Skessuhorn - 07.07.2004, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 7. TULI 2004
^ntsautiu^
14
Tillaga að deiliskipulagi fyrir gamla miðbæinn í Borgarnesi.
Borgarfjörður:
Mikið skipulagt
land til
ráðstöfanar
Ibúum í Borgarfirði fjölgaði
um rúmlega sextíu manns á
síðastliðnu ári og hefur verið
töluverð fjölgun frá árinu
1999. Mest hefur fjölgunin
verið á þéttbýlisstöðunum á
Bifröst, í Borgarnesi og á
Hvanneyri. Nú eru margir sem
gera ráð fyrir að íbúum muni
áfram fjölga í Borgarfirði og
byggja það á aukinni starfsemi
tengdri háskólastarfi í héraðinu
og uppbyggingu sem framund-
an er á Grundartanga. Ef skoð-
aðar eru nýjustu fáanlegar töl-
ur um fjölda íbúða í sveitarfé-
lögunum Borgarfirði norðan
Skarðsheiðar kemur fram að
aukning milli áranna 2001 og
2001 var yfir 5% á sama tíma
og aukning á Akranesi var
rúmlega eitt present, hálft pró-
sent á Snæfellsnesi og engin í
Dölum. Stærstan hluta þessar-
ar aukningar má rekja til bygg-
inga nemendagarða á háskóla-
stöðunum.
Ingi Tryggvason lögfræðing-
ur hefur rekið fasteignasölu í
Borgarnesi til margra ára.
Hann segir að alltaf sé einhver
hreyfing í sölu notaðs íbúðar-
húsnæðis, einkum í Borgarnesi.
Þar er þó lítið byggt um þessar
mundir en mikið til af skipu-
lögðum íbúðalóðum. Ingi segir
að undanfarin 2-3 ár hafi ekki
verið neinar merkjanlegar
sveiflur í sölunni og að verð
hafi ekki hækkað mikið frá ár-
inu 2002 en á árabilinu 2000-
2002 hafi það hækkað merkjan-
lega á íbúðarhúsnæði í Borgar-
nesi. Þannig hefur jafnvægi
auðkennt markaðinn undanfar-
in ár.
Nemenda- og starfsmannaí-
búðir hafa verið byggðar á Bif-
röst og Hvanneyri í nokkru
mæli og framundan eru enn
meiri framkvæmdir. T.d. mun
Loftorka byggja 51 íbúð í nýju
rannsókna- og íbúðarhúsnæði
á Bifröst og munu framkvæmd-
ir vera við það að fara af stað
við nýja fjögurra hæða bygg-
ingu.
Páll S Brynjarsson bæjar-
stjóri í Borgarbyggð var inntur
eftir því hvort að héraðið væri í
stakk búið til að taka við aukn-
um fjölda íbúa. ,Jú við erum
tvímælalaust undir það búin að
íbúum fjölgi. Vegna þeirrar
fjölgunar íbúa sem verið hefur,
og eins vegna þeirrar uppbygg-
ingar sem framundan er við
háskólana, á Grundartanga og
víðar á Vesturlandi, hefur að
undaförnu verið skipulagt tölu-
vert af nýju byggingarsvæði
bæði fyrir íbúða- og atvinnu-
húsnæði í Borgarnesi. Að-
spurður um þær lóðir sem nú
þegar hafa verið skipulagðar í
Borgarnesi segir Páll að á ár-
unuin 2001 og 2002 hafi verið
skipulagðar þrjár götur undir í-
búðabyggð í Bjargslandi í
Borgarnesi. „Við Kvíaholt eru
26 einbýlishúsalóðir, en þegar
er byrjað að byggja við götuna.
Við Stöðulsholt voru skipu-
Iagðar tæplega 30 lóðir undir
einbýlis- og parhús og við Arn-
arklett voru skipulagðar lóðir
undir fjölbýlishús og raðhús en
þegar hafa verið byggð nokkur
raðhús við götuna“.
A síðastliðnu ári keypti
Borgarbyggð land af Kaupfé-
lagi Borgfirðinga í gamla mið-
bænum í Borgarnesi og segir
Páll að nýlega sé lokið vinnu
við deiliskipulagstillögu fyrir
svæðið. „Þar er gert ráð fyrir
að rísi blönduð byggð, þjón-
ustu-, verslunar- og íbúðarhús-
næðis. Hús verða á tveimur
hæðum og alls er gert ráð fyrir
að um 60 íbúðir verði í þessum
húsum.“ Páll bætir því við að á
síðastliðnu ári hafi verið lokið
við breytingar á gamla verslun-
arhúsnæði KB í gamla mið-
bænum og því breytt í íbúðir.
Alls eru í húsinu tuttugu og ein
íbúð og þar eru nú lausar tvær
leiguíbúðir.
Aðspurður um lóðir annars-
staðar í héraðinu, utan Borgar-
ness, segir hann að á síðasta ári
hafi verið unnið að deiliskipu-
lagi á Bifröst og þar sé gert ráð
fyrir íbúðabyggð í Grábrókar-
hrauni í landi Hreðavatns. „Þá
verður í ár farið í deiliskipu-
lagsvinnu á Varmalandi, en þar
er íyrirhugað að skipuleggja í-
búðabyggð. Þannig að það er
nóg til af lóðum bæði í Borgar-
nesi sem og í dreifbýlinu sem
tilheyrir Borgarbyggð. Verið er
að vinna skipulagsvinnu víðar í
héraðinu og má í því sambandi
nefna Reykholt og Hvanneyri
sérstaklega," segir Páll.
Af viðtölum við þá Inga og
Pál má sjá að í Borgarnesi er
nægjanlegt land skipulagt til í-
búðabygginga. Helst mætti
segja að skortur væri á verktök-
um til að taka slíkt að sér eða
öllu heldur að þeir hafi næg
verkefni annarsstaðar í hérað-
inu svo sem við uppbyggingu
sumarhúsabyggða vítt og breitt
um héraðið. Einnig er ein-
kennandi fyrir svæðið að ný-
framkvæmdir eru mestar á
Hvanneyri og Bifröst um þess-
ar mundir. Reynslan hefur sýnt
að hluti starfsmanna við stór-
iðjuna á Grundartanga velur
Borgarnes til búsetu og því má
búast við að kippur gæti færst í
byggingastarfsemi í Borgarnesi
og Borgarfirði innan skamms,
fari einhverjir verktakar af stað
í framkvæmdir innan tíðar.
Á Bifröst hefur á undanförnum árum risið þorp þar sem nokkur hundruð íbúar búa allt árið um kring.