Skessuhorn


Skessuhorn - 04.08.2004, Side 5

Skessuhorn - 04.08.2004, Side 5
^&cssunu... MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2004 5 „Starf í björgunarfélagi er spurning um lífsstíl og því fylgir ábyrgð“ Nítján ára Skagastúlka kemur víða við Birna ætlar að venda sínu kvæði í kross í vetur og læra eidamennsku í húsmæðraskóla og nema þar eitt- hvað annað en að sjóða núðlur. Birna og Bella vinkona hennar. Mikið hefur verið um annir hjá björgunarfélögum á Islandi það sem af er sumri og varla líð- ur sá dagur að ekki sé skýrt frá því í fréttum að óskað hafi verið eftir aðstoð björgunarfólks við verkefni af ýmsu tagi. Björgun- arfélag Akraness er þar engin undantekning, en síðastu verk- efni þess fólust í þátttöku í um- fangsmikilli leit að Sri Rham- awati sem ætlað er að ráðinn hafi verið bani í Reykjavík aðfaranótt 4. júlí síðastliðinn og leit að hópi franskra ferðamanna sem leitað var á hálendi Islands. En hvers konar fólk er það sem eyðir tíma sínum og kröftum í sjálfboðinni vinnu til hjálpar öðrum og hvað er það við björgunarstarfið sem heillar? Krafa um þekkingu og þjálfun Birna Björnsdóttir er 19 ára Akurnesingur sem þrátt fyrir ungan aldur hefur starfað með Björgunarfélagi Akraness í þrjú ár, en hún gekk í félagið um leið og hún hafði aldur til 16 ára gömul. Hún situr nú í stjórn fé- lagsins, en á síðasta aðalfundi var hún kosin ritari. Birna segir að það sem heillaði í fyrstu hafi ver- ið útiveran og ævintýramennska en hún hafi brátt komist að því að þó starfið sé skemmtilegt er það líka mjög krefjandi og því fylgir ábyrgð. „Starf í björgunar- sveit er fyrst og fremst spurning um lífsstíl og vilja til að gefa tíma sinn í sjálfboðavinnu. Það er heilmikil ábyrgð sem fylgir því að klæðast björgunarfélagsgall- anum og á okkur sem það gerum hvílir krafan um að búa yfir á- kveðinni þekkingu og bregðast fljótt við þegar kallið kernur." Það gefur auga leið að til þess að geta tekist á við þau mál sem koma til kasta björgunarfólks þarf mannskapurinn að vera vel þjálfaður og mikið af starfi fé- lagsins felst einmitt í þjálfun og undirbúningi. Skyndihjálp, leit- artækni, fjallabjörgun, rústa- björgun - allt þetta og meira til, eru þættir sem vel þjálfaður björgunarmaður þarf að kunna góð skil á og árangur starfsins veltur á því hversu vel hefur tek- ist til með þjálfunina. Gaman og alvara ,fylargir halda að við í Björg- unarfélaginu gerum lítdð annað en sprikla á fjöllum, selja flug- elda og fara í skemmtireisur á öflugum bílum með rándýran tækjabúnað,“ segir Birna. „Reyndar eru ferðirnar oftast mjög skemmtilegar, enda leggj- um við mikið upp úr því að hafa gaman af starfinu og andinn í fé- laginu er mjög góður. En undir niðri kraumar alvaran og mark- mið þessara ferða er auðvitað fyrst og fremst að þjálfa okkur til björgunarstarfa og takast á við raunveruleg verkefni sem því miður dúkka alltaf upp á af og til.“ Birna verður hugsi litla stund og bætir því við að það væri til lítils að eiga öflugan tækjabúnað og vilja til að hjálpa ef enginn væri þjálfaður til þess að nota tækin og bregðast fljótt og rétt við í erfiðum aðstæðum. „Björgunarfélag Akraness held ég að megi fullyrða að sé vel þjálfuð sveit. Til marks um það varð félagið í öðru sæti á Björg- unarleikunum í fyrra, en það er keppni á vegum Slysavarnafé- lagsins Landsbjargar þar sem sveitir keppa sína á milli í þeim greinum sem við þurfum að þjálfa okkur í. Þeim árangri náð- um við auðvitað bara vegna þess að við erum iðin við