Skessuhorn - 28.01.2004, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 2004
Mikil vinna,
en öll þess virði
Ungir badmintonspilarar frá Akra-
nesi hafa staðið í ströngu að undan-
förnu. Skagamenn áttu fjóra spilara
sem fóru með U-17 og U-19 lands-
liðinu til Noregs um miðjan mánuð-
inn. Tveir þeirra, Karitas Osk Olafs-
dóttir og Hólmsteinn Þór Stefánsson
fóru svo með U-19 landsliðinu til
Austurríkis. Karitas Osk er gestur
skráargatsins að þessu sinni. Hún
lenti í 3. - 4. sæti í kjöri íþróttamanns
Akranes, landaði m.a. þremur
Islandsmeistaratitlum á síðasta ári.
Nafn: Karitas Osk Olafsdóttir.
Fæðingadagur og ár: 8. apríl 1987.
Staif: Nemandi á náttúrufræðibraut í FVA.
Fjölskyldnhagir: Bý heima hjá mömmu, pabba og Snerru (hund-
inum mínum).
Hvernig bíl áttu: Eg á engan bíl.
Uppáhalds matur: Londonlamb, brúnaðar kartóflur og rósakál.
Uppáhalds drykkur: Sprite.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Nágrannar ogjudging Amy.
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Otnar Ragnarsson.
Uppáhalds leikari innlendur: Helga Braga.
Uppáhalds leikari erlendur: Jennifer Aniston.
Besta bíómyndin: Leagally blond.
Uppáhalds íþróttamaður: Zidane.
Uppáhalds íþróttafélag: ÍA.
Uppáhalds stjórnmálamaður: Ég er mi voða lítið farin að spá í
stjórnmálin.
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Það er hún litla frænka
mín sem heitir Harpa Kristný, þegar hún er í sturtu syngur hún
alltaf svo mikið.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Le Ann Rimmes.
Uppáhalds rithöfimdur: Dave Pelzer.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórninni: Spurðu mig eftir 10 ár.
Hvað meturðu mest ífari annarra: Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra: Þegar fólk
hlustar ekki.
Hver er þinn helsti kostur: Vinnusóm.
Hver er þinn helsti ókostur: Mérfinnst stundum of gott að liggja
í leti.
Hvernig var í Austurríki: Það var mjög gaman, krakkarnir sem
voru með íferðinni voru mjög skemmtileg og þegar við vorum ekki
í íþróttahúsinu að keppa þá vorum við uppá hóteli að spila þannig
að við höfðimi alltaf eitthvað að gera.
Er alltafjafn gaman í badminton: Já mér finnst það, þetta er
náttúrulega mjög mikil vinna en hún er öll þess virði.
Hvað er svo framundan: Núna um helgma er ég aðfara að keppa
í deildarkeppni í Reykjavík svo í byrjun mars verður lslandsmót
unglinga og í byrjun apríl Islandsmót fullorðinna þar sem ég keppi
í A flokki og inn á ??iilli býst ég við að verði einhver minni mót.
Eitthvað að lokum: Lifðit líftnu í dag því þú veist ekkert hvað
framtíðin ber í skauti sér.
Upplýsingar um
fíknieftii
Hafir þú upplýsingar um meðferð
fíkniefna, þá vinsamlega komdu
ábendingu á framfæri í talhólf
871 1166
Lögreglan í Borgamesi
aivtíðLm/u.
Eignir á Akranesi hækka hlut-
fállslega meira en í Reykjavík
Einbýlishúsin rísa hvert aföðru í Flatahverfi á Akranesi.
Fasteignir á Akranesi hafa
hækkað nokkuð á undanförn-
um árum. Arið 2001 var með-
alfermetraverð einbýlishúsa á
Akranesi 68% af því sem var í
Reykjavík. I lok árs 2003 var
það hins vegar komið í tæp
74% af Reykjavíkurverði sam-
kvæmt upplýsingum frá Fast-
eignamati ríkisins. Meðalverð
á hvern fermetra hefur hækkað
nokkuð meira á einbýlishúsum
en fjölbýlishúsum eða 17% á
móti 14% á síðasta ári.
Soffía Magnúsdóttir fast-
eignasali á Fasteignamiðlun
Vesturlands staðfesti í samtali
við Skessuhorn að einbýlishús
hefðu hækkað umfram önnur í
verði. Að sögn Soffíu kom
rnikill kippur í fasteignasöluna
þegar viðbótarlánin komu til
sögunnar. Frá þeim tíma hafi
eftirspurn eftir einbýlishúsum
aukist og verðið því hækkað að
sama skapi. „Það hefur verið
mjög mikið um fasteignavið-
skipti á síðustu árurn. Meðal-
aldur kaupenda hefur lækkað
því nú hefur ungt fólk mögu-
leika á að kaupa sér húsnæði á
frjálsum markaði með 90%
lánum. Þó að það hafi ekki
fjölgað hér í bænum á síðasta
ári þá búa orðið færri í hverju
húsi en áður var. Fólk hefur
efni og getu til að vera áfram í
sínum húsum eftir að börnin
eru flutt að heiman. Við erum
þó að sjá í auknum mæli að
ungt fólk ættað frá Akranesi er
að flytja aftur heim eftir að hafa
lokið námi og stofnað til fjöl-
skyldu. Þau sækja í þetta góða
umhverfi sem er hér fyrir börn-
in.“
Soffía sagðist vera bjartsýn
með fasteignasölu á nýbyrjuðu
ári og að salan hafi rokið upp
nú í janúar eftir rólegan desem-
bermánuð. Hún telur að Akur-
nesingar þurfi ekki að hafa
áhyggjur að verðlækkun líkt og
er í umræðunni í Reykjavík.
Vífill Karlsson viðskipta-
fræðingur hjá Samtölum sveit-
arfélaga á Vesturlandi er að
vinna úttekt á áhrifum Hval-
fjarðarganga á búsetuþróun og
búsetuskilyrði á Vesturlandi. I
þerri úttekt kemur m.a. fram
þróun fasteignaverðs á Vestur-
landi í samanburði við höfuð-
borgarsvæðið. Niðurstöður út-
tektarinnar munu liggja fyrir
síðar í vetur og verður þá
greint frá þeim í Skessuhorni.
----------------p---
Söngvakeppni Oðals
Um 70 þátttakendur tóku
þátt í um þrjátíu söng- og
dansatriðum á söngvakeppni
5. - 7. bekkjar sem fram fór í
félagsmiðstöðinni Oðali sl.
fimmtudag. Um 150 manns
mættu til að horfa á keppnina
þar sem aðalatriðið var jú bara
að taka þátt og vera með. Það
var Karítas Oðinsdóttir
Varmalandsskóla sem var
hlutskörpust að þessu sinni
hjá dómnefndinni. Margir
aðrir hlutu viðurkenningar
fyrir framgöngu sína.