Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2004, Page 4

Skessuhorn - 31.03.2004, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 31.MARS 2004 jtttaauno... WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Simi: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Ritstjóri og ábm: Blaðamaður: Auglýsingar: Umbrot: Framkvæmdastjóri: Prentun: Skessuhorn ehf 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Gísli Einarsson 899 4098 Hrafnkell Proppé 892 2698 íris Arthúrsdóttir 696 7139 Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Magnús Magnússon 894 8998 Prentmet ehf. ritstjori@skessuhorn.is hrafnkell@skessuhorn.is iris@skessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is magnus@skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á L ' "gum. Auglýsendum er bent a ab pqnta auglýsingaplass tímanlega. Skiíafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð i lausasölu er 250 kr. 433 5500 Æviminn- ingar eplis Eg hef alla tíð verið mikill áhugamaður um epli enda var slíkt hnossgæti mikið fágæti þegar ég var að alast upp í afdölum Borg- arfjarðar. Var fæða þessi helst á boðstólum á stórhátíðum og voru aldin þessi þá höndluð í stórum kössum í Kaupfélaginu. Þar sem epli voru munaðarvara þá man ég til þess að hafa hneykslast mjög á Vilhjálmi litla tell sem gerði sér það að leik að skjóta epli á færi með boga sínum og gjörspilla þannig þessum á- gætu ávöxtum. Lítið vissi ég um ættir eða uppruna þessara epla sem ég át í minni heimasveit, gjarnan við kertaljós, annað en að ég taldi víst að þau hefðu verið plokkuð af tré einhversstaðar í öðru landi. Eg man reyndar að á kössunum stóð gjarnan Washington sem gæti bent til þess ávextimir hafi verið uppmnnir í Bandaríkjahreppi. Það olli mér heldur ekki miklum höfuðverk þó ekki fylgdu ættbókarvott- orð með eplakössunum. Annað hvort vom þau skernmd eða óskemmd, æt eða óæt og annað skipti hreinlega ekki máli. Mér varð hugsað tíl þess þegar ég sá auglýsingu í ágætu dagblaði nú í vikunni þar sem verslun nokkur bauð til sölu epli sem merkt vom með einhverskonar kennitölu. Með því að fletta kennitölunni upp á heimasíðu verslunarinnar átti að vera hægt að fá allar upp- lýsingar um viðkomandi epli alveg frá því eplatréð sem það hýsti var bara lítið fræ. Þar átti einnig að vera hægt að lesa ævisögu epl- isins í smáatriðum, meðal annars ýtarlega ffásögn af því þegar það var orðið fullþroska og tilbúið að hleypa heimdraganum. Einnig var boðið upp á upplýsingar um týnandann, þ.e.a.s., þann sem týndi eplið af trénu, með eigin hendi og þá að sjálfsögðu einnig hvort það var sú vinstri eða hægri. Loks var ferðasaga eplisins til- tæk frá því það yfirgaf tréð og þar til það lenti í lúkunum á neyt- andanum. Allar þessar upplýsingar áttu að tryggja að viðkomandi epli væri margfalt hollari fæða en önnur epli sem ekki geta státað af ættar- tölu. Ekki dreg ég það svo sem í efa og sem áhugamaður um epli, svo sem fyrr segir, þá fannst mér það geta verið forvitnilegt að ffæðast um einstaklinga af þessari tegund fyrst þess var kosmr. Eg er hinsvegar þeirrar gerðar að ég ét þegar ég er svangur og þá þol- ir sú aðgerð helst enga bið. Eg er því ekki viss um að það henti mér að eyða jafnvel einhverjum klukkutímum í að lesa æviminningar hvers einasta eplis sem ég japla á. Því hvers virði er sú vitneskja ef fórnarkostnaðurinn er hungurdauði? Auk þess er ég þeirrar skoð- unar að það borgi sig ekki að stofna til náinna kynna við það sem maður ætlar að éta. Verði hinum samt að góðu. Gísli Einarsson, eplafræðingur. Samstarf á milli VeiðimálastoÉaunar og LBH Arsfundur Veiðimálastofn- unar var haldinn á Hvanneyri s.l. föstudag. Er þetta í fyrsta skipti sem stofnunin heldur árs- fund sinn utan Reykjavíkur. I lok fundarins var skrifað undir samstarfssamning á milli Veiði- málastofnunnar og Landbúnað- arháskólans á Hvanneyri. Samningurinn gerir m.a. ráð fyrir að sérfræðingar