Skessuhorn


Skessuhorn - 04.08.2004, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 04.08.2004, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2004 o&iisaunu... Svipmyndir af starfsemi Jámblendifélagsins Það getur orðið heitt - og skítugt - í koiunum við störf hjá Járnbiendi- verksmiðjunni á Grundartanga. Kristján S. Bjarnason og Jóhann Steinar Guðmundsson eru hér að stöfum á verkstæðinu. Betra að vera einbeittur við iðju sína því hér er mikið af fióknum tækjabúnaði sem verður að vera f lagi. Útsalan hefst á morgun, fimtudaginn 5. ágúst Allt að 70% afsláttur Opið til kl. 21.00 Stykkishólmsbœr í þ róttakennarar Staða íþróttakennara er laus til umsóknar við Grunnskólann í Stykkishólmi. Aðstaða til íþróttakennslu í Stykkishólmi er með því besta sem gerist og þar hefur lengi verið öflugt íþróttalífó vegum skóla og íþróttafélaga. Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, berist til Gunnars Svanlaugssonar, skólastjóra, sem veitir allar nánari upplýsingar í símum 438 1376 og 864 2264 Grunnskólinn í Stykkishólmi Borgorbraut 6 340 Stykkishólmi Rafn Svanbergsson að gera við töppunargat og töppunarrennu inni í ofnhúsinu. Á ferð sinni um Grundar- tanga fyrir skömmu tók frétta- ritari Skessuhorns, Anna Lára Steindal, þessar myndir í og við Járnblendiverksmiðjuna. Gefa þær innsýn í starfsumhverfi verksmiðjufólksins en störfin geta verið bæði fjölbreytt og skemmtileg sé starfsandinn góður. Hver segir að það séu bara karlastörf í verksmiðjum sem þessum? Orðagjálfur Hlyns Þórs Laugardaginn 7. ágúst kl. 14, opnar Hlynur Þór Magnússon ljóðasýningu í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin ber heitið „OrðagjáIfur“ og er opin alla daga kl. 11.00-17.00 til 5. september n.k. Hlynur Þór Magnússon, sem nú orðið titlar sig skrifara, er fæddur í Leirvogstungu í Mos- fellssveit árið 1947 en er hrein- ræktaður Breiðfirðingur og Barðstrendingur í móðurætt. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og BA-prófi í sagnfræði og fleiri greinum frá Háskóla Islands. Var um tíma á Italíu við nám í ítölsku og ítalskri menningar- sögu og nam leiklist í Reykjavík einn vetur. Hefur mest af starfsævinni stundað ýmist kennslu eða blaðamennsku með viðkomu í svo ólíkum starfs- greinum sem stjórn vinnuvéla, fangavörslu og sjómennsku. Var blaðamaður á Morgunblaðinu á námsárum, löngu síðar fyrsti blaðamaður vikublaðsins Bæj- arins besta á ísafirði í fullu starfi, síðan ritstjóri Vestfirska fréttablaðsins um átta ára skeið og enn síðar ritstjóri fréttavefj- arins bb.is á Isafirði í nokkur ár. Hlynur hefur stundað ljóða- smíð og kvæðagerð frá æskuár- um en flíkað henni afar lítið. I fyrstu og fram eftir unglingsár- um orti hann að mestu leyti með hefðbundnum íslenskum hætti enda með þokkalega traust brageyra að eigin dómi en varpaði síðan stuðlum og rími fyrir róða að mestu leyti. BORGARBYGGÐ L. ✓ Iþrottamiöstööin Borgarnesi Starfsmaður óskast íþróttamiðstöðin í Borgarnesi óskar eftir starfsmanni í fullt starf. (Kona vegna gæslu í baðklefum kvenna). Starfiðer vaktavinna sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmannvirki úti og inní, í íþróttahúsi auk þrifa, afgreiðslu o.fl. Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilnings á íþrótta- og æskulýðsstarfi. Laun samkv. launatöflu SFB. Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnispróf sundstaða. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. september n.k. Vinnustaðurinn er reyklaus. • Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofunni Borgarbraut 11. • Umsóknarfrestur er til mánudagsins 1 6. ágúst. 2004. • Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna. Nánari upplýsingar gefur: Bæjarritari í síma: 437-1224. íþrótta- og œskulýðsfulltrúi SM5 LEIKUR VINNINGAR: SNJÓSLEÐI, FJÓRHJÓL, ÆVINTÝRAFERÐIR Þú kaupir rétta kippu og geymir kvittunina sendir SMS skeyti með fjölda kippa í 1919 - t.d. becks(bil)2 og þú ert kominn í pottinn Allar nánari upplýsingar á becks.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.