Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 14.01.2004, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 14, JANUAR 2004 7^en/únn~*X. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra ogfyrsti þingmðaur Vesturlands Skrifum Jóhanns Arsælssonar um Hvanneyri og RALA svarað Afstaða Jóhanns Arsælssonar þingmanns Samíylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi til land- búnaðarmála hefur stundum verið undarleg, ekki síður en skoðanir hans í sjávarútvegs- málum. Jóhann skrifar grein í blað Samfylkingarinnar á Norðvesturlandi um ,JVIiðstöð rannsókna í landbúnaði“. Fer hann mikinn í tilraunum sínum til þess að snúa út úr orðum mínum í ræðy, sem ég flutti við opnun nýja skrifstofuhússins á Hvanneyri nú nýverið. Þar lýsti ég því hversu vel hafi verið að verki staðið hin síðustu ár, und- ir forystu Magnúsar B. Jónsson- ar, við að byggja upp háskóla og rannsóknasamfélag á Hvann- eyri. Lýsti ég þeirri skoðun minni að færa ætti allar rann- sóknir í landbúnaði að Hvann- eyri. Aðstaða og umhverfi væri þar til staðar til þess að taka við starfseminni sem nú væri á Keldnaholtinu. Höfuðborgar- svæðið væri nánast í túnfætin- um á Hvanneyri og því ætti færsla rannsókna að Hvanneyri að geta verið hagkvæm fyrir borgina. Með flutningi RALA að Hvannejtri mundi losna land til bygginga. Það gæti frelsað okkur ffá því að Vatnsmýrin væri tekin undir byggð og þar með Reykjavíkurflugvöll. Sem samgönguráðherra væri ég því fylgjandi að létta pressunni af byggingarlandi í Vatnsmýrinni. Hvatti ég þingmenn til þess að standa saman um þá stefnu að efla Hvanneyri með uppbygg- ingu rannsókna. Eg er, og hef verið, viss um að þingmenn norðvesturkjördæmis myndu standa saman um það að efla Hvanneyri með því að færa rannsóknir þangað. Það fólst engin ógnun í orðum mínum gagnvart þingmönnum líkt og Jóhann lætur í veðri vaka, hvorki í ræðunni né í viðtali í Skessuhorninu, enda hafði ég ekki rætt þetta mál sérstaklega við þingmenn. En ræða mín var hvatning til allra sem að málum koma um að efla Hvanneyri, sem ég hef raunar milda trú á. En Jóhann tekur sér skáldaleyfi og setur upp kenningu um hvernig lesa megi samsæri úr orðum mínum og telur sig verða að bregðast við og bjarga sínum heiðri og annarra þing- manna með því að boða til flutnings á þingsályktunartil- lögu um málið. Auðvitað er það aðferð Jóhanns til þess að gera ráðherrann í þingmannaliðinu tortryggilegan. Eins og þekkt er þá er það heldur óvenjulegt eða nær fátítt að menn skori á sjálfan sig. Þingsályktanir ganga venjulega út á það að Al- þingi skorar á ríkisstjórnina eða einstaka ráðherra. Tillaga Jó- hanns felur það í sér að „Fela ríkisstjórninni að flytja hluta af starfsemi Rannsóknarstofhunar landbúnaðarins við Keldnaholt til Landbúnaðarháskólans að Hvanneyri samkvæmt sérstakri áætlun sem ríkisstjórnin skal gera þar um“. Það er í fyllsta máta óeðlilegt að bjóða mér, sem ráðherra í ríkisstjórninni, að vera meðflutningsmaður að slíkri tillögu. Þannig geta menn séð hver alvaran er í þessu upp- hlaupi Jóhanns Arsælssonar. Færsla RALA og rannsókna til Hvanneyrar verður ekki unnin með þingsályktunartillögum. Það verk verður að vinna skipu- lega innan landbúnaðarins og á vettvangi landbúnaðrráðuneyt- isins með því að efla Hvanneyri á öllum sviðum og búa í haginn á staðnum. Fyrsta skrefið ætti að vera að fella RALA undir starfsemina á Hvanneyri og þróa starfsemina saman. Þannig mundi það gerast, en ekki með aðferðum Jóhanns Ar- sælssonar. Þess ber þó að geta að þetta mál er ekki nýtt. Sá á- gæti fyrrverandi þingmaður, Davíð Aðalsteinsson ffá Arn- bjargarlæk, flutti um það tillögu á Alþingi á sínum tíma. Við Jó- hann erum því ekki fýrstu á- hugamennirnir um að efla Hvanneyrarstað sem rann- sókna- og háskólasetur. l/ísMthewúd (X hvílík dýrð, er dagsins sól Gleðilegt ár lesendur mínir og þökk þeim sem hafa haft samband við mig vegna endurkomu minnar. Enginn veit nú með vissu hvað árið 2004 kann að bera í skauti sér eða hvað okkur tekst að gera úr þeim tækifærum sem það býður okkur. Dagurinn í gær er okkur glataður og þeir sem voru á undan honum og til lítils að iðrast þess sem þá hefði betur mátt fara þó við getum kannske dregið af því nokkurn lærdóm. Morgundaginn eigum við ekki vísan en líðandi stund eigum við og getum nokkru um ráðið hvað við ger- um við hana. Eg man ekki betur en það hafi verið sá ágæti Björn Runólfsson sem orti: Frá því lífs mínsfjör var vakið ogfór að stríða. Aleiga mín var andartakið sem er að líða. Jökuldælingar segja að vísu að það sé allt í