Skessuhorn - 28.01.2004, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 28. TANUAR 2004
^nC.S9Utlu>
WWW.SKESSUHORN.TS
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi
SkRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Sími:
Fox:
437 1677
437 1678
Skóflan vmnur mál
gegn ríkinu
Útgefandi: Skessuhorn ehf
Ritstjóri og úbm: Gisli Einarsson
Blaðamaður: Mrafnkell Proppé
Auglýsingar: íris Arthúrsdóttir
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir
Prentun: Prentmet ehf.
Fromkvæmdastjóri: Magnús Magnússon
437 1677 skessuhorn@skessuhorn.is
899 4098 ritstjori@skessuhorn.is
892 2698 hrafnkell@skessuhorn.is
696 7139 iris@skessuhorn.is
gudrun@skessuhorn.is
894 8998 mognus@skessuhorn.is
Héraðsdómur Vesturlands
hefur sýknað verktakafyrirtæk-
ið Skófluna á Akranesi af sam-
tals fimm kröfum sýslumanns
sem risu vegna þess að fyrirtæk-
ið neitaði að greiða Vegagerð-
inni fyrir rekstrarleyfi til flutn-
inga á landi.
Að sögn Kristrúnar Heimis-
dóttur lögfræðings Samtaka
Iðnaðarins er um að ræða tíma-
mótaniðurstöðu því að Samtök
iðnaðarins hafa mótmælt gjald-
tökunni og eftirliti Vegagerðar-
innar ffá því það komst á árið
2002 og fjölmörg aðildarfyrir-
tæki Samtakanna hafa neitað í
lengstu lög að greiða gjaldið.
Ný lög nr. 73/2001 um fólks-
flutninga, vöruflutninga og
efnisflutninga á landi tóku gildi
þann 1. september 2001. Skv.
þeim þarf leyfi Vegagerðarinn-
ar til að stunda hvers konar
vöru- og efnisflutninga á landi í
atvinnuskyni, sbr. reglugerð nr.
983/2001. Með lögunum var
innleitt nýtt eftirlit og íþyngj-
andi eftirlitskerfi sem í fram-
kvæmd Vegagerðar hefur verið
Loðnuvinnslan í HB er nú í
fullum gangi. Um síðustu helgi
var landað rúmlega 4600 tonn-
um af loðnu. Skip Granda,
Faxi RE 9 landaði fullfermi í
fyrsta sinn á þessari vertíð.
Víkingur og Ingunn hafa einnig
komið með afla að landi
.Vinnslan fer vel af stað og er
brætt á milli 1000 og 1100 tonn
á sólahring. Ljóst er að Faxi
RE mun landa reglulega á
Akranesi á þessari vertíð. Haft
er eftir Arna Vilhjálmssyni
stjórnarformanni Granda í
Fiskifréttum að ljóst sé að
Þegar Sementsverksmiðjan
var seld var gengið frá sam-
komulagi um að Akraneskaup-
staður fengi hluta af skelja-
sandsþrónni til yfirráða. Nú
hefur verið ákveðið að gera ráð
fyrir íbúðabyggð á horni Faxa-
látið bitna á iðnfyrirtækjum og
verktakafyrirtækjum en ekki
einungis eiginlegum flutninga-
fyrirtækjum.
„Þrátt fyrir mikil og ítrekuð
mótmæli Samtaka iðnaðarins
hafa stofnanir framkvæmda-
valdsins haldið upp ströngu eft-
irliti og refsað fyrir brot með
sektargreiðslum. Ljóst er að
niðurstaða Héraðsdóms Vest-
urlands í máli ákæruvaldsins
gegn Guðmundi Guðjónssyni
leysir iðn- og verktakafyrirtæki
undan þessu ólögmæta eftirliti.
I dómsniðurstöðunni felst að
fyrirtæki í mjólkuriðnaði, sorp-
hirðu eða jarðvinnuverktöku,
sem starfsemi sinnar vegna
flytja hráefni, úrgang eða ann-
að, verða ekki framar krafin um
að leggja fram á skrifstofu
Vegagerðarinnar ársreikninga
sína til tveggja ára, rekstrará-
ætlanir, sakavottorð og vottorð
um réttar efndir opinberra
gjalda, enda hefur það verið
samdóma álit atvinnurekenda á
þessum sviðum að gjaldtakan
og eftirlitið væri hrein firra,“
segir Kristrún.
Akranes verði forgangsstaður
fyrir vinnslu á bræðslufiski.
Verksmiðjan á Skaganum sé
mun fullkomnari en sú í Þor-
lákshöfn og afkastameiri en
Faxamjöl í Reykjavík. Gert er
ráð fyrir að þegar mest á geng-
ur verði brætt bæði í Reykjavík
og Akranesi. Arni segir enn-
fremur að þegar fram líði
stundir verði sérhæfing í fisk-
vinnslunni á þá leið að áhersla á
karfa verði í Reykjavík en þorsk
og ýsu á Akranesi. Ekki er þó
farið að ræða þessa hluti af
neinni alvöru.
brautar og Jaðarsbrautar og
þeim hluta sandþróarinnar sem
skilað hefur verið til bæjarins.
Skipulags- og umhverfisnefnd
hefur verið falið að hefja
deiliskipulagsvinnu á umræddu
horni fyrir íbúðabyggð.
