Skessuhorn - 06.04.2004, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 6. APRIL 2004
11
Barátta um 100 m í skriðsundi
Kolbrún Ýr stóð uppi
sem íslandsmethafi
Það var hörð keppni á
milli Kolbrúnar Ýr Kristjáns-
dóttur og Rangheiðar Ragn-
arsdóttur, um helgina, þó
svo að þær hafi verið að
keppa á sitt hvoru mótinu.
Þær stöllur slógu til skiptis
átta ára gamalt met í fjór-
gang, Kolbrún Ýr á Amster-
dam Swim Cup og Ragn-
heiður á Grand Prix mótinu í
Stokkhólmi. Kolbrún tók af
skarið og byrjaði að fella
metið um 11/100. Um
klukkustund síðar stakk
Ragnheiður sér til sunds í
Stokkhólmi og bætti metið
um 18/100, en báðar stúlk-
urnar komust í úrslitasund-
in. Þar bætti Kolbrún Ýr met
Ragnheiðar um 04/100 en
Ragnheiður gerði enn betur
og sló metið þegar hún synti
á tímanum 26,34 eða 12/100
betri tíma en Kolbrún Ýr.
Sama spennan var á milli
stúlknanna í 100 m. skrið-
sundi. Kolbrún Ýr byrjaði á
því að bæta eigið íslands-
met í 100 m. skriðsundi,
þegar hún synti á tímanum
57,92 og komst þar með í
úrslit í Amsterdam. Ragn-
heiður keppti í undanrásum
í Stokkhólmi og bætti þar
met Kolbrúnar um 05/100 ú
sekúndu.
Kolbrún Ýr setti svo nýtt
íslandsmet þegar hún synti í
B-úrslitum 100 m. skrið-
sundsins, lokatími hennar
57,55 (27,69- 29,86) sem
skilaði henni 3. sætinu. Hún
bætti því met Ragnheiðar
Ragnarsdóttur um 32/100 úr
sekúndu. Þetta er gott
veganesti í lokaundirbún-
inginn fyrir Evrópumeistara-
mótið í Madrid í maí. Kol-
brún Ýr tók einnig þátt í B-
úrslitum í 50 m. baksundi,
en hún átti að vera í A-úrslit-
um. Þar sem A-úrslitin í 50
m. baksundinu voru rétt á
undan skriðsundinu fékk
Kolbrún að keppa í B-úrslit-
inum í staðinn. Kolbrún synti
mjög vel og vann B-úrslitin á
tímanum 30,95 sekúndum,
sem er aðeins 19/100 frá ís-
landsmeti hennar í greininni.
Það má leiða að því líkum
að metið hefði fallið ef Kol-
brún hefði fengið meira en
þær 15 mínútur sem liðu á
milli sunda til að undirbúa
sig.
íslandsmeistaramót í badminton
Góður árangur ÍA
Það má segja að það hafi
verið góður dagur hjá
Skagamönnum á lokadegi
íslandsmótsins í badminton.
Drífa Harðardóttir vann tvö-
falt í M. fl. er hún sigraði í tví-
liðaleik, ásamt Söru Jóns-
dóttur TBR og í tvenndarleik,
ásamt Sveini Sölvasyni TBR.
í A. fl. urðu Karitas Ósk Ó-
lafsdóttir og Hólmsteinn Þór
Valdimarsson tvöfaldir
meistarar. Karitas Ósk vann í
einliðaleik og tvíliðaleik, á-
samt Hólmsteini Þór og
Hólmsteinn Þórvann einnig í
tvíliðaleik, ásamt Stefáni
Halldóri Jónssyni. Þeir unnu
Skagamennina Friðrik Veigar
Guðjónsson og Sigurð Má
Harðarsson í úrslitaleik. í B.
fl. vann Hanna María Guð-
bjartsdóttir í tvenndarleik, á-
samt Daníel Thomsen TBR.
Þetta er sannarlega glæsi-
legur árangur hjá okkar fólki,
því það unnust gullverðlaun í
öllum úrslitaleikjum sem ÍA
tók þátt í í dag.
Laufey Sigurðardóttir var
einn af aðaldómurum móts-
ins og dæmdi leik í úrslitum
og einnig dæmdu á mótinu
Sigurður Sigurðsson og
Rúnar Sigríksson, þá tóku
keppendur okkar virkan þátt
í línudómgæslu í úrslitum M
flokks.
Skagamenn
leiða riðilinn
í deildarbik-
arnum
Skagamenn lögðu Stjörnuna úr
Garðabæ, með einu marki
gegn engu, þegar að liðin
mættust í 5. umferð deildarbik-
arkeppni KSÍ í Fífunni í Kópa-
vogi um síðustu hetgi. Það
verður ekki sagt að um áferða-
faliega knattspyrnu hafi verið
að ræða hjá liðunum. Stjarnan,
sem er neðsta liðið í riðiinum,
hefur einungis skorað 2 mörk.
Skagamenn duttu hins vegar
niður á plan andstæðinganna
og var leikurinn mjög tilþrifalítill.
Eina mark leiksins var sjálfs-
mark, en önnur tíðindi voru þau
helst að Hjálmi Dór var vikið af
velli eftir nokkuð vafasama
tæklingu undir lok leiksins. í lið
Skagamanna vantaði nokkra
lykilmenn, Stefán var í banni
og Þórður og Gulli voru báðir
meiddir. Skagamenn leiða nú
B-riðilinn, eru með 12 stig aðs
5 leikjum loknum. Keflvíkingar
eru tveimur stigum undir en
eiga leik til góða.
