Skessuhorn


Skessuhorn - 28.01.2004, Side 2

Skessuhorn - 28.01.2004, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 2004 L>n£S9Utl\/».. Til minnis Við minnum á námskeiðið Hvað ertu tónlist? í Reyk- holtskirkju 31. jan. Kl. 14.00.- Ennfremur á eitt og annað á döfinni á bls. 13 í Skessuhorni og svo á Skessuhornsvefnum. Var þetta ekki bara öruggt? Ég bjóst ekki við að vinna en ég var mjög ánægð. Ég er vön að vera stressuð áður en ég syng á sviði en ég var það ekki núna, þannig jú, jú þetta var bara öruggt. Rakel Pálsdóttir er ungur söng- fugl frá Akranesi sem sigrað hef- ur hverja söngkeppnina á fætur annarri. Fyrst Hátónsbarkann, svo söngkeppni Samfés sem haldin var s.l. laugardag. Veðwrhorfyr Kalt verðu í veðri fram eftir vikunni með hægri norðan átt og bjartviðri. Um helgina má búast við að hann snúi sér til austurs og veður fari hlýnandi og hiti fari eitthvað örlítið yfir frostmark og jafnvel einhverri ofnan komu. SpMrnín^ vih-Mnnar Vestlendingar höfðu greinilega ekki miklar væntingar um ár- angur íslenska landsliðiðsins í handbolta á EM. Það vantraust reyndist á rökum rétt.Aðeins 1,4% spáði íslendingum l.sæti en 50,7% spáði þeim 13-16 sæti. I pessari viku er spurt: Hvaða ráðherra I ríkisstjórn Islands hefur staðið sig best pað sem af er kjörtímabilinu? Takið afstöðu á skessuhorn.is Vesilendiníjtvr viRnnnar Er Bárður Eyþórsson þ j á I f a r i körfuknatt- I e i k s I i ð s S n æfe 11 s . Hans menn lögðu bæði Grindvíkinga og KR-inga í sömu vikunni og eru komnir í 2. sæti úrvalsdeildarinnar. Hvítanesreit úthlutað A Hvítanesi'eitmim eru áfarm um að reisa 3-4 hæða hiis með hlandaðri starfssemi. Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila bæjarstjóra að ganga til við- ræðna við Sveinbjörn Sigurðs- son byggingarverktaka um upp- byggingu á Hvítanesreit. Eins og greint var frá í Skessuhorni fyrir skömmu höfðu tveir aðilar sýnt reitnum áhuga, Sveinbjörn og Skagatorg ehf. sem er með áform um uppbygg- ingu á Skagaverstúni. I samtali við Skessu- horn sagð Sveinbjörn að hugmyndin væri að byggja 3-4 hæða hús um 450 fermetra að grunnfleti með bíla- kjallara, verslunum á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum. „Ef allt gengur upp förum við af stað með vorinu. Okkar bjartsýnustu spár gera ráð íyrir að byrja með uppgröft nú í vor.“ Sveinbjörn segist vera í forsvari fyrir hóp góðra og gegnra Skagamanna en vildi ekki láta uppi hverjir það væru. Samkvæmt heimildum Skessu- horns er um sama hóp að ræða og stóð að byggingu á Garða- braut 2. Bygging Fjölbrautaskóla Snæfellinga Iðnaðarmenn á Snæfellsnesi óánægðir Iðnaðarmenn á Snæfellsnesi komu saman á veitingastaðn- um Krákunni í Grundarfirði síðastliðinn miðvikudag þar sem samþykkt voru mótmæli vegna verksamnings um bygg- ingu skólahúss fyrir Fjöl- brautaskóla Snæfellinga. Samið hefur verið við Loftorku í Borgarnesi um byggingu hússins og hafa iðn- aðarmenn á Snæfellsnesi mót- mælt því að verkið skuli ekki hafa verið boðið út. Þá kröfð- ust þeir svara við því hvers- vegna ekki hefði verið rætt við iðnaðarmenn á Snæfellsnesi fýrst. A síðasta fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðar bar Emil Sig- urðsson upp tillögu þess efnis að bæjarstjórn tæki undir með iðnaðarmönnum á Snæfells- nesi og beitti sér fyrir því að hætt yrði við samning við Loftorku og gengið til samn- inga við iðnaðarmenn á Snæ- fellsnesi á sömu forsendu. Til- lagan var felld með fimm at- kvæðum gegn 2.1 framhaldi af því var samþykkt tillaga Sig- ríðar Finsen þess efnis að bæj- arstjórn teldi að stjórn Jera- túns beri að efna þann samn- ing sem gerður hafi verið við ríkið um að sveitarfélögin skuldbindi sig til að útvega húsnæði fyrir skólann fýrir skólaárið 2004 - 