Veiði- málastofnunar muni sinna kennslu á sviði ferskvatnsnýt- ingar og vatnalíffræði og end- urmenntunar og unnið verði að sameiginlegum rannsókna- og þróunarverkefnum í landbún- aði. Sigurður Már Einarsson, deildarstjóri Vesturlandsdeildar Veiðimálastofnunar sagði í samtali við Skessuhorn að aukin verkefni myndi skjóta sterkari stoðum undir starfsemina og ef vel takist til er möguleiki að bætt verði við starfsmanni í deildina. Auk þess segir Sig- Sigurður Guðjónsson framkvæmdastjóri Veiðimálastofnunar og Magn- ús B. Jónsson rektor Landbúnaðarháskóians á Hvanneyri handsöluðu samkomulagið. urður það mikinn styrk að koma í það akademíska um- hverfi sem hefur myndast við Hvanneyri og möguleikar séu á samstarfi við nemendur sem hafa áhuga á að vinna verkefni á sviði vatnalíffræði og ferskvatnsnýtingar. Vestur- landsdeild Veiðimálastofnunar mun flytja svo í kjölfarið í skrif- stofuhús Hvanna nú í vor. Snæfellsnesverkefiiið kynnt á Nýja Sjálandi Eins og flestum er kunnugt vinna sveitarstjórnirnar á Snæ- fellsnesi nú að því að fá vottun frá Green Globe 21 fýrir Snæ- fellsnes sem sjálfbært samfélag með aðaláherslu á umhverfis- væna ferðaþjónustu. Stjórn undirbúnings að þessu verkefni er í höndum Leiðarljós ehf. og Umís ehf., en fýrirtækin hafa notið aðstoðar stýrihóps frá sveitarfélögunum. I nóvember á síðasta ári komu til Snæfellsness þau Cathy Parsons alheimsforstjóri Green Globe 21 og Sir Frank Moore stjórnarformaður Green Globe 21. Þau buðu fulltrúa frá Snæfellsnesi að koma til Kaikoura á Nýja Sjá- landi á fýrstu ráðstefnu Green Globe 21 um sjálfbæra ferða- Sameiningarnefnd Borgar- byggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Skorra- dals hélt fýrstu kynningarfund- ina um hugsanlega sameiningu þessara sveitarfélaga í vikunni. A mánudag var haldinn fundur á Varmalandi og annar í Brún í Bæjasveit í gærkvöld. Fundirnir voru þokkalega sóttir og nokk- ur umræða um kosti og galla sameiningarinnar. Frarn kom þjónustu til að kynna Snæfells- nesverkefnið. Fóru þau Guð- rún og Guðlaugur Bergmann frá Leiðarljósi ehf. á Hellnum á ráðstefnuna og kynntu það sem verið hefur að gerast á Snæ- fellsnesi. Gestir á ráðstefnunni voru um 130 og vakti erindi og önn- ur kynning á Snæfellsnesverk- efninu mikla athygli. „ Ljóst er af því sem fram kom á ráðstefn- unni að sveitarfélögin á Snæ- fellsnesi eru í algjöru forystu- hlutverki hvað varðar vottun sveitarfélaga/samfélaga. Fram- tíðarstefna sveitarfélaganna vakti mikla athygli, einkum og sér í lagi fýrir það hversu víð- tæk og framsækin hún er,“ seg- ir í ítarlegri umfjöllun um ráð- stefnuna á heimasíðu Snæfells- bæjar. að skiptar skoðanir eru um á- gæti þess að þessi sveitarfélög gangi í eina sæng. Umræðan snerist ekki síst um verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga og hvernig hún muni breytast í framtíðinni. Þá var mikið rætt um skólamál, samgöngumál og fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. Síðast fundurinn að sinni verður í Borgarnesi í kvöld. Hæsti styrkur Landnámssafn í Borgar- nesi hlaut hæsta styrk úr Menningarborgarsjóði þetta árið eða eina milljón króna. Undirbúningur verkefhisins stendur nú sem hæst undir stjórn Kjartans Ragnarsson- ar leikstjóra. Stefnt er að því að safnið verði sýnilegt strax á næsta ári. Rekstrarað- ilar á Eiríks- stöðum Samið hefur verið við hjónin á Vatni í Haukadal, þau Helgu Agústsdóttur og Sigurð Jökulsson, um að þau taki að sér rekstur Eiríks- staða í sumar. Ferðamönn- um, sem heimsækja slóðir þeirra feðga Leifs heppna og Eiríks rauða, hefur fjölgað ár frá ári og má búast við mik- illi gestanauð á Eiríksstöð- um í sumar þar sem nú er Brattabrekkan er orðin þokkalega greiðfær. Leiðrétting I ffétt, í síðasta tölublaði, um stuðning Bílás og BogL vantaði nafn Einars Guð- leifssonar. Við biðjumst vel- virðingar á þessum mistök- urn. Fundað um sameiningarmál

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.