar frá og með 1. desem- ber sl. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni var sala hita- veimnnar mikið hitamál en fýrir ári síðan gekk sveitar- stjórn Dalabyggðar frá sam- komulagi við Orkubú Vest- fjarða um kaup á veitunni. Því var harðlega mótmælt á fjölmennum íbúafundi og í kjölfarið var leitað leiða til að endurfjármagna Hita- veitu Dalabyggðar. Það tókst ekki en í millitíðinni barst tilboð frá Rarik, nokkru hærra en tilboðið frá Orkubúinu og var því tekið og nú er málið loks endanlega frágengið. Búfjár- gjaldi seinkar Landbúnaðarráðuneytið óskaði eftir því við bæjar- stjórn að gjaldskrá fýrir bú- fjáreftirlit á Akranesi yrði tekin til endurskoðunar þar sem gjaldskráin stæðist ekki lög. Akranes er líklega fýrsta sveitarfélagið sem nýt- ir sér þann möguleika að innheimta gjald til að standa undir rekstri búfjáreftirlits- ins. Jón Pálmi Pálsson bæj- arritari sagði að í Ijós hafi komið að ráðuneytið hafði gert mistök við staðfestingu á gjaldskránni og þær leið- beiningar sem gefnar voru á sínum tíma hati ekki verið réttar. „Þetta kemur í sjálfu sér ekki neitt að sök, þar sem við vomm ekki byrjuð á því að innheimta gjaldið sem fýrir- hugað var að innheimta, en segja má að þeir sem hagnast á þessum „mistökum“ ráðu- neytisins séu búfjáreigendur þar sem ekki verður hægt að innheimta með þeim hætti sem fýrirhugað var og bæj- aryfirvöld sitja að nn'num dómi uppi enn eina ferðina með útgjöld án þess að tekj- ur fýlgi með, sein svo oft hefur einkennt samskipti ríkisins við sveitarfélögin.“ Sagði Jón Pálmi í samtali við Skessuhorn. Samkvæmt samþykktri gjaldskrá er ár- gjald fýrir eftirlit með bú- fénaði kr. 5.700 sem kemur til framkvæmdar á þessu ári.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.