Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2004, Page 22

Skessuhorn - 07.07.2004, Page 22
22 MIÐYIKUDAGUR 7. JULI 2004 Víkingar í annað sætið Víkingur Ólafsvík tyllti sér í annað sæti annarar deildar- innar með góðum sigri á KFS síðastliðinn laugardag. Þegar mótið er rétt tæplega hálfnað eru Víkingar m.ö.o. í sæti sem gefur rétt á 1. deildarsæti á næsta ári. Víkingar eru með 16 stig, jafn mörg og KS sem er í þriðja sæti en Leiknir úr Reykjavík trónir á toppnum með 21 stig. Mörk Víkings í leiknum gegn KFS skoruðu þeir Elin- bergur Sveinsson, Hallur Kristján Ásgeirsson og Pre- drag Milosavljevic. GE Stórsigur Skallagríms Skallarnir þúrftu ekki að hafa mikið fyrir sigrinum gegn Afríku í a riðli þriðju deildar- innar í knattspyrnu á föstu- dag. Mesta vinnan fólst í því að telja mörkin en þau urðu ellefu áður en flautað var til leiksloka og öll Afríkumegin. Sveinbjörn Geir Hlöðversson var iðnastur við kolann en hann skoraði fjögur mörk. Sigurjón Jónsson gaf honum lítið eftir og setti boltann þrisvar í netið en þeir Valdi- mar Sigurðsson, Ragnar Lúð- vík Rúnarsson, Guðmundur Lúther Hallgrímsson og Finn- bogi Llorens skoruðu sitt markið hver. Skallagrímur er sem fyrr í efsta sæti riðilsins og stefnir hraðbyri á úrslitakeppnina. GE Skagamenn fengu skell Óhætt er að segja að fæst- ir bjuggust við að Víkingar, neðsta liðið í úrvaisdeiid- inni yrðu mikii fyrirstaða fyrir Skagamenn þráttt fyrir að þeir síðarnefndu hafi verið nokkuð brokkgengir. Annað kom þó á daginn þegar iiðin mættust á þriðjudag í síðustu viku á Akranesvelli. Strax á 7. mínútu skoruðu Víkingar og Skagamenn náðu sér aldrei á strik. Þeir sóttu að vísu allan lelkinn en höfðu ekki erindi sem erfiði. Þeg- ar tíu mínútur voru eftir fengu þeir síðan náðar- höggið þegar gestirnir bættu við öðru marki. Slæmt tap á slæmum tíma og í sjálfu sér ekki meiru við það að bæta nema að eitthvað þarf að gerast í sóknarleik Skagamanna ef þeir ætla sér að enda ofan við miðja deild. SÝNINGAR AÐ HEFJAST Ur hug og hirslum Næstkomandi laugardag, 10. júlí, hefst í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi sýning Gæflaugar Björnsdóttur sem ber yfirskrift- ina „Ur hug og hirslum.“ Um er að ræða fjölbreytta sýningu þar sem Gæflaug sýnir 96 verk sem unnin eru með kol, krít, vatnslitum, olíu og með fjöl- tækni. Gæflaug hefúr búið á Akranesi ffá árinu 1978 og vann lengi sem leikskólakennari en snéri sér alfarið að myndlist á árunum 1995- 96. Vann þá með börnum í myndlist á leik- skólum á Akranesi. Arið 2001 gaf hún út bókina Orvandi myndlist. Gæflaug hefúr haldið eina einkasýningu og árið 1997 hélt hún sýningu með föður sínum Birni Halldórssyni, gullsmið. Hún hefur lagt stund á vefnað, keramik og mynd- list með margs konar tækni. Sýningunni lýk- ur 25. júlí og er Listasetrið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18. Draumkenndar fantasíur Aðalheiður Skarphéðinsdóttir sýnir graf- íkmyndir, unnar í þurrnál og vatnsliti í Fjöruhúsinu á Hellnum á Snæfellsnesi. Myndirnar eru draumkenndar fantasíur um hafið og tilveruna og flestar unnar á árinu. Aðalheiður hefur haldið 9 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga heima og er- lendis. Sýningin stendur firam til 1. ágúst. Ahrif í stofunni heima Systumar Jóhanna og Margrét Olgu- og Leópoldsdætur halda sölusýningu á verkum sínum á Irskum dögum á