Skessuhorn


Skessuhorn - 31.03.2004, Page 8

Skessuhorn - 31.03.2004, Page 8
MIÐVTKUDAGUR 31. MARS 2004 Vel heppnuð árshátíðarsýning í Borgamesi Arshátíðarsýning Nemenda- félags Grunnskóla Borgarness að þessu sinni er Gúmmí Tarz- an eftir Ole Lund Kirkegaard í leikstjórn Margrétar Eir Hjart- ardóttur. Verkið var frumsýnt í félagsmiðstöðinni Óðali í síð- ustu viku og var uppselt á allar íjórar sýningarnar sem skipu- lagðar voru og var því bætt við þremur aukasýningum og er sú síðasta í kvöld. Um 50 leikarar taka þátt í sýningunni, auk fjölda annara sem að henni koma og hafa krakkarnir fengið mikið lof fyr- ir frammistöðu sýna. Bærinn fyrr í sumarskrúðann Sigurvegararnir í stóru upplestrarkeppninni. Stóra upplestrar- keppnin á Akranesi Stóra upplestrarkeppnin fór fram í Vinaminni á Akranesi miðvikudaginn 24. mars. Und- irbúningur keppninnar hefur staðið lengi yfir, hófst sl. haust á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Undankeppni fór svo fram í báðum grunn- skólunum, en þá voru 6 bestu lesarar í 7. bekkjum í hvorum skóla valdir. Þessir 12 kepp- endur lásu svo brot úr sögu um Hjalta litla og ljóð. Dómnefnd var ekki öfundsverð að velja þá þrjá bestu enda frammistaða nemenda með afbrigðum góð og greinilegt að undirbúningur hefur skilað sér vel. Niðurtaðan var sú að Gígja Gylfadóttir lenti í 1. sæti, Harpa Lind Gylfadóttir í 2. sæti og Arna S. Birgisdóttir í því þriðja. Allar eru stúlkurnar úr Grundaskóla og fengu þær peningaverðlaun sem Sparisjóður Mýrarsýslu veitti. Arshátíð Brekku- bæjarskóla 2004 ekki Árshátíð BreTtkubæjarskóla var haldin 9. og 10. mars s.l. og voru 2 sýningar hvorn dag að undangengnum 4 nemendasýn- ingum. A dagskrá árshátíðarinnar voru margskonar atriði m.a. var leikritið „Vamsberamir" sýnt eftir Herdísi Egilsdóttur, það var sérstakt leiklistarval sem sá um það. Einnig vom dansatriði, íþróttir og margskonar smærri leikþættir og árshátíðinni lauk með dúndrandi Ieik unglinga- hljómsveitarinnar Synu. Sú nýbreytni var nú, að sér- stakt árshátíðarval 9. og 10.- bekkja sá um undirbúning og ffamkvæmd árshátíðarinnar á- samt kennumm og fóm nokkrir nemendur m.a. á námsskeið í lýsingu og förðun af þessu til- efni. Alls komu ffam um 250 börn á aldrinum 6 til 15 ára og geta þau verið afar stolt af sínu framlagi því árshátíðin þótti takast sérstaklega vel , ein- kenndist af lífsgleði hjálpsemi og vináttu. Boðaðar hafa verið breyting- ar á vinnuskólanum á Akranesi. Skessuhorn tók Einar Skúla- son, æskulýðsfulltrúa tali og spurði í hverju breytingarnar væru fólgnar. „Við höfum verið að endurskoða reksturinn, en starfseini vinnuskólans er styttri núna vagna lengingu skólaásrsins. Einnig höfum við séð að 17 ára unglingar eiga erfitt með að ná sér í sumarvinnu og höfum við því þurft að bregða á það ráð undanfarin ár að leysa það með atvinnuátaki uppúr miðju sumri,“ sagði Einar. Nú í ár mun verða atvinnuátak fyrir 17 ára unglinga frá því strax í sumarbyrjun samhliða vinnu- skólanum, jafnframt verða gerðar breytingar á vinnutíma þeirra sem yngri eru. Mestar verða breytingarnar hjá þeim yngstu, 14 ára unglingar munu vinna hálfan daginn í 4 viku en vinnutími 15 og 16 ára verður skorinn niður um eina viku. Þetta er gert til að mæta þeim kostnaðarauka sem fylgir því að bjóða 17 ára unglingum upp á sumarvinnu. Einar segir að reynslan sýni að það rofi oft til á vinnumarkaðnum fyrir þenn- an hóp þegar líða tekur á sum- arið. Allir unglingar, sem þetta mál varðar og forráðamenn þeirra munu nú á næstunni fá bréf með upplýsingum um þessar breytingar og hvað þær hafa í för með sér. Að sögn Einars er annar ávinningur með þessari breytingu, en starfsemi vinnuskólans mun fara fyrr af stað en undanfarin ár eða síðustu vikuna í maí en þá má reikna með að 17 ára unglingar komi til vinnu. „Bærinn verður því kominn í sumarskrúðann mun fyrr en undanfarin ár.“ -hdp

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.