Skeljung-
ur hættir
við
Viðræður standa yfir milli
Skeljungs hf. og Borgar-
byggðar um að sveitarfélag-
ið leysi til sín lóðarstækkun
sem fyrirtækið hafði fengið
úthlutað við Brúartorg og
látið fylla upp í. Skeljungur
heíúr hætt við fyrirætlanir
um byggingu nýs húsnæðis
við Brúartorg.
Breyt-
ingar
Samkvæmt heimildum
Skessuhorns verða tillögur
um breytingu á Tækni- og
umhverfissviði Akranes-
kaupstaðar ræddar á bæjar-
ráðsfundi n.k. fimmtudag.
Eins og greint hefur verið
frá vann IBM úttekt á svið-
inu og gerði tillögur að
breytingum í nóvember á
síðasta ári. Annir vegna af-
greiðslu fjárhagsáætlunar
komu í veg fyrir að málið
væri tekið upp fyrir áramót,
sala á hlutafé í Brimi setti
svo strik í reikninginn. Nú
hins vegar lítur út fyrir að
sú óvissa sein starfsfólk
Tækni- og umhverfissviðs
hefur búið við fari senn að
ljúka.
Knörr
flytur
Bátasmiðjan Knörr á
Akranesi keypti nýverið
eignir úr þrotabúi Báta-
smiðju Guðgeirs og mun
flytja starfsemi sína á næstu
dögum í nýlegt húsnæði að
Smiðjuvöllum, sem áður
hýsti starfsemi Bátasmiðju
Guðgeirs. Seljandi er
Landsbanki Islands. Að
sögn Gunnars Leifs Stef-
ánssonar eins af eigendum
Knarrar eru góðar horfur í
rekstri fyrirtækisins en svo
virðist sem markaðurinn sé
heldur að taka við sér nú
eftir nokkra lægð undan-
farna mánuði. „Við erum
nýlega búnir að ganga frá
einum sölusamningi og eig-
um von á að fleiri bátar selj-
ist á næstu vikum“, segir
Gunnar. Nánar verður sagt
frá flutningi Knarrar og
horfum í bátaframleiðslu á
Akranesi hér í blaðinu í
næstu viku.
Skessuhorn kemur út olla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á
Sudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass tímanlega.
ifrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum.
Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur/50 sé greitt með
greiðslukorti. Verð í lausasölu er 250 kr.
437 1677
Drullu-
sokks-
Ein af mínum merkustu uppgötvunum í gegnum tíðina held
ég megi segja að sé kenningin um gildi þess að vera drullusokk-
ur. Eg uppgötvaði þessa kenningu ungur að árum og þróaði
hana í samvinnu við bróður minn og í sameiningu hagnýttum
við okkur hana í uppvextinum.
Kenningin byggir á þeirri einföldu staðreynd að enginn ger-
ir neinar kröfur til þeirra sem eru yfirlýstir drullusokkar. Ef
drullusokkurinn vinnur einhver afrek, sama hversu lítilfjörleg
þau eru, kemur það alltaf á óvart og vekur mun meiri athygli
heldur en sambærileg stórvirki þeirra sem eru annálaðir at-
orkumenn. Til þeirra eru ávallt gerðar þær kröfur að þeir
standi sig eins og þeir hafa alltaf gert. Með því að dreifa afrek-
unum með skipulögðum hætti að slá í gegn með jöfnu millibili
getur líf drullusokksins orðið samfelld sigurganga.
Þetta er vissulega einföld kenning en gengur fullkomlega
upp. Við bræðurnir sannreyndum það á systrum okkar sem
þóttu til mikillar fyrirmyndar ekki síst hvað varðaði fram-
kvæmdir innanhúss og almenna hegðun. Svo mjög að allir voru
fyrir löngu hættir að veita því nokkra athygli. Það vakti hins-
vegar verðuga athygli þegar við bræðurnir tókum til hendi eða
höguðum okkur skikkanlega og með góðu skipulagi tókst okk-
ur iðulega að skyggja nokkuð vel á okkar dyggðum prýddu
systur.
Kúnstin er nefnilega sú að fara ekki framúr sér í dugnaðin-
um til að afrekin verði ekki of tíð. Þá fara væntingarnar að
hlaðast upp alveg um leið og þá er leikfléttan ónýt.
Það undrar mig svo ekki sé meira sagt að Handknattleiks-
samband Islands skuli ekki fyrir löngu hafa kynnt sér og hag-
nýtt drullusokkskenninguna. Ef það hefði verið gert þyrftu ís-
lensku handboltakapparnir ekki að laumast niður landganginn
í Leifsstöð úthrópaðir sem klúðrarar af verstu sport fyrir það
eitt að hafa tapað þremur vesælum kappleikjum í íþrótt sem
fljótt á litið virðist vera hönnuð með tilliti til þeirra sem hafa
gaman af að láta aðra karlmenn káfa á sér. Þannig lítur þetta
allavega út í mínu sjónvarpi.
Ef íslensku handboltamennirnir stæðu sig í því að markaðs-
setja sig sem drullusokka fyrst og fremst þá yrði engin fyrir
vonbrigðum og því meiri hetjur væru þeir ef þeir slysuðust til
að vinna leik.
Væri ég spurður ráða væru hlutirnir almennt ekki svona erf-
iðir.
Gísli Einarsson, drullusokkur
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Byrjað að bræða
Faxi RE 9 landaSi fullfermi 1450 tonnum. d Akranesi s.l. fóstudag.
Ibúðabyggð í þrónni