Skessuhorn - 04.08.2004, Qupperneq 1
Nýr framherji
Nýr framherji er genginn
til liðs við IA og verður lög-
legur með liðinu fyrir næsta
deildarleik. Sá heitir Richard
Michael Barnwell og kemur
frá Eistneska liðinu Flora
Tallin.
Sjá allt um bolta vikunnar á
bls 14 og 15.
Næg atvinna
Atvinnuástand á Vestur-
landi er með betra móti
þessa dagana og víða vantar
fólk til starfa. Sjá bls. 3
Það má teljast kraftaverk að ökumaður fullhlaðins malarflutningabíls sem tór út af brúnni á Laxá í Dölum um nónbil sl. þriðjudag skyldi sleppa
lítið slasaður, eftir að bíll hans hafnaði á hvolfi á klöpp 10 metra undir brúnni. Tildrög slyssins voru þau að malarbíllinn lenti á jeppabifreið sem
var að koma úr gagnstæðri átt á brúnni. Til að forða stórslysi sveigði bílstjóri malarbílsins útaf brúnni með fyrrgreindum afleiðingum.
Jeppabifreiðin skemmdist talsvert við áreksturinn en ökumann, og farþega sem með honum voru, sakaði ekki. Hús malarflutningabílsins er mjög
illa farið og eins og áður segir er kraftaverk að ekki fór verr. Malarflutningabíllinn var frá verktakafyrirtækinu Borgarverki í Borgarnesi. Ljósm.: GE
ÞrefaÍt lengra frá Patreksfirði en Búðardal
Maður sem talinn er hafa ver-
ið undir áhrifum ffkniefna skaut
á hús, bíl og bát á Reykhólum
að morgni síðastliðins laugar-
dags. Lögregla var kölluð til
klukkan hálfellefú um morgun-
in en hún kom ekki á staðinn
fyrr en um þrjúleytið og sérsveit
ríkislögreglustjóra um sjöleytið
um kvöldið. Maðurinn var þá á
bak og burt en hann náðist ekki
fyrr en á mánudag í Reykjavík.
Ibúar á Reykhólum eru
óánægðir með að viðbragsflýti
lögreglu skuli ekki vera meiri en
raun ber vitni og gangrýna m.a.
vinnubrögð Neyðarlínunnar.
„Neyðarlínan er greinilega
ekki að standa sig sem skildi og
okkur hér á staðnum þótti und-
arlegt að geta ekki fengið beint
samband við lögregluna á Pat-
rekstirði heldur aðeins Neyðar-
línuna og þar virðast upplýsing-
anar hafa farið hægt í gegn,“
segir Bjöm Samúelsson gisti-
húsaeigandi á Reykhólum. Þá
bendir hann á að þriggja tíma
akstur sé frá Patreksfirði en
Reykhólar tilheyra því lög-
regluumdæmi en hinsvegar sé
ekki nema þriggja kortera akst-
ur frá Búðardal. lrMeiri sam-
vinna á milli þessara löggæslu-
umdæma er í það minnsta fyrsta
skrefið. Það er allavega ótækt að
fólk þurfi að búa við að það taki
á fimmta tíma að fá lögreglu á
staðinn ef eitthvað kemur
uppá,“ segir Björn.
Einar Thorlacius sveitarstjóri
Reykhólahrepps sagði í samtali
við Skessuhorn að hann hefði
rætt við sýslumann og ríkislög-
reglustjóra um málið og óskað
eftir svörum við ákveðnum
spurningum sem hann kveðst
vonast til að geta kynnt á næsta
hreppsnefndarfundi. „Eg vildi
meðal annars fá að vita hvers-
vegna lögregla bægði ekki fólki
frá húsinu þar sem talið var að
byssumaðurinn hefðist við á
meðan beðið var eftir sérsveit-
inni. Einnig viljum við að sjálf-
sögðu fá að vita hversvegna bið-
in var svo löng sem raun bar
vitni. Það er mikilvægt að fara
yfir málið til að allir geti lært af
þessu atviki,“ segir Einar.
GE
Sony Ericsson
- gæði í gegn
med headsetti
Zzriú.
ynUcvmn!
Hyrnutorgi
Borgarnesi