þjálfunina." Undirdjúpin heilla Auk þess að starfa ötullega með Björgunarfélagi Akraness hefur Birna tekið sér ýmislegt fyrir hendur sem kannski telst ekki hefðbundið fyrir 19 ára stelpu. Til dæmis hefur hún ver- ið í afleysingum hjá Landhelgis- gæslunni, þó hún vilji sjálf ekki gera mikið úr því. „Það er nú ekkert hetjuverkefni," segir hún, „ég hef hoppað inn og leyst af sem messi í nokkra túra, þetta hefur verið smá aukavinna í jóla- og sumarfríum." I gegnum björgunarstarfið fékk Birna líka mikinn áhuga á köfun, en segir þó að sér hafi eiginlega verið hrint út í það sport. „Vinur minn vissi að ég hafði eitthvað verið að pæla í þessu og nánast skráði mig á námskeið. Þá gat ég náttúru- lega ekki annað en drifið mig.“ Birna hlær og segir að eftir þetta námskeið, sem var bæði verklegt og bóklegt, hafi hún öðlast rétt- indi sem sportkafari en hún stefnir ótrauð að því að halda á- fram og ná sér í réttindi sem full- gildur björgunarkafari. Til þess þarf þó frekari þjálfun og fleiri námskeið. Skútusiglingar Af öðrum ævintýraverkefnum Birnu er rétt að nefna skútusigl- ingu sem hún fór nýverið í, en um var að ræða ferð á vegum Ocean Youth Trust Scotland og Siglingasambands Islands, þar sem ungt fólk frá Skptlandi og Islandi fékk tækifæri til þess að spreyta sig á skútusiglingu á milli landanna tveggja. Aðdragandinn að þeirri ferð var sá að Birna sá umfjöllun urn verkefnið í Morg- unblaðinu og fannst tilhugsunin um að taka þátt í því spennandi. Hún var ekkert að tvínóna við hlutina heldur hafði samband við Siglingasambandið og munstraði sig um borð, en alls tóku 8 Islendingar þátt í verk- efhinu. Nýliðaþjálfun A haustin auglýsir Björgunar- félag Akraness eftir nýliðum og þeirra sem skrá sig til þátttöku bíður tveggja ára þjálfun áður en þeir teljast fullgildir björgunar- menn. Á síðasta ári sá Birna, á- samt Gunnari Agnari Vilhjálms- syni, Jóhanni Pétri Péturssyni og Belindu Eir Engilbertsdóttur um þjálfun nýliða og hún bendir öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér starfið að kíkja á kynn- ingarfund. „Þetta er kjörinn vettvangur fyrir þá sem vilja fást við skemmtileg og krefjandi verkefni í góðuin félagsskap. Auðvitað fylgir þessu ákveðin á- byrgð, eins og ég vék að áðan, en maður lærir líka hluti sem mað- ur býr að alla ævi,“ fullyrðir Birna. „Það hentar auðvitað ekki öllum að sprikla um fjöll og firnindi en það er fullt af verk- efnum fyrir alla. Við þurfum til dæmis fólk í heimahóp sem er í húsi og er til staðar, bæði fyrir og eftir úköll, þeir sem eru í svæðis- stjórn sjá um skipulagningu og framkvæmd björgunaraðgerða og svona mætti lengi telja. Það þarf að sinna verkefhum á mörg- um sviðum og allir sem á annað borð hafa einhvern áhuga á svona starfi ættu að finna eitt- hvað við sitt hæfi.“ Einhvers staðar verð ég að læra að elda! I sumar vinnur Birna á Upp- lýsinga- og kynningarmiðstöð Vesturlands í Borgarnesi, en í vetur ætlar hún að venda sínu kvæði í kross og skella sér í Hús- mæðraskólann í Reykjavík. „Eg útskrifaðist úr FVA í vor, ári á undan jafnöldrum mínum og ætla að nota þetta forskot til þess að velta því fyrir mér hvað ég vil gera í framtíðinni og læra að elda. Eldamennska og svoleiðis hefur ekki verið mín deild, en ég vona að eftir fjóra mánuði í hús- mæðraskóla geti ég klórað mig fram úr því að elda eitthvað flóknara en þriggja mínútna núðlur. Einhverstaðar verð ég að læra þetta!“ Að þessum orðum sögðum er Birna roldn. ALS

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.