Skessuhorn - 14.07.2004, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 14. IULI 2004
jnlásijnu^
Þær höfðu í nógu að snúast fyrir og
um helgina. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
og Rakel Óskarsdóttir markaðsfulltrú-
ar Akraneskaupstaðar báru hita og
þunga af skipulagningu Irskra daga.
Bæjarhátíðin írskir dagar fór
fram á Akranesi um sl. helgi. I
stuttu máli má segja að hátíðin
hafi tekist ífábærlega vel enda
fór saman viðamikil og fjöl-
breytt dagskrá, ágætt veður og
góð stemning um allan bæ.
Sigrún Osk Kristjánsdóttir
átti sæti í undirbúningsnefnd
Irskra daga en með henni í
nefhdinni voru þau Rakel Osk-
arsdóttir markaðsfulltrúi, Aðal-
steinn Hjartarson sviðsstjóri,
Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri
og Hugi Harðarson verslunar-
stjóri, en hann sat í nefndinni
sem fúlltrúi Markaðsráðs Akra-
ness. Aðspurð sagðist Sigrún
Osk vera í senn stolt og glöð
fyrir hönd nefndarinnar með
hvernig til tókst. „Þetta gekk
allt saman eins og best verður á
kosið. Það var mikil stemning
um allan bæ og hvarvetna var
fólk sem skemmti sér vel, enda
var dagskráin fjölbreytt og
höfðaði til flestra aldurshópa.
Götugrillið sló í gegn á föstu-
dagskvöldinu og það var grillað
bókstaflega út um allan bæ.
Víða myndaðist stemning sem
hafði jákvæð áhrif á aðra dag-
skrárliði síðar um helgina. Allt
sem minnti á frændur okkar Ira
seldist upp fyrir föstudags-
kvöldið, svo sem skreytingar,
fánar og flögg og skilst mér að í
Pennanum hafi t.d. selst yfir 3
þúsund blöðrur í írsku fánalit-
unum“, sagði Sigrún Osk.
Svo virðist sem Irskir dagar
séu rækilega búnir að festa sig í
sessi en þetta er í 5. skipti sem
hátíðin er haldin. Að sögn Sig-
rúnar er gert ráð fyrir að 8-10
þúsund gestir hafi heimsótt bæ-
inn og er það vafalítið met. Þar
af voru um 2500 manns vegna
Skagamóts 7. flokks í fótbolta
sem fram fór á Jaðarsbökkum.
Aðspurð segir hún að ekkert eitt
standi uppúr, þegar hún er ynnt
eftir viðbrögðum við einstökum
dagskrárliðum. „Þó má nefna
nokkur atriði. Það mættu hátt í
tvö þúsund manns á Iopapeysu-
ball með Pöpunum og Sh'ta-
móral í Sementsskemmunni á
laugardagskvöldinu og er það
vafalítið eitt stærsta ball sem
haldið hefur verið í bænum. Við
fengum 40 manns til að keppa
um titilinn rauðhærðasti Islend-
ingurinn, 30 lið kepptu í sand-
kastalakeppninni, það var met-
þátttaka í dorgveiðikeppninni
og færri komust að en vildu í
markaðs- og menningartjaldinu
okkar. Allt þetta lýsir góðum
viðbrögðum og frábærri stemn-
ingu hjá okkur. Veðrið var líka
ágætt alla helgina; besti dagur
sumarsins á föstudaginn en ör-
lítið svalara á laugardeginum.
Það voru allir í hátíðarskapi og
fólk kom víða að; vinir, burt-
fluttir Skagamenn og margir
fleiri. Ef eitthvað hefði e.t.v.
mátt betur fara var það að eng-
inn fékkst til að halda dansleik
fyrir unglingana sem ekki máttu
fara á lopapeysuballið þar sem
aldurstakmark var 18 ár. Við
verðum bara að bæta úr því á
næsta ar,
lokum.
sagði Sigrún Ósk að
MM
Þessar stúlkur sigruðu i sandkastalakeppnmm.
Það er öllum bæjarfelogum
nauðsyn að eiga góða Ijós-
myndara sem festa slíka við-
burði á filmu. Þeir létu sitt ekki
eftir liggja; Hilmar Sigvaldason
og Guðni Hannesson.
Það
mátti sjá marga
í írsku fánalitunum.
Sturta eftir sandmn.
Þessi tók þátt í kepþni um rauðhærðasta Islendinginn. Verðlaunahaf-
inn; Sara 11 ára Garðbæingur, fékk flugmiða til írlands í verðlaun.