Akranesi. Sýning- una kalla þær „AHRIF“. Jóhanna hefur gert vamslitamyndir þar sem hún túlkar þau áhrif sem annars vegar Snæfellsjökull og hins veg- ar Grábrókarhraun hafa haft á hana, en þær systur em aldar upp í Hreðavatnsskála, sem er í miðju Grábrókarhrauni eins og kunnugt er. Margrét hefúr unnið textfiverk, dúka og löbera og notar meðal annars íslenskar lækn- ingajurtir, sem flestar em auk þess úr Grá- brókarhrauni, í verkin. Þannig sameinar hún að vera hvort tveggja læknir og myndlistar- maður. Báðar hafa þær áður haldið sýningar á verkum sínum á Vesturlandi, í Reykjavðc og í Sandgerði. Sýningin er haldin heima í stofú hjá Jó- hönnu, Bakkatúni 20 á Akranesi og opnar föstudaginn 9. júlí kl. 13:00. Opið verður föstudag, laugardag og sunnudag kl. 13:00 - 18:00. Allir em velkomnir og heitt á könn- unni allan daginn. Heimasíða glöggra systra er: www.leopold.is/gloggarsystur Þrjár sýningar Um síðustu helgi vom tvær einkasýning- ar opnaðar í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi. Páll Guðmundsson listamaður á Húsafelli opnaði sýningu á höggmyndum og líbarítverkum í anddyri og á gangi Safnaskál- ans. Þar sýnir Páll 28 verk, flest unnin í lí- baríthellur auk nokkurra höggmynda. Sýn- ing Páls verður opin til 15. september. Jó- hanna Sveinsdóttir, listakona opnaði sama dag sýningu á grafíkverkum á veggjum Mar- íukaffis. Þar sýnir hún grafíkverk unnin með ýmissi tækni, svo sem stálætingu, ferrotintu, rafmagnsþurmál og dúkristu. Sýning Jó- hönnu stendur út júlímánuð. Auk þessara tveggja sýninga verður fram- hald á sýningu Þórarins Helgasonar, ham- skera á ýmsum uppstoppuðum dýmm, svo sem fiskum, fúglum, dádýmm og fleiri skepnum. Aldrei fyrr hafa svo margir listamenn haldið sýningar í Safnaskálanum í einu. Fjölbrautaskóli Snæfellinga Grundargötu 44 - 350 Grundarfjörður - Sími: 430 8400 Þroskaþjálfi/sérkennari Laus er til umsóknar heil staða þroskaþjálfa eða sérkennara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Starfið felst í kennslu á starfsbraut og umsjón með nemendum brautarinnar. Samkvæmt 17. gr. laga nr. 86/1998 um lögvemdun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra þurfa umsækjendur að hafa kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Kennarasambands Islands og fjármálaráðherra. Fjölbrautaskóli Snæfellinga tekur til starfa í ágúst 2004 og verður hann staðsettur í Gmndarfirði. Skólinn verður leiðandi í breyttum kennsluháttum og skipulagi skólastarfs á framhaldsskólastigi, m.a. með hagnýtingu upplýsingatækni í staðbundnu námi, dreifnámi og fjamámi. Hugmyndafræði skólans gerir ráð fyrir einstaklingsmiðuðu námi með áherslu á hópa- og verkefnavinnu. Leitað er að starfsfólki sem hefur áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2004. Gert er ráð fyrir að allir starfsmenn skólans sitji námskeið áður en skólastarf hefst þar sem nýir kennsluhættir og vinnubrögð verða þjálfuð. Námskeiðið verður haldið 9. -13. ágúst í Grundarfirði. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara (gudbjorg@fsn.is) eða Pétri Inga Guðmundssyni aðstoðarskólameistara (petur@fsn.is) í síðasta lagi 26. júlí 2004. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.menntagatt.is, undir Sérverkefni MRN og hjá skólameistara (sími: 864-9729) eða hjá aðstoðarskólameistara (sími: 868-3618). Skólameistari

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.