Úrslitaeinvígið í körfuboltanum
Á brattann að sækja fyrir Snæfell
Snæfell er nú í fyrsta sinn að
keppa um íslandsmeistaratit-
ilinn í körfubolta og úrslitaein-
vígið við íslandsmeistara Kefl-
víkinga hefur farið mjög fjör-
lega af stað.
Nú þegar hafa farið fram 3
leikir og er staðan að þeim
loknum 2-1 fyrir Keflavík.
Það var gríðarlega hart
barist í Stykkishólmi í fyrstu
viðureigninni, sem Snæfell-
ingar sigruðu með 80 stigum
gegn 76. Staðan í hálfleik var
41:38 og var Snæfell með yfir-
höndina í síðari hálfleik, en
Keflavík gerði harða atlögu að
heimamönnum undir lokin.
Corey Dickerson skoraði 33
stig fyrir Snæfell og Hlynur
Bæringsson var með 12 stig
og 20 fráköst.
Keflavík hafði betur, 104:98,
í öðrum leik liðanna, sem fram
fór í Keflavík. Leikurinn var
mjög jafn þar til Keflavíkingar
gerðu út um leikinn með góð-
um leikkafla í upphafi fjórða
leikhluta. Þá náðu þeir 13 stiga
forskoti. Snæfellingar náðu
aldrei að vinna upp þann mun
þrátt fyrir hetjulega baráttu.
Stigahæstu menn Snæfells
voru þeir Dondrell Whitmore
og Hlynur Bæringinsson með
24 stig hvor. Cory Dickerson
leikmaður Snæfells var rekinn
af velli undir lok leiksins sem
þýðir að hann verður væntan-
lega í banni þegar liðin eigast
við þriðja sinn á mánudaginn.
Forsvarsmenn Snæfells
lögðu fram kæru til aganefnd-
ar KKÍ, vegna nokkurra atvika,
þar sem leikstjórnandi Kefla-
víkur, Arnar Freyr Jónsson
gerðist sekur um óíþróttam-
anslega hegðun að mati Snæ-
fells. Öll atvikin eru á mynd-
bandi sem lagt er fram
kærunni til stuðnings. Ef aga-
nefnd KKÍ úrskurðar Arnar
Frey í bann, þá tekur það gildi
í fjórða leik liðanna sem fram
fer í Keflavík n.k. laugardag.
Þriðji leikur liðanna fór fram
s.l. mánudagskvöld og lyktaði
leiknum með sigri Keflvíkinga
79-64.
Það verður því þungur róður
hjá Snæfellingum í Keflavík nk.
laugardag.
-háp
Sundmót á Varmalandi
Fimmtudaginn 1. apríl fór
fram sundmót í Varmalands-
skóla. Keppni var með hefð-
bundnum hætti en stigaút-
reikningur var með nýju
sniði. Keppt var eftir nýrri
unglingastigatöflu í sundi
sem einn kennari skólans er
að semja. Nýja stigataflan er
þannig sniðin að bekkirnir
geti keppt á jafnréttisgrund-
velli. Við gerð töflunnar eru
héraðsmet UMSB í sundi í
yngri flokknum höfð til við-
miðunar.
Á mótinu er keppt um far-
andbikar. Fjórir bekkir tóku
þátt í keppninni sem var
mjög jöfn og spennandi.
Sigurvegari var 6. bekkur
með 3930 stig. í öðru sæti
var 7. bekkur með 3697 stig.
í þriðja sæti var 5. bekkur
með 3638 stig. Fjórði bekkur
6. bekkur vann stigakeppnina og fekk farandbikarmn, með þeim a
myndinni er kennari þeirra íris Randversdóttir.
hlaut svo 3628 stig. í stiga-
keppni einstaklinga sigraði
Jóhanna Karen Guðbrands-
dóttir, 4. bekk með 826 stig,
en veitt voru verðlaun fyrir
árangur úr tveimur greinum.
Mynd: Ingimundur Ingimundarson.
i öðru sæti var Kristinn Örn
Sigurjónsson, 6. bekk, með
778 stig og í því þriðja var
Bergþór Jóhannesson, 7.
bekk með 754 stig.
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
iðnaðarsvœðis á Grundartanga, Borgarfirði
Hreppsnefnd Skilmannahrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á aðalskipulagi
iðnaðarsvæðis á Grundartanga 1997 - 2017, ásamt áorðnum breytingum samkvæmt
18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr 73/1997.
Breytingin á aðalskipulaginu er um stækkun hafnarsvæðisins og nær einungis til
stækkunar hafnarinnar, þ.e. lengingu viðlegukants í suð-vesturátt um 250 metra
ásamt nauðsynlegum grjótíyllingum við veg, við stálþil og undir og við bryggjugólf.
Breytingartillagan verður til sýnis annars vegar á Hreppsskrifstofu Skilmannahrepps
að Hagamel 16, Skilmannahreppi á opnunartíma skrifstofunnar og hins vegar
l Markstofii ehf. Merkigerði 18, Akranesi alla virka daga frá kl. 10:00 - 16:00 frá 14.
! apríl 2004 til og með 13. maí 2004.
I Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera
5 athugasemdir við breytingartillöguna. Frestur til að skila inn skriflegum athugasemdum
er til kl 16:00 fimmtudaginn 27. maí 2004 og skal skila þeim til Hreppsskrifstofu
Skilmannahrepps, Hagamel 16, Skilmannahreppi, 301 Akranes. Hver sá sem eigi
gerir athugasemdir við breytingatillöguna fýrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
^________________________________________________________Oddviti Skilmannahrepps ^