Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2004, Side 6

Skessuhorn - 07.07.2004, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. TULI 2004 jnimunu,. Svipmyndir frá Færeyskum dögum Færeysku dagarnir voru haldnir hátíðlegir í Olafsvík síðustu helgina í júní. Mikill fjöldi gesta og heimamanna tók þátt í hátíðahöldunum þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi oft verið hressari. Þokka- legt veður var þó á kvöldin og ágæt stemning ríkti í bænum. MM. Ljósmyndir: Jón Eggertsson. Danshópurinn Snæstjörnurnar og eldri borgarar sýndu kántrýdansa á sviðinu. Brottfluttir Ólsarar fjölmenntu. Hér eru nokkrir þeirra á tali við heimamenn. Erla Höskuldsdóttir og Olga Gunnarsdóttur þöndu raddböndin. Bryggjuball fór fram við fiskmarkaðinn á föstudagskvöldinu. Fjórtán umsækjendur Magnús B Jónsson er meðal umsækjenda um stöðu rektors Landbúnaðarháskóta Islands. Hér er Magnús við útskrift Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri fyrr í vor. 1. júí rann út frestur til að senda inn um- sóknir til land- búnaðarráðu- neytisins um hina nýju stöðu rekt- ors Landbúnað- arháskóla Is- lands. Eins og kunnugt er verða Rannsóknar- stofnun landbún- aðarins, Land- búnaðarháskól- inn á Hvanneyri og Garðyrkju- skólinn á Reykj- um færðar undir eina stjórn í nýrri stofnun um næstu áramót. Eins og fram kemur í fréttatil- kynningu frá landbúnaðarráðu- neytinu sóttu eftirtaldir íjórtán aðilar um stöðuna: 1. Agúst Sigurðsson, lands- ráðunautur í hrossarækt og ráðunautur í erfða- og kyn- bótafræði hjá Bændasamtök- um íslands, hrossaræktandi og bóndi. 2. Arni Bragason, forstöðu- maður Náttúruverndar- og útivistarsviðs Umhverfis- stofnunar. 3. Áslaug Helgadóttir, aðstoð- arfostjóri Rannsóknastofn- unar landbúnaðarins. 4. Björn Steinbjörnsson, hér- aðsdýralæknir í Austurlands- umdæmi nyrðra, fram- kvæmdastjóri Dýraspítala Austurlands á Egilsstöðum. 5. Eiríkur Blöndal, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsam- taka Vesturlands. 6. Ingibjörg S. Jónsdóttir, pró- fessor við háskólasetrið á Svalbarða. 7. Ingileif Steinunn Kristjáns- dóttir, kennari við Vallaskóla á Selfossi. 8. Ivar Jónsson, prófessor í við- skiptafræðideild Háskólans á Bifröst. 9. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor í umhverfisjarð- fræði við háskólann í Bristol í Bretlandi. 10. Magnús B. Jónsson, rektor Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. 11 .Olafur Melsted, aðstoðar- skólameistari við Garð- yrkjuskóla ríkisins. 12.Róbert Hlöðversson, fram- kvæmdastjóri Nýju skoðun- arstofunnar hf. 13.Sveinn Aðalsteinsson, skóla- meistari Garðyrkjuskóla rík- isins. 14.Þorsteinn Tómasson, for- stjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. MM <7 {.'{/‘(uuun' Umsjón: lris Arthúrsdóttir. Kanilsnúðar með marsípani Þetta eru algjörir sælusnúð- ar ! Þeir smakkast best volgir með ískaldri mjólk. Reyndar er líka alveg hægt að nota bolludeig úr pakka fyrir þá sem eru að flýta sér eða vilja ein- falda þetta. Eg hef prófað það og það er bara mjög gott. Ekki vera nísk á marsipanið og kanilinn því það gerir gæfumuninn. Það er líka gott að setja smá kardimommuduft út í deigið til að fá meira bragð. 50 gr pressuger eða 1 pk þurrger 100 - 150 gr. Smjör/ smjörlíki 5 dl ylvolg mjólk 1/2 tsk salt 1 1/2 dl sykur Ca 12 - 13 dl hveiti Fylling Brætt stnjörlíki Kanilsykur Marsipan 1. Blandið gerinu samna við ylvolga mjólkina. 2. Blandið þurrefn- unum saman í skál, myljið smjörið út í og hellið síðan ger- blöndunni saman við. Gott er að hnoða öllu saman í hrærivélarskál eða einfaldlega með höndunum. Látið hefast undir rökum klút í minnst 30 - 60 mín. 3. Fletjið deigið út á hveitist- ráðu borði eða plastdúk ( ekki allt í einu ) . Skerið kantana þannig að þeir séu allir jafnir. 4. Penslið yfir deigið og stráið kanil þar yfir. Þekið vel. 5. Myljið marsipanið í skál og stáið yfir kanilinn. Rúllið deiginu jafnt upp og skerið í hæfilega bita. 6. Best er að setja bitana í muffinsform, þrýsta aðeins ofnan á þá og láta hefast í 30 mín á hlýjum stað. 7. Penslið snúðana með þeyttu eggi og bakið við 250°C þar til þeir eru fallega gullnir. HUSRAÐ Leysigeisli er prýðilegur blettahreinsir á hvítt tau. Spreyið á flíkina áður en hún er þvegin. Ath. Ekki nota á lituðfót Baggaheyskapur Nú orðið heyrir það til undantekninga að menn bindi hey i bagga, eins og algengt var hér fyrir innreið rúlluheyskapar. Einstaka bænd- ur halda þessari heyskaparaðferð þó við líði. Myndin er af túni hjá Kristjáni Sæmundssyni bónda á Neðri Brunná. Bærinn Efra Holt er í baksýn. MM

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.