Skessuhorn


Skessuhorn - 04.08.2004, Qupperneq 11

Skessuhorn - 04.08.2004, Qupperneq 11
■jnCidsuiiui^ MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 2004 11 7^e/i/i//i/i~~ó Þorvaldur T. Jónsson kurl séu komin til grafar í málinu. Það er ótrúleg slembilukka ef hægt er að komast upp með það að bjóða út skólaakstur á þeim grundvelli að taka lægsta til- boði, ganga síðan framhjá lægsta tilboði í Borgarnesi með einhverjum óskiljanleg- um rökum en láta þau sömu rök ekki gilda í Varmalandi. Þetta er enn eitt dæmið um það þegar útboð er röng að- ferð við að velja þjónustuað- ila fyrir sveitarfélög. Ekki síst af þeirri ástæðu að í út- boði er að jafnaði gert ráð fyrir því að samið sé við þann sem býður lægsta verðið en þegar til kastanna kemur skipta fleiri þættir máli. Niðurstaðan í þessu útboði er því sú að auk þess að meirihlutinn í Borgarbyggð brýtur sínar eigin útboðs- reglur, traðkar hann á rétti þeirra sem skila inn gildum tilboðum og mismunar til- boðsgjöfum eftir geðþótta. Þorvaldur T. Jónsson Það er auðvitað bót í máli að þeir traustu aðilar sem hafa sinnt þessari þjónustu á liðnum árum munu flestir gera það áfram. Einn þeirra situr þó eftir með verkefna- lausa bíla og er það jafnframt sennilega sá eini sem skilaði inn gildum tilboðum á rétt- um tíma í Varmalandsakstur- inn. Kærunefnd útboðsmála mun fjalla um hans mál og e.t.v. fleiri sem varða útboðið þannig að ekki er víst að öll Utboð á skólaakstri í Borgarbyggð Akstur barna til og frá skóla er viðkvæmt og vand- meðfarið mál. Börnin sitja í bílnum tvisvar á dag í lengri eða skemmri tíma, í misjöfn- um veðrum og færð um mis- góða vegi, nývöknuð á leið út í daginn eða þreytt í lok skóladags. Að ýmsu er að hyggja þegar fyrirkomulag skólaaskturs er ákveðið, m.a. þarf kostnaður að vera hóf- legur, bíllinn öruggur og bíl- stjórinn þarf að hafa góð tök jafnt á bíl sem börnum. I Borgarbyggð höfum við átt því láni að fagna undanfarin ár að hafa góða þjónustu á þessu sviði. Kostnaður hefur verið lágur í samanburði við aðra skóla og aðfinnslur við skólaakstur nánast óþekktar, hvort sem er af hálfu barna, foreldra, skólayfirvalda eða bílstjóra. Það var því verið að ýfa lygnan sæ þegar meirihluti bæjarstjórnar Borgarbyggðar ákvað á liðnu vori að bjóða út skólaakstur við Grunnskóla Borgarness og Varmalands- skóla. Eftir mikinn vand- ræðagang og mörg lögfræði- álit um texta í útboðsgögnum og gildi tilboða var ákveðið að semja við Sæmund Sig- mundsson um allan akstur við Varmalandsskóla þar sem hann var talinn eiga lægstu gildu tilboð, þrátt fyrir að hafa ekki á tilsettum tíma skilað inn öllum þeirn gögn- um sem áskilin voru sam- kvæmt útboðslýsingu. Um skólaakstur af Mýrum var samið við þá firnm einstak- linga sem hafa annað þeim akstri undanfarin ár og áttu óumdeilanlega lægstu gildu tilboð þar. Þá var samið við Þorstein Guðlaugsson um akstur í Borgarnesi þrátt fyr- ir að Sæmundur hafi átt lægsta tilboð þar ef sömu rökum er beitt eins og í Varmalandi. I Skessuhorninu þann 14. júlí sl. er frétt um útboðsmál- in og m.a. rætt við Helgu Halldórsdóttur forseta bæj- arstjórnar. Þar skýrir hún út hvers vegna gengið var fram- hjá lægsta tilboði í akstur í Borgarnesi og samið við þann sem átti næst lægsta til- boðið. Utskýringin felst í því að „það var ekki talið íþyngj- andi