2005. Leiðrétting Ranglega var greint frá í síðasta Skessuhorni að gert hafi verið samkomulag um að Borgarbyggð færi með barnaverndarmál hrepp- anna sunnan heiðar. Hið rétta er að hin nýja félags- málanefnd hreppanna mun sjá um öll félagsmál þ.m.t. barnaverndarmál. Til að uppfylla lagaskilyrði sem kveða á um að minnsta kosti 1500 manns skulu vera á bak við hverja barnavernd- arnefnd hafa hrepparnir sótt um að gerast aðilar að barnaverndarnefnd Borgar- byggðar. Þar til að frá verð- ur gengið mun Akranes- kaupstaður sjá um barna- verndarmálin líkt og gert var áður en samningur rann út um síðustu áramót. Geca flytur að Höfðaseli Tarfur ehf, eigandi húseign- arinnar að Höfðaseli 3 á Akra- nesi (sem áður hýsti Vélsmiðju Akraness), hefur nú gert leigu- samning við húseiningaverk- smiðjuna Geca hf. Samningur- inn er til 5 ára og er áætlað að stækka húsið um rúman helm- ing, úr 540 fermetrum í 1090 fermetra. I stækkuninni verður m.a. aðstaða fyrir nýja fræsi- og sögunarlínu fýrirtækisins. Fyrirtækið Geca var stofnað fyrir nokkrum árum til að þróa nýja framleiðsluaðferð við gerð sjálfberandi húseininga. Hráefni til framleiðslunnar er sement, trjákurl og koltvísýr- ingur, en efnið er pressað sam- an undir miklum þrýstingi. Þróunarstarf Geca hefur geng- ið vel og er nú byrjað að reisa og selja hús úr þessum eining- um á nokkrum stöðum um landið. Undanfarin ár hefur fyrirtækið haft aðstöðu í hluta af skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi en sökum vaxandi verkefna er brýn þörf á auknu athafnarými m.a. til að hýsa nýjan og endurbættan tækjakost. Verkefnastaða fýrir- tækisins er góð, eða sem nem- ur 8 mánaða framleiðslu. Þess má geta að atvinnu- málanefnd Akraneskaupstaðar tilnefndi á liðnu ári Geca sem Sprotafýrirtæki ársins í bæjar- félaginu. Vegna óvissu um framtíðarstaðsetningu fyrir- tækisins sagði fyrirtækið upp starfsmönnum þess á Akranesi sl. haust. Nú er því ljóst að fyr- irtækið verður áfram á Akra- nesi og starfsmönnum mun fjölga. Samþykkt að kanna kosti sam- einingar Fulltrúar Skilmanna- hrepps, Innri-Akranes- hrepps, Hvalfjarðarstrandar- hrepps og Leirár- og Mela- hrepps hittust á fundi um miðja síðustu viku þar sem athugað var hvort ekki væri grundvöllur til að kanna kosti sameiningar sveitarfélaganna fjögurra. Niðurstaðan var sú að farið skyldi í viðræður skv. 90 gr. sveitarstjórnarlaga sem varða sameiningarmál og sameiningarviðræður sveitar- félaga. Félagsmálaráðuneyt- ið mun því veita sveitarfélög- unum leiðsögn og vera þeim til halds og trausts. Hallffeð- ur Vilhjálmsson oddviti Hvalfjarðarstrandarhrepps var rnjög ánægður tneð þessa þróun mála. „Þetta er það lengsta að mínum dómi sem sveitarfélögin hér hafa komist til þess að sýna vilja til sameiningar. Við sjáum auð- vitað öll í hvað steínir, það er vitað að skipan sveitarfélaga verður ekki óbreytt í nánustu ffamtíð," sagði Hallfreður. Fulltrúar félagsmálaráðu- neytisins inunu funda með sveitarfélögunum um næstu skref um miðjan febrúar og skýrist þá fljótlega hvert þessar viðræður leiða. Rættum Skagahof Jóhanna Harðardóttir, f.h. áhugahóps um byggingu hofs í fornum stíl á Akranesi, hefur óskað eftir fundi með bæjarstjórn Akraness til að kynna hugmyndir hópsins. Bæjarráð Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum að boða Jóhönnu til viðræðna. Leita að fé- lagsmála- þjónustu Reykhólasveit og Saurbæj- arhreppur hafa sent Borgar- byggð erindi í þriðja sinn og óskað eftir því að fjölskyldu- svið Borgarbyggðar veiti sveitarfélögunuin þjónustu vegna barnarverndarmála. Bæjarstjóra var falið að ræða við fulltrúa hreppanna tveggja en ffam til þessa hafa ekki náðs samningar um um- rædda þjónustu.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.