Skessuhorn - 28.01.2004, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 2004
5
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Rannsóknarstofhun landbúnaðarins í eina sæng
Sameina á yfirstjóm og styrkja starfsemina
Landbúnaðarháskóli Islands öflug miðstöð landnýtingar í Borgarfirði
Landbúnaðarráðherra hefur
skipað verkefnisstjórn með það
hlutverk að gera tillögur um
hvernig best verði staðið að
stofnun sameiginlegrar yfir-
stjórnar Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri og Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins. I
neíndinni sitja Magnús Stefáns-
son formaður fjárlaganefndar,
Drífa Hjartardóttir formaður
landbúnaðarnefndar, Eysteinn
Jónsson frá landbúnaðarráðu-
neytinu, Jón Magnússon frá fjár-
málaráðuneytinu og Sigurgeir
Þorgeirsson frá Bændasamtök-
um Islands.
Markmiðið er að með sameig-
inlegri stjórn og aukinni sam-
þættingu starfsemi RALA og
LBH á að styrkja starfsemina svo
hún megi þjóna hlutverki sínu
enn betur.
Nefndin var stödd ásamt land-
búnaðarráðherra á Hvanneyri
s.l. fimmtudag og fundaði þar
með starfsmönnum skólans þar
sem farið var yfir þau markmið
sem stefna beri að við sarnein-
ingu stofnananna. Nefndinni er
ætlað að skila tillögum um
hvernig staðið verði að samein-
ingu þessara tveggja fagstofnana
í lok febrúar n.k. og málið unnið
áfram á vorþingi.
Landbúnaðarháskóli
Islands
Guðni Agústsson sagði í sam-
tali við Skessuhorn að ekki væri
gott að dreifa þjónustu landbún-
aðarins á marga staði og betra
væri fyrir rannsóknarstofnun að
starfa við lifandi háskóla. „Allt
hefur þetta eitt markmið; að
þjóna landbúnað-
inum sem best,
það er spurt eftir
landi til nýrra nota
og tækifærin fjöl-
mörg fyrir fólkið
sem vill byggja
landið“. Guðni
segir að ætlunin sé
að gera hlut LBH
sem allra stærstan
svo skólinn geti
haft á sínum snær-
um færasta fólkið
á öllum sviðum.
LBH hefur þá
tækifæri til að þró-
ast sem heildstæð-
ur raungreinahá-
skóli. Guðni segist
vilja að í framtíðinni verði talað
um Landbúnaðarháskóla Is-
lands, enda verði urn mikla og
öfluga stofnun að ræða sem
skjóti sterkum stoðum undir alla
landnýtingu framtíðar.
Styrking, efling
og tækifæri
Magnús B. Jónsson rektor
Landbúnaðarháskólans segir
skólann vera tilbúinn til að
takast á við þetta verkefiti. Hann
segir sameiginlega stefnumörk-
un hafa verið unna af LBH og
RALA árið 2002. Unnið hafi
verið markvisst eftir þeirri
stefnumörkun, starfsfólk verið
ráðið sameiginlega, vinnuað-
staða verið nýtt af báðum stofn-
unum svo eitthvað sé nefnt. Allt
þetta hefur orðið til þess að
starfsfólkið er mjög jákvætt í
umræðunni um aukið samstarf.
„Starfsfólk beggja stofnana er
orðið rnjög meðvitað um að með
auknu samstarfi má sækja aukinn
styrk og að þetta hafi eflaust ein-
faldað Guðna þessa ákvörðun.“
Magnús segir einnig að hin nýja
skrifstofubygging sem sveitarfé-
lagið byggði hafi einnig hjálpað
til við að skapa gott umhverfi þar
sem stofnanir landbúnaðarins
geti sótt styrk í aukna samvinnu.
Að sögn Magnúsar skiptir það
öllu máli hvernig nefndin inuni
afgreiða málið. Mikilvægt sé að
hún velji rétta leið og að mark-
miðið sé ekki spamaður og nið-
urskurður heldur styrking, efling
og tækifæri líkt og Landbúnað-
arráðherra hefur sagt. „Ef vel
tekst til mun þetta tvímælalaust
auka ffamboð á háskólanámi á
Hvanneyri, bæði verður um
aukna sérhæfingu að ræða sem
og fleiri námsbrautir. Starfsfólk
mun einnig fá tækifæri til að
sinna fjölhæfari verkefnum eða
sérhæfðari rannsóknum þannig
að styrkur hvers og eins mun
njóta sín fyrir heildina.“
Borgaríjörður mið-
stöð landnýtingar
Það fara spennandi tímar í
hönd fyrir Landbúnaðarháskól-
ann á Hvanneyri og Vestlend-
inga alla. Aukin uppbygging á
Hvanneyri mun hafa ýmis af-
leidd áhrif og bjóða upp á ný
tækifæri í atvinnusköpun sem
byggir á rannsóknum og þróun-
arvinnu. Það hefur komið fram
að ekki er ætlunin að flytja
RALA með manni og mús í
Borgarfjörðinn en þó er ástæða
til að reikna með því að sameig-
inleg stofnun muni gera Borgar-
fjörð að miðstöð landbúnaðar og
landnýtingar á Islandi þegar
ffani Iíða stundir.
LandbúnaðarráSherra var ásamt verkefnisstjóminni á Hvanneyri í síóustu viku aö funda með
starfsm'ónnum skólans. Það gafst þó tími til að gæða sér á krásum Sesseljit Bjamadóttur í mötu-
neytinu á Hvanneyri.
Nýstandsettar íbúðir til leigu
að Höfðabraut 14-16
Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni á Skaganum að
er að endurbyggja fjölbýlishúsið að Höfðabraut, bæði að innan og
Nú eru lausar ellefu glæsilegar íbúðir með frábæru útsýni.
Allar upplýsingar veitir Eignaumsjón f síma 585 4800.