fyrir rekstur Sæmundar Sigmundssonar“. Þetta er mjög athyglisverð rökfærsla. Er það þá út- gangspunkturinn í ákvörðun um hvernig á að meta tilboð í skólaakstur í Borgarbyggð hvort niðurstaðan sé íþyngj- andi fyrir þennan eina til- tekna rekstraraðila? Hvers eiga hinir að gjalda sem jafn- vel fengu engan akstur? Vissulega varpar þessi afstaða forseta bæjarstjórnar ljósi á niðurstöðuna í Varmalandi þar sem samið er við Sæ- mund þrátt fyrir að meiri- hluti fenginna lögfræðiálita bendi til þess að hans tilboð séu ógild en gengið fram hjá öðrum sem skiluðu inn til- boðum sem eru óvéfengjan- lega gild. MINNING MINNING Jakob Jónsson - minning Jakob Jónsson, bóndi á Varmalæk lést á Sjúkrahúsi Akraness þann 22. júlí sl. Jakob var fæddur 7. desem- ber árið 1916. Hann var kvæntur Jarþrúði Grétu Jónsdóttur og áttu þau sex böm. Kveðja frá Kleppj árnsreykj askóla Skóli heíúr verið á Kleppjárnsreykj- um í rúm 40 ár, eða frá 1961, að far- skólar vom lagðir af í Borgarfirði í kjölfar þess að hrepparnir norðan Skarðsheiðar sameinuðust um rekstur eins skóla. Bygging skólans á Klepp- járnsreykjum hefur staðið nær allar götur síðan, en segja má að nú sé kom- ið að lokaáfanga byggingarsögu hans með áformum um frágang skólalóðar. A þetta er minnst við andlát Jakobs Jónssonar bónda á Varmalæk, að hann var um langt árabil einn ötulasti for- göngumaður bygginga skólans. Mér kemur í hug atvik frá fundi með stjórn S.S.B.N.S., en svo var það kallað byggðarsamlagið um sameiginleg málefni samtaka sveitarfélaga í Borg- arfirði norðan Skarðsheiðar, að Jakob ræddi næstu skref í byggingarmálum skólans. Hann hafði ekki mörg orð um fyrirhugaðar framkvæmdir, en sagði allt í góðum farvegi, enda yrði að þoka málinu áfram. I lok máls síns nefndi Jakob það þó, að sér þætti vænt um, ef oddvitarnir gætu leyst til hans hluta af láni hans, til að hann gæti greitt á- burðinn sem hann hafði pantað. Eftir fundinn fékk ég útskýringu á ósk Jak- obs og þá kom í ljós að hann hafði oft- ar en ekki liðkað til með aðstandend- um skólans þegar brýnt var að halda á- fram framkvændum en fé skorti. Að hann hafi á vissan hátt haldið bygging- arframkvændum gangandi og notað til þess innlegg bús þeirra hjóna. Þannig var hann, hafði ekki mörg orð um hlutina en lét verkin tala, og víst er um það að hann var ötull og ó- deigur áhugamaður um allt er styrkja mætti byggðina. Skólamál voru þar engin undantekning, og einlægur var áhugi hans fram til hins síðasta. Eg minnist þess enn er ég kom fyrst að Varmalæk haustið 1970 hversu hlý- legar móttökur þeirra hjóna voru. Eg mun seint gleyma því er Jakob settist það kvöld við hljóðfærið og lék afar fallegt lag, og minnisstæð er líka fræðslan um steinana sem hann hafði safnað að sér. Jakob var mikill bóndi, en einnig ljóðskáld og hagyrðingur, tónlist- arunnandi og fræðimaður. Hann var héraðshöfðingi. Og margt fleira mætti tíunda og allt gott, frá samskiptum við þig í gegnum tíðina, en ég á það og geymi fyrir okkur tvo. Að leiðarlokum vil ég þakka þér allt það sem þú áorkaðir fyrir Kleppjárns- reykjaskóla, byggð í Borgarfirði til hagsbóta. Við hjónin biðjum Jarþrúði, hörn- um ykkar og fjölskyldum Guðs bless- unar. Kleppjái-nsreykjum, 21.júlt 2004, GuSlaugur Óskarsson, skólastjóri

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.