lagi með tímann, það komi meira af honum en við eigum það ekki víst að verða til staðar fýrir þá viðbót. Effirfar- andi kvæði mun upphaflega vera ort á ensku en snúið á íslensku af Jóni Bjarklind: Þú ert sá garpur góði minn, sem gumaðir afþví hvert eitt sinn að afrek þín skyldu öllum kunn einhvern tíma - síðar. Þú vildir okkur sína með sann hinn sigurdjaifa og vitra mann er vissi svo margt og vildi - og skyldi - vinna sín afrek - SIÐAR. Tíminn veitti þér óskaár, ertu ekki þreyttur og fótasár? Hvar eru dáðirnar drengur minn, dugir þér túlinn enn um sinn, eða munum við sjá þœr - SIÐAR. Enn hefur liðið árafjöld, óskirnar breytast í syndagjöld. Egfinn þig ekki á afrekaskrá, útskýrðu fyrir mér staðreynd þá, eða geturðu sannfært mig SÍÐAR. Þú varst ekki óheppinn vinur minn, viljandi svœfðir þú manndóm þinn og sneyddir hjá veraldarvanda. Æfin þín langa var ekkert böl, þú áttir svo margra kosta völ, EN GLEYMDIR AÐ HEFJAST HANDA. Hitt verður svo hver og einn að meta lýrir sig hvaða störf eru betur unnin en ó- unnin og gildir engin algild regla þar um. Fyrir allmörgum árum var sett upp í Reykjavíkurtjörn stytta af hafmeyju effir Nínu Sæmundsson. Stytta þesi var væg- ast sagt mjög umdeild og urðu það enda- lok hennar að hún var sprengd í loft upp þegar liðnar voru 30 mínútur af árinu 1960. Líklega hefur Auður Auðuns verið borgarstjóri á þeim tíma, allavega var kveðið um þetta leyti og grunar mig að höfundur hafi verið Karl Kristjánsson al- þingismaður: Omynd býður eyðing heim, Auður brást með vörnina, enginn hefur upp á þeim sem afmeyjaði tjörnina. Reykvíkingar hafa alltaf verið ffekar viðkvæmir fýrir hönd tjarnarinnar og löngu síðar þegar gosbrunnurinn var settur í tjörnina ortí Ragnar Ingi Aðal- steinsson: Tjörnin kœra, ann þér enginn lengur? Er öllum sama um þig í bráð og lengd? Var virkilega ekkert púður eftir um árið þegar hafmeyjan var sprengd? Hátíðarnar hafa löngum verið notað- ar tíl að staðsetja ýmsa merkisviðburði mannsævinnar og Guðmundur Sigurðs- son sendi vini sínum sem giffi sig á að- fangadagskvöld eftírfarandi heillaskeyti: Ó, hvílík dýrð, er dagsins sól í djúpið leitar heims um ból og blómarós á brúðarkjól oss boðar náttúrunnar jól. Ekki er Ijóst hvað Þuru í Garði þótti aðfinnsluvert við hjónabandið en eitt- hvað mun það hafa verið, allavega lagði hún ekki sjálf í svo örlagaríkt spor en ortí þö: Gaman er að gifta sig gefi saman prestur þó er fyrir fleiri en mig frestur á illu bestur. En Þura orti líka: Ævin verður eins og snuð eða svikin vara þeim sem ekki góður Guð gefur meðhjálpara. Aldraður maður sem verið hafði nokk- uð uppá kvenhöndina á yngri árum var spurður að því í níræðisafinælinu sínu hvort hann væri ekkert farinn að dofna til kvenna og svaraði: „Nei, nei, blessaður góði ég er í fullu fjöri ennþá, rétt eins og um sjötugt", þannig að líklega hefur það ekki verið hann sem orti eftírfarandi: Var mér stundum veröldin viðsjál eins og gengur. nú kvíði ég mest að kvensemin kitli mig ekki lengur. Ekki veit ég hvort sá ágæti maður hef- ur alltaf farið nákvæmlega eftir ströng- ustu ritúölum við meðhöndlun mann- fjölgunardropanna en ekki ætla ég að fella neina dóma í þeim málum. „Sá yðar sem syndlaus er“ osffv. Kristján Guð- jónsson Schram orti um sjálfan sig og bresti sína sem munu raunar ffekar hafa lotið að meðhöndlun áfengis: Það ég tel mér á við auð að eiga brot og galla, œvi þeirra er yndissnauð sem aldrei hrasa og falla. Við lát Kristjáns Schram orti Ingþór Sigurbjömsson og er óvíst að þeir sem töldu sig þó ofar honum í lifanda lífi hafi allir fengið betri eftírmæli: Grínið eins og gróðrarskúr grceddi sár og hressti veika. Gullkorn sem hann grófupp úr grjóti hversdagsörðugleika. Stundum finnst mér örla á þeirri tril- hneigingu trúaðs fólks að hengja sig of mikið í smáatriði en gleyma því sem er þó samkvæmt mínum skilningi höfuð- inntak trúarinnar, að vera einfaldlega góður maður og enda þótt allir vilji bæta heiminn dettur fæstum í hug að byrja á sjálfum sér. Væri líklega nokkru ffiðvæn- legra í austurlöndum nær og kannske víðar ef það væri haft í huga. Hálfdan Björnsson orti: Þaðfinnast enn Farisear, frœðanna totta snuð, trúa á trúarbrögðin taka þau fyrir guð Að endingu skulum við taka til íhug- unar vísu Jóns Bjarnasonar ífá Garðsvík og verða það lokaorðin að sinni: Alvörunni helst ég hef hafnað öðrufremur þó hún reynist ágœt ef til alvörunnar kemur. Með þökkfyrir lesturinn. Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 - dd@binet.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.