Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2004, Side 7

Skessuhorn - 07.07.2004, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 7. JULI 2004 7 J>£99lmui. Stefán Orri Ólafsson kylfingur á Akranesi. Stefán Orri í keppnis- ferð Stefán Orri Olafsson, efni- legasti kylfingur Golfklúbbsins Leynis um þessar mundir, var valinn í landsliðverkefni Golf- sambands Islands 19-21 árs og keppir hann á Island Golf Club í Dublin á Irlandi þessa dagana og fram á laugardag. Þetta er önnur keppnisferð Stefáns Orra erlendis í sumar en hann var við keppni dagana 18.-20. júní í Wales fyrir hönd Islands. MM Æðarvarp gengur betur Æðarvarp hefur víða um land gengið vel í ár og ástand- ið er mun betra en síðustu ár, þó það sé hins vegar misjafnt eftir landshlutum.. Æðurinn virðist skila sér betur í varp nú en síðustu tvö ár en' þá voru víða vanhöld á varpi, fuglinn var magur og skilaði sér seint og illa í varp. Þetta virðist á mörgum stöðum hafa lagast og víðast er varpið komið í meðal- horf. RÚV hafði þetta eftir Arna Snæbjörnssyni hlunn- indaráðanauti hjá Bændasam- tökunum, en Arni hefur skoð- að stöðuna víða um land að undanförnu. MM Gott gengi í þangskurði Þangskurður hefur gengið vel það sem af er sumri hjá Þörungaverksmiðjunni á Reykhólum, skv. frétt á mbl.is. Þar segir að í fyrra hafi verið slegin rúmlega 18.000 tonn af þangi, sem var met, og reiknað með svipuðu magni á þessu ári. Þangskurður hefur gengið vel undanfarin ár og nú er svo komið að framleiðsla fyrirtæk- isins annar ekki eftirspurn. MM 80 dra afmœli Fimmtudaginn 8. júlí verður frú Rannveig Böðvarsson, Vesturgötu 32, Akranesi áttræð. Af því tilefni býður hún vinum og vandamönnum að koma og gleðjast meðhenni aðHótel Glyrn á Hvalfjarðarströnd, á afmœlisdaginn kl. 17. Gjafir eru stranglega bannaðar en það gleddi hana mjög að sjá sem flesta. Þann 10. iúlí bióða Inga og Valdi ó Sl<arði til veislu að Skarði. Tilefnið er 60 ára afmæli Valda þann 7. júlí. Hátíðahöldin hefjast með fyrstu gestum og lýkur þegar peir síðustu fara. Hlökkum til að sjá sem flesta /nga og Valdi HUNDRAÐ RAFMÖGNUÐ ÁR ORKUVEITA REYKJAVÍKUR BÝÐUR ÞÉR AÐ SKOÐA VIRKJANIR SÍNAR í ár minnast íslensk orkufyrirtæki þess að hundrað ár eru liðin frá því að íslendingar tóku rafmagnið í sína þjónustu. Upphaf þess miðast við það þegar Jóhannes Reykdal hóf rekstur lítillar rafveitu í verksmiðju sinni í Hafnarfirði.Virkjanir eru svo sannarlega mögnuð mannvirki sem spennandi og fróðlegt er fyrir alla fjölskylduna að kynnast. I tilefni af hundrað ára afmæli rafmagns á Islandi býður Orkuveita Reykjavíkur áhugasömum gestum að skoða virkjanir sinar og kynna sér rekstur þeirra dagana l.til 15. júlí. Virkjanir Orkuveitunnar eru þrjár og tilheyra hver sínu tímabili í rafvæðingarsögunni. Elliðarárstöð.Andakílsárvirkjun og Nesjavellir gefa fjölbreytta mynd af sögu og þróun íslenskra virkjana í hundrað ár. Ennfremur skal minnt á sýninguna um virkjunarframkvæmdir á Hellisheiði í Skíðaskálanum í Hveradölum en sú sýning er opin virka daga frá kl. 10:00 til 17:00. Elliðaárstöð, 1921 Elliðaárstöð er opin alla daga kl. 13:00-17:00 Andakílsárvirkjun, 1947 Andakílsárvirkjun er opin alla daga kl. 13:00-17:00 Nesjavellir, 1998 Nesjavallavirkjun er opin alla daga kl. 09:00-17:00 nema sunnudaga kl. 13:00-18:00

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.